Morgunblaðið - 25.02.1994, Side 5

Morgunblaðið - 25.02.1994, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 25. FEBRÚAR 1994 5 Björgunarnetið prófað BJÖRGUNARNET Kristjáns^ftlagnússonar hefur verið í prófun hjá Björgunarskóla Slysavarnafélags Islands um nokkurt skeið og þykir gefa,góða raun sökum einfaldleika í bæði hönnun og notkun. Sjómað- ur sem fellur útbyrðis er bókstaflega háfaður um borð. Björgunarskóli Slysavarnafélagsins Nýtt björgun- arnet gefst vel SÍÐUSTU sex mánuði hefur nýtt björgunarnet verið prófað hjá Björg- unarskóla Slysavarnafélags íslands og hefur gefist afar vel að sögn Halldórs Almarssonar, yfirleiðbeinanda skólans. Netið, sem skólinn hefur haft til prófunar í tilraunaskyni, er hannað af Kristjáni Magnús- syni og búið að vera í þróun um fimm ára skeið. „Einfaldleiki netsins er töluvert meiri en t.d. Markúsarnetsins sem er skyldubúnaður um borð í íslenskum skipum. Það er létt og meðfærilegt og ef ekkert óvænt hendir þarf sjómaður ekki að gera annað en að skríða inn í það til að fá björgun," segir Halldór. Hann kveðst telja að netið gæti hentað í öllum veðrum og myndi Björgunarskólinn veita meðmæli sín ef fram- leiðsla hæfist á því. „Fengist netið viðurkennt yrði tví- mælalaust um meira val að ræða fyrir íslenska sjómenn og útgerðar- menn, og e.t.v. myndu net Kristjáns og Markúsarnetið bæta hvort annað upp, eða auka samkeppni á markað- inum,“ segir Halldór. Einfaldleiki í fyrirrúmi Netið er grófriðið úr nælonlínum. Það er U-laga og er flotteinn ofan á netinu sem hangir eins og poki í bugtinni, er það tengt með tveimur taugum við skip ásamt kastlínu úr bugtinni. Eiga menn hvorki að geta skaðað sig á netinu né fest sig í því. Hugmyndin byggist í stórum dráttum á þeim eiginleika að háfa menn upp, og er hannað sem n.k. háfur eða smækkuð gerð af herpi- nót. Maður sem fellur útbyrðis skríð- ur inn í netið og hvílir þar í eins konar fósturstellingu þangað til hann er hífður um borð. í samtali við Morgunblaðið kvaðst Kristján hafa fengið hugmynd að netinu eða háfinum stuttu eftir að notkun Markúsarnetsins varð al- menn og hann hleraði gagnrýni á meðal annars notkunarmöguleika þess í illviðri, þar sem það væri of flókið. „Ég vildi búa eitthvað auðskil- ið til sem gagnast gæti í öllum veð- rum, þannig að björgun gengi í öllum veðrum og brotsjó með eins miklum hraða og kostur er,“ segir Kristján. Magnús hefur sótt um einkaleyfi á hugmynd sinni, en skráð eru einka- leyfi á þremur sambærilegum netum í heiminum, og er Markúsarnetið þar á meðal. Kristján hefur jafnframt sótt um stuðning fyrir hönnun sinni hjá Iðntæknistofnun og Rannsóknar- ráði. íslenskt hráefni Kristján segir að hráefni til fram- leiðslu netsins sé allt íslenskt og miðað við hráefniskostnað og tíma- fjölda við gerð þess, gæti það hugs- anlega kostað um 20 þúsund krónur ásamt kassa úr ryðfríu stáli, ef veru- leg framleiðsla yrði að veruleika. Net það sem nú er í prófun hjá Björgunar- skóla SVFÍ er endanleg gerð hönnun- ar, en nokkrar útgáfur hafa verið gerðar áður. Ljósleiðarakerf- ið mikið notað GUÐMUNDUR Björnsson aðstoðar póst- og símamálastjóri segir að fyrirhugaðar séu aðgerðir til að auka flutningsgetu Ijósleiðarakerfis- ins vegna mikillar notkunar. Hann segir fullyrðingar um lélega nýt- ingu kerfisins ekki á rökum reistar. Verðlagning á flutningi með ljós- leiðarakerfi Pósts og síma hefur sætt nokkurri gagnrýni af hálfu tals- manna Ríkisútvarpsins. Guðmundur Björnsson telur að dreifikostnaður sjónvarpsefnis um ljósleiðarann sé ekki ósanngjarn og bendir í því sam- bandi á að Stöð 2 hafi samið um flutning á öllu því efni stöðvarinnar sem hægt er að dreifa út um landið. „Ég veit ekki betur en að þeir séu ágætlega ánægðir bæði með þjón- ustuna og verðin sem eru í boði. Mér finnst ekki rétt af Ríkisútvarpinu að ætlast til þess að við seljum því þjón- ustu okkar á lægra verði en öðrum.“ Skyndisambönd kostnaðarsöm Svonefnd skyndisambönd, það eru skammtímatengingar sem falla utan langtímasamninga, þykja mjög kostnaðarsöm. Guðmundur segir skýringuna þá að í flestum tilvikum verði að senda tæknimenn með tækjabúnað á útsendingarstaðina og það sé dýrt. Endabúnaður til teng- inga sjónvarpssendinga við ljósleið- arakerfið er mjög sérhæfður og ekki í. símstöðvum. Guðmundur segir að viðskiptavinir geti leitað tilboða í til- tekið magn skammtímatenginga til dæmis á ársgrundvelli og fengið þannig veruiega lækkun frá gjald- skrá. Gjaldskrá ljósleiðarakerfisins er miðuð við stofnkostnað og kom fram á Alþingi haustið 1992 að kerfið kostaði þá 2,5 milljarða. Mannvirkja- sjóður Atlantshafsbandalagsins greiddi rúmlega helming þess kostn- aðar og var það framlag að hluta til fyrirframgreidd leiga. Guðmundur segir að framlag Mannvirkjasjóðsins standi undir notkun Ratsjárstofnun- ar af kerfinu en sé ekki til að niður- greiða notkun innlendra sjónvarps- stöðvá. Veriö velkomin ingvar Heigason hf. Sævarhöföa 2 sími 91-674000 ~ Landbúnadarsýning ~ aö Sœvarhöföa 2 opin frá kl. 9-18 1.-3. mars • Kynntar verða allar helstu nýjungar í — Búvélatcekni — — Erlendir fulltrúar~ koma í tilefni sýningarinnar frá öllum framleiöendum • Matvælakynning frá /v. Goöa ~ 1. mars frá kl. 13-15 verður gómsæt kynning í ~ Osta og smjörsölunni ~ Bitruhálsi 2 1.2.4.5. mars ~ Norölenskir hestadagar ~ í Reiðhöllinni kl. 21.00 nema 2. mars kl. 22.00. Aðgangseyrir : fullorðnir 1000 kr. börn 500 kr. „Saga hests og manns", eftir Vigfús Björnsson. Þar sem íslenski hesturinn er tengdur atburðum úr íslandssögunni. Glæsilegir norðlenskir gæðingar og kynbótahross 2. mars um kvöldið ~ Sérstakt hlaöborö í Perlunni ~ Matreiðslumenn verða á sal og skera kjatið fýrir gesti aðeins kr. 2.750.- • 1.- 3.mars frá kl. 16-18 ~ Snyrtivöru-hárgreiöslu- ~ og tískusýning í Perlunni • Kynning 3. mars frá kl. 9-12 í ~ Mjólkursamsölunni ~ Bitruhálsi 1 • — Árshátíö Bœnda — 3. mars á Hótel íslandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.