Morgunblaðið - 29.05.1994, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 29.05.1994, Qupperneq 1
80 SÍÐUR B/C 119. TBL. 82.ÁRG. SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Deilt um hvort breytingar hafi orðið á starfsemi Alþjóðahvalveiðiráðsins Kvótastjómun samþykkt en veiðistjórnun á langt í land Syngjandi fj allafínka FJALLAFINKUR hafa alloft orpið hérlendis á sl. tveimur áratugum, án þess þó að tegundin hafi ennþá náð að ílendast. Fjallafinka er útbreiddur varpfugl í skóglendi Skandinavíu og Finnlands. Hún á því ef til vill eftir að ná fótfestu hér á landi samfara aukinni skógrækt. Morgunblaðið/Jóhann Oli Hilmarsson Puerto Vallarta. Daily Telegraph. Reuter. FULLTRÚAR hvalveiðiþjóða og umhverfis- verndarsamtaka deildu hart um allar tillögur sem komu til umfjöllunar á ársfundi Alþjóða- hvalveiðiráðsins (IWC) sem lauk í í Mexíkó í fyrrinótt að íslenskum tíma. Þeir voru að- eins sammála um það að með ákvörðuninni um að stofna griðasvæði fyrir hvali í suður- höfum hafi ráðið farið út fyrir það lög- bundna hlutverk sitt að stjórna hvalveiðum. Aðeins ein tillaga var samþykkt án atkvæða- greiðslu á fundinum; um að tillögur vísinda- nefndar ráðsins um ákvörðun veiðikvóta (RMP) yrðu samþykktar. Með þessari ákvörðun þykir ekki lengur hægt að túlka ákvörðunina um griðasvæði þann veg að hvalveiðiráðið hafi sagt skilið við það stofnhlutverk sitt að stjórna hval- veiðum. Samþykktin um RMP nægir þó ekki til þess að hvalveiðibanni IWC verði aflétt í bráð þar sem kvótastjórnunin er aðeins liður í alhliða veiðistjórnunarkerfi. Ófrágengin eru ákvæði um eftirlit með veið- um, veiðiaðferðum, ólögleg viðskipti með hvalaafurðir, umhverfisáhrif hvalveiða o.fl. Fulltrúar á ársfundinum sögðu að það gæti tekið frá tveimur upp í 10 ár að ljúka þeirri vinnu sem eftir væri áður en veiðistjórnunar- kerfið lægi fyrir. Karsten Klepsvik formaður norsku sendi- nefndarinnar sagði að stjórnvöld í Ósló hefðu ekki skipt um skoðun í hvalveiðimálum og myndu ákveða á næstu tveimur vikum hvað hvalföngurum yrði leyft að veiða margar hrefnur í sumar. Klepsvik sagði norsku stjórnina ekki óttast refsiaðgerðir af hálfu Bandaríkjastjórnar. Bandarískur fulltrúi á fundi IWC sem vildi ekki láta nafn síns getið sagði að hrefnustofninn sem Norðmenn veiddu úr væri ekki í útrýmingarhættu. „Við þurfum góð vísindarök til að geta refs- að þeim, pólitísk rök duga ekki,“ sagði hann. ■ Breytir ekki afstöðu/2 Grænlenskir veiðimenn illir ÞRÁTT fyrir að Grænlendingar fái auk- inn hrefnukvóta eftir fund Alþjóðahval- veiðiráðsins, úr 100 dýrum í 150, eru grænlenskir veiðimenn reiðir vegna sam- þykktar ráðsins um griðasvæði hvala. Fulltrúar landsljórnarinnar studdu sam- þykktina, gegn vilja KNAPK, samtaka grænlenskra veiðimanna. KNAPK vill að Grænlendingar fari sömu leið og Is- lendingar, hætti þátttöku í ráðinu, en taki þess í stað upp samvinnu við íslend- inga, Norðmenn og Færeyinga í hvala- málum. Fulltrúar Japana segja að með samþykktinni sé verið að gera hvali heil- aga. I fyrsta sæti séu hvítir menn, í öðru sæti hvalir og í þriðja sæti gult fólk eins og Japanir og Grænlendingar. Einnig benda þeir á að hvalir éti fimmfalt af fiski á við menn og með fjölgun þeirra sé gengið á jafnvægi lífríkisins. I Astral- íu fagna margir griðasvæðinu, en þar hafa menn milljarðatekjur af siglingum með ferðamenn innan um hvalavöður. FBI opnar úti- bú í Moskvu -BANDARÍSKA alríkislögreglan, FBI, hyggst opna útibú í Moskvu til að freista þess að koma í veg fyrir að rússneska mafían nái fótfestu í Bandaríkjunum og Evrópu. Louis Freeh, yfirmaður FBI, segir að glæpasamtökin í Rússlandi séu „mesta ógnunin við öryggi Bandaríkj- anna þegar til lengri tíma er litið“ og hann líkir þeim við Sikileyingana sem komu til Bandaríkjanna á þriðja áratugn- um °g stofnuðu þar mafíu. Rússneskir ' "glæpamenn eru farnir að streyma til Bandaríkjanna og Evrópu og Freeh seg- ir hættu á því að þeir selji hryðjuverka- samtökum stolin kjarnavopn. Hubble finnur risasvarthol STÆRSTA þekkta svartholið i alheimin- um hefur fundist með hjálp geimsjónauk- ans Hubble. Talið er að svartholið sé 1.000 milljörðum stærra en jörðin. Holið er í stjörnuþoku sem nefnist M87, í 52 milljóna ljósára fjarlægð. Það er í Meyj- unni, sem virðist aðeins smákúla í venju- legum sjónaukum. „Eg hef verið efins um svarthol, en ég lít á þetta sem afdrátt- arlausa sönnun," sagði dr. Daniel Weed- man, vísindamaður hjá NASA, Geim- rannsóknastofnun Bandaríkjanna. „Þessi uppgötvun er sú mikilvægasta til þessa með hjálp Hubble.“ Svai-thol er fyrirbæri sem talið er vera risastjarna sem hrunin er saman þannig að þyngdar- sviðið er svo sterkt að jafnvel ljós slepp- ur ekki út. STYTTIST í STÓRA DAGINN Solzhenitsyn snýr altur 10 JðRNII- FLOKKI o

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.