Morgunblaðið - 18.11.1994, Síða 4
4 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ATLANTAMÁLIÐ
Verkalýðsfélög á Suðumesjum
hafa ekki boðað samúðaraðgerðir
Aðgerðir lík-
legar í Noregi
HVORKI Verkalýðs- og sjómanna-
félag Keflavíkur né Verslunar-
mannafélag Suðurnesja hefur
ákveðið að boða til samúðaraðgerða
í dag þegar boðað verkfall FÍA á
öllum flugleiðum Atlanta hefst.
Af máli starfsmanna Atlanta í
gær mátti ráða að þeir hefðu
áhyggjur af því að til samúðar-
aðgerða kynni að koma í Noregi.
Auk þess skapaði það mikla óvissu
vegna samninga um verkefni fyrir
félagið á næstunni.
Vinnustöðvun flugmannanna
sex sem starfa hjá Atlanta en eru
félagsmenn í FÍA hefur eingöngu
snúið að flugi til og frá íslandi
undanfarinn mánuð.
24 flugmenn Atlanta eru í Fijálsa
flugmannafélaginu (FFF) en flug-
mennimir sex í FÍA eru allir stadd-
ir hér á landi og er verkfall þeirra
sem hefst í dag hvorki talið hafá
bein áhrif á flug félagsins til og frá
íslandi né erlendis.
Atlanta er nú með tvær flugvélar
í rekstri; aðra í leiguflugi fyrir Sam-
vinnuferðir-Landsýn milli íslands
og Dyflinnar og hina í vöruflutni'ng-
um milli Þýskalands og Norðurland-
anna fyrir þýska flugfélagið Luft-
hansa. Sú vél flýgur undir merkjum
Lufthansa en áhöfnin er íslensk.
Morgunblaðið/Þorkell
HÖFUÐSTÖÐVAR flugfélagsins Atlanta í Mosfellsbæ en öllum starfsmönnum þess hefur nú verið
sagt upp störfum vegna deilna fyrirtækisins við Félag íslenskra atvinnuflugmanna.
Undarlegt að engnm dett-
ur í hug að tala við okkur
Morgunblaðið/Þorkell
STARFSMAÐUR Atlanta hugar að áætlunartöflu flugfélagsins.
Starfsmenn styðja
eigenduma
STARFSMENN Atlanta sem sagt
var upp störfum í fýrradag, um 80
alls, sendu frá sér yfirlýsingu í gær
þar sem lýst er fullum stuðningi við
eigendur fyrirtækisins. Um 25
manns starfa í höfuðstöðvum félags-
ins í Mosfellsbæ og komu þeir saman
á fundi í gærmorgun. Einnig var
haft samband við starfsmenn erlend-
is áður en yfirlýsingin var afgreidd.
Yfirlýsing starfsmanna, sem sam-
þykkt var samhljóða, að sögn Þor-
steins Ó. Þorsteinssonar, talsmanns
þeirra, er svohljóðandi:
„Við undirritaðir starfsmenn flug-
félagsins Atlanta hf. lýsum yflr von-
brigðum með hvernig deila félagsins
og Félags íslenskra atvinnuflug-
manna hefur þróast. Nú er svo kom-
ið að forysta íslenskra launþegasam-
taka hefur lýst yfir stuðningi við
boðað allsheijarverkfall FÍA og íhug-
ar samúðarverkfoll. Þetta mun leiða
til stöðvunar á rekstri félagsins á
íslandi og jafnframt hafa veruleg
áhrif á framtíðarmöguleika félagsins
til starfa á erlendri grund. FÍA hefur
einnig leitað til samskonar hags-
munasamtaka erlendis með það fýrir
augum að stöðva flug Atlanta fýrir
þýska flugfélagið Lufthansa.
Okkur starfsmönnum Atlanta
fínnst það hið undarlegasta mál að
leitað skuli til starfsmanna annarra
fyrirtækja, jafnt hérlendis sem er-
lendis og farið fram á samúðarverk-
föll á meðan engum dettur í hug að
tala við okkur. Ef einhver ætti að
hafa skilning á eða sameiginlegra
hagsmuna að gæta þá væru það
einna helst starfsmenn sama fyrir-
tækis. En einhverra hluta vegna hef-
ur hagur okkar og hugur í þessu
máli gleymst í þessum umræðum og
aðgerðum.
Hingað til höfum við talið það
vera hlutverk verkalýðsforystunnar
að vemda hag launþeganna og stuðla
að atvinnuuppbyggingu í landinu en
yflrlýsingar Benedikts Davíðssonar
forseta ASÍ að undanfömu benda til
annars. ASÍ hefur kosið að styðja
lítinn minnihluta hálaunahóps í FLA
frekar en að taka tillit til hagsmuna
og skoðana miklu stærri hóps sem
starfar hjá flugfélaginu.
Við skomm á forystu ASÍ og ann-
arra launþegasamtaka að endur-
skoða afstöðu sína í þessu máli og
fóma okkur ekki þrátt fyrir óánægju
með stefnumarkandi dóm Félags-
dóms.
Að lokum viljum við lýsa yfir full-
um stuðningi við eigendur fyrirtækis-
ins í þessu rnáli."
Þorsteinn segir það mat starfs-
manna að ef eigi að stöðva allan flug-
rekstur hjá félaginu verði engar tekj-
ur hjá því til að greiða laun og þess
vegna beinist reiði starfsmanna að
þeim aðilum hjá FÍA sem virðast
geta haft líf félagsins í hendi sér.
Deilt um
röðun á
starfsald-
urslista
BENEDIKT Davíðsson, forseti AL
þýðusambands íslands, segir að ASl
hafi hlustað á sjónarmið allra aðila
deilunnar að undanförnu og ljóst sé
að lítið sem ekkert bæri efnislega á
milli deiluaðila í kjarasamningavið-
ræðunum.
Sagði hann að ágreiningurinn
stæði ekki um forgangsákvæði
kjarasamninga heldur væm aðilar
sammála um að það eina sem bæri
í milli væri röðun á starfsaldurslista
starfsmanna.
Fyrir neðan allar hellur
Benedikt segir uppsagnirnar hjá
Atlanta fyrir neðan allar hellur.
„Þær baráttuaðferðir af hálfu at-
vinnurekenda í kjaradeilu að ganga
til allra starfsmanna í fýrirtæki ef
ekki finnst lausn í deilu, þar sem
vel flestir eru engir þátttakendur í
deilunni, og segja þeim upp störfum,
eru vinnubrögð sem ekki hafa verið
viðhöfð á vinnumarkaðinum undan-
farna áratugi," segir hann.
A
A
Formaður FIA telur uppsagnír á flugmönnum FIA vera ólögmætar
Hóflega bjart-
sýnn á lausn
VÐ erum ekki enn eins bjartsýnir og
samgönguráðherra," segir Tryggvi
Baldursson, formaður Félags ís-
lenskra atvinnuflugmanna, í samtali við
Morgunblaðið í gærkvöldi eftir fund forráða-
manna féiagsins með Halldóri Blöndal. „Við
höfum svo oft staðið í þeirri trú að samning-
ur væri í höfn, en á seinustu stundu hefur
síðan orðið upphlaup eða eitthvað annað og
við færst tvö skref aftur á bak fyrir hvert
skref áfram, að við teljum ástæðu til var-
færni."
Boðun allsheijarverkfalls á öllum flugleið-
um Atlanta á að taka gildi á hádegi í dag.
Tryggvi segir að verkfallsaðgerðir muni aðal-
lega fara fram í gegnum stuðning annarra
aðila við sjónarmið FÍA, þar sem þeir flug-
menn FÍA sem starfa hjá Atlanta eru ekki
settir í flug af hálfu fýrirtækisins og myndu
ekki fljúga hvort sem er. Ljóst sé að undirbún-
ingur taki nokkra daga og gefist mönnum á
meðan tóm til að leysa deilumar, sé í raun
vilji fyrir hendi. „Við höfum fengið stuðnings-
yfirlýsingar frá öðrum félögum en höfum
viljandi dregið það á langinn að fara fram á
formlegan stuðning, en gerum það í dag^Það
mun taka nokkra daga þar sem kalla þarf
saman trúnaðarráð stéttarfélaga og eins
þurfa upplýsingarnar að berast til alþjóðafé-
laga sem taka síðan afstöðu til málsins, en
við höfum stuðningsyfirlýsingar og væntum
fulltingis þeirra," segir Tryggvi.
„Vonandi ekki áróðursbragð"
Tryggvi kveðst hafa ástæður til að telja,
að hafí Atlanta sent flugrnönnum sem til-
heyra FÍA uppsagnarbréí eins og öllum öðrum
starfsmönnum fyrirtækisins, séu þær úpp-
sagnir ólöglegar. „Það er óheimilt samkvæmt
lögum um stéttarfélög og vinnudeilur að segja
upp starfsfólki í verkfallsaðgerðum. Hvað
aðra varðar þykir mér miður að stjómendur
Atlanta skuli láta það atriði að þeir séu ekki
tilbúnir að láta sex flugmenn í FÍA sitja við
sama borð og 23 flugmenn í FFF, sem málið
snýst um, bitna á áttatíu starfsmönnum öðr-
um. Mér fínnst þetta með eindæmum og trúi
því í raun ekki og skora á stjómendur Atl-
anta að gefa upp rétta ástæðu finnist ef'hún
er fyrir hendi. Þeir verða að tjá sig um það,
en ég get nefnt þá þijá möguleika sem mér
sýnast fýrir hendi. I fýrsta lagi að Atlanta
ætli sér að flytja úr landi, og þá hlýtur það
að vera vegna þess að stjómendur sjái ein-
hvem hag í því og það eina sem ég get ímynd-
að mér er að sleppa við launatengd gjöld eins
og önnur íslensk fyrirtæki borga. í öðru lagi
að leggja eigi fyrirtækið niður og ef það er
ætlunin er ekkert við því að gera; þá hefur
eitthvað bmgðist í rekstri fyrirtækisins og
landsmenn em þá mögulega heppnir að það
skuli ekki ganga jafn lengi og Amarflug á
sínum tíma sem kostaði skattborgara hundruð
milljóna. I þriðja lagi vona ég svo sannarlega
að uppsagnimar séu ekki áróðursbragð til
þess að afla sér samúðar, því það væri á
mjög lágu plani gagnvart þeim starfsmönnum
Atlanta sem fengu uppsagnarbréf í dag,“ seg-
ir Tryggvi.
Flugleiðir ekki að baki
Aðspurður um ásakanir þess efnis að Flug-
leiðir kunni að standa að baki aðgerðum
FIA, þar sem meirihluti félagsmanna vinnur
hjá því fyrirtæki, segir Tryggvi að FÍA sé j
samningsaðili við flesta flugrekendur á ís-
landi. Þar á meðal íslandsflug, Flugfélag J
Norðurlands, Landhelgisgæsluna, Flugfélag
Austurlands, Flugtak og fleiri auk Flugleiða,
og hafi enginn þessara aðila kvartað yfír því
að stærsti hluti flugmanna innan FÍA starfí
hjá Flugleiðum. „í viðbót við þetta, þá er
sérstaklega búið að bjóða eiganda Atlanta
bókun í þann kjarasamning sem við myndum
gera við hann, þar sem segði að ekki yrðu
boðaðar verkfallsaðgerðir hjá Atlanta nema
meirihluti flugmanna hjá hans eigin fyrirtæki
samþykkti þær. Þetta er trygging fyrir því j
að ekki sé hægt að boða þar til aðgerða í .
ljósi meirihluta flugmanna hjá Flugleiðum, I
þannig að þessar aðdróttanir eru mark-
leysa,“ segir Tryggvi. I