Morgunblaðið - 12.04.1994, Síða 21

Morgunblaðið - 12.04.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRIL 1994 21 Halldór Blöndal vegna aukinnar hlutdeildar smábáta í jiorskafla Vill setja smábáta undir kvótakerfið Utvegsmannafélag Norðurlands óskar eftir fundi með þingmönnum - Smábátasjómenn segja að verið sé að efna til stríðs gegn smábátum HALLDÓR Blöndal, landbúnaðar- og samgönguráðherra, segir, að setja verði smábáta undir sljórn kvótakerfisins. Reynslan sýni að það gangi ekki að hafa kerfið opið fyrir hluta fiskiskipaflotans. Halldór sagði þetta í tilefni af útkomu skýrslu Háskólans á Akur- eyri um afla smábáta á Norðurlandi. Arthur Bogason, talsmaður smábátaeigenda, segist líta svo á, að með skýrslunni séu útvegsmenn að efna til stríðs. Markmið stórútgerðanna sé greinilega að reyna að sölsa undir sig aflaheimildir smábáta. Utvegsmannafélag Norður- lands, sem óskaði eftir að skýrslan yrði gerð, hefur óskað eftir fundi með öllum þingmönnum Norðurlands um þetta mál. Arthur Bogason, talsmaður Landssambands smábátaeigenda, sagði, að það sé greinilegt að eigend- ur stórútgerða ætli sér með þessari skýrslu að reyna að sölsa undir sig aflaheimildir smábáta. „Þeir gefa þarna ákveðið til kynna að það eigi að fara stríð í gang. Það verður þá að vera þeirra val.“ Arthur sagði að það væri stór ágalli á skýrslu Háskólans á Akur- eyri, að smábátar veiði mikið fyrir stórútgerðina og ekki sé tekið tillit til þess. Þar muni nokkur þúsund tonnum. „Sverrir Léosson [formaður Útvegsmannafélgs Norðurlands] var að gera lítið úr þessu í Ríkisútvarp- inu um helgina, og sagði, að þetta væri óverulegt magn. Ef nokkur þúsund tonn eru óverulegt magn, hljótum við að geta náð samkomu- lagi um, að smábátar fái bara að veiða þau áfram.“ Hlutdeild smábáta í heild- arveiði hefur minnkað Arthur sagðist ekki draga skýrsl- una sjálfa í efa. Talsmenn smábáta hafi aldrei borið á móti því að hlut- deild smábáta í þorskveiði hafi auk- ist. Hlutur smábáta í heildarveiðinni hafi hins vegar verið að minnka. Hann sagði, að tölur Fiskifélagsins sýni þetta glögglega. Smábátar hafi aukið hlutdeild sína í heildarveiðinni fram undir 1990, en eftir það hafi smábátar verið að tapa sinni afla- hlutdeild. Þorsteinn Már Baldvinsson, fram- kvæmdastjóri Samhetja, gagnrýndi smábátasjómenn harðlega í fjölmiðl- um um helgina, einkum talsmann þeirra, Arthur Bogason. „Ég ætla að leyfa Þorsteini Má alveg að sjá um þessa skítkastsdeild. Hann er snillingur í skítkasti og það er langb- est að þeir, sem eru hæfastir í því, sjái um það. Það er hins vegar rétt hjá Þorsteini, að fyrirtæki það í Vestmannaeyjum, sem hann nefndi í frétt Sjónvarpsins, fór á höfuðið. Það er ekkert launungarmál. Það fyrirtæki fékk aldrei 3.500 tonn í fæðingargjöf eins og Þorsteinn fékk á sínum tíma,“ sagði Arthur. Þorsteinn Már baðst undan því að ræða skýrslu Háskólans á Akur- eyri við Morgunblaðið og vísaði á Sverri Leósson, formann Útvegs- mannafélags Norðurlands. Þetta gengur ekki lengur Sverrir sagði, að Útvegsmannafé- lag Norðurlands hefði ákveðið að láta gera þessa skýrslu til þess að menn hefðu öruggan grunn til að byggja á umræðu um þessi mál. Til þess hafi verið fengin óvilhöll stofnun sem allir beri virðingu fyrir, Háskólinn á Akureyri. „Veruleikinn er bara sá, að árið 1984, þegar kvótakerfinu var komið á, var hlutdeild smábáta í þorskaflanum 6%, utan kvóta 2% og innan kvótakerfisins 92%. í dag er þetta komið upp í 22% hjá smábátunum, 7% eru utan kvóta, 67% eru innan kvótakerfisins og síðan tekur Hag- ræðingarsjóður 4%. Þegar þorskkvótinn er dreginn svona mikið saman, eins og gert hefur verið á síðustu árum, kemur þetta ákaflega þungt við útgerðina. Smábátarnir, sem spila frítt í kerfinu, eru alltaf að taka meira til sín. Þar sem smábátar vega miklu minna á norðursvæðinu en í öðrum landshlutum, er verið að flytja þorskveiðiheimildir frá Norðurlandi yfir til annarra landshluta. Við erum að reyna að koma þessum skilaboðum til stjórnmálamanna, sem bera ábyrgð á þessu. Að okkar mati gengur þetta ekki lengur,“ sagði Sverrir. Sverrir sagði, að talsmenn smá- bátasjómanna hafi verið ansi fyrir- ferðarmiklar í umræðunni. Þeir hafi í fjölmiðlum leyft sér að fara með staðlausa stafi. „Arthur Bogason heldur, að með því að hamra nógu mikið á lyginni geti hann talið mönn- um trú um hvað sem er. Við ætlum einfaldlega ekki að láta hann kom- ast upp með það,“ sagði Sverrir. Langtímastefnu vantar Halldór Blöndal, landbúnaðar- og samgönguráðherra, sagði að sú þró- un sem átt hafi sér stað í smábáta- útgerð sé afleiðing þess að Alþingi treysti sér ekki til þess að móta stefnu í sjávarútvegsmálum til fram- tíðar. Þessi lausatök hafi leitt til þess að smábátum hafi fjölgað úr hófi. Löggjafinn hafi búið svo um hnútana að það séu glufur í kerfinu, sem margir hafi nýtt sér. Hann sagði að þess væri dæmi að 45 tonna bát- ur hafi verið skráður 9,9 tonn í þeirr tilgangi að snúa á kerfið og fá sókn- arheimildir sem í raun og veru stön- guðust á við ákvæði laga. „Það er alveg óhjákvæmilegt ac setja stíf mörk um þessa hluti og marka skýrar leikreglur. Okkui dreymdi marga um það til að byija með, að það yrði hægt að heimila smábátaútgerðina eins og hún var rekin fyrir daga kvótakerfisins, en reynslan hefur sýnt að það gengur ekki upp,“ sagði Halldór. Halldór sagði, að menn verði að gera sér grein fyrir, að með aukinni hlutdeild smábáta í þorskkvótanum sé verið að flytja atvinnu frá Norður- landi. Það sé að mörgu leyti erfitt að stunda smábátaútgerð frá Norðurlandi. Þeir hafi tilhneigingu til að færa sig í aðra landshluta sem betur eru fallnir til smábátaútgerðar. Finna þarf lausn Steingrímur J. Sigfússon, al- þingismaður á Norðurlandi eystra, sagði, að þegar menn fjalli um afla- tölur smábáta verði menn að hafa í huga þær forsendur sem á bak við tölurnar liggja. Það sé enginn vafi á að smábátar hafi á síðustu árum aukið aflahlutdeild sína í þorski. Hins vegar hafi smábátar tapað afla- hlutdeild, sé litið á tölur um heildar- afla. Þá verði menn að hafa í huga, að smábátum hafi fjölgað mikið á seinni árum þannig að afli hvers og eins hafi ekki verið að aukast. „Sú ákvörðun að leyfa þessa fjölgun smábáta er auðvitað umdeilanleg. Það má segja, að það hafi verið kjarkleysi að taka ekki á þessu fyrr. En þessi fjölgun átti sér stað í sam- ræmi við lög landsins og það þýðir ekkert að koma eftir á og krefjast þess að refsa mönnum fyrir það. Menn verða bara að horfa á stöðuna eins og hún er. Ef litið er á málið þjóðhagslega, verður að segjast, að stærri skipin hafa miklu meiri mögu- leika á að nýta sér hluti sem smábát- ar hafi enga möguleika á. Við sjáum þetta í stórauknum veiðum á rækju og veiðum utan landhelgjnnar. Það gera smábátarnir ekki. Ég held að aðalatriðið í þessu máli sé að reyna að enda þessar deilur á þann hátt að öllum sé gefinn kostur á að lifa og bjarga sér,“ sagði Steingrímur J. Steingrímur sagði, að smábáta- útgerð væri geysilega mikilvæg fyr- ir marga staði á landinu. Þá væri hann ekki bara að tala um staði eins og Grímsey og Bakkafjörð. Hann sagði, að margir stærri staðir byggðu mjög mikið á smábátaút- gerð. Til dæmis kæmu um 40% af bolfiskafla, sem berst á land á Húsa- vík, frá bátum og smábátum. Steingrímur sagði nauðsynlegt að finna einhveija sátt í þessu máli, en hann sagðist ekki vera sannfærður um, að sú aðferð, sem ríkisstjórnin hefur valið í frumvarpi til stjórnar fiskveiða, sé heppileg. Hann sagðist telja best að allir smábátar, sem eru undir 6 eða 10 tonnum, væru á einu og sama kerfinu. Þeir ættu að hafa einhvern tiltekinn fjölda sóknardaga á árinu og síðan ætti að setja þak á hvern og einn. Steingrímur sagðist telja, að vandamálið í þessu dæmi öllu sé ekki samanburður á afla smábáta og togara heldur saman- but'ður á afla smábáta og afla báta í stærðarflokkunum næst fyrir ofan 10 tonn. Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs- ráðherra sagðist ekki geta tjáð sig um þetta mál, þegar Morgunblaðið leitaði eftir því í gær, vegna þess að hann hefði ekki séð skýrslu Há- skólans á Akureyri. Morgunblaðið/Sverrir Norrænu tónlistar- verkefni að ljúka ÞRIGGJA ára verkefni um norræna tónlist í skólum lýkur um þess- ar mundir. Þrír íslenskir grunnskólabekkir hafa tekið þátt í verk- efninu og hefur því verið skipt í þrennt. Byijað var á því að kynna þjóð- lega tónlist. Því næst tók við sam- starf við tónskáld og hljóðfæraleik- ara og unnu íslensku nemendurnir tónverk undir handleiðslu Þorkels Sigurbjörnssonar tónskálds. Þriðji og síðasti hlutinn hófst síðasta haust og fólst hann í því að hver bekkur valdi þijú íslensk dægurlög til flutnings. Flosi Ein- arsson spilaði lögin inn á snældu og nemendur æfðu sönginn. Síðan gerðu nemendurnir myndband ásamt textahefti og var því dreift til annarra þátttakenda á Norður- löndunum. Myndin að ofan er tek- in á jasskynningu fyrir hópinn í sal Tónlistarskóla FIH á laugar- dag. Lokatónleikar verkefnisins verða í sal Fjölbrautarskóla Vest- urlands á Akranesi laugardaginn 23. apríl kl. 14. Þar flytja nemend- ur eigin lög og texta við undirleik hljómsveitar Vilhjálms Guðjóns- sonar og hljómsveit Sigurðar Flosasonar leikur norrænan djass. Nemendur sem tóku þátt í verkefn- inu eru úr Grundaskóla á Akra- nesi. Flataskóla í Garðabæ og Melaskóla í Reykjavík. Þeir eru á aldrinum 8 til 10 ára. Ljósmynda- sýningu að ljúka SIÐASTI sýningardagur ljós- myndasýningarinnar í List- húsinu í Laugardal, sem hald- in er á vegum Blaðamannaf- ékags íslands og Blaðaljós- myndarafélagsins er á mið- vikudaginn. Sýningin er opin frá 12-19. MORE More tölvan njtnr vavaiid i vinsælda Veistn af hverjn? PCI/ISA 486 tölvur P24T, SX/DX/DX-2. 25-66MHz örgjörvar. 128/256/512KB flýtiminni. 2 til 128MB vinnsluminni. 3 PCI og 4 ISA tengiraufar. 32 bita PCI SCSI stýring. Flash EPROM BIOS. VESA/ISA 486 tölvur P24T, SX/DX/DX-2. 25-66MHz'örgjörvar. 1 til 32MB vinnsluminni. 2 VL-Bus 32 bita tengiraufar. 7 ISA 16 bita tengiraufar. PCI/EISA Pentium tölvur 60-66MHZ. 256/512KB flýtiminni. 2 - 192MB vinnsluminni. 3 PCI og 5 EISA tengiraufar. Flash EPROM BIOS. VIRUSVÖRN í BIOS LOCALBUS PENTIUM READY ZIF SÖKKULL 'GREEN COMPUTER' More tölvurnar eru einfaldlega í hópi þeiixa bestu sem fáanlegar eru á markaðnum í dag. Það sannar fjöldi smárra og stórra fyrirtækja sem hafa valið More. Stækkunar- og tengimöguleikar eru allir til staðar í tölvunum og því einfalt og ódýrt að auka afl tölvunnar eftir því sem verkefnin vaxa. ViewSonic skjáir fylgja öllum More tölvum. View Sonic ViewSonic skjáimir fást frá 14" til 21" og mæta þeim kröfum, sem gerðar eru til skjáa í dag. MPR-II staðallinn fellur þar undir. Þeir hafa afbragðs skerpu og ekkert flökt og nýta myndflötinn vel. Allir ViewSonic skjáir standa á veltifæti. Bæði 20" og 21" skjáimir hafa "Dual Page Display", "ViewMatch" litastýringu og 21 forritanlegar skjástillingar. ^BOÐEIND- Austurströnd 12 • Sími 612061 • Fax 612081 ________________________ Vi* %,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.