Morgunblaðið - 08.05.1994, Page 52
varða
víðtæk
f jármálaþjónusta
Landsbanki
fslands
Bankl allra landsmanna
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1 103 REYKIAVÍK
SÍML 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Bílgreinasambandið um erfiðleika í greininni
Svört starfsemi
eykur samdrátt
SVÖRT atvinnustarfsemi á stóran þátt í samdrætti í bílaviðgerðum á
síðasta ári. Fara verður aftur til áranna 1975-76 til að finna dæmi um
færri nýskráningar á bílum hérlendis og fjöldi íbúa á hvem fólksbíl
hefur aukist úr 1,8 í 2,3. Þetta kom fram í setningarræðu Sigfúsar
Sigfússonar, formanns Bílgreinasambandsins, á aðalfundi þess í gær.
Sigfús sagði stjórnvöld notfæra sér þá staðreynd að bíll væri nauðsyn
með því að þrautpína bifreiðaeigendur með skattlagningu á bifreiðakaup
og neyslusköttum á bíla.
Fjöldi skráðra bílá um síðustu
áramót var 116.195 á móti
128.813 bílum 1988. í vinnubílum
er samdrátturinn enn meiri. Sigfús
sagði að bílasala væri aðeins helm-
ingur af því sem hún þyrfti að
vera til að eðlileg endurnýjun ætti
sér stað í bílaflota landsmanna.
Biðskýli í
Lækjargötu
BORGARRÁÐ hefur sam-
þykkt að koma upp biðskýli
við Lækjargötu fyrir þá sem
bíða eftir leigubílum. Um er
að ræða tilraun sem er hugsuð
til að bæta hag þeirra fjöl-
mörgu sem þurfa að bíða eftir
leigubílum á nóttunni. Skýlið
verður staðsett við Mæðra-
garð og er áætlaður kostnaður
við uppsetningu þess 1,2 millj-
ónir króna. Framkvæmdir
munu hefjast um miðjan þenn-
an mánuð.
Að sögn Guðmundar Ein-
arssonar, aðalvarðstjóra hjá
lögreglunni í Reykjavík, er
skýli sem þetta til bóta. Hann
segir þó, að lögreglumenn
muni ekki finna neinn mun á
ástandinu í miðbænum vegna
þessa, skýlið gagnist aðeins
þeim sem séu að bíða eftir
leigubíl.
Óþolandi ástand
„Fyrstu tvo mánuði þessa árs
hefur dregið talsvert úr heildarinn-
flútningi bílavarahluta en þar hafði
verið dágóð aukning undanfarin ár.
Þessi samdráttur á fýrst og fremst
við um almenna varahluti,“ segir
Sigfús. „Eðlilegt væri að álykta að
þegar meðalaldur bíla hækkar, auk-
ist þörfin fyrir viðgerðaþjónustu en
svo virðist ekki vera. Á.m.k. skila
verkin sér ekki til aðila Bílgreina-
sambandsins. Ég er þeirrar skoðun-
ar að svokölluð svört atvinnustarf-
semi eigi stóran þátt í þessu. Verk-
efnin koma ekki til okkar félags-
manna en eru unnin af mönnum
sem standa ekki skil á tilskildum
gjöldum til samfélagsins. Þetta er
ójafn leikur og í raun óþolandi
ástand sem viðkomandi yfirvöld
virðast ekki hafa nein tök á að lag-
færa, þrátt fyrir fögur fyrirheit og
látlausar umkvartanir.“
17% af tekjum ríkissjóðs
í máli Guðmundar Magnússonar
prófessors við hagfræði- og við-
skiptadeild Háskóla íslands, á að-
alfundinum kom fram að áætlað
er að um 17% af heildartekjum
ríkissjóðs komi af bílainnflutningi,
bifreiðaviðgerðum, sölu bensíns,
hjólbarða og varahluta, þunga-
skatti o.fl.
Guðmundur segir að neyslustýr-
ingu megi sjá í nær öllum afskipt-
um ríkisins af bílgreininni sem
endurspeglist í vörugjaldi, bifreiða-
gjaldi, bensínsköttum og fleiru.
Með neyslustýringu sinni ýti ríkið
undir að þeir hópar sem mest ör-
yggi þurfa í umferðinni, þ.e. barn-
margar fjölskyldur, kaupi frekar
þær bifreiðar sem veiti þeim lítið
öryggi.
Morgunblaðið/Júlíus
A grænu ljósi?
NÝSKRÁNINGAR bifreiða virðast um þessar mundir vera á rauðu
ljósi. Verði nýskráningar á bifreiðum hérlendis áfram jafn fáar eða
færri og seinasta ár, gætu vörubílar, hlaðnir nýjum bifreiðum, orð-
ið sjaldgæf sjón innan nokkurra ára.
Fengu 5 tonn af fiski út af Snæfellsnesi á 4,8 tonna bát
Sjö bjóð inni í brúnni
Ólafsvík, Morgunblaðið.
BÁTSVERJAR á línutrillunni
Valdimar SH, sem er 4,8 tonn,
fengu undir helgina 5 tonn af fiski
á 16 bala og til að koma aflanum
fyrir þurftu þeir að setja 7 bjóð
inní brú og einnig 400 kg af fiski.
Sex ára
„úthlutað“
eldri vinum
FRÁ ÁRAMÓTUM hefur verið
bryddað upp á þeirri nýjung í
starfi Mýrarhúsaskóla á Seltjarn-
arnesi, að koma á fót svokölluðum
vinabekkjum eða vinapörum.
Hveijum einasta sex ára nemanda
^_er úthlutað vin í bekkjum 11 og
\ y 12 ára nemenda; 6 ára strákur
eignast 12 ára strák að vin
o.s.frv., í því skyni að auka örygg-
iskennd yngri barnanna og
ábyrgðarkennd þeirra eldri, auk
þess að rjúfa aldursmúra.
Hugmyndin er runnin undan
rifjum kennaranna Guðlaugar
Einarsdóttur og Brynhildar Ás-
geirsdóttur, en fyrirmyndin er
dönsk.
Krökkunum var skipt handa-
hófskennt niður eftir kynjum, og
þar sem tólf ára bekkurinn er fjöl-
# -r^nennari hafa „vinapörin" í sum-
um tilvikum verið skipuð tveimur
tólf ára nemendum og einum sex
ára. „Við kynntum þau og létum
þau leika sér saman og vinna
ýmis verkefni. Litlu krökkunum
líður betur og eru öryggari því
að eldri krakkarnir eru ekki eins
ógnvekjandi og annars. Þetta er
» ekki síður skemmtilegt fyrir þau
eldri sem eru að verða unglingar,
þau viðhalda barninu í sér og
Aflann seldu þeir svo á fiskmark-
aði Snæfellsness og fékkst mjög
gott verð fyrir hann.
„Við erum tveir, sem róum á
Valdimar SH,“ sagði Fannar
Skjaldarson skipstjóri í samtali við
Morgunblaðið. „Þetta var hreint
ævintýri. Það er eins og fjörðurinn
sé kjaftfullur af fiski. Eg hef aldr-
ei séð annað eins.
Ég er búinn að stunda sjóinn í
fjölda mörg ár og hef sjaldan
kynnst eins góðum aflabrögðum
og núna,“ sagði Fannar. „Ég skil
hreinlega ekki það sjónarmið fiski-
fræðinga, að það sé enginn fiskur
lengur til í sjónum. Þessir blessuðu
menn verða bara að vakna til lífs-
ins og sjá hvað er að gerast í kring-
um þá.“
Morgunblaðið/Sverrir
NOKKUR „vinapör" við Mýrarhúsaskóla í gær; í aftari röð f.v. Hildur Þorsteinsdóttir, Einar Árni
Sigurðsson, Sveinbjörn Ársæll Sveinbjörnsson, Bjarni Bjarnason og Ársæll Þór Ingvason; í fremri röð
f.v. Leifur Jón Elíasson, Valgeir Gunnlaugsson, Þórhildur Reinharðsdóttir og Finnur Ingi Stefánsson.
finna fyrir ábyrgð. Sjaldan eða
aldrei hefur verið meiri ánægja
með frímínútur í skólanum og í
vetur, þó að þetta sé fyrsta árið
sem allir nemendur eru saman
úti í einu,“ segir Guðlaug.
Vinkonurnar Hildur Þorsteins-
dóttir, 12 ára, ogÞórhildur Rein-
harðsdóttir, 6 ára, segja verkefnið
skemmtilegt og gott fyrir andann
í skólanum. Þórhildur segist vera
öruggari í frímínútum og þó
henni hafi aldrei verið strítt,
finnst henni gott að vita af Hildi.
Þær leiki sér líka oft saman, m.a.
í snúsnú. „Þetta er eins og að eiga
litla systur í skólanum," segir
Hildur.
Einar Árni Sigurðsson, 12 ára,
og Valgeir Gunnlaugsson, 6 ára,
eru vinir. Einar segist strax hafa
tekið vel í að eignast yngri vin
og leiti Valgeir til hans þegar
þörf krefji. „í vetur kastaði ein-
hver snjóbolta í hann og henti
honum niður af liól, svo að ég fór
og bjargaði málum,“ segir Einar.
Einar segist finna að yngri börnin
séu miklu öruggari, vitandi af
eldri vini í grenndinni og Valgeir
tekur undir það sjónarmið: „Það
er gott að hafa Einar nálægt,"
segir Valgeir.
Loftbyssa
slökkti ljós
TUGIR ljósastaura á Arnarnesi
í Garðabæ hafa verið skemmdir
með loftbyssuskothríð og segir
lögreglan í Hafnarfirði að
skemmdarverk af þessu tagi séu
nánast landlæg plága 'á Arnar-
nesi.
Að sögn lögreglu er algeng-
ast, að skotið sé á kúpla ljósa-
staura og þeir brotnir í Hauka-
nesi og Súlunesi. Á föstudag var
slökkt á sjö ljósastaurum við
Haukanes með loftbyssuskot-
hríð.
Lögreglan segir að um nokk-
urt skeið hafi verið reynt að leita
þeirra sem þetta stunda, en án
árangurs enn sem komið er.