Morgunblaðið - 29.05.1994, Page 48
varða
víðtæk
fjármálaþjónusta
Landsbanki
íslands
FORGANGSPÓSTUR
UPPLÝSINGASÍMI 63 73 00
Bankl allru landsmanna
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: IIAFNARSTRÆTI 86
SUNNUDAGUR 29. MAÍ 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Landsmenn tóku kosningadaginn snemma í blíðskaparveðri
KOSNINGAR til sveitarstjórnar
fóru fram í blíðskaparveðri um
allt land í gær. Þátttaka í kosn-
-^-rógunum framan af degi var góð.
Á hádegi höfðu víðast hvar rúm-
lega 10% þeirra sem eru á kjör-
skrá neytt atkvæðisréttar síns.
Kosningaþátttakan í Reykjavík
klukkan 12 var orðin um 15% sem
er aðeins meiri þátttaka en í síð-
ustu borgarstjómarkosningum.
í öllum stærstu sveitarfélögum
landsins hófst kosning klukkan 9
um morguninn, en í sveitahrepp-
um hófst kosning víða ekki fyrr
en á hádegi.
Ekki var vitað til þess að nein-
ir erfiðleikar hefðu komið upp
Góðþátttaka
í kosningum
varðandi framkvæmd kosning-
anna. Nokkuð var þó um að fólk
gleymdi að taka persónuskilríki
með sér á kjörstað, en nú hefur
sú regla verið tekin upp að allir
verði að bera þau þegar kosið er.
Á kjörskrá í Reykjavík eru
74.438 manns Á hádegi í gær
höfðu 11.216 greitt atkvæði eða
15,06% af þeim sem eru á kjör-
skrá. Á sama tíma í sveitarstjórn-
arkosninunum árið 1990 höfðu
Atkvæði
greidd
árdegis
ÁRNI Sigfússon og Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir
komu ásamt mökum sínum
£ kjörstað snemma á
laugardagsmorgun í blíð-
skaparveðri. Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir og eigin-
maður hennar, Hjörleifur
Sveinbjörnsson, komu til
kjörfundar í Melaskóla kl.
9.30 og greiddu atkvæði.
Árni Sigfússon og eigin-
kona hans, Bryndís Guð-
mundsdóttir, komu á kjör-
stað í Álftamýrarskóla um
„tíuleytið. í fylgd með þeim
voru synir þeirra tveir,
þeir Guðmundur Egill og
Sigfús Jóhann. Upphaflega
ætluðu bæði Árni og Ingi-
björg Sólrún að kjósa á
sama tíma, um tíuleytið, en
af tillitssemi við fjölmiðla
*var ákveðið að hún myndi
kjósa hálftíma fyrr.
Morgunblaðið/Bjarni
14,27% greitt atkvæði í Reykja-
vík.
í Kópavogi eru 12.079 á kjör-
skrá. Klukkan tólf höfðu 1.425
greitt atkvæði eða 11,8%. Þetta
er svipuð þátttaka og í kosningun-
um fyrir ijórum árum. í Hafnar-
firði eru 11.448 á kjörskrá. 1.232
höfðu greitt atkvæði á hádegi eða
10,8%. Síðast var kosningaþátt-
takan orðin 10,4% klukkan 12.
Seltjarnarnesi eru 3.152 á kjör-
skrá og á hádegi höfðu 366 greitt
atkvæði eða rúmlega 10%. í Mos-
fellsbæ eru 3.136 á kjörskrá.
Klukkan 12 höfðu 349 greitt at-
kvæði eða 11%. Þetta er um 2%
minni þátttaka en á sama tíma
árið 1990.
í Garðabæ eru 5.334 á kjör-
skrá og á hádegi höfðu 575 greitt
atkvæði eða 10,8%. Kosningarnar
fara talsvert hægar af stað í
Garðabæ en fyrir fjórum árum
en þá höfðu 13,2% þeirra sem
voru á kjörskrá greitt atkvæði á
hádegi.
Kosið í nýju sveitarfélagi
í nýju sveitarfélagi á Suður-
nesjum eru 6.975 á kjörskrá. Á
hádegi höfðu 573 greitt atkvæði
eða um 8,2%. Þetta mun vera
svipuð þátttaka og í síðustu kosn-
ingum. Þess ber þó að geta að
kjördeild í Höfnum opnaði ekki
fyrr en klukkan 12.
Á Akureyri eru 10.511 á kjör-
skrá. Klukkan 12 höfðu 947 greitt
atkvæði eða um 9%. Þetta er held-
ur meiri þátttaka en á sama tíma
í fyrra.
Láglauna-
bætur og
orlofsupp-
bót greidd
í sumar
LAUNÞEGAR með laun undir
80 þúsund krónur á mánuði,
sem eru í stéttarfélögum sem
hafa kjarasamninga til næstu
áramóta, fá sérstakar launabæt-
ur greiddar í næsta mánuði og
svo aftur í desember, með sama
hætti og á seinasta ári, sam-
kvæmt ákvæðum kjarasamn-
ings ASÍ og vinnuveitenda sem
gerður var í fyrra.
Þessar launabætur koma til
viðbótar þeirri 6.000 króna
launauppbót sem iaunanefnd
ASI og samtaka vinnuveitenda
samdi um í seinustu viku að
greidd yrði launþegum 1. júní.
Þá eiga allir samningsbundnir
launþegar í fullu starfi að fá
greidda 8.000 króna orlofsupp-
bót við upphaf orlofstöku í sum-
ar, eða ekki síðar en 15. ágúst
en það er samskonar uppbót og
greidd var launþegum á seinasta
sumri skv. kjarasamningum.
Launabæturnar reiknast
þannig, að fundið er meðalta!
heildartekna síðustu þriggja
mánaða Sú upphæð er dregin
frá 80 þús. kr. miðað við fullt
starf á viðmiðunartímanum og
helmingur þeirrar upphæðar er
greiddur út sem launabætur.
Viðmiðunarupphæðin lækkar í
hlutfalli við starfshlutfall og
starfstíma.
Átta mánaða uppgjör Vinnslu-
stöðvarinnar Vestmannaeyjum
Hagnaður
308 milljónir
HAGNAÐUR Vinnslustöðvarinnar hf. Vestmannaeyjum fyrstu átta
mánuði yfirstandandi fiskveiðiárs, þ.e. frá 1. september sl. til 30. apríl
í ár, reyndist vera 308 milljónir króna. Tap á sama tímabili á síð-
asta fiskveiðiári var 183 milljónir.
Sighvatur Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Vihnslustöðvarinnar
þakkar þessa stórbættu afkomu fyr-
irtækisins fyrst og fremst loðnuver-
tíðinni og starfsfólki fyrirtækisins
til lands og sjávar. Að því er stefnt,
að sögn Sighvats, að auka hlutafé
fyrirtækisins og Vinnslustöðin fari á
almennan markað með haustinu.
Sighvatur sagði í samtali við
Morgunblaðið að rekstrartekjur fyr-
irtækisins að frádregnum afla til
eigin vinnslu hefðu þessa átta mán-
uði numið 2.234 milljónum króna,
samanborið við 1.881 milljón króna
fyrir sama tímabil á síðasta fiskveiði-
ári. Hagnaður fyrir afskriftir hefði
í ár numið 517 milljónum króna,
miðað við 277 milljónir króna. Hagn-
aður af reglulegri starfsemi reyndist
vera 125 milljónir króna, en sama
tímabil á liðnu fiskveiðiári, reyndist
vera taprekstur upp á 267 milljónir
króna. Söluhagnaður Vinnslustöðv-
arinnar fyrir þessa átta mánuði var
183 milljónir króna, en 84 milljónir
í fyrra.
„Við þökkumloðnuvertíðinni sem
gekk gríðarlega vel þessa bættu af-
komu. Þá þökkum við þennan árang-
ur ekki síður starfsfólki okkar, bæði
til lands og sjávar, því starfsfólkið
skapaði þessa góðu afkomu, með
mikilli vinnu,“ sagði Sighvatur,
Lægri vextir skila sér
Auk þess sagði Sighvatur að vext-
ir nú væru mun lægri en í fyrra.
„Slíkt er fljótt að skila sér í jafn
skuldsettu fyrirtæki og okkar. Við
erum einnig búnir að hagræða heil
ósköp hjá okkur. Við erum með
færri skip og búnir að skera niður
mikinn kostnað, sem gerir það að
verkum að við erum að reka fyrir-
tækið mun hagkvæmar en áður, sem
sýnir sig m.a. í því að rekstrargjöld-
in í vinnslunni hækkuðu um 50 millj-
ónir á þessu tímabili, en tekjurnar
jukust um 340 milljónir króna. Við
erum búnir að bæta skuldastöðu
fyrirtækisins um 700 milljónir frá
1. september, þannig að við erum
komnir vel áleiðis með það sem við
ætluðum að gera. Við teljum að við
munum geta skilað fyrirtækinu með
250 til 308 milljóna króna hagnaði,
þegar fiskveiðiárið verður gert upp,“
sagði Sighvatur.