Morgunblaðið - 08.12.1993, Síða 59
59
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
íþrótta-
maður
ársins
Svartklæddir bræðurfrá Þýskalandi gengu til liðs við Frakka
Hálfdán og Rúnar reknir af
velli þegar ísland var yfir
- 18:17 gegn Frökkum, sem unnu 20:21. íslendingar mæta Svíum í Strasbourg í kvöld
„ÉG er sár. Þegar við vorum að slá Frakka útaf laginu, komu
dómararnir — þýsku bræðurnir Hans og Júrgen Thomas Frökkum
til hjálpar og ráku Hálfdán Þórðarson og Rúnar Sigtryggsson
af leikvelli, þannig að við stóðum eftirfjórir. Sjö mínútur voru
til leiksioka og við yfir (18:17) og til alls líklegir. Dómararnir brutu
okkur á bak aftur með mjög hörðum dómum. Ég hafði það alltaf
á tilfinningunni að þannig uppákoma gæti komið, því það var
mikið í húfi fyrir Frakka að leika til úrslita, en ein milljón ís-
lenskra króna eru í verðlaun fyrir sigurliðið hér," sagði Þorberg-
ur Aðalsteinsson, landsliðsþjálfari, eftir að strákarnir hans höfðu
aðeins tapað með eins marks mun, 21:20, fyrir Frökkum, sem
tefldu fram öllum sínum sterkustu leikmönnum. íslendingar
mæta Svíum f leik um þriðja sætið ídag, en Rússar lögðu þá
að velli, 23:19, í gærkvöldi.
Þáttur bræðranna frá Þýskalandi
var ekki búinn, því að þeir
slepptu tveimur vítaköstum á
Frakka; fyrst þegar Patrekur Jó-
hannesson komst í gegn og brotið
var á honum og síðan var brotið á
Valdimar Grímssyni í dauðafæri og
ekkert dæmt. Þegar staðan var
21:20 og tíu sek. til leiksloka, komu
þeir enn einu sinni á óvart. „Gunnar
Beinteinsson var með knöttinn og á
ferðinni að marki Frakka. Þá var
brotið á honum og dómaramir flaut-
uðu — ráku einn Frakkann af lei-
kvelli og dæmdu aukakast. Þeir
stöðvuðu þó ekki tímann fyrr en ein
sekúnda var eftir, þannig að við
gátum ekki sett upp í leikfléttu,
heldur urðum við að skjóta úr au-
kakastinu, sem heppnaðist ekki. Við
sátum eftir með sárt ennið — réðum
ekki við sjö leikmenn Frakka og tvo
Þjóðverja, sem voru á bandi þeirra,“
sagði Þorbergur.
Þorbergur sagði að strákarnir
hafi mætt grimmir til leiks og
ákveðnir að gefa ekkert eftir. „Við
komum Frökkum strax í opna
skjöldu með því að leika „a la Suður-
Kóreuvarnarleik", þrír - þrír. Þrír
leikmenn fóru vel út á völlinn til að
klippa á sóknarleik Frakkana, sem
vissu ekki sitt rjúkandi ráð. Þá lékum
við mjög agaðan sóknarleik, þannig
að strákamir voru að gera mjög
góða hluti hér. Ég vil sérstaklega
nefna nýliðann Rúnar Sigtryggsson,
sem lék sinn fyrsta landsleik. Hann
lék allan leikinn í vörn og sýndi
mjög góðan leik,“ sagði Þorbergur.
Frakkar byijuðu léikinn betur, en
íslendingar jöfnuðu 7:7, síðan kom-
ust Frakkar aftur yfir 10:7 og stað-
an í leikhléi var 11:8. íslendingar
jöfnuðu 17:17 og komust yfír 17:18.
Eftir það mátti sjá þessar tölur:
18:18, 20:18, 21:19, 21:19 og loka-
tölurnar 21:20.
Þeir sem skomðu mörkin voru:
Jón Kristjánsson 6/5, Valdimar
Grímsson 4, Gústaf Bjarnason 4,
Guðjón Arnason 3, Gunnar Bein-
teinsson 2, Patrekur Jóhannesson 1.
íslenska liðið misnotaði þrjú víta-
köst — eitt fór í slá, eitt framhjá
og eitt var varið. Guðmundur Hrafn-
kelsson stóð í markinu og varði 12
skot.
„Valdimar Grímsson, fyrirliði ís-
lenska liðsins, var ánægður með leik-
inn. „Við vissum að róðurinn yrði
erfiður og lékum þá af skynsemi —
okkur gekk vel og nýttum það út í
gegn. Dómararnir skemmdu síðan
leikinn fyrir okkur.“
Geir
GEIR Sverrisson var útnefndur
íþróttamaður ársins 1993 úr
röðum fatlaðra íþróttamanna í
hófi á Hótel Sögu í gær. Hann
hefur unnið til fjölda verðlauna
bæði f sundi og frjálsíþróttum
hér heima og erlendis undan-
farin ár og var í sumar fyrstur
fatlaðra íþróttmanna til að'vera
valinn í íslenskt landslið ófat-.
laðra íþróttamanna og má
segja að þar með hafi hann
brotið blaði sögu fatlaðra á ís-
landi, Á Ólympíumóti fatiaðra
í Barcelona ífyrra vann hann
gullverðlaun bæði í sundi og
frjálsíþróttum. •
Geir, sem er 22 ára Keflvíking-
ur, stundar nám í tölvunar-
fræði í Háskóla íslands og æfir
frjálsíþróttir með Ármanni sex sinn-
um í vikur. „Ég hvíli aðeins á föstu-
dögum,“ sagði Geir. Fötlun hans er
í því fólgin að við fæðingu vantaði
á hægri handlegg hans neðan oln-
boga. Hann hefur aldrei látið fötlun
sína hamla þátttöku sinni í íþrótt-
um, hvort sem um hefur verið að
ræða knattspymu, sund, segl-
brettasiglingum eða fijálsíþróttum.
Morgunblaðið/Sverrir
Geir Sverrisson íþróttamaður ársins 1993 úr röðum fatlaðra ásamt foreldr-
um sinum, Sverri Guðmundssyni og Erlu Helgadóttur.
Hann hefur alla tíð æft með ófötluð-
um íþróttamönnum.
Geir var að vonum ánægður með
útnefninguna og sagði hana mestu
viðurkenninguna á íþróttaferlinum.
Hann sagði það eftirminnilegast frá
árinu sem er að líða, að hafa verið
valinn í landslið ófatlaðra í fijáls-
íþróttum. „Ég náði einnig markmiði
mínu að hlaupa 400 metrana á inn-
an við 50 sekúndum, hljóp á 49,6
sekúndum. Þessi tími er betri en
gildandi heimsmet í mínum fötlun-
arflokki,“ sagði Geir. „Ég stefni að
því að bæta tíma minn enn frekar
á næsta ári og það verð ég að gera
ætli ég að halda landsliðssætinu.“
Hann byijaði að æfa sund hjá
sunddeiM Njarðvíkur undir stjórn
Friðriks Ólafssonar sundþjálfara og
keppti á fjölmörgum sundmótum
fram til 1992. Hann var nær ósigr-
andi í sérgrein sinni, 100 metra
bringusundi, hvort sem um var að
ræða Norðurlandamót, Evrópumót,
heimsmeistaramót eða Ólympíumót
fatlaðra. Hann á enn heimsmetið í
100 metra bringusudi (1.19,20
mín.), sem hann setti á Evrópumót-
inu 1991.
Eftir Ólympíumótið í Barcelona
í fyrra snér hann sér alfarið að
fijálsíþróttum. Hann náði þriðja
besta tíma íslendings í 400 metra
hlaupi á árinu og segir það sína^
sögu um árangur hans. Hann æfir
með Ármanni, fyrst undir hand-
leiðslu Stefáns Jóhannssonar þjálf-
ara og síðasta tímabil undir stjórn
Kristjáns Harðarsonar. Geir sagðist
eiga þjálfurum sínum mikið að
þakka og ættu þeir stóran þátt í
velgengninni.
Gústaf Bjarnason skoraði fjórtán þúsundasta landsliðs-
mark íslands gegn F'rökkum í Strasbourg í gærkvöldi.
Msm
FOLK
■ GUNNAR Beinteinsson úr FH
skoraði sitt 100. mark í landsleik —
gegn Frökkum, en Gunnar hefur
leikið 63 landsleiki. Hann skoraði
sitt fyrsta landsliðsmark gegn Fær-
eyingum 1988.
■ JÓN Kristjánsson úr Val lék
sinn fyrsta landsleik frá því 8.
mars 1992, en þá var hann leikmað-
ur með þýska félaginu Shul.
■ RÚNAR Sigtryggsson úr Val
og Aron Kristjánsson úr Haukum
klæddust landsliðsbúningnum í
fyrsta skipti í gærkvöldi í
Strasbourg.
■ GUÐMUNDUR Hrafnkels-
son, markvörður úr Val, nálgast
200 landsleikja múrinn. Hann lék
sinn 196. landsleik gegn Frökkum
í gærkvöldi. Júlíus Jónasson er sá
leikmaður sem kemur næstur hon-
um — hefur leikið 193 landsleiki.
■ VALDIMAR Grímsson nálgast
500 marka múrinn í landsleik, en
hann hefur nú skorað 490 mörk.
■ EINAR Þorvarðarson, aðstoð-
arlandsliðsþjálfari, gat ekki farið
með landsliðinu til Frakklands, þar
sem hann var heima til að sjóma
leikmönnum sínum í Selfossi — í
bikarleik gegn Völsungi.
Gústaf Bjamason, línumaðurinn knái frá
Selfossi, skoraði 14.000. landsliðsmark
íslands gegn Frökkum í gærkvöldi. Sveinn
Helgason úr Val skoraði fyrsta mark íslands
— gegn Svíum i Lundi 1950. Síðan hafa íslend-
ingar leikið 669 landsleiki. Leikurinn í gær-
kvöldi var þrítugasti leikurinn gegn Frökkum.
íslendingar hafa unnið fjórtán, Frakkar fimm-
tán og einum leik lauk með jafntefli.
Gústaf skoraði
14.000. landsliðs-
mark íslands
Sagan frá 1990 endurtók sig
Islendingar hafa áður orðið fyrir barðinu á hlutdrægum dómurum í
Strasbourg. Hver man ekki eftir því þegar Alfreð Glslasyni og Krist-
jáni Arasyni var vfsað af leikvelli, fengu báðir reisupassann, þegar ís-
land var yfir, 17:16, gegn V-Þjóðveijum í B-keppninni 1989? Þá lamdi
Jón Hjaltalín Magnússon í borðið og mótmælti. Eins og menn muna
tóku þeir Héðinn Gilsson og Sigurður Sveinsson stöður þeirra — fóru á
kostum í sigurleik, 23:21.
Þá dæmdu franskir dómarar, sem mátti halda að væru með þýsk
vegabréf. Í gærkvöldi dæmdu þýskir dómarar, sem mætti halda að
væru með frönsk vegabréf. Sagan frá 1990 endurtók sig, en snérist þó
við í gærkvöldi.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
IÞROTTIR FATLAÐRA
KNATTSPYRNA
Þorvaldur best-
ur hjá Stoke
ÞORVALDUR Örlygsson var
valinn leikmaður nóvember-
mánaðar hjá enska 1. deildar-
félaginu Stoke.
Félagið gefur út fréttablað einu
sinni í viku þar sem sagt er
frá því helsta sem er að gerast hjá
félaginu hveiju
sinni. í því blaðinu
kom fram að Þor-
valdur hafí verið val-
inn besti leikmaður
síðasta mánaðar og besti leikmaður
liðs síns í leiknum gegn Watford
um síðustu helgi, sem lyktaði með
2:0 sigri Stoke.
Þorvaldur er greinilega ofarlega
FráBob
Hennessy
í Englandi
í huga þeirra sem að vinna blaðið
því að hann prýðir forsíðuna auk
þess sem þijár aðrar myndir eru
af honum í blaðinu.
Hann fær lofsamlega dóma í
einni grein blaðsins þar sem segir
að hann sé greinilega í miklu betri
jafnvægi en hjá Nottingham For-
est. Þorvaldur hafí blómstrað hjá
Stoke en sjálfstraustið hafi ekki
verið mikið þegar hann lék með
úrvalsdeildarfélaginu.
Joe Jordan, framkvæmdastjóri
Stoke er einnig fenginn til að segja
sitt álit. „Hann hefur góða tilfinn-
ingu fyrir boltanum, góða skot-
tækni og hefur fundið nýtt hlutverk
á miðjunni sem að hentar honum.“