Morgunblaðið - 29.05.1994, Blaðsíða 38
38 SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
DAVID LEE
ROTH OG
VOLTAIRE
Bruce Willis
í Suður-Kóreu
BANDARÍSKI kvikmyndaleikar-
inn Bruce Willis kampakátur eft-
ir tónleika í herstöð Bandaríkja-
hers í Seoul. Willis heimsótti
Suður-Kóreu ásamt hljómsveit
sinni til þess að efla baráttuvilja
bandarískra og kóreskra her-
manna.
SÚPA nefnist tólf hundruð fer-
metra sýningarsalur sem opnað-
ÞAÐ HEFUR aldrei verið
hljótt um ólátabelgur-
inn David Lee
Roth. Hann lýsti
nýlega skoðun
sinni á því fólki
sem hann um-
gekkst á upphafsá-
rum sínum sem rokk-
söngvari: „Ég var umset-
inn fólki sem hélt að Volta
ire væri loftræstikerfi."
Pavarotti leiddi
stjörnuliðið
Listaverk
í súpunni
Sljömulið
Pavarottis.
ÁRLEGIR fjáröflunartónleikar voru nýlega haldnir í
Carnegie Hall í New York til styrktar baráttunni fyrir
varðveislu regnskóga. Sting og kona hans Trudie Styl-
er stóðu að tónleikunum en þau stofnuðu Regnskóga-
samtökin árið 1989. Það sem kveikti ástríðu hjónanna
var bón Indíánahöfðingjans Raonim, sem þau hittu í
Brasilíu árið 1987, er hann bað þau að þjarga fólki
sínu. Og baráttan hefur þegar skilað miklum árangri.
Samtökunum hefur tekist að ná í gegn friðun á regn-
skógalandi að svipaðri stærð og Sviss.
Tónleikarnir heppnuðust afar vel. og öfluðu sam-
tökunum um sjötíu milljónum ísl. króna til áframhald-
andi baráttu fyrir varðveislu regnskóga. Margar stór-
stjörnur tróðu upp í stjömuliði sem kennt var við óperu-
söngvarann Pavarotti. Tammy Wynette þótti njóta
mestrar hylli áhorfenda fyrir lagið „Stand by Your
Man“. Söngkonan Whitney Houston var hinsvegar
næstum afsakandi á svip þegar hún söng lagið vin-
sæla „I Will Always Love You“. „Ef að þið eruð ekki
orðin þreytt á að hlusta á það, er ég vissulega orðin
þreytt á að syngja það.“
HASKÖLABÍÖ
SÍMI 22)40
Háskólahíó
Aögöngumiði að Backbeat gildir sem 300 kr. afsláttur
af geislaplötunni með rokktónlistinni dúndrandi
úr myndinni í verslunum Skífunnar.
ur verður á Manhattan í sumar.
í honum verða sýningar á verk-
um frægs fólks. Meðal þess sem
boðið verður upp á við opnunina
má nefna teikningar eftir Taylor
Dayne, heklaða hatta eftir Carly
Simon og perluskreytta skart-
gripi eftir tennisstjörnuna Jenni-
fer Capriati. Annar meðeigenda
sýningarsalarins er leikkonan
Emily Lloyd sem segir: „Oll tján-
ing er Iist.“ En það hjálpar ef
þekkt nafn fylgir.
TENNISSTJARNAN Jennifer Capriati.
Það eru væntanlega engin
listaverk í þessari súpu.
Sting og James Taylor.
Elton John og Whitney Hous-
ton.
FOLK
Hvað varð um frið-
helgi einkalífsins?
►„ÞEGAR ég
steig mín
fyrstu skref í
kvikmyndum
virti fólk vissa
þætti einka-
lífsins og lét
þá í friði. Nú
á dögum býst
ég við að
finna fyrr eða
síðar hljóð-
nema og upp-
tökutæki ofan
í klósettskálinni heima hjá
mér.“
Leikarinn stórefnilegi Leon-
ardo DiCaprio í hlutverki sínu
í kvikmyndinni „What’s eat-
ing Gilbert Grape?“.
Lærði af
þroskaheftum
►LEONARDO DiCaprio hefur
slegið í gegn fyrir túlkun sína
á þroskaheftum strák að nafni
Arnie í kvikmyndinni „What’s
eating Gilbert Grape?“. Þó hann
væri aðeins nítján ára gamall
fékk hann cinróma lof gagnrýn-
enda og var tilnefndur til ósk-
arsverðlauna. Til að undirbúa
sig undir hlutverkið fór liann
m.a. með leikstjóranum Lasse
Hallström á heimili þroska-
heftra og dvaldi þar um skeið.
„Margir lialda að þroskaheft
fólk sé stórskrítið og ekki í
neinu sambandi við umheiminn.
En það er mjög gaman að um-
gangast það. Fyrir því er allt
svo nýtt og spennandi og það
kennir raanni að upplifa heiminn
á ferskan hátt,“ segir DiCaprio.
Leikarinn
ástsæli
Paul Newman.