Morgunblaðið - 26.10.1994, Page 22

Morgunblaðið - 26.10.1994, Page 22
es auglýsingastofa/Markaössókn 22 MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Skrifstofutækni Markmið námsins er að þjálfa nemendur til starfa á skrif- stofum og er áhersla lögð á tölvugreinar og bókfærslu. Námið er mjög hagnýtt og byggist að verulegu leyti á verklegum æfingum. Námið eykur samkeppnishæfni nemenda og býr þá undir krefjandi störf á vinnumarkaði. Helstu námsgreinar eru: ■ Handfært bókhald ■ Tölvugrunnur 18 Ritvinnsla ■ Töflureiknir ■ Verslunarreikningur ■ Gagnagrunnur ■ Mannleg samskipti ■ Tölvubókhald ■ Lokaverkefni STARFSMENNTUN fjárfestíng til framtíðar „Ég hafði samband við Töivuskóia Islands og ætlaði að fá undirstöðu íbókhaldi og var mér bent á skrlf- stofutækninámið. Eftir að hafa setið þetta nám þá tel ég mig mun hæfari starfskraft en áður og nú get ég nýtt mér þá kosti, sem töivuvinnsian hefur upp á að bjóöa. Ég mæli eindregið með þessu námi. “ Ólafur Benediktsson, starfsmaður Glófaxa. K i Öll námsgögn innifalin Tölvuskóli íslands Höfðabakka 9 • Sími 67 14 66 __________LISTIR________ Hreinn og klár Ford ATRIÐI úr myndinni Yfirvofandi ógn með Harrison Ford. KVIKMYNPIR Bí 5 h ö M i n/ II áskólabíó Bein ógnun „Clear and Present Danger“ ★ ★ ★ Leikstjóri: Philip Noyce. Handrit: Donald Stewart, Steven Zaillian og John Milius. Aðalhlutverk: Harrison Ford, Willem Dafoe, Anne Archer, James Earl Jones, Joaquim De AI- meida, Harris Yuiin, Donald Moffat og Henry Czemy. Paramount. 1994. SPENNUMYNDIR sumarsins, þótt góðar væru, kröfðust ekki nokkurs af áhorfendum enda er allri hugsun pakkað niður um sum- artímann í Hollywood. Sannar lyg- ar var fáránlega spennandi undir lokin en svo varðaði mann ekkert um hana á eftir og Leifturhraði var hin fullkomna sumarmynd; það komst ekki heil hugsun að undir þeim hasar öllum. Nýjasta spennumyndin eftir metsölusögu Toms Clancys með Harrison Ford í aðalhlutverki, „Clear and Present Danger“, eða Bein ógnun, er af nokkuð öðru sauðahúsi að því leyti að efnisinni- haldið byggir ekki aðeins á spreng- ingum og skothríð. Hún minnir á leynilegar aðgerðir bandaríkja- stjórnar í S-Ameríku undanfarinn áratug og lýsir stjórnkerfi á villi- götum án þess þó að nokkur efist um hvem hug myndin, líkt og for- verar hennar í Clancybálknum, ber til Bandaríkjanna sjálfra sem heimkynni hinna fijálsu og hug- rökku. Á fornum slóðum Aðalpersóna myndarinnar, Jack Ryan, sem Ford leikur í annað sinn með alvöruþrungnum svip, er kominn á hættuslóðir sem fyrr. Við kynnumst enn á ný hlýlegri kjarnafjölskyldu hans, en Anne Archer leikur hina umhyggjusömu eiginkonu. Vinur hans hjá CIA er þungt haldinn af krabbameini eins og sjá má á fínum leik James Earl Jones og Ryan er farinn að mæta á fundi hjá sjálfum forsetan- um þar sem umræðuefnið er vax- andi ógn sem stafar af kókaín- hringjum Kólumbíu. Pólitíkin í Washington er miskunnarlaus frumskógur og áður en Ryan veit af er hann orðinn blóraböggull í leyniaðgerð stjómarinnar gegn eiturlyfjabarónunum, sem kostað gæti mannslíf og veldur örugglega stórkostlegu hneyksli ef upp kemst. Skúrkarnir og sá heiðarlegi Myndin flakkar á milli Kólumb- íu og Hvíta hússins í fararstjóm æ brúnaþyngri Harrisons Fords og það má ekki á millum sjá hvor- ir eru samviskulausari forseta- mennimir eða kókaínmillamir þegar allt kemur til ails. Ford gefur sögunni aukið vægi eins og áður með sinni heiðarlegu og flekklausu samvisku og aukahlut- verkin em vel mönnuð en Willem Dafoe fer með hlutverk málaliða og Harris Yulin er sleipur sem fyrr í hlutverki öryggisráðgjafa forsetans. Röggsöm leikstjóm Philip Noyce heldur manni við efn- ið og nýtir í ystu æsar mikilúðleik- ann sem dýrar Hollywoodmyndir einar hafa. Frásögnin er spenn- andi og býður annars vegar uppá góðan hasar en þreifar hins vegar á spumingunni um hversu langt réttlætanlegt er að ganga í stríð- inu við kókaínið. Góð tilbreyting Best er þó að Bein ógnun fer aldrei niður á plan Stallone/ Schwarzenegger manndráps- mynda þar sem söguhetjan skilur í eftir tvö hundruð manns í valnum | áður en lokabardaginn hefst við óþokkann. Þetta er mynd þar sem Ford bankar sallarólegur uppá hjá honum með CLA-nafnspjaldið sitt og þeir eiga tal saman. Þetta er spennumynd sem treystir á rök- hugsun og persónusköpun og það er ekki svo lítil tilbreyting í því. Arnaldur Indriðason ! Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir WILLEM Labey hélt sýningu Egilsstöðum. Islenskt landslag Hollendings Egilsstaðir. Morgunblaðið. Hollenski listamaðurinn Will- em Labey hélt sýningu á Egils- stöðum um síðustu helgi. Sýn- ingin bar yfirskriftina Islenskt landslag og sýndi hann lands- lagsmyndir unnar með vatn- slitum. Willem hefur búið á íslandi um fimm ára skeið og hefur hann hrifist rnjög af ís- lensku landslagi. í vor og sum- ar dvaldi hann í Neskaupstað, þar sem hann er með vinnu- stofu. Einnig dvaldi hann á Borgarfírði eystra um skeið og málaði þar. Willem og kona hans Marleen fluttu til EgUs- staða í haust og hyggjast þau starfa á Austurlandi um tíma. Ragnar Björnsson á tónleikum í Mið-Evrópu RAGNAR Björns- son hélt fyrr á ár- inu í tónleikaferð til Sviss og Þýska- lands, þar sem hann lék m.a. á söguleg hljóðfæri, orgel, sem hann hafði aldrei leikið á áður. í Leonard- skirche í Basel lék Ragnar til dæmis á Silberman-orgel frá átjándu öld, sem hann segir að hafi verið ævin- týralegt að kynnast. Ragnar lék einnig á þýsk orgel og á tónleikunum lék hann aðallega íslensk verk eftir Pál ísólfsson, Jón Nordal, Þorkel Sigurbjömsson og Láms Grímsson, auk eigin verka. Tónleikamir vöktu athygli áheyrenda og var víða fjallað um þá í dagblöðum. Er farið mjög lof- samlegum orðum um orgelleik Ragnars og hann sagður „snilldar- legur orgelleikari". Tækni hans er sögð í hæsta gæðaflokki og innlifun mikil. Ekki síst hreifst einn gagnrýnd- andinn af túlkun hans á orgelverk- um eftir Bach, sem leikin vom sem aukaverk í lok tónleika á alþjóð- legri orgeltónlistarhátíð í Eppingen í Þýskalandi. I kjölfar tónleikaferðarinnar hef- ur Ragnari Björnssyni verið boðið að koma aftur árin 1995 og 1996 Ragnar Bjömsson. n I I I I \ \ til að leika á tónleikum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.