Morgunblaðið - 31.12.1993, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993
31
isins. Þess vegna eru skýr tengsl
milli Utflutningsleiðarinnar sem Al-
þýðubandalagið hefur sett fram og
árangurs í glímunni við vanda ríkis-
sjóðs. Ef hjól atvinnulífsins færu að
snúast og gangvél íslenska hagkerf-
isins fengi nýja bensíngjöf sam-
kvæmt forriti Utflutningsleiðarinnar
myndu tekjur ríkissjóðs aukast til
muna af sjálfu sér. Hallinn myndi
minnka verulega með hreinni tekju-
aukningu án þess að skattastiginu
í landinu yrði breytt.
4
Sú leynd sem hvílt hefur yfir við-
ræðum fulltrúa utanríkisráðherra og
bandarískra stjórnvalda um breyt-
ingar á hernaðarumsvifum Banda-
ríkjanna á fslandi er með slíkum
eindæmum að réttlætanlegt er að
nefna hana hneyksli.
Síðan í ágúst hefur Jón Baldvin
Hannibalsson neitað að gefa utan-
ríkismálanefnd Alþingis skýrslu um
viðræðurnar. Hann hefur úrskurðað
að bæði tillögur Bandaríkjanna um
verulega fækkun í herliðinu og einn-
ig þær gagntillögur sem íslenskur
utanríkisráðherra hefur sett fram
séu slík leyndarmál að utanríkis-
málanefnd þjóðþingsins fái ekkert
að vita. Þó eru skýr ákvæði í íslensk-
um lögum um að utanríkisráðherra
eigi ávallt að hafa samráð við utan-
ríkismálanefnd um mikilvægustu
þætti utanríkismála. Tilskipunin um
algjöra leynd gerir málið allt mjög
tortryggilegt.
Þegar Bandaríkin vilja loksins
draga verulega úr hernaðarumsvif-
um á íslandi neitar íslenski utanrík-
isráðherrann að skýra frá meginefni
viðræðnanna. Fer sjálfur að reyna
að fá Bandaríkin til að hafa hér mun
meiri hernaðarumsvif en þau sjálf
kjósa!
Meginverkefni bandaríska hersins
á fslandi á undanfömum áratugum
hafa verið fólgin í því að fylgjast
með sovéskum flugvélum í íslenskri
lofthelgi og umferð kjarnorkukaf-
báta í höfunum kringum ísland.
Sovétríkin eru nú úr sögunni, Var-
sjárbandalagið hefur verið leyst upp,
Bandaríkin og Rússar hafa gert frið-
arsamning, sum ríki í Austur-Evrópu
vilja nú ganga í NATO, Clinton er
helsti stuðningsmaður Jeltsíns, eng-
in rússnesk flugvél hefur sést við
ísland síðan 1991 og kjarnorkukaf-
bátarnir eru oftast í höfn vegna
þeirra rekstrarerfiðleika sem efna-
hagsástandið í Rússlandi hefur haft
í för með sér.
Allar þessar veigamiklu breyting-
ar hafa leitt til þess að hvorki ríkis-
stjórn né þingið í Washington vilja
áfram veija verulegum fjármunum
til hernaðarumsvifa á íslandi. Þegar
sjálft Pentagon telur rétt að draga
úr rekstrinum munu bandarískir
þingmenn kjósa að veija skattfé al-
mennings í Bandaríkjunum frekar í
uppbyggingu í sínum heimakjör-
dæmum en að halda úti hernaðarum-
svifum á íslandi.
Þá gerist það að Jón Baldvin
Hannibalsson og einhveijir snillingar
á kontórum í utanríkisráðuneytinu
við Hverfisgötu telja sig hafa meira
vit á stöðunni en sjálfir sérfræðing-
arnir í Pentagon.
Hvaða hagsmuni er Jón Baldvin
að veija? Er hann virkilega farinn
að ganga erinda verktakanna á
Keflavíkurflugvelli og fjölskyldn-
anna fjórtán sem grætt hafa skatt-
fijálsa milljarða á framkvæmdum
fyrir herinn? Hvers vegna gerði hann
náfrænda sinn og fyrrum aðstoðar-
mann að forstjóra íslenskra aðal-
verktaka? Er formaður Alþýðu-
flokksins orðinn helsti talsmaður
Aronskunnar, kenningarinnar um
að fjárhagslegir hagsmunir eigi að
hafa úrslitaáhrif á afstöðu til hern-
aðarumsvifa Bandaríkjanna á ís-
landi?
Það verður að svipta burt þeim
leyndarhjúp sem hvílt hefur yfir við-
ræðum fulltrúa Jóns Baldvins við
Bandaríkin. Það er ekki búið að
einkavæða utanríkisráðuneytið í
þágu fjárhagshagsmuna Alþýðu-
flokksins. Jón Baldvin Hannibalsson
verður að fara að lögum og skýra
utanríkismálanefnd Alþingis frá
þeim tillögum sem fram hafa komið
um samdrátt í umsvifum bandaríska
hersins á íslandi.
5
Á landsfundi Alþýðubandalagsins
í nóvember var samhljóða samþykkt
ítarleg sjávarútvegsstefna. Sú
stefnumótun er ávöxtur af fjölþættri
umfjöllun innan flokksins um ís-
lenskan sjávarútveg, vandamál
hans, fiskveiðistjórnun og framtíðar-
skipan.
I sjávarútvegsstefnu Alþýðu-
bandalagsins er mótuð skýr afstaða
til sameiginlegra kvótakaupa út-
gerðarmanna og sjómanna. Þar seg-
ir: „Alþýðubandalagið lýsir yfir fullri
samstöðu með sjómönnum í baráttu
þeirra gegn viðskiptum með afla-
heimildir sem fram fara á þeirra
kostnað. Alþýðubandalagið telur að
banna eigi með lögum að sjómenn
taki þátt í kostnaði sem tengist við-
skiptum með veiðiheimildir."
Þegar Alþingi tekur að loknu jóla-
leyfí að fjalla um málefni sjávarút-
vegsins munu þingmenn Alþýðu-
bandalagsins leggja fram tillögur í
samræmi við sjávarútvegsstefnuna
sem landsfundurinn mótaði. Þær til-
lögur munu ekki aðeins fjalla um
kvótakaupin heldur einnig um þörf-
ina á nýrri stefnumótun í málefnum
sjávarútvegsins. I samræmi við sjáv-
arútvegsstefnu Alþýðubandalagsins
munu þingmenn flokksins leggja
áherslu á eftirfarandi atriði:
Víðtæk þátttaka verði í endur-
skoðun laganna um stjórn fiskveiða.
Fulltrúar bæði stjórnar og stjórnar-
andstöðu, sjómanna, landverkafólks
og byggðarlaga, útgerðar og fisk-
vinnslu komi að þeirri stefnumótun.
Tryggja verður að arðurinn af
sameiginlegri auðlind þjóðarinnar
renni til íbúa byggðanna og lands-
manna allra en ekki til fáeinna út-
gerðaraðila. Stöðva verður þá eigna-
myndun á óveiddum fiski sem þegar
á sér stað í núverandi kerfi, þrátt
fyrir sameignarákvæði laga um físk-
veiðistjórnun.
Meðal þeirra leiða sem þarf að
skoða eru hugmyndir um að taka upp
afnotagjald sem staðfestir að fiskur-
inn í sjónum sé sameign þjóðarinnar,
og kanna verður rækilega aðrar leið-
ir en núverandi fiskveiðistefnu, þar
á meðal hugmyndir um sóknarstýr-
ingu og/eða veiðistýringu.
Það er afstaða Álþýðubandalags-
ins að á meðan endurskoðun físk-
veiðistefnunnar stendur yfir skuli
tekið á þeim vanda sem fijálst fram-
sal aflaheimilda hefur skapað með
reglum sem takmarka það verulega,
m.a. þannig að framvegis verði fyrst
og fremst um að ræða skipti á jafn-
gildum veiðiheimildum og sveigjan-
leika ef bilanir eða óviðráðandi or-
sakir valda umtalsverðri röskun á
útgerð.
Forkaupsréttur sveitarfélaga verði
á umþóttunartímabilinu látinn ná til
aflaheimilda en ekki einungis skipa.
Settar verði nýjar reglur um meðferð
aflaheimilda við gjaldþrot og hvernig
þær skuli ganga til nýrrar úthlutunar
með tilliti til atvinnusjónarmiða.
Einnig verði útgerðum gert skylt að
bjóða með tryggum og viðurkenndum
hætti allan afla til sölu á innlendum
fiskmörkuðum nema hann fari beint
til vinnslu innanlands.
Alþýðubandalagið telur að gæta
eigi ýtrustu varkárni gagnvart um-
hverfinu og hvetja eigi til veiða með
vistvænum veiðarfærum eins og t.d.
krókaveiða, veiða í gildrur og fleira.
Alþýðubandalagið telur mikilvægt
að krókaveiðiléyfi haldist áfram og
eigendum smábáta gefist kostur að
velja milli aflamagns og krókaveiða
sem lúti almennum sóknartakmörk-
unum. Athuga ber að veita vistvæn-
um veiðarfærum smærri fiskiskipa
aukinn forgang til veiða á grunn-
slóð. Alþýðubandalagið telur mikil-
vægt að hvetja útgerðaraðila þeirra
skipa sem möguleika hafa til að
veiða fjarri landi til að nýta sóknar-
getuna og stunda slíkar veiðar eftir
fremsta megni. Alþýðubandalagið
var fylgjandi því að íslendingar
hæfu veiðar í Smugunni enda hafa
þær veiðar skilað verulegri búbót á
þessu ári. Það er hins vegar athyglis-
vert að sjávarútvegsráðherra vildi
stöðva þær veiðar strax í upphafi.
Málefni sjávarútvegsins eru meðal
mikilvægustu þátta í efnahagsskip-
an og þjóðlífí okkar íslendinga. Þau
verða helsta viðfangsefni Alþingis á
nýju ári. Alþýðubandalagið mun
mæta til þeirrar umræðu með skýr-
ara umboð en öðrum stjórnmála-
flokkum hefur tekist að móta.
Við munum ganga sókndjörf til
leiks á nýju ári og bjóðum lands-
mönnum öllum að taka þátt í mótun
og framkvæmd nýrrar leiðar.
Steingrímur Hermannsson,
formaður Framsóknarflokksins
Setja þarf
langtímamarkmið
i.
Samningurinn um Evrópska
efnahagssvæðið og GATT-samn-
ingurinn munu hafa mikil áhrif á
þróun efnahagsmála hér á landi.
Hver áhrifin verða fer hins vegar
eftir því hvernig við sjálfir höldum
á málum.
Ef við látum reka á reiðanum,
eins og mér þykir nú gert, og látum
hinn svonefnda „fijálsa markað“
ráða ferðinni, óttast ég afleiðing-
amar. Ég óttast að þá muni erlend
fyrirtæki fljótlega ná þeim undir-
tökum í íslensku atvinnulífi, sem
þau gimast. Þá verður ekki langt
í það að við verðum lítið annað en
þiggjendur úr lófa Evrópubanda-
lagsins, sogumst þar inn og glötum
okkar sjálfstæði.
Ef við hins vegar berum gæfu
til þess að standa saman um að
nýta þá kosti sem samningarnir
bjóða upp á, en standa um leið
með öllum ráðum vörð um íslenska
atvinnuvegi og viðleitni til ný-
sköpunar, geta samningarnir orðið
okkur til góðs.
Til þess að svo megi verða þarf
að setja langtímamarkmið fyrir
sjávarútveginn, endurreisn ís-
lensks iðnaðar og landbúnaðinn
þar sem fullkomlega er tekið tillit
til gjörbreytts umhverfis. Sama
þarf að gera í því skyni að nýta
vel þá mörgu kosti til nýsköpunar,
sem þjóðin á, t.d. í ferðaiðnaði,
hátækni og fiskeldi, svo dæmi séu
nefnd. Einnig er nauðsynlegt að
bæta menntunina og auka rann-
sókna- og vísindastarfsemi.
Slík stefna þarf ætíð að hafa
velmegun, velferð og jafnræði að
markmiði. Án þess næst ekki sú
þjóðarsátt, sem nauðsynleg er. Að
sjálfsögðu hlýtur þessi stefna ætíð
að hafa fullveldi og sjálfstæði að
leiðarljósi, eins og aðstæður í heim-
inum frekast leyfa.
Mér er ljóst að, því miður, munu
ýmsir kjósa fyrri kostinn og skeyta
lítt um sjálfstæðið. Það eru einkum
þeir sem hafa annað hvort gefíst
upp í baráttunni eða hafa gnægð
fjármagns og láta stjórnast af auð-
hyggju. Ég hygg þó að mikill meiri-
hluti landsmanna kjósi síðari kost-
inn, leið sjálfstæðisins. Vonandi
Steingrímur Hermannsson
þarf ég ekki að taka það fram að
það er sú leið sem ég kýs, mjög
eindregið. Lítill tími er til stefnu.
Stefnuna þarf að marka án tafar.
2.
Botni efnahagskreppunnar tel
ég ekki náð. Raunvextir eru enn
alltof háir og fjármunamyndun
alltof lítil. Því er hætt við að gjald-
þrot séu enn mörg framundan og
atvinnuleysi muni fara vaxandi.
3.
Nei, þótt ég telji viðvarandi halla
á ríkissjóði mikla meinsemd, tel
ég hana ekki mestu meinsemdina
eins og nú er ástatt. Alvarlegast
tel ég samdráttinn í atvinnulífinu
og vaxandi atvinnuleysi, fátækt
og örbirgð.
Við hallann á ríkissjóði mun
ekki ráðast fyrr en hjól atvinnulífs-
ins eru farin að snúast vel á ný
og tekjurnar að aukast. Ef ná á
endum saman með stórfelldum nið-
urskurði útgjalda verður velferðar-
kerfíð lagt í rúst.
4.
Með gjörbreyttu ástandi í heims-
málum, einkum á milli vesturs og
austurs og því á Norður-Atlants-
hafínu tel ég eðlilegt að dregið
verði úr umsvifum varnarliðsins á
Keflavíkurflugvelli. Hinar nýju rat-
sjárstöðvar hafa einnig mikil áhrif
í þessu sambandi.
5.
Mér sýnist ekki unnt að ræða
um sameiginleg kvótakaup útgerð-
armanna og sjómanna. Sjómenn
virðast nánast neyddir til þátttöku
í kaupunum og útgerðarmenn eiga
síðan einir kvótann samkvæmt nið-
urstöðu Hæstaréttar. Slíkt gengur
að sjálfsögðu ekki upp. Þessu verð-
ur að breyta.
Ég leyfí mér að nota tækifærið
og óska landsmönnum farsældar á
nýju ári.
HRAÐNÁMSTÆKNI HJÁ MÍMI
Skemmtu þér og vertu mörgum
sinnum fljótari að læra.
Nýjustu kennsluaðferðir auðvelda
þér námið.
ENSKA ,
ÞYSKA
SPÆNSKA
Sarah, enskukennari
og kennslustjóri
1.000
Fjöldi kennslustunda 50 100 150 200
Tíu vikna námskeiö heljast 24. ian.
Sum stéttarfélöo taka kátt í kostnaðl.
Símar
10004 og 21655
§ !
BREFABINDI
OG MÖPPUR
fæst í öilum betri
ritfangaverslunum