Morgunblaðið - 18.03.1994, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1994
34
Hrefna Ólafs-
dóttír — Minning
Fædd 30. október 1927
Dáin 9. mars 1994
Meðan við erum böm að kynnast
umheiminum, byrjum við að raða
persónum lífsins upp í einhvers
konar mynstur. Óafvitandi staðsetj-
um við hvem og einn í umhverfínu.
Þetta mynstur er sífellt að breyt-
ast, stundum þvert á óskir okkar
og verður með aldrinum æ marg-
brotnara. Mannverur heimsins
standa okkur misnærri. Hrefna föð-
ursystir okkar var ætíð hluti af
æskuheimili okkar, enda slitum við
systkinin bamsskónum á sömu þúf-
unum og hún hafði gert.
Hrefna Ólafsdóttir fæddist í
Eystra-Geldingaholti í Gnúpveija-
hreppi, 30. október 1927 og ólst
þar upp hjá foreldrum sínum, Ólafí
Jónssyni bónda þar og Pálínu Guð-
mundsdóttur frá Hólakoti.í Hmna-
mannahreppi. Hrefna var yngst
systkinanna Jóns, Ingu og Guðrún-
ar, sem lést fyrir rúmum 13 áram
langt um aldur fram. Lýsingar
þeirra systkina frá æskuáram era
skemmtilegar og litríkar og jaðra
oft við rómantík. Eins og enn var
títt í sveitum fyrir ekki löngu, var
heimilið í Eystra-Geldingaholti oft
afar mannmargt, því auk fjölskyld-
unnar var einatt mikill fjöldi kaupa-
fólks og vetrarmanna og þar dvöldu
ekki síst sumarböm sem sum hver
urðu sem hluti fjölskyldunnar.
Þegar Hrefna stofnaði sitt eigið
heimili fór hún ekki langt frá æsku-
stöðvunum. Hún brá sér út yfír
Stóra-Laxá í næstu sveit og giftist
árið 1950 Guðmundi Sigurdórssyni
frá Götu í Hranamannahreppi. Þau
vora meðal frumbyggja á Flúðum
og bjuggu þar alla tíð í Akurgerði.
Hrefna og Guðmundur eignuðust
þijú böm en urðu fyrir þeirri sorg
að missa fyrsta bam sitt. Síðar
eignuðust þau synina Tryggva og
Ármann. Tryggvi er kvæntur Önnu
Brynjólfsdóttur og eiga þau soninn
Hlyn. Kona Ármanns er Hrefna
Hannesdóttir, böm þeirra era
Hannes og Bergný.
Hrefna var fínleg kona, glaðlynd
og gædd miklu jafnaðargeði, en
hafði engu að síður sínar ákveðnu
skoðanir. Hún hafði næmt auga
fyrir klæðaburði og var ætíð svo
vel til fara að eftir því var tekið,
enda mikill fagurkeri. Henni lék
allt vel í hendi hvort sem var sauma-
skapur eða hvers kyns hannyrðir,
blómarækt eða postulínsmálun. Frá
ynga aldri hafði hún mikinn áhuga
á hannyrðum og var gott að eiga
hana að þegar vanda þurfti til
þeirra. Áhugamálið varð svo að
atvinnugrein hennar er hún gerðist
handavinnukennari við Flúðaskóla
árið 1956 og gegndi hún því starfí
þar til veikindi gripu í taumana
síðastliðið haust. Rúmlega fímmtug
dreif Hrefna sig í réttindanám við
Kennaraháskóla íslands og lauk
þaðan kennaraprófí árið 1983.
Sumarblómin sem Hrefna rækt-
aði í litla gróðurhúsinu sínu á bak
við húsið í Akurgerði hafa prýtt
marga garða í sveit og í borg um
árabil og garðurinn í kringum húsið
þeirra Mumma hefur lengi verið
mikið augnayndi sem vitnar um
snyrtimennsku og árvekni. Á heim-
ili þeirra var sköpunarþörf Hrefnu
augljós en það bjó hún mörgum
fögram munum sem hún sjálf vann.
Þar andaði að manni hlýju þegar
komið var í dymar.
Það var alltaf notalegt þegar
Hrefna og Mummi renndu í hlaðið
heima í Geldingaholti. Til þess
þurfti ekki stórafmæli eða tyllidag.
Þau hafa verið svo stór hluti af lífí
okkar og nærvera þeirra alveg sjálf-
sögð, hvenær sem var. Við fundum
jafnvel til tómleika ef þau fóra til
útlanda og vora ekki innan seiling-
ar um stundarsakir.
Lífsskeiði er lokið en eftir standa
sporin, dýrmætar minningar, mun-
imir sem hún skóp með högum
höndum sínum, plöntumar sem hún
gróðursetti, öll verkin. Það vorar
brátt. Garðurinn í Akurgerði mun
blómstra á ný, vitnandi um störf
hennar, natni og lífskraft moldar-
innar. Upprisuhátíðin nálgast og
„lífið fær dauðann deytt!“. Þegar
við sjáum aftur sumarblóm, í allri
sinni dýrð, minnumst við Hrefnu í
Akurgerði._
Árdís, Sigrún og
Sigþrúður Jónsdætur.
Nú er skarð fyrir skildi í liði
Flúðaskóla. Hrefna hefur háð sína
hinstu baráttu af hetjuskap og
æðraleysi eins og hennar var von.
Þrátt fyrir að Ijóst væri að alvarleg
veikindi höfðu heltekið hana, héld-
um við í lengstu lög í vonina um
að Hrefna kæmi aftur til starfa.
Hrefna kenndi hannyrðir við
Flúðaskóla frá árinu 1956. Þegar
kennuram í starfí bauðst að sækja
nám til kennaraprófs í Kennarahá-
skóla íslands árið 1979, sló Hrefna
til þar sem hún taldi að alltaf væri
hægt að bæta sig. Hún stundaði
námið með kennslunni og lauk
kennaraprófí árið 1983. Eftir það
kenndi hún yngstu nemendum skól-
ans í nokkur ár jafnframt því sem
hún kenndi alltaf hannyrðir.
Samviskusemi og vandvirkni era
dæmi um einkenni Hrefnu. Hún
vann verkin sín af alúð og elju-
semi. Stundvísi og reglusemi í starfí
var við bragðið. Hrefna var mikill
fagurkeri, hún naut þess að skoða
og handleika fallega hluti. Hún var
listamaður sjálf, saumaði, teiknaði,
málaði og útbjó hina ótrúlegustu
hluti úr margvíslegu efni. Hún bar
virðingu fyrir öllu því sem óx og
dafnaði og lagði sitt af mörkum til
þess að framgangur þess yrði sem
bestur.
Hrefna ræktaði blóm og tré af
miklum dugnaði og garðurinn
þeirra hjóna í Akurgerði hefur ver-
ið til fyrirmyndar og mikillar prýði.
Hrefna lagði einnig mikla rækt við
æskuna sem hún liðsinnti og kenndi
hátt á fjórða áratug. Margar stúlk-
uraar hafa skartað sínu fegursta í
heimasaumuðum tískufatnaði eftir
þá kennslu sem þær fengu hjá henni
og flestir piltarnir hafa tekið sín
fyrstu nálarspor og lært að pijóna
undir hennar handleiðslu.
Nemendur hennar, margir hveij-
ir, vora óþolinmóðir við að bíða eft-
ir henni í veikindum hennar og oft
var spurt hvort Hrefna færi nú
ekki að koma. Dag nokkum í fyrri
viku komu tveir ungir herramenn
til mín alvarlegir á svip og spurðu
hvort ég héldi ekki að_ þetta væra
mjög slæm veikindi. Eg taldi svo
vera. Þeir gengu þungstígir heim á
leið.
Við samstarfsfólk hennar minn-
umst glaðra stunda í starfí og leik.
í hugum okkar ríkir tómleiki og
söknuður. Hvellur og glaður hlátur
hennar heyrist ekki lengur á meðal
okkar en góðar minningar liðinna
ára verma.
Ég minnist Hrefnu frá því að ég
kom hér fyrst í sveitina fyrir nær
23 árum. Vinátta hennar og rækt-
arsemi við mig og fjölskyldu mína
verður seint full þökkuð.
Guðmundur minn, Tryggvi, Ár-
mann og fjölskyldur. Við í Flúða-
skóla biðjum algóðan guð að styrkja
ykkur í þessari þungu raun.
Blessuð sé minning Hrefnu
Ólafsdóttur.
Bjarni H. Ansnes skólastjóri.
Heilög þöp og hljóðlát þökk,
hjörtun hvísla mild og klökk.
Sofðu í friði, særð og þreytt,
svefninn besta hvíld fær veitt.
(Ingibjörg Benediktsdóttir.)
Mig langar með nokkram orðum
að minnast Hrefnu vinkonu okkar,
sem lést 9. mars sl. Hrefnu kynnt-
ist ég er ég kom í Hrunamanna-
hrepp 1951 og hélst ætíð góð vin-
átta með okkur öll þessi ár. Hrefna
var mikil blóma- og ræktunarkona
og fallegri garður en hennar í Akur-
gerði er vandfundinn. Þar var hlúð
að hveiju blómi og ranna eins og
litlu bami, og þegar komið var í
garðinn á vorin þá var hún kannski
að taka ábreiður ofan af viðkvæm-
ustu blómunum sínum, sem hún
hafði breitt yfír svo að þau lifðu
veturinn af.
Já, það verða ekki farnar fleiri
ferðir til Hrefnu til að fá sér blóm
í garðinn hér hjá mér, en í áraraðir
hef ég fengið blóm frá henni sem
hafa skartað í sólinni. Sérstaklega
þótti mér vænt um hádegisblómið
sem var alltaf, að mér fannst, fal-
legast.
Hrefna var listakona í höndun-
um, jafnvíg á fatasaum og aðra
handavinnu. Hún kenndi handa-
vinnu stúlkna í Flúðaskóla frá 1955
og þar til hún varð að hætta vegna
veikinda sinna nú í vetur. Hún var
mjög góður handavinnukennari sem
vildi nemendum sínum vel og vildi
að stúlkumar lærðu góða handa-
vinnu. Fimm dætur okkar fengu
sitt veganesti hjá henni og veit ég
að þær lærðu margt gott hjá henni
og þakka ég henni það.
Við viljum kveðja Hrefnu með
þessum ljóðlínum og sendum Guð-
mundi eiginmanni hennar og sonum
þeirra, Tryggva og Ármanni, og
flölskyldum þeirra innilegar samúð-
arkveðjur.
Hver minning er dýrmæt peria að liðnum lífsins
degi.
Hin ljúfu og góðu kynni af alhuga þökkum vér.
Þinn kærleiki í verki var gjöf sem gleymist eigi.
Og gæfa var það öllum sem fengu að kynnast
þér.
(L.S.)
Elín og Magnús í Miðfelli.
Með fáeinum orðum langar okkur
að minnast vinkonu okkar Hrefnu
Ólafsdóttur, sem andaðist á Sjúkra-
húsi Selfoss hinn 9. mars sl. Hún
var fædd í Eystra-Geldingaholti í
Gnúpveijahreppi, dóttir merkis-
hjónanna þar, Pálínu Guðmunds-
dóttur og Ólafs Jónssonar.
Hrefna fluttist ung að áram að
Akurgerði í Hranamannahreppi er
hún giftist Guðmundi Sigurdórs-
syni. Þau reyndust vera mjög sam-
hent í að skapa fallegt heimili á
nýja staðnum, en þau vora með
fyrstu búendum í Flúðahverfí.
Hrefna og Guðmundur eignuðust
þijú börn, dóttur er þau misstu í
fæðingu og synina Tryggva, skrif-
stofumann í Reykjavík, kona hans
er Anna Brynjólfsdóttir og eiga þau
einn son Hlyn, og Ármann við-
skiptafræðing í Reykjavík, kona
hans er Hrefna Hannesdóttir og
eiga þau tvö börn Hannes og
Bergnýju.
Þegar synimir komust á legg
gerðist Hrefna handavinnukennari
í Flúðaskóla og því starfí gegndi
hún meðan hún gat vegna veikinda.
Það era því margir sem hafa notið
leiðsagnar hennar við fyrstu nálar-
sporin. Handavinna var Hrefnu allt-
af mjög hugleikin enda var hún
snillingur í því starfí, hvort sem ar
listsaumur, pijón eða postulíns-
málning. Hún var einnig mikil
blómaræktunarkona og smám sam-
an byggðist upp fallegur lystigarður
kringum húsið hennar, með ótelj-
andi tegundum af sumarblómum,
fjölæringum, tijám og rannum. Hún
ræktaði sjálf sumarblómin sín af
mikilli alúð og var alla tíð áhugasöm
að fara vorferðir ásamt okkur vin-
um sínum að skoða gróðrarstöðvar
og afla sér nýjunga. Þar vora marg-
ar ógleymanlegar stundir við sam-
eiginleg áhugamál.
Hrefna hafði mikinn áhuga á
ferðalögum og sem betur fór áttu
þau Guðmundur þess kost að ferð-
ast mikið í gegnum árin, bæði inn-
anlands og utan. Þar naut Hrefna
sín vel og geymdi með sér fegurð
þess sem hún sá, bæði landslags,
lystigarða, borga sem og glæstra
halla.
Nú þegar leiðir skiljast um sinn
rifjast upp kunningsskapur og vin-
átta okkar þrennra hjóna í gegnum
meira en Ijöratíu ár. Nú era tvö
úr þessum hópi horfin yfír móðuna
miklu en við sem ennþá stöndum á
ströndinni yljum okkur við ljúfar
minningar og þökkum samfylgdina.
Guðmundi vini okkar og fjöl-
skyldu hans, sendum við einlægar
samúðarkveðj ur.
Sigurbjörg, Svava
og Sigurður.
Enn sveipar vetur konungur
skikkju sinni yfir jörðina, við eram
farin að þrá vorið. Einhvern tíma
hlýtur það að birtast eins og lang-
þráður gestur. Dagamir hafa komið
og farið, líkir hver öðram en lengj-
ast þó smám saman sem styrkir
vonina um blóm í haga.
Þannig hófst einnig 9. mars sl.
en þá kom andlátsfregn. Við höfð-
um lengi reynt að halda í vonina,
en Hrefna hafði lokið sínu jarðvist-
arskeiði. Á þessum árstíma var hún
jafnan farin að stússa í gróðurhús-
inu sínu og litlir gróðurangar famir
að skjóta upp kollinum í sáðbökkun-
um. En allt er í heiminum hverfult.
Hrefna var fædd í Eystra-Geld-
ingaholti í Gnúpveijahreppi 30.
október 1927, dóttirþeirra sæmdar-
hjóna Pálínu Guðmundsdóttur og
Olafs Jónssonar sem þar bjuggu.
Standa ættir þeirra djúpum rótum
hér í sveitum. Hinn 25. nóvember
gekk hún að eiga Guðmund Sigurd-
órsson frá Götu hér i sveit. Höfðu
þau árið 1948 hafíð byggingu íbúð-
arhúss á Flúðum og nefndu Akur-
gerði. Þangað fluttu með þeim for-
eldrar Guðmundar, Katrín Guð-
mundsdóttir og Sigurdór Stefáns-
son. Dvöldu þau í þeirra skjóli allt
til dauðadags.
Hrefna og Guðmundur eignuðust
þijú börn, stúlkubarn sem lést
skömmu eftir fæðingu og synina
Tryggva og Ármann. Era þeir
bræður báðir menntaðir á viðskipta-
sviði og fyrir allnokkru burtfluttir
til höfuðborgarsvæðisins. Kona
Tryggva er Anna Brynjólfsdóttir
en kona Ármanns er Hrefna Hann-
esdóttir. Bamabörnin eru þijú.
Ljóslifandi er í hugskotinu heið-
ríkur októberdagur áríð 1963 er við
hjónin fluttumst hingað að Grand.
Aðeins nokkrir metrar era hér á
milli húsanna og því gott nágrenni
mikils virði, en aldrei hefur fallið
þar skuggi á. Hjá þeim höfðum við
FESTINGAJÁRN
pi ■ ■ OG KAMBSAUMUR
Þýsk gæðavara — traustari festing
HVERGI MEIRA URVAL
Armóla t*f - t<M Reykjavlk - aimar VM>44» .»« 6*MOO
reyndar fengið hvatningu að koma
hingað og var það sannarlega upp-
örvandi. Mjög var gestkvæmt í
Akurgerði á þessum árum og um-
gangur mikill, oft langt fram á
kvöld. Guðmundur annaðist um-
fangsmikla vöruflutninga í áratugi
og var afgreiðslan nánast inni á
heimilinu. Reyndi þá oft á húsmóð-
urina við margháttaða fyrirgreiðslu
og meira en margur hugði.
Hrefna annaðist kennslu við
Flúðaskóla um fjörutíu ára skeið.
Var hún einkar farsæl í starfí og
átti auðvelt með að ná til nemenda
sinna. Jafnan ríkti glaðværð í kring-
um hana þó kennsluhættir væra í
föstum skorðum. Telja má að hug-
leiknast hafí henni þó verið að
rækta garðinn sinn enda hefur hann
alltaf verið til sérstakrar fyrirmynd-
ar. Eflaust tókst henni þó best að
ala upp sumarblóm og ófáir voru
þeir sem sóttu til hennar blóm í
garðinn sinn á hveiju vori. Reyndar
má segja að sama væri hvað Hrefna
tæki sér fyrir hendur, allt var unn-
ið af mikilli nákvæmni og með list-
rænu yfírbragði. Ber hennar fallega
heimili glöggt vitni svo um.
Ónefnt er það í fari Hrefnu sem
telja má að þeir sem til þekktu
hafí metið hvað mest. En þáð var
hve einörð hún var í skoðunum og
hreinskilin við alla enda átti hún
til slíkra að telja. Kom hún blátt
áfram og opinskátt að hvaða mál-
efni sem var og kannski stundum
með ofurlítið glettnu ívafí. Það var
eins og hispursleysið og smitandi
hláturinn lífgaði upp á allt umhverf-
ið.
En svo er kallið komið og minn-
ingamar era svo ótal margar, ljós-
lifandi og dýrmætar. Eitt af mörgu
sem kemur upp í hugann eru þær
ljúfu samverastundir sem okkar
fjölskyldur hafa átt síðla á aðfanga-
dagskvöldum í öll þessi ár, mikil
eftirvænting bamanna og reyndar
okkar allra að hittast og setjast að
veisluborði. Vissulega hefur alltaf
verið svolítið sérstakt og hlýlegt að
koma í Akurgerði. Það var eins og
þangað sækti maður traust og ör-
yggi og verður vonandi áfram þó
nú sé svo sannarlega skarð fyrir
skildi.
Elskulegi Mummi og fjölskylda.
Harmur ykkar er stór sem og okk-
ar allra. Við eram þakklát fyrir
Hrefnu og biðjum minningu hennar
blessunar. Megi vorblærinn sem við
vonum að senn leiki hér í tijánum
á leið sinni yfír fold og vötn færa
ykkur huggun og styrk.
Sólveig og Sigurgeir.
í dag er lögð til hinstu hvílu
Hrefna handavinnukennari eins og
við systumar kölluðum hana á milli
okkar. Okkur langar til að minnast
hennar með nokkram orðum.
Hrefna kenndi okkur systranum
handavinnu bæði í barna- og gagn-
fræðaskóla og gaf okkur góða und-
irstöðu í saumum og pijónaskap.
Sú kennsla nýttist okkur vel þegar
við stofnuðum heimili og fórum að
sauma og pijóna á okkur sjálfar
sem og bömin okkar. Hrefna var
ekki eingöngu kennarinn okkar í
Flúðaskóla í mörg ár, hún var líka
traustur vinur íjölskyldunnar. Hún
vildi okkur ætíð vel og hélt áfram
að fylgjast með högum okkar eftir
að við fluttum að heiman. Þegar
stærri viðburðir gerðust í lífi okkar
sýndi Hrefna vinn vináttuhug í okk-
ar garð og sendi kveðju í einhvers
konar formi frá þeim hjónum. Okk-
ur þótti mjög vænt um að fínna að
hún gladdist yfír velferð okkar. Með
þessum fátæklegu orðum viljum við
þakka þann góðvilja sem Hrefna
sýndi okkur í gegnum árin.
Við systurnar, svo og bræður
okkar, vottum eiginmanni_ Hrefnu,
Guðmundi, sonum þeirra Ármanni,
Tryggva og fjölskyldum þeirra okk-
ar innilegustu samúð.
Blessuð sé minning hennar.
Systurnar Miðfelli 5.
Sá, sem hefur lifað þannig að
þeir sem eftir standa upplifa minn-
inguna með bros á vör og gleði í
hjarta, hefur lifað góðu lífi.
Við eigum erfítt með að sætta
okkur við að Hrefna sé farin. En