Morgunblaðið - 30.06.1994, Qupperneq 44
MORGUNBLAÐIÐ
44 FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 1994
Ný kvikmynd eftir
Friðrik Þór Friðriksson.
Stemningin er ísland
árið 1964 í gamni og
alvöru. Kanasjónvarp
og þrjúbíó. Jesús
Kristur, Adolf FHitler og
Roy Rogers. Rússneskir
njósnarar, skamm-
byssur, öfuguggar,
skagfirskir sagnamenn
og draugar.
Boðssýningar
kl. 6 og 8.30.
Almenn
sýning kl. 11
Taktu þátt í spennandi
kvikmyndagetraun. Vinningar:
Boðsmiðar á myndir
Stjörnubíós.
STJÖRNUBÍÓLÍNAN, sími 991065.
Verð kr. 39,90 mínútan.
DREGGJAR
DAGSINS
Sýnd kl. 6.45.
Frumsýnir gamanmyndina
STÚLKAN MÍN 2
Sumir eru krakkar.
Aðrir eru fullorðnir.
Svo er það árið þarna á milli...
Það er einmitt árið sem Vada
Sultenfuss er að upplifa. Það
er nógu erfitt að vera dóttir
útfararstjóra og eiga ólétta
stjúpmömmu án þess að
gelgjuskeiðið hellist yfir
mann og hormónarnir fari að
flæða.
Bíómiðarnir gilda sem
afsláttur á göt í eyru og
lokka hjá Gulli og siifri.
Verð áður
kr. 1.490. Verð nú gegn
framvísun miða
kr. 800. Gildir frá 7. júlí.
Sýnd kl. 5.
TESS í PÖSSUM
Sýnd kl. 9.
VERÖLD WAYIUES 2
SKEMMTANIR
Kynbomban Britt
Ekland í gamanleik
►LEIKKONAN Britt Ek-
íand leikur í bresku gaman-
leikriti sem nefnist Haltu
fast um eiginkonu þína (Run
for your wife). Leikritið
#nun verða sýnt víðsvegar
um Bretland frá og með
fimmta júlí. Ekland leikur
Mary Smith, eiginkonu tví-
kvænts leigubílstjóra frá
London, sem leikinn er af
Robin Askwith.
MPÁLL ÓSKAR og MILUÓNAMÆR-
INGARNIR voru að gefa út plötu á dögun-
um sem ber nafíð Milljón á mann. Á föstu-
dagskvöld heldur hljómsveitin útgáfutónleika
sína á veitingahúsinu Hressó en staðurinn
heldur upp á 60 ára afmæli sitt um þessar
mundir og af því tilefni verða fríar veitingar
s.s. grill, kökur, kokkteilar o.fl. Aðgangseyr-
ir er 700 kr. Millarnir og Páll verða síðan á
Woodstock-hátíðinni á laugardeginum en um
kvöldið leika þeir i Sindrabæ á Höfn, en
þar er haldin Humarhátíð.
MGAUKVR Á STÖNG í kvöld fimmtu-
dagskvöld og um helgina, föstudags- og
laugardagskvöld, leikur hljómsveitin
Spoon. Sunnudags- og mánudagskvöld
leika Vinir vors og blóma og Borgard-
ætur verða á Gauknum þriðjudags- og mið-
vikudagskvöld.
MAMMA LÚ Á föstudagskvöld verður á
miðnæturskemmtuninni suðræn danssýning
í umsjón Battu-dansflokksins. Á laugar-
dagskvöld verður diskókvöld og verður
diskótónlist í fyrirrúmi. Maggi diskó frá
Eff Emm verður ráðgjafi tónlistarinnar.
Simbi og Kolla sýna diskódans ásamt
Battu-dansflokknum.
MPLÁHNETAN spilar á föstudagskvöld
í Víkuiröst, Dalvík og á laugardagskvöld
í Sjallanum, Akureyri.
MN1+ hljómsveit Signðar Beinteinsdóttur
leikur föstudagskvöld, 1. júlí, í Miðgarði í
Varmahlíð. Laugardagskvöldið 2. júlí held-
ur hljómsveitin áfram austur á bóginn og
leikur að Ýdölum í Aðaldal. Hljómsveitina
skipa, auk Sigrlðar, gítarleikararnir Friðrik
Karlsson og Guðmundur Jónsson,
trommuleikarinn Halldór Hauksson og
bassaleikarinn Þórður Guðmundsson.
MCAFÉ ROYALE Trúbadorinn Guð-
mundur Rúnar skemmtir i kvöld, fimmtu-
dagskvöld og verður sérstakt bjórtiiboð í
gangi. Á föstudagskvöld skemmtir Her-
mann Ingi Hermannsson og er þetta í
fyrsta skipti sem hann skemmtir í Hafnar-
firði. Bæði kvöldin verður boðið upp á mið-
næturkynningu frá Eldhaka.
MFEITI DVERGURINN Á föstudags- og
laugardagskvöld skemmtir trúbardorinn
Haraldur Reynisson.
MHÓTEL SAGA Á laugardagskvöldið í
Súlnasal leikur hljómsveitin Gleðigjafarn-
HLJÓMSVEITIN Páll Óskar og milljónamæringarnir verða með út-
gáfutónleika á Hressó á föstudagskvöld.
ir ásamt söngvurunum Ellý Vilhjálms,
Ragga Bjarna og André Bachmann. Sér-
stakur gestur kvöldsins verður trúbad-
orinn Árni Johnsen með úrval sumarlaga
frá Vestamannaeyjum og viðar. Módelsam-
tökin verða með tískusýningu. Tekið verður
á móti gestum með fordrykk og gildir hver
aðgöngumiði sem happdrættismiði.
MVINIR VORS OG BLÓMA leikur á
föstudagskvöld í Félagsheimilinu á
Blönduósi og laugardaginn 2. júli leikur
hljómsveitin á Woodstock-hátíðinni á
Höskuldarvöllum. Sunnudags- og mánu-
dagskvöld leikur svo hljómsveitin á Gauki
á Stöng. Þess má geta að hljómsveitin
hefur nýlega sent frá sér breiðskifuna Æði.
■ TURNHÚSIÐ Hljómsveitin Spilaborgin
hefur hafið störf að nýju eftir nokkurt hlé.
Söngkona hljómsveitarinnar er sem fyrr
Ásdís Guðmundsdóttir en hún var önnur
söngkona hljómsveitarinnar Kandiss sem
gerði garðinn frægan í fyrra. Á slagverk
leikur Kristín Þorsteinsdóttir (Stína
bongó) og nýir meðlimir eru Agnar Sveins-
son, gítar, Átli Freyr Ólafsson, bassi og
Ólafur Karlsson, trommur.
MTVEIR VINIR í kvöld, fimmtudags-
kvöid, eru hljómleikar með hljómsveitinni
Stingandi strái. Á föstdagskvöld leikur
hljómsveitin Hvað segir þú! Ha? og á
laugardagskvöldið leika Dos Pílas. Á
sunnudagskvöld er karaoke.
MMANNAKORN leika á Langasandi,
Akranesi, laugardagskvöld. Hljómsveitina
skipa: Magnús Eiríkssou, Pálini Gunnars-
son, Gunnlaugur Briem og Eyþór Gunn-
arsson. Hljómveitin mun leika gömul og
ný lög, s.s. Reyndu aftur, Braggablús, Ó, þú
o.fl.
■ SSSÓL leika á Woodstock-tónleikunum
á föstudagskvöld og á laugardeginum flýg-
ur hljómsveitin vestur til Isafjarðar og leik-
ur þar fyrir dansi í Sjallanum en ísafjörður
er einmitt fæðingarbær söngvarans Helga
Björnssonar.
MRÓSENBERGKJALLARINN Hljóm-
sveitin Kinkí leikur föstudagskvöld. Hljóm-
sveitina skipa Rúnar Örn Friðriksson,
söngur, Tóti bassaleikari, Einar Þor-
valdsson, gítar og Guðmundur Gunn-
laugsson, trommur.
MTUNGLIÐ verður opnað aftur á föstu-
dag. Reyndar mun Ellen Ki'istjáiisdótlir
og Kombó hennar halda útgáfutónleika í
kvöld en formleg opnun er á morgun. Hljóm-
sveitin Undir tunglinu leikur um helgina.
Húsnæðið býður upp á mikla möguleika og
eru ýmsar hugmyndir á borðinu um að
nýta húsið meira en bara um helgar.
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.