Morgunblaðið - 18.11.1994, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 15
Bílaiðnaður
Færri nfir bílar
skráðir í október
Briissel. Reuter.
SKRÁNING nýrra bifreiða í Vestur-
Evrópu í október jókst um 3.3%
miðað við sama mánuð í fyrra, en
minnkaði úr 3.8% í september að
sögn sambands evrópskra bifreiða-
framleiðenda, ACEA.
Aukningin var meiri í EFTA-lönd-
um (4.2%), einkum Finnlandi, Noregi
og Svíþjóð, en í löndum Evrópusam-
bandsins. Mest var aukningin í Dan-
mörku, 62%, en þar næst á Spáni
(25%) og í Frakklandi (9.6%). Salan
dróst hins vegar saman um 33.8%
í Grikklandi og 15.5% í Portúgal.
I Þýzkalandi minnkaði salan um
1% og Bretlandi um 3% samkvæmt
bráðabirgðatölum ACEA.
Aftur á móti voru 250,000 nýir
bílar skráðir í Þýzkalandi í október,
fleiri en í nokkru öðru landi. Frakk-
land var í öðru sæti með 173,700
nýskráða bíla og ítalir í því þriðja
með 130,500 bíla.
Alls voru 916,700 nýir bílar skráð-
ir í Vestur-Evrópu í október.
Að sögn ACEA jókst skráning
nýrra bifreiða mest hjá Fiat, sem
framleiðir líka Lancia og Alfa
Romeo, eða um 25.4%. Volkswagen,
sem framleiðir einnig Seat, Audi og
Skoda, seldi flesta bíla, eða 153,200,
en aukningin var 8.6% miðað við
október í fyrra.
Bílasala dróst mest saman hjá
BMW, eða um 5.3% í 53,340 skráða
bíla, og hjá japönskum framleiðend-
um í heild, um 4.7% í 98,716 skráða
bfla.
BESTA GJOFIN ER ISLENSKUR JOLAMATUR
Við sjáum um
sendingar á íslenskum jólamat
út um allan heim.
Fagleg og persónuleg þjónusta!
AUSTURSTRÆTI 17 - SÍMI 91-121 12
SENDU ÞEIM HUSAVIKURHANGIKJÓT A JOLABORÐI
ii.ii.m-.ui.iinj ■
Finnar fá
Atomic
Vín. Reuter.
FINNSKA fyrirtækið Amer-Yhtyma
Oy mun eignast austurríska fyrir-
tækið Atomic, sem framleiðir skíði
og fleiri íþróttavörur.
Helzti lánardrottinn Atomic er
Bank fúr Arbeit und Wirtschaft
(BAWAG), sem er í eigu austurrísku
verkalýðshreyfingarinnar og styður
tilboð Amers í fyrirtækið.
Atomic er eitt kunnasta fyrirtæki
Austurrikis og selur um 90% fram-
leiðslu sinnar úr landi. Að sögn
BAWAG hefur fyrirtækið mikla þörf
fyrir viðbótarfjármagn, sem Amer
mun útvega.
Amer greiðir andvirði 84.98 millj-
óna dollarafyrir Atomic, sem er ann-
ar mesti skíðaframleiðandi heims,
næst á eftir Rossignol í Frakklandi.
Nokkrir úr hópi kunnustu íþrótta-
manna heims nota skíði frá Atpmic,
sem hefur um 700 starfsmenn. Árleg
sala Atomic nemur 96.86 milljónum
dollara, en fyrirtækið hefur leitað
að samstarfsaðila í nokkur ár vegna
skulda er nema 147.6 milljónum doll-
ara.
------»--»-«-----
Iberia er
á barmi
gjaldþrots
Madrid. Reuter.
SPÆNSKA flugfélagið rikisrekna,
Iberia, verður gjaldþrota á fyrstu
mánuðum næsta árs ef það fær ekki
nýtt fjármagn að sögn stjórnarform-
anns félagsins, Javier Salas.
Eigið fé félagsins nam 550 millj-
ónum dollara í ársbytjun, en í árslok
er líklegt að það muni hafa lækkað
í 200 milljónir að sögn Salinas. Á
fyrstu „dauðu“ mánuðunum 1995
eigi Iberia gjaldþrot á hættu, því að
ríkisstjómin heimili ekki fjármagns-
aukningu fyrr én félagið hafi samið
við starfsmenn um endurskipulagn-
ingu.
Viðræður hafa siglt í strand.
Starfsmenn hafna kröfu Iberia um
15% kauplækkun nema atvinna
þeirra verði tryggð.
Útborguð laun margra starfs-
manna eru um 68.000 kr á mánuði.
Verkalýðsfélög vilja að launalækkan-
ir takmarkist við þá sem hæst hafi
laun og að fyrst verði dregið úr
rekstrarkostnaði.
KRENGLUNNl