Morgunblaðið - 26.10.1994, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Jr
Dýraglens
HÉIe KEMUR KSKlSllHG
A EFNI KUÖLDSIMS...
Tommi og Jenni
l/issi Fei?
YfiR HKAE>-
BCAunwA
EG HELP
/VIEg> TIZUKt-
UNUM
Kæra pennavinkona, ég hef Spyrðu hana Er allt í besta lagi? Eða lögfræðing.
ekki heyrt frá þér um tíma. hvort hana vanti
Líður þér vel? skurðlækni.
BREF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reylqavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Tví- eða þrí-
sköttun lífeyris
greiðslna
Opinber ræningjastarfsemi
Frá Sveini Ólafssyni:
SÚ SPURNING, sem kemur fram í
fyrirsögn þessarar skrifa, hlýtur að
leita á fólk, þegar hugað er að fram-
ferði stjórnvalda í sambandi við
margsköttun greiðslna úr eigin líf-
eyrissjóðum til þeirra, sem komnir
eru á efri ár og hafa skilað þjóðfélag-
inu sínum skerf til uppbyggingar
þess velferðarsamfélags, sem íslenzk
þjóð býr við í dag.
Manni verður á að spyrja, hvers-
konar hugsunarháttur það sé, sem
ráði því, að stjórnvöld þráist við þeg-
ar háttvirt Alþingi hefur margsinnis
samþykkt viljayfírlýsingar þ.e.
„þingsályktunartillögur" til ríkis-
stjórnar landsins um ieiðréttingu á
þeim órétti, sem gengið hefur fyrir
sig á annan áratug - um að gera
ráðstafanur til að leiðrétta það rang-
læti, sem þetta ástand margsköttun-
ar felur í sér.
Málið í athugun
Áður en sú mikilvæga endurbót á
skattakerfinu, sem felst í stað-
greiðsla skatta var tekin upp, var
skattheimta með eðlilegu móti hjá
þeim sem greiddu í lífeyrissjóði og
þáðu síðan til baka aftur lífeyri, sem
þeir þannig höfðu lagt fyrir og þegar
greitt skatt af.
Þegar svo breytingin verður, verð-
ur sá óafsakanlegi misbrestur að
þessu er breytt. - Maður hefði hald-
ið að allir sanngjamir og réttsýnir
stjórnmálmenn myndu hafa keppst
við að hafa hraðann á til að leiðrétta
þessi mistök. - En hvað gerist? Öll
þau ár sem síðan eru liðin, hefur
verið hamrað á að fá þessu kippt í
lag. - Samþykktar ályktunartillögur
á Aþingi; rætt við stjórnvöld, en ekk-
ert gerist. - Málið er alltaf í athug-
un. Það verður að segjast afdráttar-
laust, að svona háttarlag opinberra
aðila er ekki til þess fallið að færa
stjórnvöldum mikla virðingu. Og þeg-
ar kröfur eru uppi um almenna þegn-
lega löghlýðni í skattamálum og
ásakanir fylgja um undanbrögð, þá
er það nánast spurnig, hvort einmitt
slíku er ekki boðið heim, þegar
stjómvöld gera sig sek um svona
háttarlag, sem er siðferðislega
óframbærilegt.
Skýlaust brot
Varla er líka fjarri lagi, þar sem
augljóslega er um að ræða gróft
brot á mannréttindum, hvort ekki sé
við hæfi að skoðaðir séu möguleikar
á að skjóta svona málum til Mann-
réttindadómstólsins. Hér er skýlaust
brotið á fólki og það í stórum stíl. -
Spurningin er líka, hvort svonalagað
sé sæmandi fyrir sjálf stjórnvöld
landsins? - Ég segi nei! - Um leið
undirstrika ég, að þetta eru hrein
rangindi og brot á öllu velsæmi. Og
hvar er mannkærleikurinn í svona
hátterni? Mig brestur skilning til að
átta mig á, hvað hér getur ráðið ferð.
- Auðvitað þarf að innheimta skatta,
en það er lágmakskrafa að þar sé
viðhaft réttlæti. - Ég spyr því, hvar
er réttlætiskennd ráðamanna í þessu
máli?
Mér og fleirum sýnist hún hafa
orðið utangátta, eða hefur henni
kannski verið varpað fyrir róða í öll-
um nýmóðins hugsunarhættinum,
þar sem ungir bóklærðir og oftast
reynslulausir menn hafa fengið að
ryðja hinum eldri og reyndari til hlið-
ar og keyra síðan allt áfram og oft
í strand út frá hörðum teóríu- og
þröngsýnissjónarmiðum, þar sem
mannúðinni og jafnvel hagkvæmn-
inni er af glámskyggni kastað fyrir
borð? - Ef það er slíkur hugsunar-
háttur, sem ræður þarna líka, þá er
illa komið fyrir íslenzkri þjóð og ekki
vanþörf að biðja fyrir henni.
Misbeiting valds
Eldri borgarar geta varla verð-
skuldað að fá svona meðhöndlun, þar
sem um hreina misbeitingu valds
gagnvart þeim er hér að ræða af
hálfu stjórnvalda, - hver svo sem
hefur í upphafi orsakað mistökin eða
viðhaldið þeim á þeim bæ síðan. Eldri
borgarar eru hinsvegar minnimáttar
og hafa engin völd. Því er auðvelt
að skella skollaeyrum við því, sem
þeir eru að kvaka. En hvort það sé
drengilegt í þessu efni má gjaman
spyrja, og svarið getur vart verið
augljósara! - Eldri borgarar hafa
yfírleitt ekki verið harðsnúinn þrysti-
hópur með allskyns kröfur, þótt segja
mætti að þeir ættu þar ýmsa mögu-
leika og ýmsan rétt til að byggja
slíkt á.
Það verður hinsvegar varla talið
stórmannlegt af þeim, sem með völd-
in fara, að hundsa rétt eldri kynslóð-
arinnar svo blygðunarlaust sem hér
er gert. Það verður að segjast tæpi-
.tungulaust að ætlast verður til þess
að stjómvöld sjái sig um hönd og
kippi svona hlutum í liðinn án frek-
ari tafa og vífillengna. - Að svæfa
málið gagnstætt vilja Alþingis um
árabil með því órréttlæti sem því
fylgir á grundvelli þess að það sé „í
athugun" er ekki hlutur sem hægt
er að sætta sig við. Slíkum loddara-
leik er hægt að halda áfram til eilífð-
arnóns. Og illskiljanlegt er að Al-
þingi skuli líða svona háttarlag. -
Svo nefnd séu dæmi er vert að skoða
fréttagrein í Morgunblaðinu 4. febr-
úar sl. og einnig grein 28. september
sl. eftir Sólrúnu Pétursdóttur alþing-
ismann um atriði, er varða þróun
þessara mála, þá líka ýtarlega grein
Guðmundar H. Garðarssonar, þá al-
þingismanns, - sem var ódeigur bar-
áttumaður í þessu máli, - í biaðinu
8. marz 1991.
Stjórnvöld taki málið
tafarlaust til afgreiðslu
Því er hér með skoðað á viðkom-
andi stjórnvöld, að taka þetta mál
til afgreiðslu án frekari tafar og
undanbragða. Um leið er skorað á
samtök aldraðra, að, ef þessu verður
ekki sinnt með viðhlítandi hætti, þá
gangist þau fyrir því, að hin lögfræði-
lega og mannréttindalega hlið verði
tekin til athugunar og viðeigandi
ráðstafanir gerðar til að réttlæti fá-
ist í þessum málum, jafnvel þótt
grípa verði til þeirrar nauðvamar,
að leita á erlendan vettvang til að
koma vitinu fyrir stjórnvöld, sem
væri til skammar fyrir íslenzkt rétt-
arfar, ef gera þyrfti.
SVEINN ÓLAFSSON,
Furugrund 70, Kópavogi.