Morgunblaðið - 08.12.1993, Side 57
57
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
„Tilraunastarfsemi á börnum“
Athugasemd frá Karatefélagi Reykjavíkur
| Frá Jónínu Olesen:
Laugardagskvöldið- 27. nóvem-
ber voru sýndar í fréttum ríkissjón-
I varpsins myndir af keppni sem
hafði verið haldin þann sama dag.
Þar voru greinilega lítt þjálfuð
I börn og unglingar að keppa í ein-
hveiju sem skýrt hefur verið
fujuka-do. Ekki nóg með það, held-
ur áttu að vera þarna karate-menn
og judo-menn ásamt enn fleiri teg-
undunum af bardagaíþróttamönn-
um. Þessi keppni hafði verið kynnt
í blöðum eins og að nú ætti að fá
úr því skorið hvaða bardagalist
stæði uppi sem sigurvegari, þ.e.
karate-, judo-, fujuka-do-, kung-
fu-, kick box- og ninjutsu-menn
áttu að eigast við. Við hjá KFR
héldum að þetta væri opin keppni
og nokkrir höfðu hug á að skrá
sig, en fengu þau svör að þetta
væri aðeins fyrir félagsmenn þeirra
sem stóðu að mótinu. Nú fór þetta
að verða forvitnilegt, því allir vissu
að þetta félag var stofnað í septem-
1 ber og gefur augaleið að ekki
næst mikil reynsla á nokkrum
mánuðum. Undirrituð fylgdist með
) þessu móti í rúmlega tvo klukku-
tíma, tvo mjög pínlega (sorglega)
klukkutíma. Þama vora hvorki
karate- né judomenn. Því miður
var þetta mun lágkúralegra en ég
bjóst við. Þama vora ungir dreng-
ir að slást mjög ómeðvitað og voru
stigin augljóslega tilviljunarkennd.
Tæknin var engin og virðingin fyr-
ir andstæðingnum mjög takmörk-
uð. Markmiðið virtist vera að djöfl-
ast sem mest og gilti þá einu hvar
högg og spörk lentu. Það var allt
að því ómögulegt að átta sig á
stigagjöf dómaranna í þessum
hamagangi. Eftir að hafa leitað
upplýsinga um reglur, var það
, Pennavinir
Frá Brasilíu skrifar 28 ára við-
I skiptafræðingur með margvísleg
w áhugamál:
Daniel F. Vitor,
Rua Major Zanani 318,
12080-060,
Taubate, SP,
Brazil.
Tvítug japönsk stúlka með áhuga
átónlist, bókalestri, íþróttum o.fl.:
Ayako Ohno,
3-3-17 Shirayama-cho,
Kasugai-shi,
Aichi,
487 Japan.
Frá Ghana skrifar 23 ára stúlka
með áhuga. á ljósmyndun, kvik-
myndum og póstkortum:
Dorothy Barba Davis,
P. O. Box 1063,
Jackson Str.,
Cape Coast,
| Ghana.
Italskur 28 ára karlmaður, nem-
ur sagnfræði við háskólann í Písa:
| Marcello Paolocci,
VCia Marina Vecchia, 101,
1-54100 Massa,
Italia.
LEIÐRÉTTIN G AR
1984 ekki 1948
I minningargrein Ástu Jónsdótt-
ur frá Deildará um Guðmundu Jó-
hannsdóttur kennara frá Kirkjubóli
í Múlasveit í Morgunblaðinu í gær
urðu stafavíxl í ártali, þar sem get-
ið var um dánarár Gunnars, yngri
bróður Guðmundu. Hann dó árið
1984, en ekki 1948 eins og misrit-
Paðist í greininni. Hlutaðeigendur
eru innilega beðnir afsökunar á
þessum mistökum.
Rangt föðurnafn
Rangt var farið með föðurnafn
Sveins Rúnars Eiríkssonar í mynda-
texta með frétt af Kauphallarmóti
Bridgesambands íslands í Morgun-
blaðinu í gær. Er beðist velvirðing-
ar á þessum mistökum.
ekkert auðveldara vegna þess að
þessi keppni var hugsuð til að búa
til reglurnar, þær voru varla til!
Þetta kalla ég tilraunastarfsemi
og mér finnst það helst vera í
gróðaskyni fyrir þann sem að þessu
stendur. Við sem höfum stundað
karate í fjölda ára hér á landi,
keppt erlendis og átt þátt í að efla
hróður karateíþróttarinnar hér-
lendis, hörmum mjög þessa þróun.
Þetta sem sást þama í Sjónvarpinu
er kolröng mynd af þeirri starfsemi
sem fram fer hjá karatefélögum
sem flest hafa metnað fyrir hönd
íþróttarinnar. Á íslandsmeistara-
mótum í karate hérlendis fær eng-
inn undir 12 ára aldri að keppa í
frjálsum bardaga og alls ekki nema
hann hafi æft 2-3 ár. Þar eru
reglur líka mjög strangar og fara
dómarar eftir alþjóðastaðli hvað
varðar snertingu, aga, klæðnað
o.fl. Það kom a.m.k. einu sinni
fyrir í þessari keppni að keppandi
reiddist svo að hann veittist að
dómaranum í offorsi. Slík hegðun
myndi leiða til brottvísunar af lei-
kvelli og jafnvel út úr húsinu ef
um karate-keppni væri að ræða.
Það sama gildir um ljótt orðbragð.
Keppandi á að vera það vel undir-
búinn fyrir keppni að hann hafi
stjórn á huga og líkama. Annað
þykir mér afar athyglisvert og það
er titill þess sem stóð að keppn-
inni, 10. dan. Almenningi til fróð-
leiks get ég upplýst að ef reglulega
er æft (þ.e. karate) tekur það góð-
an nemanda 5-7 ár að ná svörtu
belti, 1. dan. Þá er miðað við að
viðkomandi æfi hefðbundið karate.
Til að ná 2. dan. þarf svo að æfa
í tvö ár frá þeim tíma sem 1. dan.
var tekið. Og til að ná 3. dan þarf
að æfa í 3 ár og svona gengur
þetta koll af kolli. Þegar komið er
upp í 5.-7. dan er svo meira tekið
mið af hvernig viðkomandi starfar
að málum karate, hvort harin stuðl-
ar að útbreiðslu íþróttarinnar,
hvort hann kenni nemendum sínum
stig af stigi uppbyggingu þess stíls
sem um er að ræða o.s.frv. fyrir
utan að stunda hana sjálfur af
kappi. Við sem störfum að karate-
málum hérlendis myndum fagna
allri samkeppni, þar sem fag-
mennska og umhyggja nemenda
sæti í fyrirrúrrii. Allt annað er fúsk
og tel ég að ekki eigi að með-
höndla bardagaíþróttir með til-
raunir í huga.
Nú era ríflega 20 ár frá því að
karate-þjálfun hófst á íslandi. ís-
lenskir karate-iðkendur hafa æft
mikið erlendis hjá úrvals karate-
þjálfuram, keppt á mörgum sterk-
um viðurkenndum mótum og ávallt
borið sig drengilega. íslenskir kar-
ate-kennarar hafa því orðið tölu-
verða reynslu og kyngja ekki hvaða
vitleysu sem er. Við eram því síður
hrifin af að karate sé kennt við
slíkan ófögnuð sem áhorfendum
var boðið upp á íslenska ríkissjón-
varpinu.
Vil ég nú beina lokaorðum mín-
um til íslenskra foreldra og biðja
þá um að vera vakandi yfir því
hvar börnin þeirra æfa og mark-
miðsins með þjálfuninni. Ég vil
einnig hvetja efasemdarmenn til
að koma og fylgjast með karate-
æfingum hjá okkur hvenær sem
er og ræða við okkur um starfsem-
ina.
Með vinsemd og virðingu,
JÓNÍNA OLESEN,
2 dan Okinawa goju-ryu,
Karatefélagi Reykjavíkur.
VELVAKANDI
ERFITT AÐ GEFA
SMÁFUGLUNUM
VEGNA KATTANNA
ÞÓRÐUR Helgason, Selvogs-
granni 31, hringdi til Velvakanda
og kvartaði sáran undan því
hversu mikið væri af köttum í
Selvogsgranni og Sporðagranni.
Hann hefur í áraraðir gefíð smá-
fuglunum, en fínnst nú að hann
sé að leiða þá í gildra með matarg-
jöfunum því um helgina hafí sami
kötturinn, bjöllulaus, drepið tvo
þresti. Það var sárt að horfa upp
á og biður hann kattaeigendur
að huga að þessu.
TAPAÐ/FUNDIÐ
Gleraugoi töpuðust
BRÚN mjó spangargleraugu
töpuðust sl. laugardagskvöld ein-
hvers staðar á leiðinni milli
Kleppsvegar og Efstasunds.
Finnandi vinsamlega hafi sam-
band í síma 683842.
Gleraugu töpuðust
GLERAUGU í svörtu hulstri
töpuðust í Vesturbæ Reykjavíkur
fimmtudagirin 2. desember sl.
Finnandi vinsamlega hafi sam-
band í síma 29672 eftir kl. 17.
Fundariaun.
Týnt armband
GULLARMBAND tapaðist, lík-
lega á bílastæði Kringlunnar eða
inni á ganginum, si. sunnudag.
Finnandi vinsamlega hringi í síma
71831 eftir kl. 17. Vegleg fundar-
laun.
BARNAGLERAUGU
í VERSLUNINNI
EITT OG ANNAÐ
BARNAGLERÁUGU voru skilin
eftir í versluninni Eitt og annað,
Hrísateigi 47, í sumar. Eigandi
má hafa samband við verslunina
í síma 30331.
GÆLUDÝR
Kettlingar óskast
TVEIR kassavanir fallegir kettl-
ingar óskast, helst fyrir jól. Verið
svo væn að hringja í síma 658213
eftir hádegi.
D A G
10-18-
KRINGWN
Glæsilegir
skíðasamfestingar á börn
og unglinga á
frábæru verði
5%
staðgreiðsluafsláttur,
einnig af póstkröfum
greiddum innan 7 daga.
Stærðir: 90-110 kr. 3.900
120-140 kr. 4.900
150-180 kr. 6.900
3 litir
mmuTiuFmm
GLÆSIBÆ. S/MI812922
Canoii
FAX L 770
•Laser prentun____
•Veniulequr pappír
•64 gráskalar
•172 skammvalsminni
•tölvutengianlegt
•Hophringing
Kr. 198.700.-stgr .m/vsk.
SKRIFVELIN ■
SUÐURLANDSBRAUT 6, sImI 685277, FAX 689791
Canon