Morgunblaðið - 18.11.1994, Síða 18

Morgunblaðið - 18.11.1994, Síða 18
18 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT STUTT Kostíkov kveður Jeltsín VJATSJESLAV Kostíkov, að- alblaðafulltrúi Borísar Jeltsíns Rússlandsforseta, tilkynnti í gær að hann hefði látið af störfum að beiðni forsetans. Kostíkov sagði að Jeltsín hefði sagt að brotthvarf hans væri liður í uppstokkun á starfs- mannaliði forsetans og ekki bæri að líta á það sem hneisu. Fyrstu merkið um að Kostíkov væri valtur í sessi kom fram í september þegar hann og nokkrir aðrir samstarfsmenn Jeltsíns voru ekki í föruneyti hans í Bandaríkjunum. Clinton skort- ir nokkur atkvæði MICKEY Kantor, viðskipta- fulltrúi Bandaríkjanna, sagði í gær að Bandaríkjastjóm teldi að þijú til fimm atkvæði skorti til að tryggja að öldungadeild þingsins samþykkti nýja GATT-samninginn um aukin heimsviðskipti. Kantor og Leon Panetta, skrifstofustjóri Hvíta hússins, ræddu í gær við Bob Dole, leiðtoga repú- blikana í deildinni, til að freista þess að fmna lausn á málinu. 22 milljónir manna féllu í átökum MEIRA en 22 milljónir manna hafa beðið bana í átökum í heiminum frá lokum síðari heimsstyijaldarinnar, sam- kvæmt bókinni „Stríðskostn- aðurinn" sem gefin var út í * gær. Þar segir að þrátt fyrir hran kommúnismans og enda- lok kalda stríðsins sé meira um borgarastyrjaldir, skæru- hernað og átök um landsvæði nú en nokkru sinni fyrr á öld- inni. Utgefandi bókarinnar er Saferworld, ráð sérfræðinga í utanríkismálum sem er með höfuðstöðvar í Bristol í Eng- landi. Reuter Nýja Beau- jolais-vínið komið FYRSTA vín uppskeruársins 1994 frá héraðinu Beaujolais í Frakklandi kom á markaðinn í gær en samkvæmt frönskum lög- um má ekki hefja sölu á því fyrr en þriðja fimmtudag nóvember- mánaðar. Það er ávallt mikið um að vera í París þegar Beaujolais- vínið er sett á markaðinn og mörg veitingahús lengdu opnun- artíma sinn aðfaranótt fimmtu- dags til að geta selt vínið. A myndinni má sjá þegar byrjað var að veita vínið í verslun á Champs Elysée á miðnætti. Frakkar neyta tæplega helmings þess en hinn helmingurinn er fluttur út til 192 landa. Fyrstu flöskurnar komu með flugi til Islands í gær og voru opnaðar í veitingahúsinu Perlunni. Reynolds segir af sér í þágn stöðugleika Dyflinni. Reuter. ALBERT Reynolds, forsætisráð- herra írlands, sagði af sér í gær, nokkrum klukkustundum áður en þingið átti að greiða atkvæði um vantrauststillögu á stjórnina sem búist var við að yrði samþykkt. Reynolds kvaðst hafa ákveðið að segja af sér „í þágu stöðugleika“, til að tryggja að hægt yrði að halda áfram friðarumleitunum á Norður- írlandi, sem hann hóf fyrir ellefu mánuðum ásamt John Major, for- sætisráðherra Bretiands. Hann sagði að samsteypustjórn Fianna Fail og Verkamannaflokks- ins hefði sent Mary Robinson for- seta afsagnarbeiðni og hann kvaðst ætla að ráðfæra sig við hana síðar. Hann kvaðst ekki ætla að boða tii nýrra kosninga og tók fram að hann hygðist ekki reyna að mynda nýja stjórn. Búist var við að Robinson fæli Fine Gael eða einhveijum öðrum stjómarandstöðuflokki að mynda næstu stjóm. Nokkrir þingmenn í flokki Reynolds, Fianna Fail, höfðu lagt fast að hon- um að segja af sér til að koma í veg fyrir að vantrauststillagan yrði samþykkt. Eftir afsögnina var þingfundum frestað til þriðjudags svo tími gæfist til viðræðna um myndun nýrrar stjóm- ar. Reynolds verður forsætisráðherra til bráðabirgða þangað til. Umdeild embættisskipun Dick Spring aðstoðarforsætisráð- herra sagði að áætlunin um frið á Norður-írlandi væri mesta afrek Reynolds. Hann og John Major gáfu út svokallaða Downing Street-yfír- lýsingu í desember í fyrra sem leiddi til þess að írski lýðveldisherinn (IRA) og samtök mót- mælenda á Norður- írlandi féllust á vopna- hlé fyrr á árinu. Dick Spring hafði mótmælt þeirri ákvörð- un Reynolds að skipa Harry Whelehan, fyrr- verandi ríkissaksókn- ara, sem forseta hæsta- réttar og sú skipun varð stjórninni að falli. Reynolds hafði sætt gagnrýni stjórnarand- stöðunnar og nokkurra stjómarliða á þingi fyrir að neita því á þinginu að Whelehan ætti sök á sjö mánaða töf á afgreiðsiu fram- salsbeiðni vegna prestsins Brendans Smyths, sem var síðar dæmdur fyr- ir kynferðislega misnotkun á börn- um. Smyth fór af sjálfsdáðum til Norður-írlands í júní og hann var dæmdur í fjögurra ára fangelsi. Spring sagði að töfín á framsals- beiðniiini sýndi að Whelehan væri ekki hæfur til að gegna embætti forseta hæstaréttar. Kveðst hafa verið blekktur Reynolds varði Whelehan í þing- ræðu á þriðjudag og sagði að hann hefði ekki átt sök á töfínni. For- sætisráðherrann tók þessi orð aftur daginn eftir og sagði að Whelehan hefði villt um fyrir honum. „Eg harma einnig þá ákvörðun mína að skipa hann í embættið þrátt fyrir yfirlýsta andstöðu Verkamanna- flokksins,“ sagði Reynolds. Þetta nægði þó ekki til að Verka- mannaflokkurinn fengist til að halda stjórnarsamstarfínu áfram. Spring sakaði forsætisráðherrann um að hafa vitað hið rétta í málinu daginn áður en hann bar sakir af Whelehan á þinginu. Albert Reynolds Kanaríeyjar 2ja vikna ferð 2.-16. des. á verði helgarferðar Á Kanaríeyjum er frábært að gera jólaínnkaupí n! Verslunarferð til Las Palmas innifalin. Verð írá sæti laus im Verð á mann í tvíbýli. Skattar innifaldn. LOKAUTKALL • • Orfá sæti laus Upplýsingar ekki gefnar í síma! Edinborg i9.nó«. QATIAS^ QB - og hjá umboðsmönnum um land allt. l.ágmúla 4: sími 699300, t Hafnarfirði: sími 652366, i Keflavík: sijni 11353 , | || ||’ j*y|á j |i 0«|| j| || m á Akureyri: sími 2 50 00, á Selfossi: sími 21666

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.