Morgunblaðið - 18.03.1994, Qupperneq 12
12
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
UM HELGINA
Þórunn Eiríksdóttir.
Þórunn Eiríks-
dóttir sýnir í List-
húsinu
Þórunn Eiríksdóttir opnar sýningu í
Listhúsinu Laugardal laugardaginn 19.
mars nk.
Þórunn stundaði nám f Myndlistar-
og handíðaskóla ísiands 1966-1970
og lauk þaðan prófi sem myndmennta-
kennari. Hún hefur sótt fjölda nám-
skeiða m.a. í leirmyndagerð, smelti,
málmsmíði og glerlist. Hún hefur
stundað myndmenntakennslu sl. 22 ár.
Þórunn hefur haldið sýningar í
Reykjavík, Akureyri og Kópavogi og
er þetta 6. einkasýning hennar.
Sýningin er opin daglega frá kl.
10-18 ojf laugardaga og sunnudaga
frá kl. 14-18.
Kristján Davíðsson.
Kristján Davíðsson á
Sóloni Islandus
Málverk eftir Kristján Davíðsson
prýða nú veggi kaffíhússins Sólon ís-
landus við Bankastræti. Myndimar eru
unnar á árunum 1949-1994. Kristján
segir að um sé að ræða tvö stór nútíma-
málverk, collagemynd úr striga og
bronsi frá 1960, portrettmynd frá 1975,
ásamt eldri myndum.
Yfirlitssýning á verk-
um Jóns Gunnars
Þann 19. mars verður opnuð yfírlits-
sýning á myndverkum Jóns Gunnars
Arnasonar myndhöggvara ! Listasafni
íslands. Þetta er fyrsta heildarúttekt
sem gerð hefur verið á verkum Jóns
Gunnars og spannar yfir tímabilið
1960-1987. Öll lykilverk listamannsins
er að finna á þessari sýningu og þar
er einnig fjöldi skúlptúrverka frá önd-
verðum áttunda áratugnum og hnífa-
skúlptúrar sem Jón Gunnar gerði handa
vinum og vandamönnum um áratuga-
skeið, en Jón Gunnar lést fyrir aldur
fram árið 1989.
í tilefni af sýningunni gefur safnið
út veglega bók um listamanninn.
. íslensk grafík - síð-
asta sýningarhelgi
Sýningu grafíklistamanna i Norræna
húsinu lýkur nk. sunnudagskvöld.
Á sýningunni eru verk eftir 31 mynd-
listarmann unnar með ýmsum aðferð-
um, grafíklistarinnar.
Sýningin er opin frá kl. 13-19. Að-
gangur er ókeypis.
Tvær sýningar í Nor-
ræna húsinu
Tvær sýningar verða opnaðar í Nor-
ræna húsinu laugardaginn 26. mars.
Annars vegar er sýning á teikningum
eftir norska listamanninn Olav Christ-
opher Henssen og er þetta farandsýn-
ing sem kemur hingað til lands frá
Tallin í Eistiandi, þar sem hún var til
sýnis í janúar og febrúar sl. Sýningin
verður opnuð í sýningarsölum Norræna
hússins kl. 15 á morgun laugardag.
í andyrinu verður hins vegar sýning
á myndum sem danska listakonan Bo-
dil Kaalund gerði við nýja útgáfu á
biblíunni, sem kom út í Danmörku
] 992. Það er danska biblíufélagið sem
stendur að baki þessararar útgáfu.
Bodil heldur fyririestur um þetta
mikla verkefni í fundarsal Norræna
hússins á laugardag kl. 16, eftir að
sýning hennar verður fonnlega opnuð
í anddyrinu.
Ása Hauksdóttir.
Ása Hauksdóttir sýnir
lágmyndir í Gallerí 11
Ása Hauksdóttir opnar sýningu í
Gallerí 11 Skólavörðustig 4a, laugar-
daginn 19. mars. Ása sýnir lágmyndir
unnar með blandaðri tækni, en efnivið-
urinn og hugmyndafræðin er sótt til
íslenskrar byggingalistar. Verkin eru
öll unnin á þessu ári.
Þetta er þriðja einkasýning Ásu, en
hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýn-
ingum og unnið við útfærslu á lista-
verki eftir Gerlu og Erlu Þórarinsdóttur
fyrir ráðhús Reykjavíkur.
Sýningu Ásu er opin .daglega kl.
14-18 og henni lýkur 2. apríl.
Sigríður Ólafsdóttir.
Sigríður Ólafsdóttir
sýnir í Gallerí Greip
Sigríður Ólafsdóttir opnar myndlist-
arsýningu í Gallerí Greip, Hverfisgötu
82, Vitastígsmegin, á morgun laugar-
daginn 19. mars kl. 17-19. Er þetta
þriðja og síðasta sýningin í röð sýninga
sem Listkafaramir standa fyrir.
Sigríður sýnir geómetrísk málverk,
lágmyndir og klassískan útsaum.
Sýningin stendur til 6. apríl og er
opin frá kl. 14-18 alla daga nema
mánudaga.
Ljósmyndasýningu
Ingu Sólveigar fram-
lengt
Ákveðið hefur verið að framlengja
ljósmyndasýningu Ingu Sólveigar Frið-
jónsdóttur, „In memoriam", fram til
sunnudagsins 20. mars. Sýningin verð-
ur opin á opnunartíma Safnaðarheimil-
isAkureyrarkirkju kl. 8-18 virka daga
og á laugardag og sunnudag frá kl.
10-16.
Síðasta sýningarhelgi
Ninnýar
Sýningu Jónínu Magnúsdóttur,
Ninnýar, í Galleríi listanum, Hamra-
borg 20a, Kópavogi, lýkur á sunnudag
20. mars.
Sýningin er opin frá kl. 13.30-18.
Síðasta sýningarhelgi
Baltasars og Kristjönu
Sýningum Baltasars og Kristjönu Sam-
per fer nú að ljúka í Hafnarborg. Balt-
asar sýnir 17 málverk og 6 teikningar
og Kristjana sýnir 10 skúlptúra og 6
lágmyndir.
Sýningamar em opnar daglega frá
kl. 12-18.
Málþing um myndlist
Árlegt málþing um myndlist verður
haldið'í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi sunnudaginn 20. mars kl. 13.
Fyrirlesarar verða Friðrik Rafnsson,
ritstjóri, Kolbrún Bergþórsdóttir, bók-
menntafræðingur, Auður Ólafsdóttir,
listfræðingur, Ásta Ólafsdóttir, mynd-
listarmaður, og Daníel Þ. Magnússon,
myndlistarmaður.
Fundarstjóri verður Sjón.
Helgin er sfðasta sýningarhelgi á
myndlistarsýningu Guðjóns Ketilssonar
í Gerðubergi.
Listmunasýning og
brúðuleikhús
Um þessar mundir er Barðstrend-
ingafélagið 50 ára og af því tilefni
stendur félagið fyrir sýningu á verkum
listafólks, sem upprunnið er í Barða-
strandarsýslu eða býr þar, í Listmuna-
húsinu við Tryggvagötu.
Jón E. Guðmundsson verður með
brúðuleikhús kl. 15 á laugardag og
sunnudag í tilefni sýningarinnar og er
aðgangur ókeypis.
Ljóðlist
„Davið og astin“
Ljóð um ástina verða flutt í tali og
tónum í Davíðshúsi, Bjarkarstíg 6 Ak-
ureyri sunnudaginn 20. mars kl. 16.
og kl. 20.30.
Anna Kristín Arngrímsdóttir, leik-
kona les ljóð Davíðs Stefánssonar frá
Fagraskógi og eru þau að mestu valin
úr bókinni „Ástarljóð Davíðs“.
Margrét Bóasdóttir, sópran, og Ósk-
ar Pétursson, tenór, syngja við píanó-
leik Dórótheu Dagnýar Tómasdóttur
íslensk og erlend lög við ljóð Davíðs.
Þar sem rými er takmarkað í Davíðs-
húsi er fólki bent á að panta miða,
tekið er við pöntunum á skrifstofu
menningarfulltrúa Akureyrarbæjar á
skrifstofutíma. ___________________
Leiklist
„Aristófanes“ frum-
sýnir „The Hobbit“
Leiklistarfélagið Aristófanes sýnir
um þessar mundir „The Hobbit“ sem
segir frá Bilbo Baggins sem ferðast
með 13 dvergum til að endurheimta
fjársjóð sem grimmur dreki liggur á. Á
vegi þeirra verða ýmsar furðuverur sem
gera ferðina æsilega og spennandi.
Frumsýning var í gær 17. mars í
hátíðarsal Fjölbrautaskólans f Breið-
holti. Almennar sýningar hefjast mánu-
daginn 21. mars. Forsala aðgöngumiða
fer fram í skólanum.
Leikfélag MH frum-
sýnir „Blóð og drullu“
Leikfélag Menntaskðlans við Hamra-
hlfð frumsýnir „Blóð og drullu“ í hátíð-
arsal skólans laugardaginn 19. mars
kl. 20.30.
í kynningu segir m.a.: „Blóð og
drulla" er spunaverk, unnið af Leikfé-
lagi MH undir leiðsögn Rúnars Guð-
brandssonar og Árna Péturs Guðjóns-
sonar.
Leikarar í sýningunni eru 38. Tón-
listin er að mestu leyti fraumsamin af
þremur nemendum skólans og er flutt
af fíngrum fram á sýningunum. Fjöldi
nemenda vinnur að öðrum verkþáttum
og lætur nærri að alls taki um 60-70
manns þátt í uppfærslunni.
Frumsýning verður laugardag kl. 20
og næstu sýningar verða laugardag 19.
mars, mánudag 21. mars, þriðjudag
22. mars, föstudag 25. mars, laugardag
26. mars, sunnudag 27. mars, mánudag
28. mars og miðvikudag 30. mars.
Sýnt verður í hátíðarsal MH.
Tónlist
[I IsJ
Anna Guðný Guð- Guðrún Birgis-
mundsdóttir. dóttir.
Guðrún og Anna
Guðný á tónleikum
Tónleikar á vegum Félags íslenskra
hljóðfæraleikara verða haldnir f sal
Félags íslenskra hljóðfæraleikara,
þriðjudaginn 15. mars nk.
Það eru þau Guðrún Birgisdóttir og
Anna Guðný Guðmundsdóttir sem
flytja verk fyrir flautu og píanó eftir
Mozart, Reinecke, Messiaen og Mart-
inú.
Tónleikamir hefjast kl. 20.30. Að-
gangseyrir er 1.000 krónur en 200
krónur fyrir böm og námsfólk.
Hátíðartónleikar í
Grafarvogskirkju
Skólahljómsveit Grafarvogs heldur
tónleika sunnudaginn 20. mars kl. 17
í hinni nývígðu Grafarvogskirkju. Til-
efnið er árs afmæli sveitarinnar. Á efn-
isskránni_ em m.a. verk eftir Pezel,
Purcell, Áma Bjömsson, Stuart John-
son og fl.
Stjórnandi er Jón E. Hjaltason. Að-
gangur er ókeypis og öllum heimill.
Karlakór Reykjavíkur.
Samsöngvar fyrir
páska
Styrktarfélagatónleikar Karlakórs
Reykjavíkur verða óvenju snemma í ár,
eða fyrir páska. Fyrsti samsöngurinn
verður í Langholtskirkju sunnudags-
kvöldið 20. mars kl. 20. Mánudaginn
21. mars verður sungið í Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði kl. 20. Síðan verður
sungið þrisvar í Langholtskirkju í
Reykjavík miðvikudaginn 23. mars og
Álafosskórinn heldur
vortónleika
Álafosskórinn í Mosfellsbæ heldur
sína árlegu vortónleika í Bæjarleikhús-
inu við Þverholt, sunnudaginn 20. mars
kl. 16.
Tónleikar í Borgarnesi
og á Akranesi
Kór Menntaskólans að Laugai-vatni
verður með tónleika í Borgarneskirkju
laugardaginn 19. mars kl. 16 og á
Skagfirska söngsvcitin.
Skagfirska söngsveit-
in í Reykjavík
Skagfirska söngsveitin fer í söngferð
til Vesturlands, sunnudaginn 20. mars,
og verða tónleikar í Búðardal, Dalabúð,
kl. 16. og í Stykkishólmi, kirkjunni, kl.
20.30.
Einsöngvarar í ferðinni verða Guð-
mundur Sigurðsson, Gylfí Þ. Gíslason
og Svanhildur Sveinbjörnsdóttir.
Föstudaginn 25. mars mun söng-
fimmtudaginn 24. mars kl. 20 og loka-
tónleikamir verða svo í Langholtskirkju
laugardaginn 26. mars kl. 16.
Sungin verða íslensk lög og erlend,
madrigalar, óperukórar, sönglög og Iög
sem sjaldan heyrast.
Einsöng með kómum syngja þrír
söngvarar: Jóhann Ari Lárusson, Björk
Jónasdóttir og Guðlaugur Viktorsson
tenór. Undirleikari verður Anna Guðný
Guðmundsdóttir og stjómandi verður
Friðrik S. Kristinsson.
nefna tvær syrpur, aðra úr West side
story og hina við ljóð eftir Jónas Árna-
son, en þá syrpu flutti kórinn í Borgar-
leikhúsinu sl. haust í tilefni af 70 ára
afmæli Jónasar.
Stjórnandi Álafosskórsins er Helgi
R. Einarsson og undirleikari er Hrönn
Helgadóttir.
Akranesi sunnudaginn 20. mars í Fjöl-
brautaskóla Vesturlands kl. 15.
Stjórnandi er Hilmar Öm Agnarsson,
organisti í Skálholti. Á efnisskránni
verða m.a. íslensk lög, lög eftir Bítlana
og eftir Andrew Lloyd Webber.
sveitin taka þátt í Skagfirðingahátíð
sem fram fer á Hóte! íslandi og koma
þar fram ásamt fleiri kórum og söngv-
urum. Söngstjóri Skagfirsku söngsveit-
arinnar er Björgvin Þ. Valdimarsson
og undirleikari er Sigurður Marteins-
son.
Þann 27. apríl heldur sfðan söng-
sveitin til frlands til þátttöku í alþjóð-
legu kóramóti sem þar er haidið ár-
lega. í þessu kóramóti taka um 100
kórar þátt víða að úr veröldinni.
Álafosskórinn.
Efnisskráin er fjölbreytt og má m.a.
Kór Menntaskólans að Laugarvatni.
Nemendur Tónmenntaskóla Reykjavíkur.
Hljómsveitartónleikar ?51n,mennItIaskó)f u Reykjavíkur verða
„, j. i 'i haldmr í Haskolabioi, laugardaginn 19.
1 onmenntaskóla mars kl. 2 e.h. Þar koma fram strengja-
Revkiavíkur sveitir, blásarasveitir og léttsveit skól-
“ ans með fjölbreytta efnissþrá. Aðgang-
Hinir árvissu hljómsveitartónleikar ur er ókeypis og öllum heimill.