Morgunblaðið - 12.04.1994, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1994
15
Hvers eiga aldraðir að gjalda?
Hugleiðingar um frumvarp til laga um tannlækningar
eftir Peter Holbrook
Ráðherra heilbrigðis- og trygg-
ingamála hefur lagt fram frum-
varp til breytinga á tannlæknalög-
um þar sem tekin eru af öll tví-
mæli um óskoraðan rétt tannsmiða
til máttöku og smíða gervitanna
án umsjónar tannlækna. Tann-
læknar og tannsmiðir gegna báðir
mikilvægu hlutverki við gerð
gervitanna en það er hæpinn
ávinningur sjúklingi að fela það
verk tannsmiði er einungis hefur
tækniþjálfun að baki en skortir
fræðilega þekkingu á sjúkdómum
þeim er á munnholið heija. Sjálfur
á ég hvorki faglegra né fjárhags-
legra hagsmuna að gæta enda
vann ég síðast við gervitannasmíð
sem aðstoðarmaður prófessors í
gervitannagerð í Edinborg fyrir
rúmum tveimur áratugum.
Tvær umfangsmiklar kannanir
á tannheilsu og tannleysi meðal
íslendinga hafa farið fram á vejg-
um tannlæknadeildar Háskóla Is-
lands á síðustu árum. Einar Ragn-
arsson dósent ásamt samverka-
mönnum gerði aðra og birti niður-
stöður í Læknablaðinu (1,2) og
Guðjón Axelsson prófessor og
samstarfsmenn gerðu hina sem
birt var í tveimur stórum uppgjör-
um (3,4). í báðum þessum rann-
sóknum kemur fram að aldur
þeirra er missa síðustu tönn og
þarfnast heilgóma hefur hækkað
stöðugt á síðustu árum. íslending-
ar nálgast nú óðfluga það stig
tannheilsu, sem fyrir aldarfjórð-
ungi taldist hæfilegt hjá þeim þjóð-
um er við teljum okkar jafnar
hvað heilbrigðisþjónustu varðar.
Af því má draga þá ályktun að
tannleysi verði brátt aðeins hlut-
skipti þess hluta þjóðarinnar sem
kominn er á aldur ellilífeyris.
Það er alkunna öllum þeim er
að heilsugæslu starfa að aldraðir
þarfnast meiri umönnunar en aðr-
ir aldurshópar eftir að barnasjúk-
dómum sleppir. Tannsmiðir hafa
hvorki menntun né þjálfun við
töku heilsufarssögu, því síður hafa
þeir þekkingu til að meta lyfjagjöf
og almennt heilsufar enda þótt
slíkt sé mikilvægt atriði þegar
tannsmíðar koma til álita. Fjöldi
kannana hefur sýnt fram á nauð-
syn röntgenmyndatöku áður en
tannsmíði fer fram, en með þeim
greinast rótarbrot eða tennur sem
enn hafa ekki komið upp. — Á að
fela tannsmiðum töku röntgen-
mynda upp á eindæmi?
Könnun á tannheilsu á öldrun-
arstofnun i Reykjavík (5) sýndi
að yfir 42% vistmanna með heil-
góma höfðu slímhúðarbólgur und-
Peter Holbrook
„ Að mínu mati er það
alröng stefna heilbrigð-
isyfirvalda að bjóða
öldruðum upp á þjón-
ustu sem faglega séð
stendur langt að baki
þeim gæðastaðli er aðr-
ir þjóðfélagsþegnar
njóta.“
an gervitönnum og gersveppabólg-
ur í munni. — Eiga tannsmiðir að
stjórna meðferð þeirra kvilla með
sveppa- eða sýklalyfjagjöf? Enn-
fremur reyndust 10% sjúklinga á
öldrunarstofnunum hafa slímhúð-
arbreytingar er kröfðust nánara
mats sérfræðinga á þessu sviði. —
Eru tannsmiðir hæfir til að fínna
og meta þær og kveðja til sérfræð-
inga þar sem það á við? íslenskir
læknar og hjúkrunarfræðingar fá
litla tilsögn eða þjálfun við grein-
ingu munnholssjúkdóma og er
tannsmiðum því tæpast hjálpar að
vænta úr röðum þeirra.
í nýlegri ritstjórnargrein í
Breska læknablaðinu (British
Medical Journal) (6) kemur fram
að reglubundið eftirlit hjá tann-
lækni er árangursríkasta og ódýr-
asta leiðin til að fínna krabbamein
í munni og á vörum í Bretlandi.
Krabbamein í munni er algengast
hjá öldruðum og breskir tannlækn-
ar fínna um 40% þeirra. Það hefur
nú runnið upp fyrir bresku stjórn-
inni að henni hafi orðið á er hún
á tímum aðhalds fyrri ára ákvað
að fella niður ókeypis skoðanir á
munni og íhugar nú í alvöru að
bæta fyrir þau mistök og hefja
aftur munn- og tannskoðanir án
endurgjalds.
Niðurstaða. Tannmissir hjá heil-
brigðu fólki á besta aldri svo gervi-
góma sé þörf heyrir nú nánast
sögunni til og er það vel. Gervi-
tennur eru í vaxandi mæli hlut-
skipti aldraðra, sem oft hafa
margslungin heilsufarsleg vanda-
mál. Að mínu mati er það alröng
stefna heilbrigðisyfírvalda að
bjóða öldruðum upp á þjónustu
sem faglega séð stendur langt að
baki þeim gæðastaðli er aðrir þjóð-
félagsþegnar njóta. Eitt er að eiga
völ góðrar eða lélegrar þjónustu,
annað að eiga aðeins kost hinnar
síðarnefndu, en þess yrði skammt
að bíða nái umrætt frumvarp ráð-
herra fram að ganga.
Höfundur er prófessör við
tannlæknadeild Háskóla íslands.
Heimildir:
1. Einar Ragnarsson, Siguijón H. Ólafs-
son, Sigfús Þór Elíasson. Tennur og tann-
leysi 52ja-79 ára karla { hóprannsókn
Hjartaverndar 1985-1986. Læknablaðið
1988;74:57-65.
2. Einar Ragnarsson, Siguijón H. Ólafs-
son, Sigfús Þór Elfasson. Tennur og tann-
leysi 52ja-79 ára kvenna í hóprannsókn
Hjartaverndar 1985-1986. I^eknablaðið
1990;76:151-60.
3. Guðjón Axelsson, Dwight J. Castle-
berry. Breyting á tannheilsu íslendinga
1985-2000. Fyrsti áfangi: Tannheilsa Is-
lendinga árið 1985. Reykjavík: Tannlækna-
félag Islands 1988.
4. Guðjón Axelsson, Sigrún Helgadóttir.
Breyting á tannheilsu lslendinga 1985-
2000. Annar áfangi: Tannheilsa lslendinga
árið 1990. Reykjavík: Háskólaútgáfa 1993.
5. Holbrook WP, Hjörleifsdóttir DV. Occ-
urrence of oral Candida albicans and other
yeast-like fungi in edentulous patients in
geriatric units in Iceland. Gerodontics 1986;
2: 153-156.
6. Hutchison IL. Improving the poor
prognosis of oral squamous cell carcinoma.
British Medical Joumal 1994;308:669-670.
Meira af svo góbu fró Volkswagen.
GolfGL skutbíll.
Nýr Volkswagen Golf skutbíll:
Stærri bíll - betra verb!
í áraraðir hefur Volkswagen Golf átt gífurlegum vinsæld-
um að fagna um allan heim og enn hafa Volkswagen
aðdáendur tilefni til að fagna: I fyrsta skipti í sögunni er
Verð frá
1.230.000 kr. á
3 götuna!
t _________ ......................................... -
-----A. ------ifefc
kominn á markaðinn Volkswagen Golf skutbíll. Rúmgoð-
ur, þægilegur fjölskyldubíll á einstaklega góðu verði
- frá 1.230.000 kr. kominn á götuna.
Oruggur á alla vegu!
0 áD
HEKLA mDDXDi
Laugavegi 170 - 174 • Sími 69 55 00