Morgunblaðið - 12.04.1994, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1994
Brids
Umsjón Arnór G. Ragnarsson
Sveit Guðrúnar
Jóhannesdóttur vann
parakeppnina
Sveit puðrúnar Jóhannesdóttur
sigraði í íslandsmótinu í parakeppni
sem fram fór um helgina. í sveit-
inni spiluðu auk Guðrúnar, Jón
Hersir Elíasson, Ragnheiður Tóm-
asdóttir og Þröstur Ingimarsson.
Sveit Guðrúnar Jóhannesdóttir
vann sveit Sigriðar Gestsdóttur í
næstsíðustu umferðinni með 25
gegn 5 og lagði þar með grunninn
að íslandsmeistaratitlinum. Sveitin
mátti tapa síðasta leiknum sem var
gegn sveit Ljósbrár Baldursdóttur
en leiknum lauk með sigri Guðrún-
ar 18-12. Lokastaðan:
Guðrún Jóhannesdóttir 137
Anna ívarsdóttir 131
Grethe íversen 124
Ljósbrá Baldursdóttir 120
Guðlaug Márusdóttir 116
Jónína Pálsdóttir 113
H.R.S.S. 113
Með Önnu í silfurliðinu spiluðu
Jakob Kristinsson, Gunnlaug Ein-
arsdóttir og Hrólfur Hjaltason.
Suðurnesjasveitin sem hafnaði í
þriðja sæti var skipuð Grethe ívers-
en, Siugríði Eyjólfsdóttur, Gísla
Torfasyni og Jóhannesi Sigurðs-
syni.
Alls tóku 18 sveitir þátt í mótinu
víðs vegar að af landinu. Spilað var
eftir Monrad-fyrirkomulafi, 7 um-
ferðir, 16 spil.
Bridsfélag
Húnvetninga
Miðvikudaginn 6. apríl 1994 var
spiluð fyrri umferð í tveggja kvölda
einmenningi. Spilað var í 2 riðlum
13 einstaklingar. Úrslit:
A-riðill:
Eyjólfur Ólafsson 57
Egill Egilsson 57
Halla Olafsdóttir 56
Eggert Einarsson 54
B-riðill:
Valdimar Sveinsson 60
Eðvarð Hallgrímsson 55
Brynjólfur Oskarsson 54
Þorleifur Þórarinsson 51
Omar Oskarsson 51
Seinni umferð einmenningsins
verður spilaður 13. apríl en mið-
vikudaginn 20. apríl verður spilað-
ur eins kvölds tvímenningur.
Bridsfélagið Muninn
Sandgerði
Miðvikudaginn 6. apríl var spiluð
7. umferð af 9 í Aðalsveitakeppni
félagsins og er það sveit frá versl-
uninni Sundinu sem heldur áfram
á sama skriðinu. Staðan er þessi
og eru aðeins eftir tvær umferðir.
Verslunin Sundið 160
Sumarliði Lárusson 122
Sparisjóður Keflavíkur 118
Kar! G. Karlsson 104
Einar Júlíusson 104
Gunnar Guðbjörnsson 104
Sigurður Davíðsson 98
Grétar Sigurbjörnsson 81
Gunnar Sigurjónsson 78
Bílanes 48
Eins og fyrr segir eru aðeins
tvær umferðir eftir og því verður
hart barist, því að fjórar efstu sveit-
imar spila svo til úrslita um meist-
aratitilinn.
Spilað verður í Samkomuhúsinu
í Sandgerði miðvikudaginn 13.
apríl.
Björg Sveinsdótt-
ir — Minningarorð
Fædd 13. júní 1916
Dáin 5. apríl 1994
Mig langar í örfáum orðum að
minnast móðursystur minnar,
Bjargar Sveinsdóttur. Útför hennar
fer fram í dag kl. 13.30 frá Víði-
staðakirkju í Hafnarfirði.
Böttý, eins og við kölluðum hana,
var fædd hinn 13. júní 1916 á Eyr-
arlandi við Akureyri. Hún var yngst
tíu barna hjónanna Ingibjargar
Jónsdóttur og Sveins Bergssonar
sjómanns. Öll eldri börnin níu voru
fædd á Þingeyri við Dýrafjörð. Að-
eins ein systirin, Camilla, er eftirlif-
andi af þessum stóra systkinahópi
en þau eru í aldursröð, Svanfríður,
Fanney, Þórunn Elísabet, Lára, Sig-
urður, Petra, móðir undirritaðrar,
Bergur, Pála, Camilla og Björg.
Árið 1914 flutti fjölskyldan frá
Þingeyri til Akureyrar. Björg var
alin upp á Akureyri til níu ára ald-
urs hjá foreldrum sínum og systkin-
um og þótti henni alla tíð, eins og
þeim systkinum öllum, mjög vænt
um Akureyri. Til marks um við
hvaða aðstæður sjómenn og fjöl-
skyldur þeirra máttu búa á þessum
árum er að Sveinn faðir þeirra kom
sárasjaldan til Akureyrar meðan
þau áttu þar heimili og stóð stutt
við, en hann sigldi á millilandaskip-
um með fisk til Evrópu, lengst af
með Pétri Bjömssyni skipstjóra.
Þessar aðstæður munu hafa orðið
til þess, að enn á ný flytur fjölskyld-
Frábær fermingartilboð frá Nýherfa
Við búum börnin
okkar best undir
það að takast á
við hið daglega
líf með því að
leggja áherslu á
menntun þeirra.
Aldrei hefur það
verið ungu fólki
jafn nauðsynlegt
og nú að
tileinka sér
tölvunotkun,
öðlast þekkingu
á því sviði og
geta nýtt sér
kosti tölvunnar
til framdráttar í
námi og starfi.
Fjárfesting í
tölvu er
fjárfesting í
menntun -
fjárfesting til
framtíðar.
D
Ambra Sprinta li 4 486 sx 4 25 MHz
245 MB diskur 4 Þessi tölva fœst einnig meö 170
MB diski og kostar þá kr. 5.680 á mánuðiú)
(Staðgreiðsluverð: kr. 110.900).
Fermingargjöfin í ár! Aðeins kr. 5.851 á mánuði (*)
Ambra tölvumar hafa laust sœti
fyrlr Pentium örgjörva og eru búnar
Vesa Local Bus skjástýringu.
Staðgreiðsiuverð er kr. 114.900.
^» v‘‘í-v.r
Ambra Sprlnta II 4 486 sx 4 25 MHz
245 MB diskur 4 Ultra Sound hljóðkort
Tvelr hátalarar 4 Uppsetning á hljóðkorti og þeim
hugbúnaði sem fylgir 4 Fyrlr aðeins kr. 284 á mánuði í
viðbót O (stgr.verð: kr. 5900) er hsgt að fá Karaoke
hugbúnað og hljóðnema með i pakkanum.
hljóðkerfi Aðeins kr. 6.787 á mánuði (*)
Ambra tölvurnar hafa laust sœti
fyrlr Pentium örgjörva og eru búnar
Vesa Local Bus skjástýríngu.
Staðgreiðsluverð er kr. 133.900.
Ambra Sprlnta II 4 486 sx 4 25 MHz
245 MB dlskur ♦ STAR LC 100 prentari 4 Velja má aðrar
gerðlr af prenturum.
prentari Aðeins kr. 6.720 á mánuði (*)
A M B R A
Ambra tölvurnar hafa laust sæti
fyrír Pentium örgjörva og eru búnar
Vesa Local Bus skjástýríngu.
C-LLiíLll íCalLLll
t'l’L^LL- LiLlLLlLlLvLLLdtt
14" litaskjár SVGA, mús, músarmotfa, lyklaborð,
Windows 3.1 með ritvlnnslu, lelkjum o.fl., DOS
stýrikerfi, handbækur, Lotus Smartsuite kynnlngarforrit,
mánaðar frí áskrift að Nýherjaklúbbnum, Nýherjaklúbbs-
plakat og límmiði ásamt kynningarbæklingi um klúbbinn.
(*) Ofangreind afborgunarverð á
mánuðl miðast vlð staðgreiðslusamning
Glitnis og mánaðaríegar greiðslur f 24
mánuðl. Innlfalið I afborgun er VSK,
vextir og allur kostnaður.
Staögreiðsluverð er kr. 132.500
Vlð bjóðum eftirfarandi vörur á sérstöku
tilboðsverði yflr fermingarnar.
Mikið úrval af hörðum diskum á góðu verði
(IHra Sound hljoðkort + 2 hátalarar Adeins kr. 19.000 stgr.
Mitsumi geisladríf + geisladiskur Frá kr. 26.900 stgr.
I
NÝHERJI
SKAFTAHLlÐ 24 - SlMI B9 77 00
Alltaf skrefi á undan
an búferlum, og þá til Reykjavíkur
árið 1925.
Björg giftist ung að árum Sigur-
birni Hanssyni frá Hafnarfirði og
þar bjuggu þau sín búskaparár. Þau
eignuðust sex_ börn, sem eru: Berg-
þóra, gift Óskari Jóhannessyni,
Ingibjörg, gift Bjarna Björnssyni,
Auður, maður hennar er Hjörtur
Guðmundsson, Hrafnhildur, tví-
burasystir Auðar, gift Skúla Þórs-
syni, Hans, kvæntur Ástu Jónsdótt-
ur og yngstur er Sveinn. Barna-
börnin eru 18 og langömmubörnin
20.
Mér er það í barnsminni hvað
við systkinin hlökkuðum mikið til
að fara í afmælis- og jólaboð til
frændfólksins í Hafnarfirði. Það
voru áreiðanlega skemmtilegustu
boðin, sem við fórum í. Auðvitað
var ekið með Hafnarijarðarvagnin-
um og okkur þótti ieiðin ógnarlöng.
Við töldum hæðirnar á leiðinni og
þegar þeirri þriðju var náð, þ.e.
Arnarneshæðinni, þá var ekki langt
í áfangastað. Böttý tók á móti okk-
ur með mikilli hlýju og sérlega góð-
um veitingum og Bjössi með sinni
kátínu og glaðværð.
Sigurbjörn dó því miður fyrir ald-
ur fram. Björg giftist aftur árið
1963 Halldóri Guðmundssyni, tré-
smíðameistara, mætum manni, sem
lifir konu sína. Þau voru mjög sam-
rýnd og áttu saman mörg góð ár.
Lengst af bjuggu þau í Laugatungu
við Engjaveg í Reykjavík. Ætíð var
gott að koma í heimsókn þangað á
hlýlegt og failegt heimili þeirra og
í gróðursælan garðinn.
Björg var bókhneigð kona og víð-
lesin. Hún var mjög fróð um hin
margvíslegustu efni. Ætíð var
ánægjulegt að hlýða á frásagnir
hennar. Eg minnist með hlýhug
langra samvista við móðursystur
mína.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(V. Briem.)
Greta. *
Elsku amma er farin.
Þegar hlutirnir gerast hratt er
erfitt að trúa því að amma Björg,
eða amma í Reykjavík eins og við
flest kölluðum hana, sé farin frá
okkur.
Þegar við lítum til baka streyma
minningarnar fram í huga okkar.
Eitt af því sem er sterkt í minning-
unni er stór bunki af dönskum
Andrésblöðum sem við krakkarnir
lágum yfir. Okkur barnabörnunum
þótti alltaf gaman að fara í heim-
sókn til ömmu og Halldórs afa. Við
vorum ávallt velkomin og alltaf var
stutt í brosið hjá ömmu.
Skjótvirkur stíflueyóir
Eyðir stíflum
fljótt
• Tuskur
• Feiti
4 Lífræn efni
• Hár
• Dömubindi
4 Sótthreinsar
einnig lagnir
One Shot fer
fljótt að stíflunni
af því að það er
tvisvar sinnum
þyngra en vatn.
Útsölustaðir:
Shell- og Esso
-stöðvar ’
og helstu byggingavöru-
verslanir.
Dreifing: Hringás hf.,
sími 677878-fax 677022
Tilbúinn
stíflu
eyöir
Amma og Halldór afi áttu lengst
af heima í Laugartungu við Engja-
veg og það var sérstaklega gaman
að koma til þeirra þegar fór að
vora og allur gróður að vakna til
lífsins. Þegar við hugsum til baka
er eins og það hafi alltaf verið sól
hjá ömmu Björgu í Reykjavík. Það
segir meira en mörg orð.
Blessuð sé minning hennar.
Við sendum Halldóri afa okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Sofðu vært hinn síðsta blund,
unz hinn dýri dagur ljómar,
Drottins lúður þegar hljómar
hina mikiu morgunstund.
(V. Briem)
Barnabörn og fjölskyldur.
Birting af-
mælis og
minningar-
greina
MORGUNBLAÐIÐ tekur af-
mælis- og minningargreinar
til birtingar endurgjaldslaust.
Tekið er við greinum á rit-
stjórn blaðsins Kringlunni 1,
Reykjavík, og á skrifstofu
blaðsins í Hafnarstræti 85,
Akureyri.
Athygli skal á því vakin, að
greinar verða að berast með
góðum fyrirvara. Þannig verður
grein, sem birtast á í miðviku-
dagsblaði að berast síðdegis á
mánudegi og hliðstætt er með
greinar aðra daga.
Við birtingu afmælisgreina
gildir sú regla, að aðeins eru
birtar greinar um fólk sem er
70 ára eða eldra. Hins vegar eru
birtar afmælisfréttir með mynd
í dagbók um fólk sem er 50 ára
eða eldra.
Mikil áhersla er á það lögð
að handrit séu vel frá gengin,
vélrituð og með góðu línubili.
Ákjósanlegast er að fá grein-
arnar sendar á disklingi.
ÁHRIFARÍKUR HÁRKÚR
fyrir hár, húð og neglur.
Vítamín,
steinefni,
amínósýrur
og prótein.
Hugsaðu
vel um
hárið.
Fæst (
heilsubúðum,
mörgum
apótekum og
mörkuðum.
30 CAPSULES
Fólk hefur mjög góða reynslu af
Super-B-Complex- B-fjölvíta-
míninu frá HEALTHILIFE
Sé það tekið með H.N. eykst
hárvöxturinn til muna.
HAIR & NAIL er jafnframt áhrifarík
fjölvítamín og steinefnablanda með
A, B, C, E vítamínum, járni, zinki,
kopar, mangan og ótal öðrum
steinefnum sem eru I þaranum.
BiO-SELEN UMB. SIMI 76610