Morgunblaðið - 12.04.1994, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRIL 1994
Yöggudauði - skyndidauði
ungbarna — Hvað er til ráða?
eftirJóhann Heiðar
Jóhannsson ogAtla
Dagbjartsson
Vöggudauði er það oftast kallað
í daglegu tali þegar börn á fyrsta
ári deyja skyndilega, án undanfar-
andi veikinda og án þess að um
slys eða annan voveiflegan dauð-
daga sé að ræða. Þetta íslenska
heiti er ekki gamalt og er væntan-
lega bein þýðing á (cot death) eða
dönsku (vuggedod). Heitið vöggu-
dauði vísar annars vegar til þess,
að ungbörnin eru oftast á þeim
aldri, 2ja-4ra mánaða, að þau sofa
enn í vöggu, og hins vegar til þess,
að dauðann ber nær alltaf að með-
an bömin eru sofandi. Hið viður-
kennda fræðiheiti er hins vegar
skyndidauði ungbama (sudden in-
fant death syndrome, pludselig
uventet spædbarnsdod). Skyndi-
dauði ungbarna er nú skilgreindur
þannig, að um sé að ræða óvænt
og skyndilegt dauðsfall hjá ung-
barni, sem áður var talið heilbrigt,
- dauðsfall sem ekki er hægt að
finna neina læknisfræðilega skýr-
ingu á með vandaðri krufningu og
þeim rannsóknum sem henni tengj-
ast, þ.e.a.s. ekki finnst dulin mein-
semd, sjúkdómur eða vanskapnað-
ur.
Hversu algengur er
vöggudauði?
Vöggudauði virðist koma fyrir
hjá ungböfnum allra þjóða og þjóð-
fiokka, sem á annað borð skrásetja
dánarmein og dánarorsakir barna
á formlegan hátt. Tíðni er hins
vegar nokkuð breytileg. Vera má
að mismikil nákvæmni í skráningu
ráði einhverju þar um og að nauð-
synlegar rannsóknir í tengslum við
krufningu séu ekki alltaf gerðar.
Fyrir kemur að ungbörn á fyrsta
ári deyja óvænt af völdum áunn-
inna sjúkdóma eða dulinna innri
galla. Sé krufning ekki gerð, má
gera ráð fyrir að slík tilvik séu
skráð sem vöggudauði, en það leið-
ir til óeðlilegrar hækkunar á tíðni-
tölum á viðkomandi stöðum. Engu
að síður er vöggudauði algengasta
ástæða dauðsfalla hjá ungbörnum
eftir að sjúkdómum og sérstökum
vandamálum nýbura sleppir, þ.e.
eftir fyrsta mánuðinn frá fæðingu.
Hér á landi hefur vöggudauði verið
sérstaklega rannsakaður og náið
fylgst með tíðni hans undanfarinn
einn og hálfan áratug. Sú athugun
bendir til þess að tíðni vöggudauða
á íslandi sé með því lægsta sem
gerist í nálægum löndum og að
dauðsföll hér séu færri en eitt á
hver 1.000 lifandi fædd börn á
hveiju ári. Þetta þýðir að undanfar-
ið hafa að meðaltali 3-4 börn dáið
vöggudauða á íslandi á hverju ári.
Tíðni vöggudauða í Skotlandi og
Noregi var hins vegar um 1,3 fyrir
hver 1.000 lifandi fædd börn árið
1991 og í Bretaveldi öllu um 1,4
fyrir hver 1.000 lifandi fædd börn.
Hvað veldur vöggudauða?
Sú sorglega staðreynd, að ung-
börn, sem talin eru heilbrigð, geti
dáið skyndilega og án undanfar-
andi sjúkdómseinkenna, hefur vak-
ið mikla athygli hjá öllum þeim sem
láta sér annt um heilbrigði og heilsu
barna. Vöggudauði hefur einnig
fengið mikla og vandaða fræðilega
umfjöllun hjá færustu vísinda-
mönnum á sviði meinafræði og
barnasjúkdóma undanfarna ára-
tugi víðs vegar um heiminn. Engu
að síður hefur orsökin ekki fund-
ist. Fjölmargar tilgátur hafa þó
verið settar fram í tímans rás og
margar vandlega kannaðar, en
engin þeirra hefur enn verið vís-
indalega staðfest og sönnuð.
Áhættuþættir
Auk leitar að orsökum hefur
athyglinni einnig verið beint að
svonefndum áhættuþáttum, en það
eru ýmis atriði sem tengjast vöggu-
dauða án þess þó að geta talist til
beinna orsaka. Sem dæmi má nefna
að vöggudauði er talinn algengari
Jóhann Heiðar Jóhannsson.
þar sem mæðraeftirlit er lélegt, þar
sem ungbarnaskoðanir eru stopular
og þar sem fjárhagslegar og félags-
legar aðstæður mæðra eru slæmar.
Óvíst er hvernig þessi atriði auka
hættu á vöggudauða, en áhættu-
þættir, sem hugsanlega er hægt
að breyta, geta skipt miklu máli.
1. Svefnlega
Á síðustu árum hefur athygli
ýmissa vísindamanna beinst að
svefnlegu ungbarna, þ.e. hvort þau
sofa að jafnaði á grúfu, á hlið eða
á bakinu. Undanfarna áratugi hef-
ur mæðrum oftast verið ráðlagt að
láta ungbörn ekki sofa liggjandi á
bakinu. Þetta var gert til þess að
draga úr hættu á köfnun ef börnin
ældu í svefni. í nokkrum samfélög-
um, þar sem tíðrii vöggudauða hef-
ur verið há, komu hins vegar í ljós
tengsl milli vöggudauða og maga-
legu, þ.e. að börn sem dóu vöggu-
dauða lágu hlutfallslega oftar á
grúfu en önnur börn. í sumum lönd-
um hefur þetta orðið til þess að
ráðleggingum til mæðra hefur ver-
ið breytt á þann hátt að þeim er
bent á að leggja ungbörn til svefns
þannig að þau sofi á hliðinni eða
Atli Dagbjartsson.
bakinu. Þetta, ásamt víðtækri um-
fjöllun um aðra áhættuþætti, virð-
ist hafa lækkað tíðni vöggudauða
marktækt, en þó ekki niður fyrir
lægstu tíðni í ýmsum öðrum lönd-
um. Óljóst er enn hvað það er sem
veldur því að ákveðin svefnlega
geti haft áhrif á tíðni vöggudauða.
Nauðsynlegt er að benda á að sum
ungbörn, svo sem fyrirburar, eru
eftir sem áður látin liggja og sofa
á grúfu til að tryggja eðlilega önd-
un.
2. Reykingar.
Annar áhættuþáttur, sem mikil
athygli hefur beinst að á allra síð-
ustu árum, er reykingar. Sýnt hef-
ur verið fram á að reykingar
kvenna á meðgöngutíma og reyk-
ingar foreldra ungbarna geta aukið
hættu á vöggudauða. Hættan eykst
í hlutfalli við fjölda reyktra sígar-
etta og getur allt að því fimmfald-
ast hjá þunguðum konum sem
reykja meira en 20 sígarettur á
sólarhring. Ekki er ljóst hvernig
reykingarnar auka áhættuna, en
sýnt hefur verið fram á það að
tóbaksreykur í nánasta umhverfi
tilraunadýra á meðgöngutíma veld-
ur vanþroska í lungum hjá afkvæ-
munum.
3. Aðrir áhættuþættir
Bent hefur verið á að notkun
áfengis og annarra fíkniefna á
meðgöngutíma auki hættu á
vöggudauða, en einnig hættuna á
meðfæddum vanskapnaði. Nokkrir
vísindamenn hafa fundið tengsl
milli ofdúðunar ungbarna og
vöggudauða. Telja þeir að of mikill
klæðnaður og of þykkar ábreiður
geti leitt til ofhitnunar sem á ein-
hvern hátt geti verið sumum ung-
börnum lífshættuleg. Þá hefur
einnig verið bent á að mjúkar dýn-
ur og koddar í vöggum ungbarna
geti aukið hættuna. Loks hefur
komið fram vísbending um að tíðni
vöggudauða sé lægri hjá börnum
sem fá bijóst, en þeim sem fá pela.
Þessi síðasta vísbending er þó enn
sem komið er mjög óljós.
Er hægt að lækka tíðni
vöggmdauða hér á landi?
Þar sem tíðni vöggudauða hér á
landi er lág, er óvíst hvort hana
megi lækka enn frekar með sér-
stökum aðgerðum eða breyttum
ráðleggingum. Rétt er þó að benda
á eftirfarandi atriði:
Það að láta heilbrigð, fullburða
ungböm sofa á bakinu er sennilega
ekki hættulegt eins og áður var
talið.
Reykingar á meðgöngutíma og
í námunda við ungbörn ber ótví-
rætt að forðast.
Neysla áfengis og annarra fíkni-
efna á meðgöngutíma getur haft
skaðleg áhrif á heilsu og líf ung-
barna.
Ofdúðun hjá sofandi ungbörnum
er þeim ekki til þæginda og getur
jafnvel verið þeim skaðleg. Eins
ber að forðast mjúkar dýnur og
kodda, sem hindrað geta hreyfing-
ar barna í vöggunni.
Rétt er að benda á gagnsemi
þess að þungaðar konur notfæri
sér reglubundið mæðraeftirlit.
Sömuleiðis er rétt að benda öll-
um foreldrum á að notfæra sér
ungbarnaeftirlitið hér á landi, sér-
staklega læknisskoðunina við sex
vikna aldur.
Jóhann Heiðar Jóhannsson er
læknir á Rannsóknastofu
Háskólans og sérfræðingur í
barnameinafræði. Atli
Dagbjartsson er barnalæknir og
starfará barnadeild
Landspítalans.
Framhaldsskóla hvað?
eftir Harald
Hallgrímsson
Ég hef nýlokið lestri á drögum
að frumvarpi að nýjum framhalds-
skólalögum ásamt ýmsu ítarefni
og mig vantar svör. í greinagerð
sem fylgir drögunum segir að þau
séu gerð til að ...skerpa áherslur
í stjórnun og rekstri, fjölga náms-
léiðum frmahaldsskólans, styrkja
réttarstöðu nemenda... Þetta eru
allt göfug markmið, en hvernig
ætlar hæstvirtur menntamálaráð-
herra að ná þeim?
Áhrif nemenda og áherslur í
stjórnun
Samkvæmt því frumvarpi sem
nú liggur fyrir menntamálanefnd
Alþingis, ætlar ráðherra ekki að
styrkja réttarstöðu nemenda. Nei,
þvert á móti ætlar hann að skerða
áhrif nemenda í stjórn skólanna,
því að hann hyggst breyta hlut-
verki eina nemendafulltrúans í
skólanefnd, æðstu stjórn skólans,
í áheyrnarfulltrúa. Kennarar eru
greinilega taldir hálfdrættingar við
stjórn skólans, því steypa á tveim-
ur fulltrúum þeirra saman í einn
áheymarfulltrúa.
Hvernig telur þá ráðherra að
skólanefnd, stefnumarkandi afl í
öllum framhaldsskólum og æðsta
ákvörðunarvald þeirra, skuli skip-
uð? Samkvæmt frumvarpinu á
skólanefndin að vera skipuð að
meirihluta af ráðherra, þrír fulltrú-
ar ráðherra, tveir fulltrúar viðkom-
andi sveitarstjórnar, ásamt
áheyrnarfulltrúum kennara og
nemenda. Ráðherra ætlar að gera
skólanefnd að algerlega pólitísku
tæki þess flokks sem fer með stjórn
menntamálaráðuneytisins hveiju
sinni. Þetta kalla ég ekki að skerpa
áherslur í stjórnun og rekstri.
í ljósi reynslu minnar af skóla-
nefnd tel ég að best væri að auka
enn frekar hlut kennara og nem-
enda. í setu minni í skólastjórn hef
ég aðeins hitt einn af þremur full-
trúum sveitarstjóma á fundum og
ráðherra hefur dregið í marga
mánuði að skipa nýja fulltrúa eins
og honum ber samkvæmt lögum.
Nei, reynsla mín af stjórnmála-
mönnum í skólastjórnun er ekki
góð. Æðsti yfirmaður minn, hæst-
virtur menntamálaráðherra, hefur
að mínu mati sýnt skólanefndinni
í mínum skóla áhugaleysi með
miklum drætti á skipun fulitrúa.
Á að bæta réttarstöðu nemenda
með því að gera þá áhrifalausa?
Stytting námstímans
Helsti kostur frumvarps að
framhaldsskólalögum var að mínu
mati lenging skólaársins og stytt-
ing námstímans í þrjú ár. íslenskir
nemendur yrðu nú tilbúnir undir
Haraldur Hallgrímsson
„Á að bæta réttarstöðu
nemenda með því að
gera bá áhrifalausa?“
nám í háskóla á sama aldri og
nemendur annarra landa. En hvað?
Hér er ekki verið að bæta nám né
auka, því að til þess að þetta gangi
upp á að stytta þann tíma sem fer
í próf og auka sjálfstæða vinnu
nemenda. Nemendur eiga sem sagt
að gera meiri heimavinnu og fá
styttra upplestrarfrí fyrir próf.
Þeir nemendur sem munu útskrif-
ast í kerfinu sem verið er að leggja
drög að, munu gera það með fjöru-
tíu daga styttri skólagöngu að
baki.
Er það virkilega hugmyndin að
fækka kennslustundum svo veru-
lega að baki lokaprófs úr fram-
haldsskóla?
Áfangakerfið lagt af
Áfangakerfið er helsta nýjung
í menntamálum landsins síðan
stúlkur fengu að setjast á skóla-
bekk. Þetta kerfi sem var þróað í
Menntaskólanum í Hamrahlíð þyk-
ir svo gott að útlendingar sækja
hingað til þess að læra af okkur.
Helstu kostir kerfisins er mikið
val nemenda og möguleikar á
breytilegum námstíma. Höfundar
frumvarpsdraganna kvarta mikið
yfir því að of stórt hlutfall nem-
enda í framhaldsskóla stundi bók-
nám. Þetta hyggjast þeir leysa
með því að fækka bóknámsbraut-
um úr þrettán í þijár. Þessi ráð-
stöfun mun að mínu mati leiða til
lakari menntunar og minni náms-
áhuga hjá fjölda nemenda. Með
því að þrengja svo mjög að vali
nemenda eru forsendur áfanga-
kerfisins í bóknámi brostnar.
Getur það verið að góðum
árangri af áfangakerfinu sé fylgt
eftir með því að leggja það niður?
Mótun menntastefnu til
framtíðar
Þeir, sem nú halda um stjórnvöl-
inn og gera tillögur um mennta-
stefnu, virðast fyrst og fremst
hafa sparnað að leiðarljósi. Sparn-
aður er hið besta mál, en harka-
legt að láta hann bitna svo þungt
á ungu fólki. Þetta er kynslóðin
sem mun erfa allar erlendu skuld-
irnar sem stofnað hefur verið til á
undanförnum árum. Er eitthvað
réttlæti í því að henni sé auk þess
ætlaður verri skólaundirbúningur
en verið hefur?
í nefnd um mótun menntastefnu
sem samdi frumvarpið sitja átján
einstaklingar, enginn þeirra er
nemandi. Leitað var ráða hjá fjöl-
mörgum aðilum við gerð þess en
ekki nemendum. Nefndin sá ekki
ástæðu til að leita álits hjá Félagi
framhaldsskólanema er hún samdi
frumvarpið og aðeins einn fjölbrau-
takennari kom þar við sögu. Er
þetta tilviljun eða aðeins liður í
atlögu hæstvirts ráðherra gegn
áfangakerfinu?
Eitt er víst: nemendur fram-
haldsskólanna munu fylgjast vel
með þeim umræðum sem framund-
an eru, og hlusta eftir svörum
ráðamanna við þessum og mörgum
fleiri spurningum sem frumvarpið
vekur.
Höfundur er forseti
Nemendafélags Menntaskólans
við HamrahUð ogfulltrúi
nemenda í skólanefnd.