Morgunblaðið - 25.02.1994, Síða 4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1994
|fc
I
Hæstiréttur fellir dóm yfir Verslunarmannafélagi Suðurnesja
Gert að greiða bætur
vegna verkfaJlsvörslu
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær Verslunarmannafélag Suður-
nesja til að greiða manni sem komst ekki úr landi vegna
verkfallsvörslu í Leifsstöð í apríl 1988, 65.314 krónur með
dráttarvöxtum auk málskostnaðar. í héraðsdómi hafði verka-
lýðsfélagið verið sýknað af kröfum mannsins.
Maðurinn hafði pantað með
hálfsárs fyrirvara flugfarseðla hjá
Flugleiðum en hann var á leið á
þing tannréttingasérfræðinga í
New Orleans í Bandaríkjunum.
Á brottfarardaginn voru félagar
í Verslunarmannafélagi Suður-
nesja í verkfalli og við verkfalls-
vörslu ásamt fleirum í flugstöðini.
Verkfallsverðir meinuðu mannin-
um, eins og öðrum sem ekki höfðu
fengið undanþágu félagsins, að
komast að afgreiðsluborði í flug-
stöðinni þar sem Sigurður Helga-
son forstjóri félagsins var við störf
til að afgreiða farþega sem ætluðu
með flugvélinni.
Maðurinn komst síðar úr landi
með flugvél til Amsterdam og
þaðan vestur um haf og stefndi
verkalýðsfélaginu og krafðist bóta
vegna þess aukakostnaðar sem
aðgerðir þess hefðu valdið honum.
I héraðsdómi var verkalýðsfé-
lagið sýknað af kröfum mannsins
en í dómi Hæstaréttar segir að
það hafí ekki brotið í bága við
ákvæði laga að forstjóri Flugleiða
innti af hendi afgreiðslustörf í stað
undirmanna sinna í verkfalli þeirra
og ekki hafi verið sýnt fram á að
atbeina félagsmanna Verslunar-
mannafélags Suðumesja hefði
þurft til að hann kæmist um borð
í flugvélina ásamt konu sinni og
barni og fengi þar nauðsynlega
fyrirgreiðslu. Aðgerðir verkfall-
svarða hafi ekki verið þáttur í því
að koma í veg fyrir verkfallsbrot
og ljóst sé að þeir hefðu hindrað
brottför mannsins með valdi hefði
hann látið á það reyna.
Því var verkalýðsfélagið dæmt
til að greiða manninuin mismun
þess kostnaðar sem förin með
Flugleiðum hefði kostað og þess
sem för á áfangastað eftir króka-
leiðum kostaði, 65.314 krónur með
dráttarvöxtum frá apríl 1988 auk
málskostnaðar fýrir Hæstarétti og
héraðsdómi.
VEÐUR
VEÐURHORFUR í DAG, 25. FEBRÚAR
YFIRLIT: Yfir Grænlandi er 1040 mb hæð en um 1500 suður af
íslandi er 965 mb djúp og mjög víðáttumikil lægð sem þokast
austur.
SPÁ: Austan gola eða hæg breytileg átt og víðast lóttskýjað en
víða talsvert frost.
STORMVIÐVÖRUN: Búist er við stormi á Suðurdjúpi og Suðvestur-
djúpi.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG, SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Búast
má við austan og norðaustlægri átt á landinu, víðast fremur hæg-
ari. Smá él á stöku stað við suðaustur- og austurströndina, ann-
ars þurrt og víðast bjart veður. Frost á bilinu 0 til 8 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30,
19.30, 22. 30. Svarsími Veðurstofu íslands — Veðurfregnir:
990600.
O
Heiðskírt
&
Léttskýjað
&
Hálfskýjað
A
Skýjað
Alskýjaö
r r r
r r
r r r
Rigning
* / *
* /
r * r
Siydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
V V
Skúrir Slydduél
V
Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaörimar vindstyrir,
heil fjöður er 2 vindstig
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
stig..
FÆRÐA VEGUM: (Kl.17.30ígær)
Á Norðurlandi er snjókoma á leiðinni á milli Fljóta og Siglufjaröar
og á heiðum norðan- og austanlands er snjór á vegum en þó allt
fært. Að öðru leyti er færð góð á landinu þó víða sé nokkur hálka.
Upplýsingar um færðtéru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500
6315. '
og í grænni línu 99-63
Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA
kl. 12.00 ígær
UM HEIM
að ísl. tíma
Akureyri
Reykjavik
hitl
+4
+4
veður
skýjað
heiðskírt
Bergen +7 heíðskfrt
Helsinki +7 snjókoma
Kaupmannahöfn +3 alskýjað
Narssarssuaq 4 hálfskýjað
Nuuk 0 léttskýjað
Osló +15 hálfskýjað
Stokkhólmur +8 kornsnjór
Þórshöfn 0 léttskýjað
Algarve 11 þokumóða
Amsterdam +2 snjókoma
Barcelona 13 skýjað
Berlín +10 lágþokublettir
Chicago +8 snjókoma
Feneyjar 5 rigning
Frankfurt 3 lágþokublettir
Glasgow 0 snjókoma
Hamborg +« þokumóða
London 4 súld
Los Angeles 13 léttskýjað
Lúxemborg 3 rigningogsúld
Madríd a hálfskýjað
Malaga 12 léttskýjað
Mallorca 10 skýjað
Montreal +9 snjókoma
NewYork 0 frostúði
Orlando 21 alskýjað
París 7 skúráslð.klst.
Madelra 12 1 1
Róm 13 skýjað
Vín 0 þoka
Weshington 3 súld
Winnipeg +19 hálfskýjað
Móðir ósátt við móttökur Læknavaktar
Sagt að fara með
bamið út á svalir
MÓÐIR sem hafði samband við Læknavaktina í fyrrakvöld og
óskaði eftir lækni fyrir tveggja ára gamlan son sinn sem hafði
veikst skömmu áður, fékk þau svör frá stúlku sem svaraði að
hún ætti að fara með hann út á svalir til að hann fengi frískt
loft. „Hann hefur verið með barkakvef og bólgur og var orðinn
mjög slæmur í fyrrakvöld, mikið sog i önduninni, máttlaus og
kominn með tæplega 39 gráðu hita. Eg hringdi á Læknavaktina
og bað strax um lækni og þá spurði sú sem svaraði hvað væri
að drengnum, ég lýsti því vandlega og bað um lækni. Eg fékk
þá þau tilmæli að fara með barnið út á svalir, það væri langbest
að láta hann anda að sér frísku lofti. Ég sagði að ég færi ekki
með barnið út í kuldann með svona mikinn hita og þá sagði hún
mér bara að dúða hann vel og fara síðan með hann út,“ segir
Sigrún Birgisdóttir, móðir drengsins. Magnús R. Jónasson, vakt-
síjóri Læknavaktarinnar, segir að ekki eigi að neita neinum um
viljun á vaktinni og hafi það verið gert séu það mistök.
„Henni virtist ekki finnast
nein þörf á lækni þótt ég segði
að það væri slæmt sog í öndun-
inni og hann væri mjög slappur.
Mér leist ekkert á þessi svör og
ítrekaði ósk mína um að fá lækni.
Hún sagðist helst ekki vilja senda
mér lækni en sagði loks að ég
gæti fengið tíma hjá þeim. Ég
fékk þá samband við aðra stúlku
sem gaf mér tíma, tæpum
klukkutíma síðar, og ég. fór með
strákinn niður eftir. Hann var
hlustaður og lækninum leist
þannig á ástandið að hann sendi
okkur beint á bráðavaktina á
Landspítalanum. Þar fékk barnið
lyfjameðferð og við vorum þar
yfir nóttina, en á stofugangi í
gær var ákveðið að við fengjum
að fara heim en hafa ætti sam-
band strax ef veikindin ágerð-
ust, því ekki væri búið að út-
skrifa barnið,“ segir Sigrún.
Alvarlegt mál
um fleiri skrautleg dæmi þannig
að það er alveg tími til kominn
að þetta komi fram. Mér finnst
þetta afskaplega alvarlegt, sér-
staklega þar sem ég lýsti ástandi
bamsins í smáatriðum þannig að
enginn vafí lék á að það væri
slæmt. Annaðhvort á að senda
manni lækni strax í tilvikum sem
þessum eða vísa manni beint á
bráðamóttökuna, en ekki að fá
svör á þá leið að fara með veikt
bamið út. Mér finnst þetta út í
hött,“ segir Sigrún.
Hlustum á gagnrýni
Hún kveðst vart hafa trúað
móttökum Læknavaktar, og ekki
komið við mótbámm í fyrstu. „Ég
varð alveg ofsalega hissa og ætl-
aði ekki að trúa mínum eigin
eymm, sérstaklega eftir þá um-
íjöllun sem hefur verið í Qölmiðl-
um um Læknavaktina. Eg véit
Magnús segir að í viðtölum
milli sjúklings og hjúkmnarfræð-
ings komi oft fyrir að fólki sé
bent á að koma niður á vakt og
þannig sé oft hægt að sinna hin-
um veika fyrr en ef beðið er eft-
ir vitjun.
Hann segir að vaktin sinni um
22 þúsund samskiptum í ári ef
frá em talin símtöl. „í svona
starfsemi fer ekki hjá því að það
komi upp mistök,“ segir hann.
„Starfsemi eins og Læknavaktin
verður að vera opin fyrir því að
hlusta á gagnrýni á starfíð eins
og hér kemur fram og það á
vissulega við í þessu tilfelli sem
endranær."
Björgvin Sigurðsson hæsta,-
réttarlögmaður látinn
BJÖRGVIN Sigurðsson hæsta-
réttarlögmaður er látinn í Reykja-
vík á 75. aldursári. Björgvin var
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambands íslands frá 1951
til ársloka 1972.
Björgvin fæddist á Veðramóti í
Skagafirði 6. ágúst 1919. Foreldrar
hans vom Sigurður Árni Björnsson,
bóndi, hreppstjóri og oddviti á
Veðramóti, og Sigurbjörg Guð-
mundsdóttir húsfreyja.
Björgvin lauk stúdentsprófí frá
Menntaskólanum í Reykjavík 1940
og lögfræðinámi frá Háskóla ís-
lands 1946. Hann var sendiráðsrit-
ari við sendiráðið 5 Lundúnum
1946-47 og stundaði lögfræðistörf
í Reykjavík frá 1947. Jafnframt því
var hann fulltrúi hjá Vinnuveitenda-
sambandi íslands frá sama tíma og
framkvæmdastjóri þess frá
1951-72. Hann rak málflutnings-
skrifstofu í Reykjavík frá 1973-84
og var framkvæmdastjóri vinnu-
málanefndar ríkisins sömu ár.
Björgvin var formaður Heimdall-
ar 1946-47, kjörinn í landskjör-
stjóm 1956, sat í kauplagsnefnd
1951-73 og í verðlagsnefnd frá
1960-72. Hann var í stjórn At-
vinnuleysistryggingasjóðs frá
stofnun, 1956, til 1972, í fastanefnd
norrænu vinnuveitendasamtakanna
1953-72, í samvinnunefnd VSÍ og
ASÍ frá 1955 til 1961, í stjórnskip-
aðri nefnd til að endurskoða slysa-
tryggingakafla almannatrygginga-
laga 1959, í stjórnskipaðri nefnd
er samdi frumvarp til laga um at-
vinnuleysistryggingar 1955, í húsa-
leigunefnd Reykjavíkur frá 1950
þar til hún var lögð niður, í atvinnu-
Björgvin Sigurðsson.
|
W
I
i
í
i
1
i
I
\
i
málanefnd ríkisins meðan hún
starfaði 1950-54, í nefnd til að
rannsaka hugsanleg tengsl við
Efnahagsbandalagið á sviði félags-
og efnahagsmála 1961. Björgvin
var skipaður í yfirkjörstjóm við
borgarstjómarkosningarnar >
Reykjavík 1974 og kosinn oddviti
hennar. Hann var sæmdur riddara-
krossi hinnar íslensku fálkaorðu
1967.
Björgvin kvæntist Steinunni Vil-
hjálmsdóttur húsfreyju 6. júlí 1946..
Hún lést 1974. Þau áttu tvö börn,
Sigurð, tannlækni í Reykjavík, og
Elínu Bergljótu, meinatækni í
Reykjavík.
-