Morgunblaðið - 26.10.1994, Side 46
46 MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ
FORREST GUMP
Þessi magnaði þriller segir frá Martin sem er svo óheppinn
að gerast næturvörður í líkhúsi á kolröngum tíma þegar
fjöldamorðingi og náriðill gengur laus.
Stranglega bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 9 og 11.15.
Sýnd Kl. 5, 9 og 11.
Fjögur brúökaup og jarðarför
Sýnd kl. 5.
Rafmagnaðasti þriller ársins. Harrison Ford er
mættur aftur í hlutverki Jack Ryan í sögu eftir
Tom Clancy. Gulltryggð spenna frá Philip Noyce
sem einnig gerði Patriot Games og Dead Calm.
Aðalhlutverk: Harrison Ford, Willem Dafoe,
Anne Archer og James Earl Jones.
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Veröldin verSur
ekki sú sama...
... eftir að þú
hefur séS hana
meS augum
Forrest Gump.
,,... drepfyndin og hádramatísk
... vel leikin og innihaldsrík."
Ó.H.TRás 2
★ ★★ 'h AIMBL
★★★★★ Morgunpósturinn
Tom
Hanks
Forrest
Gump
HASKOLABIO
SIMI 22140
Háskólabíó
STÆRSTA BÍÓIÐ.
~ ALLIR SALIR ERU
FYRSTA FLOKKS.
140 mín.
Svipmikill leikari horf-
inn af sjónarsviðinu
LEIKARINN ástsæli Raul Julia
lést síðastliðinn mánudag eftir að
hafa legið meðvitundarlaus um
vikutíma, en hann fékk hjartaáfall
■'í byrjun síðustu viku. Hann var
54 ára gamall þegar hann lést.
Hann skilur eftir sig eiginkonu og
tvö börn.
Raul Julia ólst upp í Puerto
Rico, flutti snemma tii New York
og vegna rómantísks útlits og
klassískrar menntunar náði hann
langt bæði á leiksviði og í kvik-
myndum.
Shakespeare-leikari
Raul Julia var nafnkunnur
Shakespeare-leikari og lék í fjór-
um verkum á Shakespeare-hátíð í
New York, sem voru síðar meir
flutt á Broadway. Það voru „Two
‘^Gentlemen of Verona“, „The
Three-penny Opera“, „Where’s
Charley" og „Nine“. Fyrir hlutverk
sitt í tveimur fyrmefndu uppfærsl-
unum fékk hann Tony-verðlaunin,
en þau eru Oskarsverðlaun leik-
húsanna.
RAUL Julia var óborganleg-
ur sem Gomez í „Addams
Family Values".
í kvikmyndum naut Raul Julia
mestra vinsælda sem Gomez Add-
ams í „The Addams Family“ og
framhaldi hennar „Addams Fam-
ily Values“. Aðrar myndir sem
gerðu hann ódauðlegan í kvik-
myndasögunni voru „Kiss of the
Spiderwoman", „Tequila Sunrise"
og „Presumed Innocent". í mynd-
inni „Kiss of the Spiderwoman“
lék hann Valentino, pólitískan
fanga, sem deildi klefa með sam-
kynhneigðum hárgreiðslumanni
og fékk William Hurt Óskarsverð-
laun fyrir túlkun sína á hár-
greiðslumanninum.
Nýjungagjarn
Raul Julia vildi alltaf spreyta sig
á einhveiju nýju og sú viðleitni
hafði næstum valdið því að hann
lagði leiklist á hilluna.
Hann var þekktur fyrir túlkun
sína á vinstrisinnuðum suður-
amerískum stjórnmálamönnum og
árið 1989 lék hann í myndinni
„Romero", sem var bönnuð af yfir-
völdum í E1 Salvador. Julia lék
Oscar Romero erkibiskup sem var
einn af píslarvottum borgarastyij-
aldarinnar í E1 Salvador. Erkibis-
kupinn, sem var harður gagnrýn-
andi hægri stjórnarinnar í landinu,
var myrtur í dómkirkju San
Salvador árið 1980.
Julia hrósað
Þegar Raul Julia lést hafði hann
nýlokið við að leika í mynd um
brasilíska píslarvottinn Chico
Mendez, sem nefnist „The Burning
Season“. Myndin fjallar um von-
lausa baráttu hugsjónamannsins
Mendezar við eyðingu regnskóg-
anna. Myndin hefur fengið mis-
jafna dóma þótt Julia hafi verið
lofaður fyrir sitt framlag.
0
Hagatorg.
Raubir tönleikar í Háskólabíói
fimmtudaginn 27. október kl. 20.00
Hljómrveitarstjóri: Richard Barnes
Einleikari: Guðný Guðmundsdóttir
Efnisskrá
IV.A.Mozart: Sinfónía nr. 35, Haffner
Herbert H. Agústsson: Formgerð II
Gustav Mahler: Sinfónía nr. 1
Miöasala cr alla virka daga á skrifstofutíma og við innganginn við upphaf tónleika. Greiðslukortaþjónusta.
ANJELICA Huston og Raul Julia í
myndinni „Addams Family Values".
SVIPMIKILL leikari er horfinn af sjonarsviðmu með Raul Julia.