Morgunblaðið - 29.05.1994, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1994 33
FRÉTTIR
FRÁ stofnfundi Ungmennafélagsins Glóa.
Glói hefur starf
á Siglufirði
Siglufirði - Ungmennafélag var
stofnað á Siglufirði 17. apríl sl. Und-
irbúningur að stofnun félagsins hafði
staðið yfír í nokkrar vikur. Á fundinn
mættu um 60 manns kuk nokkurra
gesta.
Fyrsta stjórn ungmennafélagsins
var kosin og eru eftirfarandi í stjórn:
Sigurður G. Þorleifsson, formaður,
Þórarinn Hannesson, varaformaður,
Erlingur Arnarson, gjaldkeri, Ásta
Katrín Helgadóttir, ritari og Þuríður
Helga Þorsteinsdóttir, meðstjórn-
andi.
Samþykkt var á stofnfundinum
að halda samkeppni um nafn á hinu
nýja ungmennafélagi. 130 tillögur
bárust til stjórnarinnar og eftir mikl-
ar vangaveltur ákvað stjórnin að hið
nýja félag skyldi heita Ungmennafé-
lagið Glói. Heiðurinn af þessu nafni
á Benedikt Stefánsson.
Á stofnfundinum skráðu 50 manns
sig í félagið en nú eru félagar orðn-
ir 160 talsins eða 9% bæjarbúa.
Selfoss
Góð þátttaka
í kvenna-
reiðinni
Selfoss - Árlegur reiðtúr kvenna
í hestamannafélaginu Sleipni var
farinn á uppstigningadag, 12. maí.
Þá reið góður hópur kvenna úr hlaði
félagsheimiiis hestamanna, Hlið-
skjálfar, og hélt í hringferð um Fló-
ann.
Kvennareiðdagurinn hefur verið
árlegur viðburður síðustu þijú ár.
Markmiðið með honum er að konur
komi saman og eigi dagstund sam-
an á hestbaki. Lögð er áhersla á
að allar konur geti verið með, bæði
þær sem eru vanar og þær sem
ekki fara eins oft á hestbak.
Að þesu sinni var riðið niður
Gaulveijabæjarveg, farið hjá bæn-
um Bár, upp Engjar og yfir í Hró-
arsholtskletta og þaðan að Volalæk
þar sem var áð og sungið. „Þetta
var mjög gaman,“ sagði ein kvenn-
anna að loknum reiðtúrnum.
Sig. Jóns.
-----*—*—*-----
Dagbók
Háskólans
Mánudagur 30. maí.
Kl, 13-17. Ráðstefna norrænna
rektora í stofu 101 í Odda. Megin-
viðfangsefni ráðstefnunnar er sam-
vinna norrænna háskóla og breytt
viðhorf í samstarfi háskóla í Evr-
ópu.
Þriðjudagur 31. maí.
Kl. 16.15 verður málstofa í við-
skiptafræði í stofu 201 í Odda (2.
hæð). Þrír nemendur, sem ljúka
cand. oecon.-prófi frá viðskipta- og
hagfræðideild í júní munu kynna
kandídatsritgerðir sínar. Reynir Jó-
hannsson: Birgðastýring hjá Raf-
magnsveitu Reykjavíkur. Sólveig
Hjaltadóttir: Shell-stöðvar - hug-
myndir um stjórnun og þjónustu.
Þröstur Sigutjónsson: Viðskipta-
siðareglur, straumar og stefnur.
Nánari upplýsingar um samkom-
ur á vegum Háskóla Islands má fá
í síma 694371. Upplýsingar um
námskeið Endurmenntunarstofnun-
ar má fá í síma 694923.
FS veit-
ir heið-
ursmerki
Keflavík - Skólanefnd Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja hefur ákveðið að
taka upp þann sið að heiðra sérstak-
lega velunnara skólans og einstakl-
inga er áhrif hafa haft á þróun
hans. Heiðursmerkin verða tvö:
sæmdarmerki FS, sem veitt er þeim
aðila sem unnið hefur skólanum
verulegt gagn, og tignarmerki FS,
sem veitt er þeim aðila er unnið
hefur skólanum verulegt gagn
þannig að skipt hafi sköpum varð-
andi framgang og þróun skólans.
Merkin voru nú veitt í fyrsta sinn.
Sæmdarmerki FS hlutu: Gunnar
Björn Björnsson, Ólafur Jónsson,
Daníel Guðbjartsson, Ingvar Jó-
hannsson, Eggert Ólafsson, Ingi-
mundur Þ. Guðnason, Halldór Guð-
mundsson, Bogi Hallgrímsson, Jón
Olsen og Halldór Pálsson. Tignar-
merki FS hlutu: Jón Böðvarsson,
Magnús Gíslason, Ingólfur Hall-
dórsson og Gunnar Sveinsson, en
þeir Ijórmenningar eiga mestan
þátt í stofnun og framgangi skól-
ans.
„Þá sagði ég náunganum að það væri búið að mjólka mig nógu lengi og það væri tími til kominn að fá stöðuhækkun."
Pípuorgel í Hofsósskirkju
Hofsósi - Pípuorgel var vígt á
hvítasunnudag í Hofsósskirkju.
Orgelið var smíðað hjá J.W. Walker
og sons í Englandi og kom maður
frá verksmiðjunni til að setja það
upp. Þykir þetta mikil framkvæmd
en áður var í kirkjunni fótstigið
orgel.
Orgelið kostar hátt í þijár millj-
ónir þegar allur kostnaður hefur
verið reiknaður og er það stór biti
fyrir ekki stærri söfnuð. Ýmsir vel-
unnarar kirkjunnar hafa látið fé af
hendi rakna í orgelsjóð Hofsós-
kirkju og vill sóknarnefnd færa
þeim sínar bestu þakkir. Einnig
skal á það bent að ef einhveijir
hafa hug á að leggja þessu lið er
opinn tékkareikningur v/orgelsjóðs
Hofsóskirkju nr. 333 í Búnaðar-
banka íslands, útibúinu á Hofsósi.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
ÞEIR hlutu tignarmerki FS. Frá vinstri til hægri eru: Jón Böðv-
arsson, Magnús Gíslason, Ingólfur Halldórsson og Gunnar
Sveinsson.
Morgunblaðið/Einar Jóhannsson
ORGELLEIKARI Hofsósskirkju, Anna Jónsdóttir, leikur á
nýja orgelið.
IÐNNÁM
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti
Géöur íréUír
fyrir alla sem
ætla til útlanda!
4000 kr.
afsláttur af „pakkaferð.“
Handhafar ATLAS-korta og gullkorta Eurocard fá 4.000 kr.
afslátt þegar þcir greiða fyrir ýmsar „pakkaferðir".
Þessi afsláttur er af hcildarupphæðinni og gildir ef ferðin er
farin fyrir 1. október 1994. Ilér er um að ræða ferðir hjá
eftirfarandi ferðaskrifstofum: Ferðaskrifstofu íslands,
Ferðaskrifstofu Reykjavíkur, Ferðaskrifstofu stúdenta,
ferðaskrifstofunni Alís, ferðaskrifstofunni Úrval-Útsýn,
Ferðaskrifstofu Guðmundar
Jónassonar, Ratvís og
Samvinnuferðum-
L.andsýn. Afslátturinn
gildir fyrir eina ferð á
tH' Núerrétti
tíminn lil að fá
sér ATLAS!
EUROCARD
CEJATTAS
- nýtiir sérkjara!
KREDITKOKT HF. • ÁRMÉIA 2» • 108 REYKJAVÍK • SÍMI: (91) 68 54 99
David Waisglass and Gordon Coulthart.
Fjölbrautaskólinn
Breiðholti
Vélsmíði — Rafvirkjun — Húsasmíði
Snyrtifræði — Rennismíði
Grunnnám
FB þegar þú velur verknám