Morgunblaðið - 29.05.1994, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1994 15
FRÉTTIR
Sjálfsbjörg lands-
samband fatlaðra
Hátíðar-
fundur sam-
þykki stefnu-
mörkum í
ferlimálum
SJÁLFSBJÖRG, landssamband
fatlaðra, hefur óskað eftir því að
hátíðarfundur á Þingvöllum 17. júní
samþykki stefnumörkum um að
gera allar opinberar byggingar á
landinu aðgengilegar fötluðum á
næstu árum.
„Við höfum í bréfí til forseta
Alþingis, forsætisráðherra og þing-
flokksformanna óskað eftir því að
hátíðarfundur á Þingvöllum sam-
þykki að stefna að því að gera allar
opinberar byggingar hér á landi
aðgengilegar fötluðum á næstu
árum. Mörgu er ábótavant og
kannski dæmigert að umhverfis-
ráðuneytið, sem fer með þennan
málaflokk, hefur ómögulegt að-
gengi fyrir hjólastóla. Okkur fannst
þess vegna að stefnumörkun í þessa
átt gæti verið bæði vegleg og góð
afmælisgjöf fyrir íslendinga á lýð-
veldisafmælinu," sagði Sigurður
Einarsson framkvæmdastjóri
Sjálfsbjargar. Hann sagði að ekki
hefði borist svar frá Alþingi og ýtt
yrði á eftir því á næstunni.
Sigurður sagði að óskin tengdist
átakinu Þjóðfélag án þröskulda.
Áhersla hefði verið lögð á ferlimál
og yrðu þau aðalumræðuefnið á 27.
þingi Sjálfsbjargar 10.-12 júní
næstkomandi. Happdrættissala til
styrktar Sjálfsbjörgu fer fram um
þessar mundir.
♦ ♦ ♦
Erindi á
vegum Sið-
fræði-
stofnunar
PÁLL Skúlason, prófessor, flytur
mánudaginn 30. maí fyrirlestur á
vegum Siðfræðistofnunar sem ber
heitið Hvernig verður mannheimur
til?
í fyrirlestrinum mun Páll halda
því fram að það sé ákveðinn háttur
á að nema náttúruna sem heild sem
liggi skilningi okkar á veruleikanum
til grundvallar og að sá skilningur
skipti sköpum við mótun mann-
heims.
í fréttatilkynningu segir að Páll
muni lýsa þeim kynnum af náttúr-
unni sem hann telur hér skipta
mestu og taka dæmi af eigin
reynslu af Öskju í því sambandi.
Þá mun hann ræða ýmsar efasemd-
ir um slíka reynslu og náttúrulýs-
ingu sem á henni er byggð. Einnig
mun hann leitast við að skýra
hvernig hugurinn vinnur úr reynslu
sinni af náttúrunni og skapar það
sem við köllum menningu.
Fýrirlesturinn verður haldinn í
stofu 101 í Odda og hefst kl. 20.15.
HP DeskJet 310 bleksprautuprentarinn:
Kr. 33.500,"
staðgreitt m/vsk.
Hewlett-Packard DeskJet 310 bleksprautuprentarinn er án efa
einn sá allra sniðugasti á markaðinum í dag. Hann er fyrirferðalítill,
vandaður og skilar góðum afköstum. Hann er hljóðlátur, hefur
möguleika á litaprentun og arkamötun, er auðveldur í notkun og
hentar í raun nánast hvar sem er. Verðið er einnig álitlegt
HP DeskJet 310 bleksprautuprentari og fylgihlutir: Stgr.verð m/vsk.
• HP DeskJet 310, sv/hv, án arkamatara* kr. 33.500,-
• HP DeskJet 310, sv/hv, með arkamatara kr. 39.900,-
• HP DeskJet 310 litaprentari með arkamatara kr. 46.900,-
HP DeskJet 310 bleksprautuprentarinn fæst til afgreiðslu strax! <
Kynntu þér heila fjölskyldu af Hewlett-Packard prenturum í Tæknivali
og þú finnur örugglega álitlegan kost fyrir þig.
Viðskiptavinir athugið: v,
Frá og með 28. maí er verslunin lokuð á laugardögum. ^ ' s*
Verið velkomin alla virka daga - í allt sumarl c _ \
ÖMJ ^
TÆKNILEG ATRIÐI:
1 Fyrirferðalítill, þyngd aðeins 2 kg.
i Prentar I svart/hvítu og í lit
á A4 pappír og glærur.
i Ársábyrgð frá framleiðanda.
i Hljóðlát bleksprautuprentun.
i Arkamatari.
i Aukabúnaður fæst fyrir þá
sem vilja ferðast með prentarann,
s.s. rafhlöður með hleðslutæki
og þægileg handtaska.
tlegur kostur
Hewlett-Packard
Tæknival
Skeifunni 17 - Sími 681665 - Fax 680664
I
'
i