Morgunblaðið - 26.10.1994, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1994 11
FRÉTTIR
*
Islenzkir
frímerkja-
safnarar
unnu í
báðum ald-
urshópum
SAMNORRÆN frímerkjasýning,
NORDIA 94, var haldin dagana
21.-23. október sl. í Árósum í
Danmörku. Sýningarrammar voru
alls 922 í nokkrum deildum en að
auki voru í bókmenntadeild 47 frí-
merkjarit af ýmsu tagi. Alls tóku
16 Islendingar þátt í þessari sýn-
ingu með margvíslegt efni. Dómar-
ar voru kynntir síðastliðinn laugar-
dag. Kom þá í ljós, að íslenzku
þátttakendurnir höfðu staðið sig
með mikilli prýði.
Hæstu verðlaun hlaut safn Indr-
iða Pálssonar, sem nefnist Island.
Póstþjónusta 1836-1902. Fékk
það 95 stig og gullverðlaun, en að
auki sérstök heiðursverðlaun,
Grand Prix Nordic. Voru þetta
hæstu verðlaun á sýningunni. Jafn-
framt eru þetta langhæstu verð-
laun, sem íslenzkum frímerkja-
safnara og íslenzku safni hefur
hlotnazt á frímerkjasýningu til
þessa.
Þá fékk hið íslenzka flugfrí-
merkjasafn Páls H. Ásgeirssonar,
sem lézt í ágústmánuði, stórt gyllt
silfur eða 85 stig. Hið þriðja í röð-
inni var safn Sigurðar R. Péturs-
sonar af Tveggja kónga frímerkj-
um, sem hlaut 84 stig og gyllt silf-
ur. Safn Jóns Aðalsteins Jónssonar
af tvílitum dönskum frímerkjum
1870-1905 fékk 75 stig og stórt
silfur. Flugpóstsögusafn Þorvalds
S. Jóhannessonar, sem nær yfir
árin 1945-1960, fékk 70 stig og
silfur.
Unglingarnir stóðu sig vel
íslenzkir unglingar stóðu sig
einnig vel á NORDIU 94. Gunnar
Garðarsson fékk 83 stig og gyllt
silfur fyrir safn sitt, sem hann
nefnir Ránfuglar í útrýmingar-
hættu. Jafnframt fékk safnið heið-
ursverðlaun frá póststjórn Álands-
eyja, enda var það hæst í unglinga-
flokki. Guðni Friðrik Árnason hlaut
79 stig og stórt silfur fyrir safn
sitt um Kristófer Kólumbus. Þá
fékk Björgvin Ingi Ólafsson 77
stig og stórt silfur fyrir safnið
Fuglar á eyjum í Norður-Atlants-
hafi.
Gísli Geir Harðarson fékk 74
stig og silfur fyrir safn sitt Tþnlist
og tónskáld. Safn Péturs H. Ólafs-
sonar, Styrjöld í Evrópu 1939-
1941, fékk 72 stig og silfur. Silfur-
verðlaun og 70 stig fékk safn
Kára Sigurðssonar, sem hann kall-
ar Merkir íslendingar. Jón Þór Sig-
urðsson hlaut silfrað brons fyrir
safn sitt um sögu flugsins. Að
endingu fékk Daði Halldórsson
brons fyrir safn, sem nefnist Flug.
í bókmenntadeild hlaut Rann-
veig Gísladóttir stórt silfur eða 78
stig fyrir bókina íslenzk frímerkja-
söfnun og póstsaga: Heimildaskrá.
Þór Þorsteins átti þijár bækur á
NORDIU 94, sem allar fengu silf-
ui-verðlaun. Bókin Frímerkingavél-
ar hlaut 72 stig. Bækurnar íslensk-
ir stimplar, brúar-, rúllu- og vélst-
implar og Pósthús og Bréfhirðing-
ar á íslandi fengu 70 stig hvor.
Verðlisti Sigurðar H. Þorsteinsson-
ar, íslensk frímerki, fékk silfur og
71 stig.
Af framansögðu sést, að íslenzk-
ir safnara hafa staðið sig með
miklum ágætum á NORDIU 94.
Þeir áttu bezta frímerkjasafn í
samkeppnisdeild, bæði meðal full-
orðinna og unglinga. Hefur slíkur
árangur aldrei náðst áður á frí-
merkjasýningu erlendis, að sögn
.Tnns Arfalafpina .Tnnssnnnr
Morgunblaðið/Árni Sæberg
GUÐMUNDUR Árni Stefánsson, félagsmálaráðherra, afhendir
Hildi Petersen, forstjóra Hans Petersen hf., viðurkenningu fyr-
ir lofsvert framtak á sviði jafnréttismála. Til hægri er Lára
V. Júlíusdóttir, formaður Jafnréttisráðs.
Jafnréttisráð veitir Hans
Petersen hf. viðurkenningu
HANS Petersen hf. hefur hlotið
viðurkenningu Jafnréttisráðs
fyrir framtak á sviði jafnréttis-
mála.
Starfshópur Jafnréttisráðs
var á einu máli um að jafnréttis-
viðurkenning ársins skyldi veitt
Hans Petersen hf.
Lára V. Júlíusdóttir, formað-
ur starfshópsins sagði, þegar
viðurkenningin var afhent, að
fyrirtækið hefði um margt verið
áberandi í íslensku athafnalífi
og nefndi að forstjóri þess væri
kona og hefði sem slík komið
inn á vettvang jafnréttisbarátt-
unnar, auk þess sem sex aðilar
af tíu í efstu stjórnunarstöðum
væru konur. í máli hennar kom
fram að samkvæmt tölulegum
upplýsingum frá fyrirtækinu
gegni konur margvíslegum
trúnaðar- og ábyrgðarstörfum
innan fyrirtækisins og komi
fram fyrir þess hönd. Lára vék
að launamálum fyrirtækisins og
benti á, að þar beri karlar og
konur jafnt úr býtum.
Hildur Petersen sagði að
jafnrétti innan fyrirtækisins
væri stjórnendum þess í blóð
borið og vonaðist til að Hans
Petersen hf. gæti orðið öðrum
til eftirbreytni á þessu svið*.
STACCO er nú meö betri
svampi og er enn
þægilegri
STACCO stóllinn var hannaöur áriö
1981 af Pétri B. Lútherssyni og hefur
veriö framleiddur óslitiö i 12 ár. Á
þeim tíma hafa selst hátt á annað
hundraö þúsund stólar. STACCO er í
fundarsölum, listasöfnum,
biöstofum, matsölum, sjúkrahúsum,
iþróttahúsum, safnaöarheimilum og
skólum, eöa á flestum þeim stööum
þar sem fólk kemur saman.
Petta köllum viö
hönnun
á heimsmælikvarða
Smiöjuvegi 2 Kópavogi • Sími 672110 • Fax 671688