Morgunblaðið - 29.05.1994, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
VIKAN 22/5 - 28/5
► KR hefur tekið forystu á
íslandsmótinu í knatt-
spyrnu þegar tveimur um-
ferðum er lokið. Liðið hefur
unnið báða leiki sína og er
með 6 stig. Akranes, ÍBK
og FH koma næst með 4
stig.
►HLUTABRÉF í Stöð tvö
fyrir á þriðja hundrað millj-
ónir króna skiptu um eig-
endur í síðustu viku. Óljóst
er hver kaupandinn er.
Hlutabréf í fyrirtækinu
hækkuðu talsvert í verði við
þessa auknu eftirspurn.
►TVÍTUGUR piltur, sem
var að fagna stúdentsprófi
sínu, varð fyrir hrottalegri
líkamsárás við heimili sitt
aðfaranótt sunnudags.
Nokkrir ungir menn slógu
hann í andlitið að fjölskyldu
hans og vinum ásjáandi og
óku síðan bíl sinum á hann
á flóttanum.
►HÉRAÐSDÓMUR
Reykjavikur sýknaði fjár-
málaráðherra fyrir hönd
ríkissjóðs af kröfum Geirs
Waage, sóknarprests í
Reykholti og formanns
Prestafélags íslands, en
Geir krafðist bóta vegna
kjarabóta sem teknar voru
af prestum með bráða-
birgðalögum í júní 1992.
Geir íhugar nú að áfrýja
dóminum til Hæstaréttar.
Spennandi kosning
í Reykjavík
HARÐRI en spennandi kosningabaráttu
fyrir borgarstjórnarkosningarnar í
Reykjavík lauk með kappræðum á báð-
um sjónvarpsrásum á föstudaginn. Aldr-
ei áður hefur spennan verið jafnmikil í
kosningum um borgina. Skoðanakann-
anir sem gerðar voru í vikunni sýndu
næstum því jafnmikið fylgi við R-lista
og D-lista. Þijár kannanir sem Félags-
vísindastofnun, DV og ÍM-Gallup gerðu
á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag,
gáfu allar sömu niðurstöðuna, s.s. 51,6%
fylgi við R-listann og 48,4% fylgi við
D-listann.
Mikið tap hjá
Landsbanka
HORFUR eru á að tap á rekstri Lands-
bankans verði rúmar 500-600 milljónir
á þessu ári. Tap á rekstri bankans á
fyrstu fjórum mánuðum ársins nam 200
milljónum. Á sama tíma lagði bankinn
200 milljónir í afskriftasjóð á mánuði.
Bankaeftirlit Seðlabankans hefur ritað
Landsbankanum bréf þar sem óskað er
eftir að bankinn geri ítarlega grein fyrir
rekstraráformum sínum það sem eftir
lifir árs.
Læknir dæmdur
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi
bæklunarlækni í Reykjavík til að greiða
38 ára gömlum manni 4,6 milljónir með
vöxtum frá janúar 1989 í skaða- og
miskabætur. Læknirinn var dæmdur
fyrir að hafa ekki veitt manninum rétta
meðferð með þeim afleiðingum að
krabbameinsæxli I fæti hans greindist
ekki fyrr en svo seint að nema varð á
brott fót mannsins ofan við hné.
Kína fær bestu við-
skiptakjör
BILL Clinton Bandaríkjaforseti tilkynnti
á fimmtudag að Kínverjar myndu njóta
bestu viðskiptakjara áfram þótt kín-
verska stjórnin hefði ekki gengið að
kröfum Bandaríkjastjórnar um að virða
mannréttindi. Bandarískar mannrétt-
indahreyfingar
brugðust ókvæða við
þessari ákvörðun og
sögðu forsetann vera
að fórna mannrétt-
indamálstaðnum
vegna viðskiptahags-
muna. Fjármálamenn
fögnuðu hins vegar
ákvörðuninni, . enda
miklir viðskiptahags-
munir í húfi og mörg störf fyrir laun-
þega. Litið er á ákvörðunina sem vand-
ræðalega kúvendingu af hálfu Clintons,
sem lýsti því yfir í fyrra að Kínveijar
fengju ekki bestu viðskiptakjör áfram
nema þeir féllust á verulegar úrbætur
í mannréttindamálum.
Griðasvæði hvala
samþykkt
Alþjóðahvalveiðiráðið samþykkti á
fimmtudag á ársfundi sínum I Mexíkó
tillögu um griðasvæði fyrir hvali í suður-
höfum. Tiilagan var samþykkt með 23
atkvæðum gegn einu atkvæði Japana.
Norðmenn og fleiri skoðanabræður Jap-
ana í hvalveiðimálum sátu hjá við at-
kvæðagreiðsluna. Umhverfisverndar-
sinnar litu á samþykktina sem mikil-
vægan áfanga í baráttu þeirra fyrir al-
gjöru hvalveiðibanni til frambúðar.
Solzhenítsyn
snýr heim
RÚSSNESKA skáldið Alexander Solzh-
enítsyn kom til Rússlands á föstudag
eftir 20 ára útlegð.
Solzhenítsyn kom
með flugvél tii borg-
arinnar Vladívostok í
austurhlutanum en
flugvélin hafði áður
viðkomu í Magadon,
miðstöð fangabúð-
anna sem Solzheníts-
yn lýsti í bókinni um
Gulag-eyjamar: Solzheniftsyn
Bill Clinton
►DEILA Rússa og Úkra-
ínumanna um Krím magn-
aðist í vikunni sem leið og
Leoníd Kravtsjúk, forseti
Úkraínu, sakaði á þriðjudag
Borís Jeltsín Rússlandsfor-
seta um að ala á spennu á
skaganum. Deilan snýst um
þá ákvörðun þingsins á
Krím, þar sem Rússar eru
í meirihluta, að endurvekja
stjórnarskránafrá 1992 og
er litið á það sem fyrsta
skrefið í átt að aðskilnaði
frá Úkraínu.
►REFSIAÐGERÐIR Sam-
einuðu þjóðanna gegn írak,
sem gripið var til vegna
innrásar íraka í Kúveit,
hafa lamað landbúnaðar-
starfsemi og valdið alvar-
legum matvælaskorti i
landinu. Er ástandið svo
alvarlegt að hungursneyð
biasir við írökum, að sögn
fulltrúa stofnana SÞ.
►RÚSSAR ætla að gerast
aðilar að Friðarsamstarfi
NATO-rílqanna án nokk-
urra skilyrða en vilja jafn-
framt að samband þeirra
við NATO verði miklu nán-
ara og taki einnig til reglu-
legs samráðs um evrópsk
og alþjóðleg málefni.
►UTANRÍKISRÁÐHERR-
AR Evrópuríkja komu sam-
an í París í vikunni til að
ræða hvernig koma mætti
í veg fyrir stríð i álfunni
milli þjóða og þjóðarbrota
í líkingu við átökin í fyrr-
verandi lýðveldum Júgó- _
slaviu og Sovétríkjanna. Á
ráðstefnunni komu fram
ólík sjónarmið um hvernig
afstýra bæri stríðsátökum.
►KRISTILEGI demó-
kratinn Roman Herzog var
kjörinn næsti forseti Þýska-
lands í atkvæðagreiðslu í
sérstakri kjörmannasam-
kundu á mánudag. Herzog
fékk 696 atkvæði gegn 605
atkvæðum Johannes Rau.
FRÉTTIR
hjólreiðastígur frá Ægisíðu upp í Heiðmörk
SveinssiaSmör
Grlmsslaðavör
Austurvör
ffi'aulhóls\
Fossvogur
Rauðavatn
RauShóIar
Hólnis-
heiSi
Göngu- og hjólreiðastígurinn hefst við bæjarmörk
Seltjarnarness og Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum
borgarskipulagsins hefur þegar verið lokið við stíginn
sem liggur frá borgarmörkunum með ströndinni og að
Olíustöðinni í Skerjafirði. Þar tekur við áfangi að Nauthóls-
vík sem unnið verður við i sumar. Annar áfangi er frá
Nauthólsvík að Suðurhlíðum og hefur hann þegar verið
lagður en þarfnast viðgerðar og verður það gert í sumar.
Þá tekur við spölur enn hrefur ekki verið lagður inn fyrir
Skógræktarfélag Reykjavíkur í Fossvogsdal en á þeirri leið
er gert ráð fyrir brú fýrir hjólandi og gangandi yfir Kringlu-
mýrarbraut. í Fossvogsdal tekur við malarstígur að Reykja-
nesbraut og áfram upp Elliðaárdalinn og nær sá stígur upp
að Elliðavatni og í Heiðmörk eftir götuslóðum með vatninu.
Lengsta
skipið á
hraðferð í
slipp
Nýlega var nýtt met sett innan
járniðnaðarins á Seyðisfirði,
sem þó byggist á gömlum
grunni. Fyrir skömmu var Dag-
fari ÞH 70 tekinn í slipp og er
það lengsta skipið sem tekið
hefur verið upp í dráttarbraut
hér. Skipið sem er 40,1 metri á
lengd var tekið upp til þess að
gera við skrúfu og sér Vélsmiðj-
an Stál hf. um viðgerðina. Það
hefur vakið athygli manna
varðandi skipaviðgerðir hér
hversu stuttan tíma tekur að
taka skipin upp, eða yfirleitt
innan við klukkutima.
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Morgunblaðið/RAX
Mislæg gatnamót í Hafnarfirði
MISLÆG gatnamót á mótum
Reykjanesbrautar og Ásbrautar
við íþróttasvæði Knattspyrnufé-
lags Hauka í Hafnarfirði, voru
tékiii í notkun s.l. föstudag. Með
þessu mannvirki eykst til muna
umferðaröryggi á svæðinu bæði
fyrir gangandi og akandi vegfar-
endur.
Gerð gatnamótanna kostaði
Um 130 milljóhir króna. Bæj-
arsjóður Hafnarfjarðar lagði út
fyrir framkvæmdinni að veru-
legu leyt.i, en Vegagerð ríkisins
mun endurgreiða bænum fjár-
framlagið á næstu árum. Aðal-
verktakar við verkið voruJ.V.J
hf og Istak hf.______