Morgunblaðið - 26.10.1994, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 26.10.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1994 5 FRÉTTIR Breytingar á frumvarpi að lögnm um leigubíla Allir atvinnubíl- stjórar hætti við 7 0 ára aldurinn Sérstakar umsjónarnefndir SAMKVÆMT breytingum er gerð- ar hafa verið á lagafrumvarpi um akstur leigubifreiða sem lagt var fram á seinasta Alþingi, er lagt til að atvinnuleyfi fyrir allan akstur í atvinnuskyni, þar á meðal leigu- sendi- og flutningabílar, falli úr gildi við lok 70 ára aldurs og gert ráð fyrir 5 ára aðlögunartíma. í fyrra frumvarpi var aðeins gert ráð fyrir að leyfin féllu úr gildi á vissum svæðum og ekki allur atvinnúakstur tiltekinn. „Þetta frumvarp fjallar um við- kvæma hluti og skiptar skoðanir eru um hvernig þessum málum skuli háttað. Sumar vilja fara þá leið að opna fyrir það að bifreiðastjórar megi verða eins gamlir í starfi og drottni þóknast og aðrir vilja láta fylgjast með heilsu bifreiðastjóra með svipuðum hætti og gert er við flugstjóra, en ég held að það sé erfitt í framkvæmd og betra að eitt gangi yfir alla,“ segir Halldór Blön- dal, samgönguráðherra. Skylduaðild felld úr gildi Helsta markmið frumvarpsins er að fella úr gildi lögbundna skyldu- aðild fólksbifreiðastjóra, vörubif- reiðastjóra og sendibifreiðastjóra að stéttarfélögum sínum, til sam- ræmis við niðurstöðu tveggja ára gamals dóms Mannréttindadóm- stóls Evrópu í máli leigubifreiða- stjóra sem kaus að standa utan Bifreiðarstjórafélagsins Frama. Einnig gerir frumvarpið ráð fyrir að í stað þess að takmörkun áTjölda vörubifreiða og sendibifreiða á ein- stökum félagssvæðum sé fram- kvæmd af félögunum sjálfum, verði hún framkvæmd af sérstökum um- sjónarnefndum. Áætlað er að stofn- un nefndanna feli í sér þriggja millj- óna króna kostnaðarauka fyrir rík- issjóð. Einnig er gert ráð fyrir að ráðherra sé heimilt að fella tak- mörkun úr gildi ef meira en fjórð- ungur atvinnuleyfishafa á viðkom- andi félagssvæði gangi úr stéttarfé- lagi því sem óskaði takmörkunar. Refsingar vegna stórfelldra skatt- svika verði hertar STARFSHÓPUR á vegum fjármálaráðuneytisins vinnur nú að því að gera tillögur um lagabreytingar í því skyni að lögfesta refsilágmörk fyrir skattsektir og skyldubundnar refsivistarákvarðanir þegar um alvarleg skattsvik er að ræða. Þá eru viðræður ráðuneytisins við dóms- og kirkjumálaráðuneytið hafnar um að samið verði frumvarp til laga um breytingar á almennum hegningarlögum þar sem stórfelld skattsvik verði gerð refsiverð sam- kvæmt þeim. Þetta kom fram í svari Friðriks Sophussonar fjármálaráð- herra við fyrirspurn frá Áma R. Árnasyni á Alþingi. Refsingar of léttbærar í svari fjármálaráðherra kom m.a. fram að nú sé unnið að sér- stakri athugun á viðurlagaákvæðum bókhaldslaga og að vænta sé til- lagna um lagabreytingar í framhaldi þeirrar vinnu, en vonast er til að ný frumvörp til alga um bókhald og um ársreikninga sem lögð voru fram til kynningar á síðasta þingi verði afgreidd á þingi í vetur. Fyrir Alþingi liggur nú tillaga um stofnun sérstaks skattadómstóls og þyngingu viðurlaga í skatta- og bókhaldsbrotum. I svari sínu sagði fjármálaráðherra að dráttur væri sannanlega oft óeðlilegur á rann- sókn og dómsniðurstöðu í auðgunar- brotum, en á því mætti ráða bót með öðrum hætti en stofnun sér- staks dómstóls sem stríði gegn þeirri meginstefnu sem uppi hefur verið um að fækka sérdómstólum. Sagði hann að álitlegra væri að efla rann- sóknarstarfsemi og styrkja stöðu ákæruvaldsins til þess að flýta máls- meðferð. Hvað þyngingu á refsingu varðar sagði fjármálaráðherra að taka mætti undir það að refsingar við auðgunarbrotum væru of létt- bærar og að þær þurfi að vera það þungar að þær fæli hlutaðeigandi frá því að svíkja undan skatti. Flugleiðir fjölga ferðum til Ostende FLUGLEIÐIR hafa ákveðið að fraktflug á vegum félagsins til Ost- ende í Belgíu verði tvisvar í viku frá og með næstu mánaðamótum, en hingað til hefur verið flogið þangað einu sinni í viku. Að sögn Einars Sigurðssonar, upplýsingafulltrúa Flugleiða, er þetta gert vegna þess að þörf fyrir fraktflug til Evrópu hefur farið vaxandi upp á síðkastið, en fyrst og fremst er um að ræða útflutning á físki. Einar sagði að um síðustu helgi hefðu Flugleiðir flutt 30 tonn með áætlunarflugi til Bandaríkjanna, 40 tonn hefðu verið flutt til Ostende og 30 tonn til annarra staða í Evr- ópu. Hann sagði botninn hafa dottið nokkuð úr fraktflutningum til Bandaríkjanna sl. 3 vikur og mark- aðinn vera sveiflast meira til Evr- ópu. Það sem af er árinu hefðu Flug- leiðir flutt um sjö þúsund tonn af fiski með vélum félagsins, og þar af hefðu þtjú þúsund tonn farið til Bandaríkjanna og íjögur þúsund tonn til Evrópulanda. Sagði Einar að áætlað væri að flutningarnir yrðu samtals um níu þúsund tonn á þessu ári, en það þýðir að flutningarnir hafa sexfaldast á 10 árum. Tfmi iiiii inn iiiii mu iiin ■mi nm IIIH lllll lllll lllll lllll ■1111 lllll lllll iii niii lllll lllll lllll lllll III BÍLHEIMAR Fossháls 1 HOReykjavík Sími 634000 Viö biðjumst afsökun Végna mikillar sölu dgui,. Qp^l vib ekki allar gerbir Opel ebalmerki til á lager eins og er. I á Þær hreinlega seldust upp. uppleiö Viö erum auövitaö stolt if ■0- 335% söluau Opel bíla á ís Viö áttum von á góöum undirtektum en þetta ei framar björtustu vonumi Viö þökkum kærlega fyrj ingu ndi • Corsa kemur innan fárra daga • Astra 1 • Vectra 1 H ’ 1 1 • Omega I • Calibra Veriö velkomin aö kynna ykkur hvaö viö eigum til afgreiöslu strax eöa skoöa hvaö er væntanlegt alveg næstu daga..

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.