Morgunblaðið - 29.05.1994, Blaðsíða 36
36 SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTASVIÐ
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Myndlistarbraut
Fjölbrautaskólinn
Breiðholti
Handíðabraut
FB þegarþú velur verknám
Eam Your American University
Degree at a College in London
Study Business Administration, Commercial Art, Fashion Design,
Fashion Marketing, Interior Design, and Video Production.
You’ll feel rigth at home studying with your fellow students from lce-
land who have chosen The American College in London.
With an international student body, The American College caters
your personal and educational needs. We put emphasis on an educ-
ation for yor career with specialized courses in every aspect of your
field, contacts with top professionals, famous guest lecturers, and
exposure to real world situations through our internship program.
U.S. accredited and degree granting. Terms begin September, Jan-
uary, March, June and July. Housing and job placement services ava-
ilable. Study abroad opportunities to sister campuses in Atlanta and
Los Angeles.
The American College confers university-level bachelor’s associate
degrees. For further information or a prospectus, contact:
Classes begin October, January, March, June, July.
Aflaðu þér bandarískrar
háskólagráðu í London
Nám í viðskiptafræði, auglýsingateiknun, tískuhönnun, markaðs-
setningu tfskuvarnings, innanhúshönnun og myndbandafram-
leiðslu.
Þér mun líða eins og heima í félagsskap annarra íslenskra náms-
manna, sem hafa valið The American College í London.
Nemendur skólans koma úr öllum áttum og The American College
leggur áherslu á að mæta þínum persónulegu þörfum og námsþörf-
um. Við leggjum áherslu á menntun, sem mun nýtast þér í starfi,
sérhæfðum námskeiðum er ná til allra þátta þíns fags, samskipti við
menn úr fremsu röð á sínu sviði, fræga gestafyrirlesara og tækifæri
til að takast á við raunveruleg vandamál gegnum starfskynninguna
sem við skipuleggjum.
Skólinn er viðurkenndur af bandarískum yfirvöldum og hefur rétt til
að veita bandarískar háskólagráður. Námsannir hefjast í október,
janúar, mars, júní og júlí. Aðstoð við að finna húsnæði og atvinnu
er fáanleg. Boðið er upp á þann möguleika að nema einnig við systur-
skóla okkar í Atlanta og Los Angeles.
The American College býður upp á „bachelor” og „associate" háskóla-
gráður. Ef þú vilt fá nánari upplýsingar eða kynningarbækling, hafðu
þá samband við:
yThc Amedcan College in London
110 Marylebone High Street, London W1M 3DB
Phone: (071) 486-1772 • FAX: (071) 935-8144
^^^NámsanniiTTefjasUKJktóbe^anúai^
IDAG
SKÁK
II m s j 5 n Margcir
Pétursson
Þessi staða kom upp á
opnu móti í Mar del Plata í
Argentínu í vor. Loiterstein
(2.255) hafði hvítt, en það
var enginn annar en sjáífur
Miguel Najdorf (2.445), 85
ára gamall, sem hafði svart
og átti leik.
Svartur hefur yfirburði í
rými og fallega stöðu en það
er ekki auðvelt að færa sér
það í nyt. Gamla kempan var
ekki lengi að finna lausnina:
61. - f4!!, 62. gxf4 (Eftir
62. exf4? - Df3, 63. Dfl -
Dxc3 hefur hvítur tapað
manni) 62. — Df3, 63. Dfl
- Bxf4!, 64. Bd2 (Drottn-
ingarendataflið eftir 64. exf4
- Dxc3 er einnig tapað) 64.
- Bxh2+!, 65. Kxh2 - g3+
og hvítur gafst upp, því hann
verður mát eða tapar drottn-
ingunni eftir 66. Kxh3 —
g2+.
Najdorf teflir ótrúlega vel
miðað við aldur. Hann hlaut
6*/2 v. af 9 mögulegum og
varð í 7.-15. sæti. Gamall
félagi hans, Oscar Panno,
sigraði með 8 v. Najdorf er
líka hress og minnugur og
þegar við Hannes Hlífar hitt-
um hann á veitingastað á
Spáni í desember síðastliðn-
um kom hann til okkar og
ræddi við okkur um heima
og geima. Hann hefur aðeins
einu sinni teflt á íslandi, það
var á Reykjavíkurskákmót-
inu 1976. Kappinn kvað upp
palladóma um marga stór-
meistara og þykir sumir
Rússanna treysta alltof mik-
ið á bókina. Hann bar hins
vegar !of á íslenska skák-
menn og var þessi fundur
sérlega fróðlegur fyrir
Hannes. Á þeim kollegunum
er 64ra ára aldursmunur —
eitt ár fyrir hvem reit á
skákborðinu!
Með morgunkaffinu
„LIATTA STAUÞA'A HENMI:„TU- HAMíKGTU
MEE> UKIÞANKjOMUNA."
/\FM£U$
TE KFUFL
LEIÐRÉTT
COSPER
Röng
dagsetning
Gullbrúðkaup áttu í
gær hjónin Sesselja 01-
geirsdóttir og Sigurður
F. Helgason. Ranghermt
var í blaðinu í gær, að
gullbrúðkaupið væri í
dag. Þá var ranghermt
að þau hjón væru frá
Hafnarfirði, þau eru frá
ísafirði. Þau taka á móti
gestum á heimili dóttur
sinnar Kambsvegi 3,
Reykjavík, í dag, sunnu-
dag, klukkan 16-19. Beð-
ist er velvirðingar á þess-
um mistökum.
Hlutavelta
Þeir styrktu
Rauða kross
íslands
Þessir strákar héldu
hlutaveltu nýlega til
styrktar Rauða krossi
íslands og varð ágóð-
inn 9.834 krónur. Þeir
heita Víðir, Svanur,
Bjarni, Viktor og
Breki, en hann komst
ekki í myndatökuna.
Víkveiji skrifar..
essar línur koma fyrir augu
þín, lesandi góður, að loknum
sveitarstjórnarkosningum. Þegar
þú berð þær augum hefur mörgum
og mikilvægum spurningum um
fylgi framboða og skipan sveitar-
stjórna verið svarað. Þá liggja sum
sé fyrir forvitnileg svör háttvirtra
kjósenda, sem Víkverji sá ekki fyrir
hver yrðu þegar hann festi þessi
orð blað.
Máski hafa skoðanakannanir,
sem tröllriðu fjölmiðlum síðustu vik-
ur, hlotið staðfestingu í kosninga-
niðurstöðum? Máski hafa þær orðið
sér rækilega til skammar? Það er,
satt bezt að segja, fróðlegt að sjá
og heyra, hvort þær koma heima
og saman við þann veruleika sem
orðinn er.
xxx
Hver sem úrslitin hafa orðið er
eitt kristaltært. Einhverjir
kætast! Aðrir sleikja sárin! Þannig
er nú einu sinni blessað lýðræðið,
þetta margfræga almenningsálit,
sem sagt er jafn óstöðugt, ef ekki
óstöðugra, en veðurfarið.
Frambjóðendur og fylgilið, sem
„hjuggu mann og annan“ í orrahríð
kosningabaráttunnar, vakna að
henni lokinni upp við staðreynd,
sem alltaf hefur blasað við, en
flokkshestar horfa gjaman framhjá
í hita leiksins. Þá staðreynd, að við
erum öll, íbúar hvers sveitarfélags,
skipveijar á sömu sveitarfélags-
skútunni eða sömu höfuðborgar-
skútunni, að ekki sé nú minnzt á
sjálfa þjóðarskútuna, og eigum mun
fleira sameiginlegt, bæði félagslega
og hagsmunalega, en hitt sem á
milli ber.
Þetta tengiband spannar okkur
öll: blóðrauðan bolsann, sótsvartan
íhaldsmanninn, nábleikan kratann
og grasgrænan framsóknarmann-
inn, hvort sem mönnum líkar nú
betur eða verr. Jafnvel „reynslu-
heimur kvenna", sem nú er fólki
tungutamur, rúmast innan þessa
veruleika.
xxx
Að kosningahríðinni afstaðinni
tekur hvunndagurinn við,
stundum grár, stundum litríkur.
Reyndar verða dagarnir okkur það,
sem við gerum úr þeim, hver í sínu
homi — og sameiginlega.
Sigurvegarar kosninganna,
hægrimenn eða vinstrimenn (Vík-
veiji sér ekki fyrir hverjir þeir eru
föstudaginn fyrir kjördag), sitja á
hábungu loforðafjaltsins, sem þeir
hafa hlaðið upp vikum og mánuðum
saman, máski af meira kappi en
fyrirhyggju. Eins gott að þeir séu
ekki lofthræddir!
Niður í dalbotninum sitja hátt-
virtir kjósendur fullir tilhlökkunar
yfir efndunum, sem sjá eiga dagsins
ljós næstu mánuði og misseri.
Ekki er þó örgrannt um að í
þeim sé nokkur uggur. Fyrst og
fremst vegna þess að þeir verða
greiðendur efndanna sem skatt-
borgarar, svo og hins, að loforð
stjómmálamanna eru á stundum
eins og fuglar í skógi, sýnd veiði
en ekki gefin.
xxx
Hvað sem öðru líður, þá eru
hörkukosningar að baki. Og
það sem meira er um vert: Fram-
undan eru aðrar kosningar og ekki
smærri í sniðum — sum sé þing-
kosningar að ári.
I millitíðinni höldum við upp á
fimmtugt lýðveldið með tilheyrandi
húllumhæi (og sinnum máski
brauðstritinu agnarögn). Það er
sum sé sitt hvað framundan til að
dunda sér við í „náttlausri voraldar-
veröld“, svo Víkveiji noti nú skáld-
lega tilvitnun, svona til tilbreyting-
ar.
Síðan er bara að vona að stjórn-
málamönnunum, margblessuðum,
gefizt tóm og tími til að standa við
eitthvert smáræði af loforðamergð-
inni, áður en næsta loforðavertíð
hefst í tengslum við alþingiskosn-
ingar að ári. Þeim er sannarlega
ekki til setunnar boðið.
Megi sólin skína á okkur næstu
vikurnar!