Morgunblaðið - 08.12.1993, Blaðsíða 60
Gæfan fylgi þér
í umferðinni
SJOVAcJHaLMENNAR
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN I 103 REYKJAVÍK
SÍMI 091100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNAIÍSTltÆTI 85
MIÐVIKUDAGUR 8. DESEMBER 1993
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Skemmdir á Lakagígum og Eldhrauni
Unnið er að áætl-
un um björgimarað-
gerðir til aldamóta
UNNIÐ er að gerð áætlunar um aðgerðir til að draga úr
gróðurskemmdum og náttúruspjöllum vegna sandfoks úr far-
vegi Skaftár við Lakagíga og í Eldhrauni. Sandurinn er kom-
inn í Lakagíga og hefur þegar eytt 4.000 hekturum af mosa-
vöxnu hrauni í Eldhrauni sem talið er með sérkennilegustu
gróðurlendum á norðurslóðum.
Olafur Arnalds jarðvegsfræð-
ingur segir Ijóst að á næstu árum
eða áratugum muni Lakagígar
skemmast verulega og sumir gíg-
arnir eyðileggjast alveg ef ekkert
verði að gert. Hann telur einnig
að þetta svæði muni smám saman
breytast í sandöræfi. Þóroddur
Þóroddsson, frámkvæmdastjóri
Náttúruverndarráðs, líkir sand-
fokinu við náttúruhamfarir. Bjarni
Matthíasson, oddviti Skaftár-
hrepps, segir að ástandið sé orðið
svo alvarlegt að menn verði að
fara að gera það upp við sig hvort
þeir vilji bjarga Lakagígum eða
ekki.
Varnargarðar og sáning
melgresis
í áætlun sem unnið er að um
aðgerðir til að minnka sandfok
meðfram Skaftá á næstu árum,
bæði við Lakagíga á Síðumannaaf-
rétti og í Eldhrauni sem niðri í
byggð, er gert ráð fyrir gerð
vamargarða í Skaftá vestan
Kirkjubæjarklausturs og sáningu
melgresis í sandflæmin. Sveinn
Runólfsson landgræðslustjóri telur
að varnargarðarnir muni kosta
20-30 milljónir og síðan þurfi að
leggja 10 milljónir á ári fram til
aldamóta í sáningu melgresis. Með
því- móti verði hægt að ná tökum
á vandamálinu. Landgræðslan
hefur ekki mikið fé til að leggja
í þetta verkefni á næsta ári en
landgræðslustjóri vonast til að það
komist vel á dagskrá árið 1995.
Freysteinn Sigurðsson, jarð-
fræðingur hjá Orkustofnun, segir
að mjög erfitt sé að hemja jökul-
vötnin og erfitt verði að halda
Skaftá í ákveðnum farvegi.
Sjá „Breytist smám saman í
eyðimörk" á bls. 24.
Morgunblaðið/Kristinn
Jólablóm íLækjargötu
Fj ármálaráðherra um dræma þátttöku lífeyríssjóða í uppboði húsnæðisbréfa
Kannað hvort breyta
á skíhnálum bréfanna
iirnir eiga kost á húsbréfum á eftirmarkaði með 5,4% ávöxtun, segir forseti ASÍ
OÐ húsnæðisbréfa Húsnæðisstofnunar fór fram í gær og voru Húsnæðisstofnun mun kanna fyrir að það verði takmarkað.
ígu tekin þrjú tilboð að nafnvirði 40 milljónir króna eða 46,8 skuldabréfasölu erlendis „Staða ríkissjóðs í Seðlabankanum
UPPBOÐ húsnæðisbréfa Húsnæðisstofnunar fór fram í gær og voru
eingöngu tekin þrjú tilboð að nafnvirði 40 milljónir króna eða 46,8
millj. kr. að söluverði með lokaávöxtun 5,00%. Bárust níu tilboð við
útboðið frá sjö aðilum, að nafnvirði 165 millj. kr., en meðalávöxtun
tilboða reyndist vera 5,21%. Akveðið hafði verið að taka engum til-
boðum í bréfin upp á meira en 5,00% ávöxtun. Var hæsta ávöxtunar-
krafa 5,40% en sú lægsta 5,00%. „Mér sýnist að þessi niðurstaða
krefjist þess að ríkisstjórnin seljist yfir málið og kanni hvort breyta
eigi skilmálum bréfanna eða fyrirkomulagi fjármögnunarinnar,"
sagði Friðrik Sophusson fjármálaráðherra að loknu útboðinu í gær.
„Það virðist vera einhver aðlög-
unarvandi eins og er,“ sagði Bene-
dikt Davíðsson forseti ASI en hann
sagði að skv. þeim upplýsingum
sem hann hefði þá virtist vera mik-
ið af húsbréfum á eftirmarkaði sem
væru með 5,4% ávöxtun og sagði
hann einnig að fjárskortur væri í
lífeyrissjóðakerfinu um þessar
mundir. „Það kann að vera skiljan-
legt fyrir vörslumenn lífeyrissjóð-
anna, sem eiga kost á tveim tegund-
um ríkisbréfa, öðrum á 5,4% og
hinum á 5%, að þeir taki heldur
5,4% ef þeir eru með litla fjár-
muni,“ sagði Benedikt.
Fjármálaráðherra sagðist hafa
orðið fyrir miklum vonbrigðum yfir
lítilli þátttöku lífeyrissjóðanna í út-
boðinu og þau kjör sem þeir hefðu
boðið. „Við teljum að það séu ekki
efni til að hafa mun á milli þessara
bréfa og spariskírteinanna, enda
eru skilmálar þessara bréfa í raun
sniðin að þörfum lífeyrissjóðanna.
Hér er um að ræða fjármögnun
þess hluta húsnæðiskerfisins sem
lífeyrissjóðirnir og eigendur þeirra
hafa talið sér hvað skyldast að fjár-
magna í gegnum árin,“ sagði Frið-
rik.
Húsnæðisstofnun mun kanna
skuldabréfasölu erlendis
Sigurður E. Guðmundsson, for-
stjóri Húsnæðisstofnunar, sagði
óumflýjanlegt að stofnunin færi að
huga að öðrum kostum við lánsfjár-
öflun. „Ég tel borðleggjandi að um
áramótin munum við kanna til hlít-
ar hvaða möguleikar eru fyrir hendi
í skuldabréfasölu á erlendum mörk-
uðum,“ sagði hann.
Sigurður sagði að frá því að
vaxtalækkunarstefna ríkisstjórnar-
innar kom til sögunnar hefði Hús-
næðisstofnun aðallega rekið stofn-
unina með eigin fjármunum. „Við
höfum einfaldlega rekið stofnunina
fyrir hennar eigin fjármuni og við
munum halda því áfram enn um
hríð,“ sagði Sigurður.
Sigurður sagðist ekki telja að um
neina breytingu væri að ræða á
þeirri stefnu ríkisvaldsins að há-
marksávöxtun fari ekki yfir 5% og
sagði Húsnæðisstofnun sammála
þeirri stefnu. „Ég tel að engin lána-
stofnun í þjóðfélaginu hafi gengið
jafn hart fram í að fylgja fram
vaxtalækkunarstefnu ríkisstjórnar-
innar og Húsnæðisstofnun," sagði
hann.
Ákveðið hefur verið að nýtt útboð
spariskírteina ríkissjóðs fari fram í
dag með 5% ávöxtun en gert er ráð
fyrir að það verði takmarkað.
„Staða ríkissjóðs í Seðlabankanum
er það góð núna að við þurfum
ekki stórar fjárhæðir í lántökum,"
sagði Magnús Pétursson ráðuneyt-
isstjóri í fjármálaráðuneytinu.
Búinn að
veiða sex
sfldarkvóta
NÓTASKIPIÐ Þórshamar GK
gerir það ekki endasleppt. Skipið
hefur nú veitt upp 6 síldarkvóta,
um 6.500 tonn, og hefur aflinn
nánast allur farið til vinnslu hjá
Síldarvinnslunni í Neskaupstað.
Þar hafa rúmlega 50 manns haft
mikla vinnu við söltun í rúma tvo
mánuði og að auki hefur töluvert
verið fryst. Aflaverðmæti Þórsham-
ars þetta tímabil er rúmar 50 millj-
ónir og að lokinni vinnslunni er
útflutningsverðmæti aflans orðið
145 milljónir.
Segja má að Þórshamar hafi far-
ið út að kvöldi og komið að morgni
með hæfilegan skammt til vinnslu
hvern dag.
Sjá nánar í Úr verinu bls. Bl.
Eyðnismit-
aður mað-
ur beit konu
ÞRJÁTÍU og sex ára gamall
maður, sem er smitaður af HIV-
veirunni, var í fyrrinótt kærður
fyrir að hafa bitið konu í hönd-
ina. Hönd konunnar bólgnaði og
blánaði en ekki blæddi úr, sam-
kvæmt upplýsingum lögreglu.
Maðurinn var gestur á heimili
konunnar og manns hennar í
Reykjavík og voru þau við drykkju.
Hringt var á lögregluna til að fjar-
lægja manninn en honum hafði þá
orðið sundurorða við gestgjafana
og komið til átaka. Hönd konunnar
bar þess merki að hún hafði orðið
fyrir biti og bar hún á gestinn að
hafa verið valdur að áverkanum.
Höndin var blá og þrútin en ekki
blæddi úr en konan leitaði læknis
m.a. vegna þess að sá sem beit
hana var smitaður af HIV-veirunni.
Fólkið var allt ölvað. Árásarmað-
urinn var færður í fangageymslur
lögreglunnar og vistaður þar. Hann
var mjög ölvaður eða undir áhrifum
annarra efna að sögn lögreglu.
Maðurinn var yfirheyrður í gær-
morgun og þrætti ekki fyrir að
hafa lent í átökum við konuna en
kvaðst hafa verið svo ölvaður að
hann myndi hvorki eftir því né að
hafa bitið hana.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
Ekki gleyma smáfuglunum
Jólahátíðin nálgast óðfluga og jörð er snævi þakin. Eflaust þykir
mörgum snjórinn fögur sýn en fyrir smáfugla torveldar hann aðgang
að lífsbjörginni. Verður aldrei of oft brýnt fyrir fólki að muna eftir
þeim þegar þannig stendur á. Mælt hefur verið með að fuglunum
sé fært maískurl og má nálgast það í flestum verslunum.