Morgunblaðið - 12.04.1994, Síða 43

Morgunblaðið - 12.04.1994, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRIL 1994 43 Guðrún Daða- dóttir — Minning Fædd 17. maí 1898 Dáin 1. apríl 1994 Langri vegferð er lokið. Guðrún Daðadóttir hefur kvatt í hárri elli. Síðasti fulltrúi heillar kynslóðar í ættlegg okkar er fallinn í valinn. Guðrún gerðist hluti af lífi fjöl- skyldna okkar um miðjan þriðja áratuginn er hún giftist Pétri Ey- vindssyni, en hann var uppeldis- bróðir móður okkar og jafnframt voru þau bræðrabörn. Samgangur var talsverður milli heimilanna, eftir því sem þáverandi samgöngur leyfðu. Oft dvöldu þau hjónin líka sumarlangt í næsta nágrenni, fyrst í tjöldum, en síðar byggðu þau sér sumarhús í landi Grafarholts, þar sem Pétur var upp alinn. Börn þeirra eru þijú: Jónína, Björn Ey- vindur og Valdimar Már. Guðrún var glæsileg á velli og minnisstætt hve vel hún bar ís- lenska búninginn, sem löngum var hennar spariklæðnaður. Fas henn- ar var blandað góðlátlegri glettni og það var gott að umgangast hana, trygga og trausta. Hún gerði ekki miklar kröfur í lífinu, en sinnti því af alúð sem henni var falið. Þó húsakynni þeirra Guðrúnar og Péturs væru ekki stór framan af, miðað við það sem nú gerist, stóð aldrei á þeim að hýsa ætt- ingja og vini sem komu utan af landi til lengri eða skemmri tíma. Og þegar tvær okkar systra voru við nám í Reykjavík og bjuggu einar í herbergi við hálfgerðan skrínukost buðu Guðrún og Pétur þeim vikulega í mat allan veturinn. Ótaldir voru kleinupokarnir og ýmislegt annað góðgæti sem Guð- rún stakk að þeim, svona í nesti, en baksturinn hennar var alveg sérstakur. Þegar Pétur féll frá árið 1951 voru þau nýflutt inn í fyrsta hús- næðið sem þau áttu sjálf. Það var þó langt frá fullgert. En Guðrúnu og börnum hennar tókst að ljúka smíðinni og eftir að bræðurnir gift- ust og fluttu að heiman bjuggu Guðrún Alberts- dóttir — Minning Hinn 23. mars sl. lést góð vin- kona okkar, Guðrún Albertsdóttir, eða Gunna eins og við kölluðum hana alltaf. Fregnin um andlát Gunnu kom eins og reiðarslag, við vissum að veikindin voru alvarleg en vonuðum alltaf það besta. Gunnu kynntumst við fyrir 16 árum eða þegar við urðum nágrann- ar í Dvergabakkanum og hélst vin- átta okkar æ síðan. Lengst af vor- um við nágrannar, en eftir að við tókum okkur upp og fluttum búferl- um til útlanda fækkaði samveru- stundum, en við héldum sambandi í bréfum og síma. Síðastliðið sumar heimsóttum við ísland og þá áttum við sameiginlegar stundir sem gott er að ylja sér við í minningunni, takk fyrir þá daga, elsku Gunna mín. Margar góðar minningar eigum við frá því að drengirnir okkar voru litlir og var það í byijun mest í gegn um þá sem við fórum að umgangast. Svo er það ansi oft. Ekki ætlum við að rekja ættir hennar Gunnu, en ung að árum giftist hún Edvard Pétri Ólafssyni og eignaðist með honum þijá syni, Óla Pétur, Viktor Gunnar og Björn Inga. Gunna var mikil mamma og lét sig framtíð sona Sinna miklu skipta. Það er svo erfitt að trúa því að eiga ekki eftir að setjast niður í eldhúskróknum hjá Gunnu og Edda og spjalla saman um daginn og veginn eins og við höfum svo oft gert. Hún var höfðingi heim að sækja, hátíðisdagar hjá fjölskyld- unni með hinu mesta góðgæti, veisluborð sem svignuðu undan því sem upp á var boðið. Stundum finnst manni lífið vera svo ótrúlega óréttlátt, við höfðum hugsað okkur að verða gömul sam- an, en ekki þurfa að setjast niður ung að árum og skrifa hinstu kveðju um eitthvert okkar, en við fáum engu ráðið. Við minnumst samveru- stundanna með mikilli þökk og hefðum viljað hafa þær miklu fleiri. Elsku Eddi, Óli Pétur, Viktor og Björn Ingi, þið hafið misst mikið, eiginkonu og móður sem elskaði ykkur af öllu sínu hjarta. Þó að dagarnir séu dimmir og sorgin ríki þá vitum við að það birtir til aftur, vorið kemur aftur með birtu og yl. Megi Guð styrkja ykkur í ykkar miklu sorg. Öðrum aðstandendum vottum við einnig samúð okkar. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. (V. Briem.) Guð geymi þig, elsku Gunna. Brýndís og Guðmundur Óskar, Gautaborg. þær mæðgurnar, Guðrún og Jón- ína, saman í þessu húsi um árabil. Að Pétri látnum fór Guðrún að vinna utan heimilis. Vinnustaður hennar frá árinu 1951 tii 1988 var Almennar tryggingar, þar sem hún var virt og vel látin. Jafnframt tók hún virkan þátt í starfi Góðtempl- arareglunnar og vann sér vinsæld- ir þar sem annars staðar. Guðrún var einstaklega hand- lagin. Hún hafði yndi af handa- vinnu og var ótrúlega mikilvirk á því sviði. Eftir hana liggja margir munir, saumaðir og heklaðir af miklum hagleik. Áður var minnst á trygglyndi Guðrúnar. Það kom vel í ljós gagn- vart foreldrum okkar alla tíð, og ekki síst eftir að heilsu þeirra tók að hraka. Ófáar voru ferðir liennar til þeirra þegar þau lágu á sjúkra- húsum eða voru lasin heima. Eftir að móðir okkar féll frá var föður okkar mikill styrkur í heimsóknum Guðrúnar og margvíslegri uppörv- un. Fyrir allt þetta er ljúft og skylt að þakka. Áldur sinn bar Guðrún vel og með reisn, þó að smám saman hallaði undan fæti og síðustu ár væru henni þung í skauti. En hún naut alla tíð ástríkis og umhyggju sinna nánustu. Á síðasta ári hafði henni hrakað svo að hún fékk inni á hjúkrunarheimilinu Eir, þar sem hún dvaldi þessa mánuði sem eftir voru þar til vegferðinni, sem hófst fyrir nærri 96 árum vestur á Dröngum á Skógarströnd, lauk á föstudaginn langa. Blessunaróskir fylgja henni að leiðarlokum. Börn Helgu og Hreiðars. t Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, UNNUR BJÖRIMSDÓTTIR, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag, þriðjudaginn 12. apríl, kl. 15. Jón Leósson, Iðunn Elíasdóttir, Leó Jónsson, Ragna Haraldsdóttir, Hrönn Jónsdóttir, Guðjón Þórðarson, Viktor Jónsson, Ingibjörg Grétarsdóttir og barnabarnabörn. Kork*o*Plast Saensk gæðavara KORK-gólfflísar með vinyl-plast-áferð Kork*o*Plast: í 10 gerðum Veggkork í 8 gerðum. Avallt til á lager Aörar korkvörutegundir á lager: Undirlagskork í þromur þykktum Korkvólapakkningar i tveimur þykktum Gufubaöstofukork Veggtöflu-korkplötur I þromur þykktum Kork-parkett venjulegt, (tveimur þykktum Elnkaumboð á íslandl: UltlKiiumuuu <i laiuiiui. & Þ. ÞORGRÍMSSON & CO Ármúla 29 • Reykjavík • Simi 38640 t Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi, bróðir og mágur, BJÖRGVIN G. ÞORBJÖRNSSON fyrrv. aðalbókari, Sörlaskjóli 3, sem lést 31. mars sl., verður jarðsung- inn frá Fríkirkjunni í Reykjavík fimmtu- daginn 14. apríl kl. 13.30. Björn Björgvinsson, Valdis Caltagirone, Guðbjörg Björgvinsdóttir, Björgvin Sigurðsson, Heiðdís Einarsdóttir, Sigríður Maria Sigurðardóttir, Jón Gísli Guðlaugsson, Aníta ísey Jónsdóttir. Sigurbjörn Þorbjörnsson, Betty Þorbjörnsson. Hrefna Pétursdótt- ir - Minningarorð Látin er í Reykjavík Hrefna Pét- ursdóttir hjúkrunarkona langt um aldur fram eftir erfiða baráttu við skæðan nýrnasjúkdóm. Það næðir um hjartarætur á þessum úrsvölu útmánaðardögum við fráfall þessarar einstæðu konu. Áralöng barátta hafði virzt ætla að fá farsælar lyktir eftir langþráðan líffæraflutning, en vonir brugðust og ljóst varð að hveiju dró. Hrefna var skarpvitur kona, föst á sínum skoðunum, raunsæ en jafn- framt skilingsrík, róleg i erli krefj- andi starfs, glaðvær í alvöru hverf- uls lifs. Á ögurstundum var hún vonin — konan með lampann, — sem veitti sjúkum huggun og trú á hið skammvinna líf. Hún var ljúf í geði, fagmaður að köllun og í verki með djúpstæða þekkingu á hjúkrun og heilsugæzlu enda henni sú kunn- átta í blóð borin. Hún var dóttir hins virta fæðingarlæknis Péturs Jakobsen. Það er inikill heiður að hafa not- ið samfylgdar Hrefnu Pétursdóttur og jafnframt lærdómsríkt að sjá hversu hátt mannleg reisn fær risið við erfiðar aðstæður. Hún þráði líf- ið og félagsskap vina sinna. Það var okkur ekki síður ljúft að eiga hana að vini og njóta samvista við þessa minnisstæðu öðlingskonu. Minningin lifir um dugmikla hetju, hina stuttu vegferð hennar og þann kraft, sem í henni bjó. Hún mun verða öllurri, sem hana þekktu, styrkur í þeirri vegferð, sem fram- undan er. Enn næða vetrarvindar, en vor nálgast og dagur lengist. Við vottum Bolla Kjartanssyni, sonum þeirra og öðrum aðstandend- um samúð okkar. Björg og Sverrir Ólafsson. L Ék * 4 tv Elskuleg systir okkar, ffr * MAGNÚSÍNA SIGURBJÖRG m m* VILHJÁLMSDÓTTIR, Hólmgarði 56, nSF er lést í Borgarspítalanum 4. apríl, ***'.. verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju miðvikudaginn 13. apríl kl. 14.00. Fyrir hönd systkinana, «v* -ywHRp'k Arnfríður Vilhjálmsdóttir. t Maðurinn minn og faðir, VALDIMAR JÓNSSON, Kópavogsbraut 8, er látinn. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 15. apríl kl. 13.30. Blóm vinsamlegast afþökkuð, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Krabbameinsfélag íslands. Þóra Helgadóttir, Heiðdís Valdimarsdóttir. t Minningarathöfn um STEINÞÓR HELGASON frá Akureyri, fer fram í Fossvogskirkju miðvikudaginn 13. apríl kl. 13.30. Jarðsett verðurfrá Akureyrarkirkju föstudaginn 15. apríl kl. 13.30. Guðríður Brynjólfsdóttir, Skúli Br. Steinþórsson, Ólöf Sigurðardóttir, Hugrún Steinþórsdóttir, Helgi H. Steinþórsson, Hrafnkeil S. Steinþórsson, Sigrún Magnúsdóttir og barnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og tengdamóðir, BJÖRG SVEINSDÓTTIR, Hofsvaliagötu 16, Reykjavik, verður jarðsungin frá Víðistaðakirkju, Hafnarfirði, í dag, þriðjudag- inn 12. apríl, kl. 13.30. Halldór Guðmundsson, Bergþóra Sigurbjörnsdóttir, Óskar Jóhannesson, Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir, Bjarni Björnsson, Auður Sigurbjörnsdóttir, Hjörtur Guðmundsson, Hrafnhildur Sigurbjörnsdóttir, Skúli Þórsson, Hans Sigurbjörnsson, Ásta Jónsdóttir, Sveinn Sigurbjörnsson. t Þökkum innilega samúð og hlýhg við andlát og útför móður okk- ar, tengdamóður og ömmu, JÓHÖNNU ELÍASDÓTTUR. Andrea Elísabet Kristjánsdóttir, Margrét Kristjánsdóttir, Jón Friðgeir Einarsson, Bragi Kristjánsson, Bjarnfríður Árnadóttir, Sjöfn Kristjánsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.