Morgunblaðið - 18.11.1994, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 9
VERKFALL SJÚKRALIÐA
Formaður Sjúkraliðafélags um bréf forstjóra Ríkisspítala
„Felur í sér hótun“
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
MÁLIN rædd í fundarhléi í húsakynnum ríkissáttasemjara.
Vörur afgreiddar
af hjúkrunarlager
KRISTÍN Á. Guðmundsdóttir, for-
maður Sjúkraliðafélagsins, segir að
í bréfi forstjóra Ríkisspítalanna til
sjúkraliða, sem ekki hafa mætt til
starfa þrátt fyrir vera á undanþágu-
listum, felist viss hótun. Sjúkralið-
afélagið sendir sjúkraliðum bréf í
dag með ráðleggingum um hvernig
þeir eigi að bregðast við bréfinu.
I bréfinu, sem er undirritað af
Davíð Á. Gunnarssyni, forstjóra
Ríkisspitala, og sjúkraliðar fepgu í
gær er vakin athygli á ákvæði Iaga
um kjarasamninga opinberra starfs-
manna um verkföll og auglýsingu
sem birtist í Stjórnartíðindum í jan-
úar 1992 um undanþágur frá verk-
falli. Segir að trúnaðarmenn
sjúkraliða og hjúkrunarforstjóri
Landspítala hefðu á tveimur fundum
yfirfarið undanþágulistam sem verið
hefðu leiðréttir i framhaldi af fund-
unum og laun greidd samkvæmt
þeim.
I lok bréfsins segir orðrétt: „Þín
deild er ein af fimm deildum Land-
spítalans á listanum þar sem skylda
til vinnu skv. listunum hefur ekki
verið virt af félagsmönnum Sjúkral-
iðafélagsins. Hér er því um óheimila
fjarvist að ræða og hefur þetta skap-
að sjúklingum og samstarfsfólki
veruleg óþægindi.
Ríkisspítalar líta svo á að skv.
lögum um kjarasamninga opinberra
starfsmanna nr. 94/1986 og auglýs-
ingu nr. 27/1992 nái heimild til
verkfalls ekki til starfa þíns og þér
sé því skylt að mæta til vinnu.
Ríkisspítalarnir skora hér með á
þig að koma nú þegar til starfa
skv. þeirri vaktskrá sem í gildi er.“
Bréfinu verður svarað
„Ég tel að í þessu bréfi felist viss
hótun, sem ég tel að Davíð Á. Gunn-
arssyni sé óheimilt að vera með.
Við erum búnar að senda bréfið til
lögfræðings okkar og hann mun
fara yfir það með okkur. Síðan kem-
ur félagið til með að senda hveijum
og einum sjúkraliða bréf með okkar
ráðleggingum," sagði Kristín.
Hún sagði að þeir fundir, sem
Davíð vísar til, hefðu verið haldnir
eftir að búið var að greiða sjúkralið-
um laun. Það væri því ekki rétt að
búið hefði verið að ná samkomulagi
um listana áður verkfall hófst.
HJÚKRUNARVÖRUR voru af-
greiddar út af hjúkrunarlager Ríkis-
spítalanna á Tunguhálsi í nokkra
klukkutíma í gær þar til verkfalls-
verðir stöðvuðu afgreiðslu. Ágrein-
ingur um störf sjúkraliðans sem sér
um að afgreiða pantanir út af lag-
ernum er enn óleystur.
Vigdís Magnúsdóttir, hjúkrunar-
forstjóri á Landspítala, segir að far-
ið sé að bera á skorti á einstökum
vörum, en ekkert vandræðaástand
hafi þó skapast. Leysist deilan ekki
verði vörurnar keyptar beint af
heildsölum.
Ágreiningur er milli Sjúkraliðafé-
lagsins um hvort sjúkraliðanum ber
að vinna í verkfallinu. Kristín Á.
Guðmundsdóttir, formaður Sjúkral-
iðafélagsins, sagði að félagið liti svo
á að honum bæri ekki að vinna, en
sagði hugsanlegt að undanþágu-
nefnd mundi veita undanþágu svo
fremi sem að í undanþágubeiðni
væri skýrt tekið fram eftir hvaða
vörum væri óskað. Vigdís sagði ekki
á hreinu hvernig bæri að skilgreina
stöðu sjúkraliðans. Rekstrarlegur
yfirmaður hans væri yfirmaður
tæknisviðs, en faglegur yfirmaður
væri hjúkrunarforstjóri.
Hjúkrunarforstjóri sendi sjúkra-
liðanum bréf í fyrradag þar sem
skorað var á hann að mæta til vinnu.
Að sögn Vigdísar mætti hann til
vinnu í gær og starfaði í nokkra
klukkutíma við að afgreiða pantanir.
„Það er ekki hægt að segja að
það sé neitt vandræðaástand út af
skorti á hjúkrunarvörum. Það var
hins vegar að koma í ljós skortur á
einstökum vörum. Ef málið leysist
ekki getum við fengið vörurnar beint
frá heildsala," sagði Vigdís.
Ályktun sjúkraliða
R-listinn taki upp
beinar viðræður
Krefjast
samanburð-
ar á kjara-
samningum
KRISTÍN Á. Guðmundsdóttir, for-
maður Sjúkraliðafélagsins, segist
ekki hafa trú á að neitt gerist í
samningamálum sjúkraliða og ríkis-
ins fyrr en lagðir hafa verið á borð-
ið útreikningar á launahækkunum
sem kjarasamningar annarra starfs-
stétta í heilbrigðisgeiranum hafa
fært þeim. Árangurslaus samninga-
fundur var í kjaradeilunni í gær.
í umræðu utandagskrá á Alþingi
í fyrradag var gagnrýnt að Sjúkra-
liðafélagið skyldi ekki hafa lagt
fram gagntilboð við tilboði samn-
inganefndar ríkisins, sem lagt var
fram við upphaf verkfalls.
„Okkar krafa er að lagðir verði
á boðið útreikningar sem greini frá
því hveijar þær launahækkanir eru
sem orðið hafa hjá öðrum heilbrigð-
isstéttum. Það hefur ekki verið gert.
Á meðan við höfum þessa útreikn-
inga ekki í höndunum þá getum við
ekki komið með gagntilboð. Mér
fínnst einnig að samninganefnd rík-
isins verði að stíga a.m.k. eitt skref
á móts við okkur áður en hægt er
að ætlast til að við komum með
gagntilboð," sagði Kristín.
FUNDUR sjúkraliða haldinn
fimmtudaginn 17. nóvember 1994
skorar á borgarstjórnarmeirihluta
félagshyggjumanna að sýna það
frumkvæði sem ijölnwgir borg-
arbúar hafa vænst af nýrri for-
ustu.
Margir kjósendur R-listans
leyfðu sér að vænta kvenvinsam-
legri viðhorfa félagshyggjuaf-
lanna, sem nú hafa haft forustu
borgarinnar í sínum höndum í sex
mánuði, án þess að þess sjáist
merki. Er ekki mál að linni og ný
forusta bretti upp ermarnar og
láti verkin tala? Áf þeim verður
borgarstjórn Reykjavíkur dæmd.
Fjölmennur félagsfundur
Sjúkraliðafélags Islands skorar á
borgarstjórn Reykjavíkur að sýna
frumkvæði sem sjálfstæður samn-
ingsaðili og taka upp beinar við-
ræður við samninganefnd_ SLFÍ
um nýjan kjarasamning. Ábyrgð
borgarstjórnar er mikil og af-
skiptaleysi fríar hana ekki ábyrg
á því neyðarástandi sem kann að
skapast hjá fjölmörgum einstakl-
ingum, öldruðum og sjúkum eða
aðstandendum þeirra, náist ekki
samkomulag um nýjan kjarasamn-
ing við stéttarfélag okkar.
Fundurinn minnir á að umboð
borgarstjórnar tekur til allrar
starfsemi Borgarspítalans, Grens-
ásdeildar, Arnarholts, Hvítabands-
ins, Heilsuverndarstöðvarinnar í
Reykjavík, Droplaugarstaða,
Seljahlíðar og nú síðast St. Jó-
sefsspítalans, Landakots, við yfir-
töku borgarinnar á því sjúkrahúsi.
Það fylgir vandi vegsemd hverri.
Fyrri borgarstjóri sýndi ítrekað
það frumkvæði sem þurfti í samn-
ingum opinberra starfsmanna,
sem var það korn sem fyllti mæl-
inn.
-kjarni málsins!
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunni:
73 milljonir
Dagana 10. til 16. nóvember voru samtals
73.647.948 kr. greiddar út í happdrættisvélum
um allt land. Þar bar hæst Gullpottinn en
einnig voru greiddir út veglegir Silfurpottar og
fjöldinn aliur af öörum vinningum.
Guilpottur í vikunni:
Dags. Staður: Upphæð kr.:
14. nóv. Mamma Rósa, Kópavogi.... ...10.191.760
Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staöur: Upphæö kr.:
10. nóv. Háspenna, Hafnarstræti ... 178.623
10. nóv. Mónakó ... 56.261
11. nóv. Mónakó 55.226
12. nóv. Háspenna, Laugavegi ... 60.360
12. nóv. Mamma Rósa, Kópavogi.... ... 252.515
15. nóv. Háspenna, Hafnarstræti ... 286.259
15. nóv. Háspenna, Hafnarstræti ... 56.063
16. nóv. Flughótel, Keflavík ... 155.381
Staða Gullpottsins 17. nóv., kl. 12:00
var 2.281.552 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir I 2.000.000 kr.
og hækka siöan jafnt og þétt þar til þeir detta.
Fyrir
veturinn
Úlpurkr. 5.990
Litir: Grænn, brúnn og ferskjul.
Stærðir: 10-16
Sendum í póstkröfu
Flash,
Framtíðarmarkaðinum,
Faxafcni 10, s. 689666.
AHA ávaxtasýrur frá SOTHYSI
Þetta nýja sem allir eru að tala um.
AHA ávaxtasýrumar frá Sothys.
Kraftaverkið sem hentar öllum,
og þú vaknar sem ný.
Einkaumboð á íslandi
Dugguvogi 2
sími 686334.