Morgunblaðið - 12.04.1994, Síða 49

Morgunblaðið - 12.04.1994, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. APRÍL 1994 49 Náttúra tekur upp þráðínn Leikur í Borgarleikhúsinu í kvöld með sænsku hljómsveitinni Groupa NATTURA var ein helsta rokksveit landsins á sinni tíð og meðal þess sem hljómsveitin var þekkt fyrir var að leika klassísk verk í útsetningum fyrir rafhljóðfæri, nokkru áður sem slíkt varð lenska víða um heim. Fyrir stuttu bárust af því fregnir að þrír forðum liðsmenn Náttúru hefðu tekið þráðinn upp að nýju í tilefni af hing- aðkomu sænsku þjóðlagasveitarinnar Groupa og hljómsveitirnar halda sameiginlega tónleika í Borgarleikhúsinu í kvöld. Morgunblaðið/Kristinn Náttúra 1994, Steingrímur Guðmundsson, Sigurður Rúnar Jóns- son, Sigurður Arnason og Björgvin Gíslason Náttúra var ein helsta „pælara- “hljómsveit síns tíma, enda gerðu tónleikar hljómsveitarinnar mikl- ar kröfur til áheyrenda, ekki síður en hljóðfæraleikara, þar sem ekki var óvanalegt að verulega teygð- ist úr lögum meðan liðsmenn létu móðan mása á hljóðfæri sín. Hljómsveitarmenn voru og allir landskunnir fyrir lipran hljóð- færaleik, en þeir voru allmargir eftir því sem á leið, því mikið streymi var af mannskap í gegn- um sveitina á líftíma hennar 1969 til 1971 og í raun má tala um fleiri en eina Náttúru, því hljóm- sveitin lék mjög ólíkar gerðir tón- listar á þessum tíma, þó alltaf hafí tónlistin verið tormelt. Frægt varð þegar Náttúra var bönnuð í Sjónvarpinu, eða réttara sagt að híjómsveitinni var bannað að vinna sjónvarpsþátt sem hún hafði verið fengin til að taka upp, þeg- ar í Ijós kom að sveitarmenn ætl- uðu að leika ýmis klassísk verk í eigin útsetningum fyrir rafhljóð- færi, sem þótti mikil goðgá. Tveir liðsmenn voru í Náttúru öll starfsár hennar, Björgvin Gíslason gítarleikari og Sigurður Arnason bassaleikari, en meðal annarra sem komu við sögu var Sigurður Rúnar Jónsson fiðlu- og hljómborðsleikari. Það eru þeir þrír sem endurreisa nú Náttúru og fengu til liðs við sig Steingrím Guðmundsson trommuleikara þegar þeir tóku að æfa saman fyrir um mánuði. Það liggur vel á þeim félögum þegar hús er tekið á þeim í æf- ingahúsnæði og ekki ber á öðru en þeir skemmti sér við hljóðfæra- slátt saman ekki síður en fyrir rúmum tuttugu árum þegar hljómsveitin lagði upp laupana. Þeir segjast hafa verið að ræða það í nokkur ár að taka upp þráð- inn, en vegna anna hafi aldrei neitt orðið úr, þar til nú að heim- sókn Groupa gefur þeim gott tækifæri til að byrja aftur. Voðalegl hættuástand Sigurður Rúnar segir söguna á bak við heimsókn sænsku hljóm- sveitarinnar hingað hafa í raun hafist þegar hann myndaði litla söngsveit sem sérhæfði sig í að flytja íslensk þjóðlög við undirleik íslenskra hljóðfæra, langspils og íslenskrar fiðlu. „Við höfum farið margar ferðir utan undanfarin ár og leikið á þjóðlagahátíðum og leikið þá þrívegis með þessari sænsku hljómsveit. Fyrst sáum við hana í Falun og urðum berg- numin, því hún voru svo góð.“ Hann segir snemma hafa vaknað þá hugmynd að fá Groupa hingað til lands, er ekki gengið upp vegna anna sveitarinnar til þessa, að gat opnaðist í dagskrá hljómsveitar- innar. „Þá gripum við líka tæki- færið til að koma Náttúru af stað aftur,“ seigir Sigurður Rúnar, „og spila þessi lög sem ekki mátti spila hér áður fyrr; mjög einfaldar útsetningar okkar af léttklassísk- um lögum eftir meðal annarra Grieg og Bach.“ „Á sínum tíma olli þetta einhverju voðalegii hættuástandi í Sjónvarpinu," seg- ir Sigurður Árnason og Sigurður Rúnar bætir við að hljómsveitin hafi verið að taka upp sjónvarps- þátt þegar einhver heyrði í henni þar sem hún var að æfa fyrir upptöku og bannaði slíka goðgá snarlega. Þegar þeir félagar eru spurði. að því hvað reki þá til að hefja samleik eftir rúmra tuttugu ára hlé, svarar Björgvin að bragði söknuður, og allir hlæja. „Við höfum verið að spila með ýmsum tónlistarmönnum í gegnum árin,“ skýtur Sigurður Árnason inní, „og það var alltaf eitthvað sérstakt tónlistarsamband innan Náttúru, sem við höfum vísast allir sakn- að.“ Eftir smá umhugsun bætir Sigurður Rúnar við að honum finnist sem menn séu enn upp fullir með sköpunargleði „mér finnst sjálfum með þessum æfing- um vera þrumu grundvöllur undir að fara að semja saman". Einn dagur í einu Þeir félagar segja allt óráðið með hvað taki við eftir Borgar- leikhússtónleikana, þeir hafi vilja til að spila og hafi verið beðnir um að spila víðsvegar, en þeir taki einn dag í einu. „Það gæti eins verið að Náttúra ætti eftir að spila meira og þá gæti eins farið svo að við myndum kalla til söngvara sem sungu með Náttúru á sínum tíma, eða þá að fá ein- hverja nýja til að syngja með okkur, en það er best að spá sem minnstu um framtíðina.“ Viðtal Árni Matthíasson Fyrirlestur um murtu í Þing-vallavatni SIGURÐUR S. Snorrason dósent við Líffræðiskor Háskóla Ís- lands mun flytja fyrirlestur miðvikudaginn 13. apríl, í stofu 101 í Odda, húsi Háskóla íslands. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30 og er öllum opinn. Heiti fyrirlestursins er Sveiflur í vexti og afföll- um murtu í Þingvallavatni. Það er alkunna að skilyrði í uppvexti geta haft mikil áhrif á vaxtarhraða, kynþroskaaldur og kynþroskastærð fiska. í erindinu er ætlunin að rekja hvernig breytt fæðuskilyrði á árunum upp úr 1985 ollu mjög mikilli minnkun á stærð kynþroska fisks auk þess sem kynþroskaaldur færðist upp um eitt ár. Þetta leiddi að sjálf- sögðu til minnkunar á fijósemi hrynga sem þær þó bættu sér upp að nokkru með því að framleiða minni egg. Ljósastaur í skafli Morgunblaðið/Alfons Hann virðist allt að því óþarfur ljósastaurinn sem rétt gægist upp úr snjóskaflinum sem krakkarnir hafa mikil not af. Myndin er tekin fyrir nokkru í Ólafsvík. UR DAGBOK LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK: 8.-11. apríl Alls eru 507 bókanir í dagbók helgarinnar. Hafa þurfti afskipti af 64 einstaklingum vegna ölvunar- háttsemi þeirra, tilkynnt var um 19 árekstra og 4 umferðarslys. Innbrot voru 8 talsins og jafn margar líkams- meiðingar. Ástæða þótti að kæra 63 ökumenn fyrir að aka of hratt og 27 aðra fyrir önnur umferðar- lagabrot. Auk þeirra var 21 öku- manni gefin áminning vegna um- ferðarlagabrota. Ölvaðir ökumenn reyndust 9. Af þeim höðu tveir lent í umferðaróhöppum áður en til þeirra náðist. Á föstudagskvöld voru nokkrir unglingar í skemmdarverkahugleið- ingum í austurborginni. Fjarlægja varð 4 þeirra eftir að þeir höfðu brotið rúðu. Erfitt var að tjónka við þá vegna þess hve baldnir þeir voru. Um nóttina var skemmdarvargur á ferðinni i Mosfellsbæ. Hann náð- ist, en hafði þá brbtið 2 rúður í húsi og rúðu í bíl, sem stóð þar rétt hjá. Þá er sá hinn sami grunaður um að hafa brotist inn í annað hús í ná- grenninu og brotið þar og bramlað. Fátt fólk var í miðborginni framan af kvöldi fóstudags og laugardags, en því fleira þegar hleypt var út af skemmtistöðunum kl. 3. Alltaf er eitthvað um að fólk kunni þá ekki fótum sínum forráð og hagi sér mið- ur vel, a.m.k. miðað við aldur. Eng- ir unglingar undir 16 ára aldri voru sjáaníegir í eða við miðborgina á þessum tíma. Næstu lielgar mun lögreglan og starfsfólk íþrótta- og tómstundaráðs samt sem áður hafa opið sérstakt unglingaathvarf ná- lægt miðborginni og þangað munu allir þeir unglingar, sem sjást á svæðinu verða færðir og væntanlega sóttir þangað af foreldrum sínum. Ástæða er til að hvetja foreldra til þess að brýna fyrir börnum sínum að virða útivistartímann. Nýlega veittist t.d. maður um þrítugt að 15 ára gamalli stúlku snemma nætur í Þingholtunum og reyndi að nauðga henni. Stúlkunni tókst að komast ósködduð frá manninum. Aðfaranótt laugardags var tvítug- ur maður handtekinn á Laugavegi þar sem hann hafði gert sér að leik að ganga á mannlausum bifreiðum, sem þar voru. Maðurinn virtist mjög áberandi ölvaður og í einhveijum öðrum heimi. Fyrr um nóttina voru fjórir 14 og 15 ára piltar handteknir eftir að hafa brotið rúður í verslunarhúsnæði við Hólmasel. Snemma á laugardagsmorgun var tilkynnt um að einhver eða einhverj- ir hefðu gengið með barefli á þijár bifreiðir á Sunnuvegi og Holtavegi og brotið rúður í þeim. Á sunnudag var tilkynnt um að sparkað hefði verið í bifreið í Brautarholti og brot- in í henni rúða. Alls var tilkynnt um 10 skemmdarverk um helgina, flest á ökutækjum. Svo virðist sem eitt- hvað skorti á virðingu fyrir eignum annarra hjá einhveijum. Aðfaranótt sunnudags var tæp- Iega fertugur maður handtekinn eft- ir að hafa brotist inn í matvöruversl- un nálægt miðborginni. Sá reyndist undir áhrifum áfengis. Hann hafði brotið’ rúðu í útihurð og ætlaði að ná sér í eitthvað að borða. Sérstakt sameiginlegt umferð- aátak lögreglunnar á Suðvesturlandi hefst nk. miðvikudag. Þá er ætlunin að beina athyglinni sérstaklega að hraðakstri og bílbeltanotkun öku- manna og farþega. Ákveðið hefur verið að kæra undantekningarlaust þá ökumenn og farþega, sem staðn- ir verða að því að nota ekki bílbelti. Þó svo að lögreglan á svæðinu muni beina athyglinni sérstaklega að þess- um umferðarlagabrotum á tímabil- inu mun hún að sjálfsögðu fylgjast með því að vegfarendur virði önnur ákvæði umferðarlaga og -reglna. Eftirlit með ölvunarakstri verður þar ofarlega á blaði. ÓKEYPIS ogun um barna- A laugardaginn og sunnudaginn n.k. bjóöum viö öllum og unglingum ókeypis borðpláss þar sem þau geta selt allt milli himins og jaröar eða notfært sér á annan hátt til fjáröflunar. Viö vorum meö samskonar barna- og unglingadag í október sl. sem tókst með slíkum ágætum að nú ætlum við að endurtaka leikinn. Plássið er takmarkað - síminn er625030. KOLAPORTtÐ Þetta tilboð gildir fyrir börn og unglinga innan 16 ára aldurs og er háö því skilyröi aö foreldrar panti fyrir böm sín eöa gefi þeim skriflegt leyfi til þátttöku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.