Morgunblaðið - 18.11.1994, Side 6

Morgunblaðið - 18.11.1994, Side 6
6 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Norskur réttur sakfellir stýrimann Hágangs en sýknar útgerð og skipstjóra vegna skotmálsins Strandgæsla má ekkí skera átogvíra Héraðsdómur í Tromsö dæmdi Anton Ingva- son stýrimann í gær í 30 daga fangelsi en sýknaði skipstjóra og útgerð skipsins. Pétur Gunnarsson kynnti sér dóminn og viðbrögð lögmanns og talsmanns útgerðar. SENJA, skip strandgæslunnar, klippti á togvíra Hágangs II„ 6 vikum áður en dró til þeirra atburða sem dæmt var um í gær. ÉRAÐSDÓMUR í Tromsö í Noregi dæmdi í gær Anton Ingvason, stýrimann á Hágangi II, i 30 daga óskilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa skotið úr haglabyssu að norskum strandgæslumönnum sem reyndu að klippa á togvíra Hágangs úr gúmbáti norðaustur af Bjarnarey 5. ágúst sl. Til frádráttar refsingunni kemur fimm daga gæsluvarðhald Antons í Noregi. Hins vegar sýknaði dómstóllinn, sem lýsir því yfir að málið sé dæmt á grundvelli norsks landsréttar en ekki þjóðaréttar, Eirík Sigurðsson skipstjóra og útgerð Hágangs af refsikröfum byggðum á því að hafa ekki farið að fyrirmælum strand- gæslunnar meðan á aðgerðum stóð í kjölfar atviksins. Dómurinn kemst að þeirri niðurstöðu að norsku strandgæslunni sé ekki heimilt sam- kvæmt lögum að grípa til þess ráðs að klippa á togvíra skipa sem grun- uð eru um ólöglegar veiðar. Enn- fremur byggist niðurstaða dómsins í máli Antons á því að fullsannað sé að hann hafi skotið haglaskoti en ekki púðurskoti að strandgæslu- mönnunum. Brynjar Östgard, veijandi Ant- ons og útgerðarinnar, sagði eftir dómsuppkvaðninguna að niðurstað- an væri sigur fyrir íslendingana. „Það er gleðilegt að rétturinn kemst að þeirri niðurstöðu að strandgæsl- an hafi ekki lagaheimild til að klippa á togvíra. Einnig sýnir dómurinn að norsk stjórnvöld hafa án laga- stoðar tekið sér vald á Svalbarða- Fjölmiðlakönnun Félagsvísindastofnunar Morgun- blaðið mest lesið dagblaða MORGUNBLAÐIÐ er mest lesna dagblaðið, samkvæmt könnun Félagsvísindastofnunar Háskóla íslands, sem gerð var 20.-26. október síðastliðinn. Að meðaltali lásu 57% svarenda hvert tölublað Morgunblaðsins, en meðallestur hvers tölublaðs DV var 45%. Þetta er Iítils háttar samdráttur í blaða- lestri frá því í síðustu fjölmiðla- könnun í marz, en þá lásu 58% Morgunblaðið og 46% DV. Breyt- ingin er ekki marktæk. Morgun- blaðið var mest lesna blaðið alla svæðinu," sagði lögmaðurinn í sam- tali við norska Dagbladet eftir dómsuppkvaðninguna. Hann sagði að á hinn bóginn hefði alltaf verið við því búist að Anton Ingvason yrði dæmdur til refsingar fyrir að skjóta að strandgæslumönnunum. Friðrik Guðmundsson, útgerðar- maður Hágangs II, sagðist í sam- tali við Morgunblaðið telja að dóm- urinn væri stórsigur fyrir útgerðina og viðurkenning á því að strand- gæslan hefði farið langt ut fyrir heimiidir sínar í aðgerðum gegn skipinu með því að skjóta að því í stað þess að þiggja boð skipstjórans um að Anton kæmi yfir í strand- gæsluskipið til yfirheyrslu. Hágangur fór í Barents- hafið í gærkvöldi Hann kvaðst þó telja of snemmt að ályktá um þýðingu dómsins fýr- ir deilu íslendinga og Norðmanna um veiðar í Barentshafi, betri vís- bendingar um það fengjust við dóm í máli Björgúlfs frá Dalvík, sem tekið verður til dóms ytra í janúar. Hann sagði að ekki kæmi í ljós fyrr en eftir 14 daga hvort sýknu- dóminum yrði áfrýjað en kvaðst vonast til að sakleysi Antons Ingva- sonar af ákærum yrði sannað færi málið fýrir Hæstarétt. Hágangur II var í höfn á Vopna- firði í gær en hélt til veiða í Barents- hafi í gærkvöldi. Hvorki náðist tal af Antoni né Eiríki Sigurðssyni skipstjóra. Eftir aðgerðir strandgæslunnar 5. ágúst var Hágangur II færður útgáfudaga. Þá sáu 73% Morgun- blaðið einhvern tímann í vikunni, en 68% DV. Lestur Morgunpóstsins var nú kannaður í fyrsta sinn, og lásu 12% svarenda fimmtudagsblaðið og 10% mánudagsblaðið. Þettaer minni lestur en á Pressunni, sem í síðustu könnun var lesin af 15% svarenda. Ef borinn er saman meðallestur á hvert tölublað blaðanna eftir aldri svarenda, kemur fram að Morgunblaðið er mest lesið í öll- til hafnar og málið rannsakað. Til að stöðva för Hágangs hafði m.a. verið hleypt úr fallbyssum strand- gæsluskipsins Senju í skrokk Há- gangs. Norska ákæruvaldið gaf út ákæru á hendur Antoni fyrir að ráðast með valdi að opinberum starfsmönnum til að tefja eða hindra þá við skyldustörf og krafð- ist ákæruvaldið 60 daga fangelsis. Jafnframt var Eiríkur Sigurðsson skipstjóri ákærður fyrir að hafa brotið gegn reglugerð um físk- verndarsvæðið við Svalbarða og lögum um norska efnahagslögsögu með því að hafa að engu fýrirmæli strandgæslunnar um að stöðva skipið að fenginni skipun strand- gæslumanna. Þess var krafist að hann yrði dæmdur í 500 þús. ís- lenskra króna sekt eða 50 daga fangelsi og til að greiða 100 þús. íslenskra króna í sakarkostnað. Þess var jafnframt .krafist að útgerðarfélag Hágangs yrði dæmt fyrir að hafa haft áhrif á ákvörðun skipstjórans um að hlýða ekki fyrir- mælum strandgæslunnar og gert að greiða 1,5 milljónir íslenskra króna í sekt og 100 þúsund íslensk- ar krónur í sakarkostnað. Skipstjórinn og útgerðin áttu kost á að ljúka málinu með því að samþykkja kröfur ákæruvaldsins en höfnuðu því. Norsk yfirvöld létu ekki á það reyna í málinu hvort veiðar Há- gangs á Svalbarðasvæðinu hefðu verið ólöglegar en viku eftir aðgerð- irnar settu þau reglugerð til að um aldurshópum. Alls sáu 47% kvöldfréttir í Ríkissjónvarpinu, sem er fjórum prósentustigum meira en í síðustu könnun. A fréttir Stöðvar 2 horfðu 36% að meðaltali, miðað við 35% í marz. Dagsljós í Ríkis- sjónvarpinu sáu 20%, en 19:19 á Stöð 2 sáu 25% svarenda. Vinsælasti þátturinn í Ríkis- sjónvarpinu í umræddri viku var Sigla himinfley, en hann sáu 58% áhorfenda. Á tali hjá Hemma Gunn sáu 48%, og 37% horfðu á styrkja lagagrundvöll aðgerða vegna ólöglegra veiða á svæðinu. Anton Ingvason hafði gefið þá skýringu að hann hefði fjarlægt högl úr skothylki áður en hann hefði hleypt. af úr haglabyssunni, skipveijum í gúmmíbátnum til við- vörunar, en hann kvaðst hafa talið að þeir væru grænfriðungar. í niðurstöðum héraðsdómsins er þessu hafnað og sagt að slá megi því föstu að höglum hafi verið skot- ið að strandgæslunni. Þá hljóti Antoni að hafa verið ljóst að um strandgæslumenn var að ræða enda hafi gúmmíbáturinn verið merktur greinilega með fána strandgæsl- unnar á fimm stöðum. Landsréttur en ekki þjóðaréttur Ekki er talið sannað að fyrir Antoni hafi vakað að hæfa bátinn eða skipverjana en lagt til grund- vallar vegna vafa að Anton hafi ætlað að miða til hliðar við gúmmí- bátinn í því skyni að hræða strand- gæslumennina. Með þessu hafi hon- um tekist það ætlunarverk sitt að hræða þá frá að sinna skyldustarfi sínu með því að beita ofbeldi. Rétturinn hafnar því að um nauð- vöm hafí verið að ræða og að áhöfn Hágangs hafí stafað hætta af nær- veru strandgæslumanna sem hafi áður en skotinu var hleypt af hætt við að reyna að skera á togvíra Hágangs. Strandgæslumönnum hafí hins vegar verið stefnt í hættu með skot- inu og þar sem ekki hafí verið kyrrt útsendingu vantraustsumræðna á Alþingi. Vinsælasti þátturinn á Stöð 2 var Bingólottó, sem 36% sáu. Kannað hjá 12-80 ára Félagsvísindastofnun vann könnunina fyrir Morgunblaðið, DV, íslenzka útvarpsfélagið, Rík- isútvarpið, Samtök auglýsenda og Samband íslenzkra auglýsinga- stofa. Tekið var 1.500 manna slemb- iúrtak úr þjóðskrá og náði könn- í sjóinn hafí verið talsverð hætta á að skotið hæfði þá þótt ekki væri að þeim miðað. Dómurinn segir að ekki sé nauð- synlegt að taka tillit til sjónarmiða veijandans um að þjóðréttarlegur vafí leiki á um heimildir Norðmanna til löggæslu utan fjögurra sjómílna landhelgi við Svalbarða og segir að málið eingöngu dæmt á grundvelli norsks landsréttar. Hins vegar telur dómurinn að strandgæslunni sé ekki heimilt að grípa til þess ráðs að skera á tog- víra skipa sem staðin séu að meint- um ólöglegum veiðum en til þess ráðs hefur norska strandgæslan gripið sjö sinnum á vemdarsvæðinu síðan í vor. Dómurinn telur *að samkvæmt norskum lögum verði að krefjast þess að til staðar sé ótvíræð laga- heimild sem leyfí strandgæslunni að grípa til aðgerða á borð við það að klippa á veiðarfæri fiskiskipa. Slíkri réttarheimild sé hins vegar ekki til að dreifa í norskum rétti. Ekki ákærðir fyrir rétt brot Ákæran gegn skipstjóranum og útgerðinni byggist á því að framið hafí verið brot gegn reglugerð um verndarsvæðið. Hins vegar sé litið svo á að grundvöllur þeirra aðgerða strandgæslunnar að skipa skipstjór- anum að stöðva skipið hafí verið rannsókn á framferði Antons Ingvasonar. Strandgæslumönnum hafí þá ekki gengið til að framfylgja reglu- gerð um fískverndarsvæðið. Vegna reglunnar um að vafa skuli meta sakbomingi til hagsbóta leggi rétt- urinn til grundvallar að Eiríkur skipstjóri hafí talið víst að þarfír rannsóknarinnar gegn Antoni Ingvasyni hafi búið að baki fyrir- skipunum strandgæslunnar og því hafi hann, að höfðu samráði við útgerðina, neitað að verða við fyrir- mælunum í því skyni að leggja stein í götu þeirrar rannsóknar. Með því að leggja stein í götu rannsóknarinnar kunni hann að hafa gerst sekur um hegningar- lagabrot en ekki um brot gegn reglugerð um fískvemdarsvæðið eins og á hafi staðið. Fyrir þetta hugsanlega brot hafi Eiríkur hins vegar ekki verið ákærður og ákæruvaldið hafí ekki reynt að færa sönnur á að þetta hafi búið að baki neitun hans við að hlýða fyrirskipunum. Rétturinn geti ekki sakfellt mann fyrir brot sem ekki sé tilgreint í ákæm. Á þeirri forsendu voru skipstjóri og útgerð sýknuð af ákæmm í málinu. unin tílfólks á aldrinum 12-80 ára. Hringt var í þá, sem komu í úrtakið, og dagbækur sendar til þeirra, sem samþykktu að taka þátt í könnuninni. Svarendur skráðu svo daglega fjölmiðlanotk- un sína. Heimtur voru þokkalegar að mati Félagsvísindastofnunar. AHs fengust 935 dagbækur, sem er um 64% nettósvörun af heildarúrtaki. Svarendahópurinn endurspeglar aldurs- og búsetuskiptingu þjóðarinnar vel. Lestur dagblaða í viku í október 1994 Meðallestur á tölublað, skipting eftir aldri lesenda r-HtnuwUtóíb

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.