Morgunblaðið - 18.11.1994, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 18.11.1994, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ATLANTAMÁLIÐ Verkalýðsfélög á Suðumesjum hafa ekki boðað samúðaraðgerðir Aðgerðir lík- legar í Noregi HVORKI Verkalýðs- og sjómanna- félag Keflavíkur né Verslunar- mannafélag Suðurnesja hefur ákveðið að boða til samúðaraðgerða í dag þegar boðað verkfall FÍA á öllum flugleiðum Atlanta hefst. Af máli starfsmanna Atlanta í gær mátti ráða að þeir hefðu áhyggjur af því að til samúðar- aðgerða kynni að koma í Noregi. Auk þess skapaði það mikla óvissu vegna samninga um verkefni fyrir félagið á næstunni. Vinnustöðvun flugmannanna sex sem starfa hjá Atlanta en eru félagsmenn í FÍA hefur eingöngu snúið að flugi til og frá íslandi undanfarinn mánuð. 24 flugmenn Atlanta eru í Fijálsa flugmannafélaginu (FFF) en flug- mennimir sex í FÍA eru allir stadd- ir hér á landi og er verkfall þeirra sem hefst í dag hvorki talið hafá bein áhrif á flug félagsins til og frá íslandi né erlendis. Atlanta er nú með tvær flugvélar í rekstri; aðra í leiguflugi fyrir Sam- vinnuferðir-Landsýn milli íslands og Dyflinnar og hina í vöruflutni'ng- um milli Þýskalands og Norðurland- anna fyrir þýska flugfélagið Luft- hansa. Sú vél flýgur undir merkjum Lufthansa en áhöfnin er íslensk. Morgunblaðið/Þorkell HÖFUÐSTÖÐVAR flugfélagsins Atlanta í Mosfellsbæ en öllum starfsmönnum þess hefur nú verið sagt upp störfum vegna deilna fyrirtækisins við Félag íslenskra atvinnuflugmanna. Undarlegt að engnm dett- ur í hug að tala við okkur Morgunblaðið/Þorkell STARFSMAÐUR Atlanta hugar að áætlunartöflu flugfélagsins. Starfsmenn styðja eigenduma STARFSMENN Atlanta sem sagt var upp störfum í fýrradag, um 80 alls, sendu frá sér yfirlýsingu í gær þar sem lýst er fullum stuðningi við eigendur fyrirtækisins. Um 25 manns starfa í höfuðstöðvum félags- ins í Mosfellsbæ og komu þeir saman á fundi í gærmorgun. Einnig var haft samband við starfsmenn erlend- is áður en yfirlýsingin var afgreidd. Yfirlýsing starfsmanna, sem sam- þykkt var samhljóða, að sögn Þor- steins Ó. Þorsteinssonar, talsmanns þeirra, er svohljóðandi: „Við undirritaðir starfsmenn flug- félagsins Atlanta hf. lýsum yflr von- brigðum með hvernig deila félagsins og Félags íslenskra atvinnuflug- manna hefur þróast. Nú er svo kom- ið að forysta íslenskra launþegasam- taka hefur lýst yfir stuðningi við boðað allsheijarverkfall FÍA og íhug- ar samúðarverkfoll. Þetta mun leiða til stöðvunar á rekstri félagsins á íslandi og jafnframt hafa veruleg áhrif á framtíðarmöguleika félagsins til starfa á erlendri grund. FÍA hefur einnig leitað til samskonar hags- munasamtaka erlendis með það fýrir augum að stöðva flug Atlanta fýrir þýska flugfélagið Lufthansa. Okkur starfsmönnum Atlanta fínnst það hið undarlegasta mál að leitað skuli til starfsmanna annarra fyrirtækja, jafnt hérlendis sem er- lendis og farið fram á samúðarverk- föll á meðan engum dettur í hug að tala við okkur. Ef einhver ætti að hafa skilning á eða sameiginlegra hagsmuna að gæta þá væru það einna helst starfsmenn sama fyrir- tækis. En einhverra hluta vegna hef- ur hagur okkar og hugur í þessu máli gleymst í þessum umræðum og aðgerðum. Hingað til höfum við talið það vera hlutverk verkalýðsforystunnar að vemda hag launþeganna og stuðla að atvinnuuppbyggingu í landinu en yflrlýsingar Benedikts Davíðssonar forseta ASÍ að undanfömu benda til annars. ASÍ hefur kosið að styðja lítinn minnihluta hálaunahóps í FLA frekar en að taka tillit til hagsmuna og skoðana miklu stærri hóps sem starfar hjá flugfélaginu. Við skomm á forystu ASÍ og ann- arra launþegasamtaka að endur- skoða afstöðu sína í þessu máli og fóma okkur ekki þrátt fyrir óánægju með stefnumarkandi dóm Félags- dóms. Að lokum viljum við lýsa yfir full- um stuðningi við eigendur fyrirtækis- ins í þessu rnáli." Þorsteinn segir það mat starfs- manna að ef eigi að stöðva allan flug- rekstur hjá félaginu verði engar tekj- ur hjá því til að greiða laun og þess vegna beinist reiði starfsmanna að þeim aðilum hjá FÍA sem virðast geta haft líf félagsins í hendi sér. Deilt um röðun á starfsald- urslista BENEDIKT Davíðsson, forseti AL þýðusambands íslands, segir að ASl hafi hlustað á sjónarmið allra aðila deilunnar að undanförnu og ljóst sé að lítið sem ekkert bæri efnislega á milli deiluaðila í kjarasamningavið- ræðunum. Sagði hann að ágreiningurinn stæði ekki um forgangsákvæði kjarasamninga heldur væm aðilar sammála um að það eina sem bæri í milli væri röðun á starfsaldurslista starfsmanna. Fyrir neðan allar hellur Benedikt segir uppsagnirnar hjá Atlanta fyrir neðan allar hellur. „Þær baráttuaðferðir af hálfu at- vinnurekenda í kjaradeilu að ganga til allra starfsmanna í fýrirtæki ef ekki finnst lausn í deilu, þar sem vel flestir eru engir þátttakendur í deilunni, og segja þeim upp störfum, eru vinnubrögð sem ekki hafa verið viðhöfð á vinnumarkaðinum undan- farna áratugi," segir hann. A A Formaður FIA telur uppsagnír á flugmönnum FIA vera ólögmætar Hóflega bjart- sýnn á lausn VÐ erum ekki enn eins bjartsýnir og samgönguráðherra," segir Tryggvi Baldursson, formaður Félags ís- lenskra atvinnuflugmanna, í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi eftir fund forráða- manna féiagsins með Halldóri Blöndal. „Við höfum svo oft staðið í þeirri trú að samning- ur væri í höfn, en á seinustu stundu hefur síðan orðið upphlaup eða eitthvað annað og við færst tvö skref aftur á bak fyrir hvert skref áfram, að við teljum ástæðu til var- færni." Boðun allsheijarverkfalls á öllum flugleið- um Atlanta á að taka gildi á hádegi í dag. Tryggvi segir að verkfallsaðgerðir muni aðal- lega fara fram í gegnum stuðning annarra aðila við sjónarmið FÍA, þar sem þeir flug- menn FÍA sem starfa hjá Atlanta eru ekki settir í flug af hálfu fýrirtækisins og myndu ekki fljúga hvort sem er. Ljóst sé að undirbún- ingur taki nokkra daga og gefist mönnum á meðan tóm til að leysa deilumar, sé í raun vilji fyrir hendi. „Við höfum fengið stuðnings- yfirlýsingar frá öðrum félögum en höfum viljandi dregið það á langinn að fara fram á formlegan stuðning, en gerum það í dag^Það mun taka nokkra daga þar sem kalla þarf saman trúnaðarráð stéttarfélaga og eins þurfa upplýsingarnar að berast til alþjóðafé- laga sem taka síðan afstöðu til málsins, en við höfum stuðningsyfirlýsingar og væntum fulltingis þeirra," segir Tryggvi. „Vonandi ekki áróðursbragð" Tryggvi kveðst hafa ástæður til að telja, að hafí Atlanta sent flugrnönnum sem til- heyra FÍA uppsagnarbréí eins og öllum öðrum starfsmönnum fyrirtækisins, séu þær úpp- sagnir ólöglegar. „Það er óheimilt samkvæmt lögum um stéttarfélög og vinnudeilur að segja upp starfsfólki í verkfallsaðgerðum. Hvað aðra varðar þykir mér miður að stjómendur Atlanta skuli láta það atriði að þeir séu ekki tilbúnir að láta sex flugmenn í FÍA sitja við sama borð og 23 flugmenn í FFF, sem málið snýst um, bitna á áttatíu starfsmönnum öðr- um. Mér fínnst þetta með eindæmum og trúi því í raun ekki og skora á stjómendur Atl- anta að gefa upp rétta ástæðu finnist ef'hún er fyrir hendi. Þeir verða að tjá sig um það, en ég get nefnt þá þijá möguleika sem mér sýnast fýrir hendi. I fýrsta lagi að Atlanta ætli sér að flytja úr landi, og þá hlýtur það að vera vegna þess að stjómendur sjái ein- hvem hag í því og það eina sem ég get ímynd- að mér er að sleppa við launatengd gjöld eins og önnur íslensk fyrirtæki borga. í öðru lagi að leggja eigi fyrirtækið niður og ef það er ætlunin er ekkert við því að gera; þá hefur eitthvað bmgðist í rekstri fyrirtækisins og landsmenn em þá mögulega heppnir að það skuli ekki ganga jafn lengi og Amarflug á sínum tíma sem kostaði skattborgara hundruð milljóna. I þriðja lagi vona ég svo sannarlega að uppsagnimar séu ekki áróðursbragð til þess að afla sér samúðar, því það væri á mjög lágu plani gagnvart þeim starfsmönnum Atlanta sem fengu uppsagnarbréf í dag,“ seg- ir Tryggvi. Flugleiðir ekki að baki Aðspurður um ásakanir þess efnis að Flug- leiðir kunni að standa að baki aðgerðum FIA, þar sem meirihluti félagsmanna vinnur hjá því fyrirtæki, segir Tryggvi að FÍA sé j samningsaðili við flesta flugrekendur á ís- landi. Þar á meðal íslandsflug, Flugfélag J Norðurlands, Landhelgisgæsluna, Flugfélag Austurlands, Flugtak og fleiri auk Flugleiða, og hafi enginn þessara aðila kvartað yfír því að stærsti hluti flugmanna innan FÍA starfí hjá Flugleiðum. „í viðbót við þetta, þá er sérstaklega búið að bjóða eiganda Atlanta bókun í þann kjarasamning sem við myndum gera við hann, þar sem segði að ekki yrðu boðaðar verkfallsaðgerðir hjá Atlanta nema meirihluti flugmanna hjá hans eigin fyrirtæki samþykkti þær. Þetta er trygging fyrir því j að ekki sé hægt að boða þar til aðgerða í . ljósi meirihluta flugmanna hjá Flugleiðum, I þannig að þessar aðdróttanir eru mark- leysa,“ segir Tryggvi. I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.