Morgunblaðið - 30.06.1994, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ
IDAG
SKÁK
Arnað heilla
U m s j ó n M a r g e I r
l’étursson
Á ALÞJÓÐLEGU móti í
New York í vor kom þetta
endatafl upp í viðureign al-
þjóðlega meistarans
Maurice Ashley (2.460),
sem hafði hvítt og átti leik,
og stórmeistarans John
Fedorowicz (2.520).
49. Hxd4! - cxd4, 50. Re6
(Nú fær svartur afar óvirka
stöðu, því hann þarf að
verja máthótun á c7) 50. -
Hc8, 51. Rxd4+ - Kc5,
52. Re6+ - Kb4, 53. f5 -
Ka3, 54. Hh2 - a4, 55.
Rd4 - axb3, 56. axb3 (Með
tvö samstæð frípeð er hvíta
staðan unnin. Ashley tekur
sér góðan tíma til að inn-
byrða sigurinn) 56. - Kb4,
57. Kf4 - Kc3, 58. Rb5+
- Kxb3, 59. Rxd6 - Hcd8,
60. Hh6 - Kc3, 61. Re4+
- Kxc4, 62. Hxb6 - Hd4,
63. Hc6+ - Kb5, 64. Hc5+
- Kb6, 65. He5 - Kc6,
66. f6 - Hdl, 67. He6+ -
Kc7, 68. g5 - Hel, 69.
He7+ - Kc6, 70. f7
svartur gafst upp. i^ty
er talinn öflugasti I^B^u-
maðurinn í skákhi
Úrslit mótsins: 1. Wojð
.ewicz, Póllandi 7 v. af
2. Ashley 6V2 v., 3. Ehlvest,
Eistlandi 6 v., 4. Fed-
orowicz 5‘/2 v., 5. Waitzkin
4'/2 v. o.s.frv. Islenskum
skákmönnum var boðið á
mótið en áttu ekki heiman-
gengt og hlupu þá Ehlvest
og Wojtkiewicz í skarðið.
/»f"kÁRA AFMÆLI.
UU Sextugur er í dag
Elías E. Guðmundsson,
flugvirki, Brautarlandi
22, forstjóri Steinprýði
hf. Kona hans er Guðný
Sigurðardóttir. Þau taka á
móti gestum í Félagsheim-
ili flugvirkja, Borgartúni
22, á afmælisdaginn á milli
klukkan 17 og 19.
Ljósm.st. Mynd, Hafnarfírði.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman hinn 4. júní 1994 í
Bústaðakirkju þau Steina
Árnadóttir og Atli Þor-
valdsson af séra Pálma
Matthíassyni. Þau eru til
heimilis í Efstalandi 24,
Reykjavík.
Ljósm.st. Mynd, Hafnarflrði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman í Garðakirkju hinn
11. júní 1994 þau Hrönn
Gísladóttir og Sigurður
Óli Guðmundsson af séra
Þorgrími Daníelssyni. Þau
eru til heimilis á Holtsgötu
10, Hafnarfirði.
Ljósm.st. Mynd, Hafnarfirði
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman hinn 4. júní 1994 í
Grundarfjarðarkirkju þau
Ragnhildur Högnadóttir
og Haraldur Unnarsson
af séra Sigurði Kr. Sigurðs-
LEIÐRETT
Sigríðarstofa
rekin af Náttúru-
verndarráði
VEGNA FRÉTTAR í
Morgunblaðinu í gær, 29.
júní, um opnun Sigríðar-
stofu við Gullfoss vill Nátt-
úruverndarráð koma eftir-
farandi leiðréttingu á fram-
færi. Gestastofan við Gull-
foss var sett upp og rekin
af Náttúruverndarráði en
ekki af Landvemd eins og
sagði í fréttinni, enda er
friðlandið við Gullfoss og
húsið þar í umsjá Náttúru-
verndarráðs. í fréttinni seg-
ir ennfremur að gestastofan
sé teiknuð af Tryggva
Tryggvasyni, arkitekt, en
hið rétta er að einungis inn-
rétting sýningarrýmis
gestastofunnar er teiknuð
af honum. Sigrún Helga-
dóttir, líffræðingur, sá um
verkið af hálfu Náttúru-
vemdarráðs og valdi hún
efni og er höfundur texta.
Það var Sigrún Helgadóttir,
en ekki Sigríður eins og seg-
ir í fréttinni, sem flallaði um
markmið náttúrustúlkunnar
við opnun Sigríðarstofu
þann 19. júní sl.
R-i ofaukið
Á BLAÐSÍÐU 20 slæddist
stafurinn „r“ þrisvar sinn-
um inn í nafn Þingeyra-
kirkju í Húnavatnssýslu í
Morgunblaðinu í gær.
Kirkjan er eins og kunnugt
er á Þingeyrum en ekki
Þingeyri. Beðist er velvirð-
'ngar á þessum mistökum.
Pennavinir
GHANASTÚLKA 23 ára
með áhuga á dansi, tónlist
og kvikmyndum:
Augvstina Cook Pepsi,
P.O. Box 835,
Oguaa District,
Ghana.
Með morgunkaffinu
HÖGNIIIREKKVÍSI
STJÖRNUSPÁ
cftir Franccs Drakc
KRABBI
Aímælisbarn dagsins: Þú hef-
ur góða stjórnunarhæfileika
og nýtur þín vei þar sem þú
ræður ferðinni.
Hrútur
(21. mars- 19. apríl)
Einhvetjir smámunir geta
komið í veg fyrir að þú náir
peim árangri sem þú ætlaðir
þér. Reyndu að vera sam-
vinnufús.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Aðrir þurfa á aðstoð þinni að
haida í dag og þú færð lítinn
tíma til að sinna eigin málum.
Láttu álit þitt í ljós.
Tvíburar
(21. maí- 20. júní)
Þú hefur mikið að gera og
hefur lítinn tíma aflögu í dag.
Einhver sem þú átt samskipti
við er einum um of hörundsár.
Krabbi
(21. júní - 22. júlf)
Þótt mikið sé skrafað í dag
verður minna úr framkvæmd-
um og þér gengur erfiðlega
að koma hugðarefni þínu á
framfæri.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Leitaðu ekki til ókunnugra
eftir ráðgjöf því þeir geta
valdið vonbrigðum. Vanda-
mál getur komið upp varð-
andi ferðalag.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Erfitt getur verið að ná samn-
ingum um fjármál í dag og
ástvinir eru ekki á einu máli
varðandi fjárfestingu.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Láttu ekki smávægilegar
áhyggjur spilla góðu sam-
bandi ástvina í dag. Nú er
ekki rétti tíminn til að taka
mikilvægar ákvarðanir.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember) R|j0
Þótt þú viljir vel er ekki víst
að þú fáir frið til að ljúka
áríðandi verkefnií dag:
Reyndu að sýna þolinmæði.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Sambandið við einhvern ná-
kominn mætti vera betra. Það
er vænlegra að ræða ágrein-
ingsmálin en að byrgja þau
inni.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú getur orðið fyrir trufl-
unum rétt í þann mund sem
þú ert að taka til hendi við
áríðandi verkefni. Hafðu þol-
inmæði.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh,
Einhveijir samskiptaörð-
ugleikar geta komið upp í
vinnunni sem erfitt er að ráða
fram úr. Varastu óþarfa
gagnrýni.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) !£*
Nú er ekki rétti tíminn til að
taka áhættu í fjármálum þótt
þér áskotnist óvænt fé. Láttu
góða dómgreind ráða ferð-
inni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dœgradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni vísindalegra stað-
reynda.
FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ1994 41
Hjartans þakklœti til barna minna, tengdabarna,
ömmu- og langömmubarna, annarra vanda-
manna og vina. Á 90 ára afmœlinu, 10. júní
sl., veittuÖ þiÖ mér mikla gleÖi.
GuÖ blessi ykkur.
Guðbjörg Guðmundsdóttir,
Skipasundi 34.
TAMROTOR skrúfuloftpressur. 3
Finnskar skrúfuloftpressur frá 0,5-72,5 m /mín.
Hljóölátar, fyrirferöarlitlar, 70 db í 1 m fjarlœgö.
Dalshrauni 14,
sími 52035
Félag milliríkjaverslunar
og vörudreifingar
ROTTERDAM - LYKILL
ÍSLANDS AÐ EVRÓPU
Félag íslenskra stórkaupmanna ásamt
Aðalræðisskrifstofu Hollands á ísiandi
standa fyrir fundi um flutninga- og
hafnamál í Rotterdam og Reykjavík í
Skálanum, Hótel Sögu, í dag fimmtu-
daginn 30. júní kl. 11.50.
Fundurinn er haldinn
í tengslum við opinbera heimsókn
Hollandsdrottningar til landsins.
Sendinefnd, skipuð fulltrúum hollenska
viðskiptalífsins, verður með í för og
munu fulltrúar úr nefndinni sitja fundinn.
Frú Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
borgarstjóri Reykjavíkur,
flytur inngangsávarp:
REYKJAVÍKURHÖFN —
FRJÁLST HAFNARSVÆÐI.
Ræðumaður fundarins:
Hr. Harry Kloosterboer frá
fyrirtækinu Euorfrigo, fulltrúi
hafnaryfirvalda í Rotterdam.
Birgir R. Jónsson,
formaSur FIS.
Ingibjörg Sólrún Qísladóttir,
borgarstjórí Reykajvíkur.
HR. KLOOSTERBOER MUN
FJALLA UM STARFSEMI
HAFNARINNAR í ROTTERDAM
OG KYNNA ÞÁ ÞJÓNUSTU
OG MÖGULEIKA, SEM
ÞAR BJÓÐAST, AUK
TOLLAFGREIÐSLUMÁLA.
Þeir, sem áhuga hafa á þátttöku,
vinsamlega tilkynnið
mætingu í síma 888910.
Harry Kloosterboer,
Rotterdamhöfn.
Þátttökugjald með hádegisverði er kr. 2.500.
FUNDURINN ER ÖLLUM OPINN.