Morgunblaðið - 08.05.1994, Blaðsíða 40
I-
40 SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
S
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
s
Bjóðum í nokkra daga hvítan
undirfatnað d niðursettu verði
Hvítt við öll tœkifari
Óðinsgötu 2, sími 13577.
Kaplahraun 5 -
Stuttur afgreiöslufrestur
Málmsteypan HELLA hf.
220 Hafnarfirði - Sími 651022 - Telefax 651587
liBllllliiÍIII
Vacational
ARSKOLI
í BRETLANDI
Á uái rvmm
mm ■■ wm B W llllr I
Til að auðvelda íslenskum nemum
enskunám við sumarskóla okkar í
Newbury, Berkshire, á 4 vikna
námskeiðum júlí og ágúst, bjóða
■ VACATIONAL STUDIES (stofnað 1973)
B 8 íslenskum drengjum og stúlkum á
aldrinum 11 -17 ára skólavist með 50%
afslætti skólagjalda.
Skólann sækja unglingar frá fjölda landa.
Skólagjöld fela í sér kennslu, vistun og
fæði, íþróttaiðkanir, skemmtanir og
skoðunarferðír. Skólagjald er £1400, en
fyrir íslendinga £700 (um kr. 75 þús).
Vacational Studies hafa hlotið
víðurkenningu British Council tii
enskukennslu fyrir útlendinga, og við
erum aðilar að ARELS, samtökum
viðurkenndra skóla í enskukennslu.
Nánari upplýsingar í síma 23300 (Svavar)
25, og 26. apríl kl. 17 -18.30.
■■■■■■BaHRaRRnRRRRRR
■
■
■
■
■
I
a
■
■
■
i
■
a
a
a
a
a
I DAG
HÖGNIHREKKVISI
* þETTA ER UYK7ANE>/ TÚNriSKAUeL'ýSINÍi.*
BRIDS
Umsjón Guóm. Páll
Arnarson
Eftir illa heppnað útspil
þarf vestur að halda haus í
vöminni. Settu þig í hans
spor. Þú átt tvo líklega slagi
á tromp og freistast til að
leggja niður laufás í byijun:
Suður gefur, enginn á
hættu.- Norður ♦ ÁD86
V 102
Vestiir ♦ G9 ♦ ÁK543 ♦ K3
▼ KG64 ♦ D8 4 ÁG1054 l
Vestur Norður Austur Suður
Pass Thiðrtu Pass 3 hjörtu Pass
Pass
Austur lætur níuna í slag-
inn, sem þú túlkar sem kall
í spaða og skiptir yfir spaða-
gosa. Sagnhafi drepur á ás-
inn og hendir svo spaðahundi
niður í laufkóng. Rúllar síðan
hjartatíunni yfír til þín. Eins
og við var að búast, á makk-
er ekkert tromp. Þú spilar
spaða, en sagnhafi trompar
og gefur þér á trompkóng-
inn. Taktu við.
Spil sagnhafa eru nú sem
opin bók: Hann hefur byijað
með 2-7-3-1. Eigi hann tígul-
gosann er engin vöm til úr
því sem komið er, en ef
makker á gosann verður að
spila tígli til að klippa á sam-
ganginn fyrir trompþvingun
á austur. Staðan sem upp
er komin lítur svona út:
4 D8 V - ♦ ÁK54
Vestur 4 - Austur
♦ - 4 KIO
▼ 6 llllll y -
♦ D8 llllll ♦ G97
4 G105 Suður 4 D
4 - T 987
♦ 1062
♦ -
Ef vestur spilar t.d. laufi,
trompar suður og hendir tígli
úr borði. Tekur svo eitt
tromp í viðbót og hendir aft-
ur tígli. Austur er þá vamar-
laus. Greiniiega má hann
ekki missa tígui, og ef hann
hendir spaða, fer sagnhafi
inn í borð á tígulkóng og
trompar niður spaðakónginn
og á innkomu á tígulás til
að taka fríslaginn. Þessa inn-
komu verður að fjarlægja
strax með því að spila tígli.
LEIÐRETTINGAR
Villur í
skulda-
skýrslu
VILLUR voru í skýrslu
um skuldir heimilanna
sem Þjóðhagsstofnun
vann fyrir félagsmála-
ráðuneyti og lögð var
fram á Alþingi á fimmtu-
dag og hefur Þjóðhags-
stofnun sent frá sér leið-
réttingu. Þar kemur fram
að aukning skulda á milli
áranna 1992 og 1993 var
í skýrslunni ranglega
sögð vera 26 milljarðar
króna en var í raun 18
milljarðar á föstu verð-
lagi. Aukning milli ára
var 7% en ekki 8,7% eins
og stendur í texta. Þá var
hlutfall ráðstöfunartekna
og skulda 113,9% en ekki
116 eins og stóð í skýrsl-
unni.
Fyrrver-
andi
fréttastjóri
MEÐ grein Margrétar
Indriðadóttur Er langlífi
íslendinga þjóðarböl?,
sem birtist í Morgunblað-
inu í gær, var hún kynnt
sem fréttastjóri RÚV en
Margrét lét af því starfi
fyrir fáum árum.
Morgunblaðið biðst
velvirðingar á þessum
mistökum.
SKÁK
Umsjön Margcir
Pétursson
Þessi staða kom upp á
opna mótinu í New York um
páskana. Stórmeistarinn Jan
Ehlvest (2.610) frá Eist-
iandi hafði hvítt og átti leik
gegn kollega sínum R.
Tischbierek (2.490), Þýska-
landi.
20. Rxe6+! (Að sjálfsögðu
var jafngott að leika fyrst
20. Dxh7+ — Kf8 og þá 21.
Rxe6+!) 20. - fxe6, 21.
Dxh7+ og svartur gafst upp,
því hann er óveijandi mát í
stöðunni. Kóngur hans verð-
ur hrakinn yfir borðið eftir
21. - Kf8, 22. Bh6+ -
Rxh6, 23. Dxh6+ - Kf7,
24. Dh7+ - Kf6, 25. Hh6+
— Ke5, 26. Hxe6+! o.s.frv.
Eistlendingar voru sigur-
sælir í New York. Ehlvest
sigraði ásamt landa sínum
Lembit 011. Þeir hlutu 7 'h
v. af 9 mögulegum. 3.-9.
Kaidanov, Benjamin, A.
Ivanov og Wolff, Bandaríkj-
unum, Shabalov, Lettlandi,
Lobron, Þýskalandi, og
Griinfeld, ísrael, 7 v. 10.-18.
Jóhann Hjartarson, DeFirm-
ian, Alburt, I. Ivanov og
Frias, Bandaríkjunum, Van
Wely, Hollandi, Gildardo
Garcia, Kólumbíu, Akopjan,
Armeníu, og Orlov, Rúss-
landi, 6 'k v.
Hannes Hlífar Stefánsson
var í hópi 13 skákmanna sem
hlutu 6 v.
Pennavinir
NÍTJÁN ára Ghanapiltur
með áhuga á knattspyrnu,
skokki, kvikmyndum, tenn-
is og körfubolta:
Isaac Gyampi,
Edinaman Sec. School,
Box 143
Elmira,
Ghana.
Hildur Sif og Sierún
styrktu Barnaspímla Hringsins
ÞESSAR stúlkur héldu fyrir nokkru hlutaveltu til
styrktar Barnaspítala Hringsins og varð ágóðinn
842 krónur. Þær heita Hildur Sif Haraldsdóttir
og Sigrún Gunnarsdóttir.
Víkverji skrifar
Arið 1994 er mikið afmælisár
hjá íslendingum. Ekki aðeins
vegna þess að íslenzka lýðveldið
verður hálfrar aldar gamalt 17. júní
næstkomandi, þótt það sé hátindur
þessa afmælisárs í hugum flestra
landsmanna. Tvennt annað kemur
til afmælissögunnar og ekki af
smærri gerðinni.
í fyrsta lagi er vert að minnast
þess að 1874 endurheimti Alþingi
löggjafarvald í íslenzkum sérmál-
um. Það ár var þingræðið endur-
reist í landinu. Það var ekki svo
lítill áfangi í sjálfstæðisbaráttunni.
Stjórnarskráin 1874 kvað meðal
annars á um íslenzk fjárlög, ís-
lenzkt fjárveitingavald og íslenzkan
landssjóð. Fyrstu fjárlögin voru síð-
an samþykkt á Alþingi 1875 og
giltu fyrir tvö almanaksár, 1876-
1877. Það var ekki hallinn á þeim
fjárlögunum!
Með lögum um heimastjórn, sem
gengu í gildi árið 1904, var efnt
til íslenzks stjórnarráðs og embætt-
is íslandsráðherra með aðsetri í
Reykjavík. Það var einnig mikil-
vægur áfangi á leiðinni til fullveld-
is, sem vannst 1918, og lýveldis,
sem stofnað var 1944. Við fögnum
því afmæli endurreisnar þingræðis
í landinu, heimastjórnar og lýðveld-
is á þessu ári. Það er þríheilagt hjá
Fjalikonunni annó 1994.
XXX
íkverji sá það í blaði allra
landsmanna síðastliðinn
fimmtudag að Bandaríkjamaður,
Mark J. Ebbert að nafni, hefur
unnið að höggmynd af landnáms-
manninum Hrafna-Flóka, sem af-
hjúpa á 11. júni næstkomandi við
gömlu flugstöðina í Keflavík, ef
nota má það heiti.
Hrafna-Flóki skipar veglegan
sess í landnámi íslands og valdi sér
búsetu í Fljótum norður, einni sum-
arfegurstu sveit landsins.
Víkveiji veltir því fyrir sér, hvot
Norðanmenn eigi ekki að fá þetta
verk, eða annað hliðstætt, og reisa
að Yzta Móli í Fljótum. Þar valdi
landnámsmaðurinn sér búsetu. Þar
var höggmynd af honum á réttum
stað.
Og talandi um höggmyndir og
Norðurland. Hvenær verður högg-
mynd við hæfi af Jóni biskupi Ara-
syni, reist heima að Hólum í Hjalta-
dal?
xxx
Landsmenn ganga senn til sveit-
arstjómarkosninga. Það er
þegar tekið að hitna í kolum, ekki
sízt í höfuðborginni, þar sem barátt-
an er tvísýn og fáein atkvæði ráða
trúlega úrslitum. Kannski mitt at-
kvæði og þitt, lesandi góður?!
Pólitíkin var þó verulega harð-
skeyttari fyrir nokkrum áratugum
en nú er. Víkveiji heyrði þá sögu
úr kaupstað úti á landi fyrr á tíð
að góðkunningjar, annar á vinstri
kanti en hinn á hægri, hefðu jafnan
hætt að heilsast hálfum mánuði
fyrir kosningar, þegar baráttan var
hvað hörðust, og 'ekki talað hvor
til annars á nýjan leik fyrr en hálf-
um mánuði eftir kosningar!
Vonandi halda pólitískir pótintát-
ar (og við sem heyrum til tegund-
inni „háttvirtir kjósendur)" hugarró
og sálaijafnvægi næstu tvær vik-
urnar. „Andstæðingurinn“ á nefni-
lega sama rétt til sinna skoðana,
hveijar sem þær eru, og við til okk-
ar. En við eigum að sjálfsögðu okk-
ar rétt til að beijast heiðarlega fyr-
ir eigin skoðunum, hveijar sem þær
eru, og fylgja því fram af festu sem
samvizka okkar og skynsemi telur
bezt fyrir heildina og framtíðina.
x x x
Víkveiji er samt sem áður og
þessa dagana að velta því
fyrir sér, hvort þeir frambjóðendur
hér í borg og út um allt land, sem
mestu lofa (upp í ermina sér), þurfi
ekki að sækja enn meiri fjármuni
ofan í budduna hans og buddur
annarra skattgreiðenda, ef athafnir
eiga að fylgja orðum?