Morgunblaðið - 29.05.1994, Síða 8
8 SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
1
ÍDAG
Halldór Ásgrímsson segir aö hafi utanríkisráöherra veríb meö einleik í Brussel um aöild áö
Umskiptum spáð
í ferðaþjónustu
Aþenu. Morgunblaðið.
SÉRFRÆÐINGAR á sviði ferða-
mála innan Evrópusambandsins
spá verulegum breytingum innan
ferðaþjónustunnar á komandi
árum sem kalla á auknar áherslur
á dreifbýlið og menningu þjóð-
anna.
I Aþenu stendur nú yfir ráð-
stefna á vegum Evrópusambands-
ins og Ferðamálaráðs Grikklands
undir yfirskriftinni „Eurotourism
— Culture and Countryside“ þar
sem helstu sérfræðingar eru sam-
an komnir til að bera saman bæk-
ur sínar, en þetta er fyrsta ráð-
stefnan sinnar tegundar sem hald-
in er, en Grikkir gegna nú for-
mennsku í ráðherraráði ESB.
í gær, föstudag, voru kynnt 48
ný verkefni á sviði ferðamála í
dreifbýli sem unnið hefur verið að
á síðustu tveimur árum, það er á
árunum 1992—’9B, í aðildarríkjum
Evrópusambandsins og það með
dyggum fjárhagsstuðningi þess
einnig, en til þessara verkefna
hefur ESB kostað til sem svarar
1,2 milljón ECU, eða staðið straum
af allt að 60% kosnaði við þessi
verkefni.
Um tilraunaverkefni var að
ræða sem að sögn ferðamálafröm-
uða hér hafa tekist mjög vel, en i
alls bárust á sjöunda hundrað *
umsóknir um fjárstuðning til ,
ýmissa verka áður en þær voru
grisjaðar niður í 48.
Verkefni þessi eru m.a. ætluð
til að vera fyrhmynd annarra, þar
sem þau eiga við og geta íslend-
ingar sótt um stuðning í samvinnu
við tvö eða fleiri aðildarríki ESB
til nýsköpunar í ferðaþjónustu.
Stærsta atvinnugreinin
í máli Heinrich von Moltke, ,
framkvæmdastjóra hjá Evrópu- j
sambandinu í Brussel, kom fram
að ferðaþjónustan væri á heildina
litið stærsta og mikilvægasta at-
vinnugrein innan sambándsins
sem rekja mætti til batnandi lífs- I
kjara. Samkvæmt skýrslu Evrópu-
þingsins nema meðaltekjur aðild-
arríkja af ferðaþjónustu 5,5% af !
þjóðartekjum þó sú tala geti verið
hærri í sumum löndum, t.d. nema 1
tekjur af ferðaþjónustu nálægt 9%
hér í Grikklandi. Þá hafa um 8
milljónir Evrópuþjóða innan ESB 1
atvinnu sína af ferðaþjónustu.
Ungir og
gamlir
flykkjast á
kjörstað
Áhugi á kosningun-
um í Kópavogi er
mikill enda spáð
spennandi kosning-
um. Þessi fullorðna
kona lét hvorki háan
aldur né lúna fætur
varna sér að fara á
kjörstað.
Hafnfirð-
ingar
árrisulir
Heldur fleiri höfðu
greitt atkvæði í
kosningunhm í
Hafnarfirði á há-
degi en á sama tíma
I fyrra.
Morgunblaðið/Bjarni
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Rólegt á Sel-
tjarnamesi
Á Seltjarnarnesi fóru
kosningarnar hægt af
stað, kannski vegna
þess að margir telja
að spennan í kosn-
inunum þar sé ekki
eins mikil og víða
annars staðar á land-
inu.
Morgunblaðið/RúnarÞór
Sam-
göngu-
ráðherra
kýs
Halldór Blön-
dal, samgöngu-
og landbúnað-
arráðherra, og
kona hans,
Kristrún Ey-
mundsdóttir,
kusu á Akureyri
í gærmorgun.
Morgunblaðið/Bjarni
Fyrstir til að kjósa
KOSNING hófst klukkan 9 í Stýrimannaskólanum í Reykjavík
eins og víðast hvar annars staðar á landinu. Þó nokkrir kjósend-
ur biðu fyrir utan þegar lögreglan opnaði húsið og voru greini-
lega ákveðnir í því hvað þeir ætluðu að kjósa.
ki
I
j