Morgunblaðið - 18.11.1994, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 17
ÚRVERINU
skólameistara, og Jóni Inga Sigurðssyni, kennara.
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum
Framlialdsskólanum í Eyjum
gefið nýtt tæki í kælitækni
Fiskveiðar við Bandaríkin
Georgsbanki þurr
og stefnt að lokun
mikilla veiðisvæða
Boston. Morgunblaðið.
EITT sinn voru gjöful mið á Georgs-
banka, en nú virðist fiskurinn á þrot-
um. Sjómenn ráðleggja sonum sínum
að feta ekki í fótspor sín. Stel'nt er
að því að loka stórum svæðum Ge-
orgsbanka um áramót og svo gæti
farið að allar veiðar verði bannaðar.
Georgsbanki hefur verið forðabúr
sjómanna á Na-strönd Bandaríkj-
anna, þar sem heitir Nýja England,
og stendur eins og tangi út af
Þorskahöfða í Massachusetts og
Rhode Island.
4.600 fermílum lokað
Nú eru fiskistofnar að hruni komn-
ir og Fiskistjórnunarráð Nýja Eng-
lands hefur mælt með aðgerðum til
að vernda þá. Tillögur um að loka
4.600 fermílna svæðum, frekari
hömlur og herða reglur um möskva-
stærð hafa verið sendar til viðskipta-
ráðuneytis Bandaríkjanna og talið
er víst að verði þær samþykktar.
Tilgangur aðgerðanna er að
vemda það sem eftir er af þorski,
ýsu og lúðu.
Aflinn hefur minnkað
Afli sjómanna á norðausturströnd-
inni hefur minnkað á undanförnum
tíu árum. Arið 1983 veiddust rúm-
lega 50.000 tonn af þorski, tæplega
35.000 t af lúðu og rúmlega 15.000
t af ýsu. í fyrra var aflinn um 25.000
t af þorski, um 5.000 t af lúðu og
rúmlega 1.000 t af ýsu.
Aflinn undan na-ströndinni er nú
minni en hann var árið 1976 þegar
Bandaríkjamenn færðu landhelgi
sina úr 12 í 200 sjómílur til að stöðva
FYRSTI hópur nemenda í sjávarút-
vegsfræðum frá Endurmenntunar-
stofnun HÍ útskrifast þaðan á
morgun, laugardag. Nemendurnir
eru alls 26, hvaðanæva af landinu.
Nám í sjávarútvegsfræðum við
Endurmenntunarstofnun hófst í
janúar sl. Námið tekur eitt ár og
er ætlað stjórnendum í sjávarút-
vegsfyrirtækjum, sem og öllum
þeim sem hafa góða almenna
menntun og starfsreynslu í sjávar-
útvegi.
ofveiði, sem rakin var til erlendra
togara. Settar voru reglur um vemd-
un fiskistofna, þar á meðal aflakvóta.
Viðvaranir að engu hafðar
1982 þóttu stofnarnir hafa bragg-
ast nægilega til að afnema mætti
kvótana. Fjöldi veiðibáta tvöfaldaðist
nánast um leið, þeir urðu stærri og
keypt voru öflugri fiskileitartæki.
Ýtt var undir þessa þróun með ríkis-
lánum á hagstæðum kjömm.
Viðvörunarorð vísindamanna
voru að engu höfð og brátt stefndi
allt í sama farið, nema í þetta skipti
var ekki hægt að kenna útlendingum
um.
Nú hafa yfirvöld í Washington
ákveðið að veita 32 millj. dollara til
aðstoðar sjávariðnaði í Nýja Eng-
landi. Yfirvöid í Massachusetts
hyggjast verja 15 millj. dollara til
að kaupa báta af sjómönnum.
Aðgerðir of seint á ferð?
Ýmsir em þeirrar hyggju að fyrir-
hugaðar aðgerðir séu of seint á ferð.
Gengið hafi verið svo nærri vistkerf-
inu á Georgsbanka að þorsk-, ýsu-
og lúðustofnarnir muni aldrei ná sér.
Aðrir vonast til að stofnarnir nái sér
á 5-10 árum. Það er of langur tími
fyrir sjómenn. Fyrir 5 árum vora 450
bátar í Gloucester. Nú eru þeir 150
og ekki er laust við bölsýni í umfjöll-
un fjölmiðla um ástandi. „Veitt til
þurrðar", hét greinaröð í dagblaðinu
Cape Cod Times og „Endalok fisk-
veiða“ sagði í dómsdagsfyrirsögn
dagblaðsins The New York Times
um sjómenn í Nýja Englandi.
„Markmið námsins er að sam-
eina fræðilega og hagnýta þekk-
ingu á þessu sviði og að miðla
nýjustu aðferðum, hugmyndum
og rannsóknarniðurstöðum. Er
náminu ætlað að leysa úr brýnni
þörf fyrir þekkingu í sjávarútvegi
sem Fiskvinnsluskólinn, Stýri-
mannaskólinn og Vélskólinn hafa
ekki sinnt sem skyldi,“ segir rn.a.
í frétt frá upplýsingadeild HÍ.
Athöfnin hefst í Tæknigarði kl. 16.
Félög og fyrirtæki
gáfu fé til
kaupanna
Vestmannaeyjum. Morgunblaðið.
Nýtt og fullkomið kennslukerfi í
kælitækni í Framhaldsskólanum í
Vestmannaeyjum var tekið form-
lega í notkun fyrir skömmu. Tæk-
ið er smíðað af Kælingu hf. en
félög og fyrirtæki í Eyjum gáfu
fé til kaupa á kerfinu.
í ávarpi sem Ólafur Hreinn
Siguijónsson, skólameistari, flutti
er tækið var tekið í notkun kom
fram að kennslutækið væri eitt það
fullkomnasta í skólum landsins í
dag. Ólafur sagði að tilboð hefði
komið frá Kælingu i smíði tækisins
á síðastliðnu vori og eftir góð við-
brögð félaga og fyrirtækja í Eyjum
hefði verið ákveðið að kaupa tæk-
ið. Heildarverð þess er rúm ein
milljón króna en um 700 þúsundir
vom gefnar til kaupa tækisins.
Hópur útgerðaraðila undir forystu
Útvegsbændafélags Vestmanna-
eyja gaf 240 þúsund, Vélstjórafélag
Vestmannaeyja 150 þúsund og ís-
landsbanki, Sparisjóður Vest-
mannaeyja og Sveinafélag járniðn-
aðarmanna 100 þúsund hvert. Ólaf-
ur sagði að smíði tækisins hefði
kostað meira en sem nam söluverð-
inu og lenti sá kostnaður á Kælingu
hf. Hann færði öllum aðilum sem
að málinu hafa komið þakkir og
sagði að með þessum tækjakaupum
væri fjárfest til framtíðar því með
þessu kennslutæki ætti eftir að
skila betur menntuðum vélstjórum
og iðnaðarmönnum frá skólanum,
bátaflotanum, fiskvinnsluhúsunum
og öðrum sem kælikerfi reka til
hagsbóta.
Olafur sagði að með þessum
tækjakaupum væri hafin tækja-
væðing nýja verknámshússins sem
nú er í byggingu við skólann og
„H AFR ANN SOKNASTOFNUN
hefur varað við því mörg undanfar-
in ár, að gengið væri of nærri karf-
anum, einkum gullkarfa. í mörg
undanfarin ár, hefur verið heimilað
að veiða meira, en stofnunin hefur
lagt til. Nú hafa stjórnvöld ákveðið
grípa til aðgerða með lokunum
veiðisvæða til að draga úr veiði á
gullkarfa, en síðan á eftir að koma
í ljós versu vel það dugir. En það
er full ástæða til að fara varlega,"
segir Jakob Magnússon, fiskifræð-
ingur á Hafrannsóknastofnun.
Jakob segir, að vandamálið nú
snúist meðal annars um það að
upplýsingar skorti um skiptingu
karfaaflans milli gullkarfa og djúp-
ráðgert er að taka í notkun næsta
haust.
Að ávarpi Ólafs loknu sýndu Jón
Ingi Sigurðsson, kennari við skól-
ann, og fulltrúi Kælingar notkun
tækisins. Kennslutækið er sam-
byggt kæli- og frystikerfi með öllum
tilheyrandi búnaði. Með rofum getur
kennari sett inn ýmsar mismunandi
bilanir í kerfíð sem nemendur þurfa
síðan að kljást við að finna.
karfa. „Sumar útgerðir gefa þetta
skilmerkilega upp, aðrar ekki og á
meðan eru upplýsingarnar annað-
hvort villandi eða ófullnægjandi.
Þessu atriði er nauðsynlegt að kippa
í liðinn.
Við eram einnig að reyna að
komast að því hvort verið sé að
veiða gullkarfa í flottroll. Það er
reyndar árlegur viðburður að veið-
arfærarígur komi upp, þegar karf-
inn fer að veiðast í flottrollið í
Skeijadýpinu. Komi það í ljós að
mikið af gullkarfa veiðist með þeim
hætti, þarf að bregðast við því með
einhveijum hætti, en það verða
stjórnvöld að ákveða,“ segir Jakob
Magnússon.
Endurmenntunarstofn
HI útskrifar nemendur
í sjávarútvegsfræðum
>
„ Astæða til að
fara varlega“
Laugardaginn 19. nðvember kynnum við
þér 0KIFAX - faxtæki við allra hæfi
og 0KI prentara á sérstöku tilboðsverði!
Verið velkomin á einstaka laugardagskynningu. Opið frá kl. 10.00 til 14.00.
H Tæknival
Tækni tll tjáskipta
Skeifunni 17 - Sími (91) 681665 - Fax (91) 680664