Morgunblaðið - 18.11.1994, Qupperneq 18
18 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
STUTT
Kostíkov
kveður
Jeltsín
VJATSJESLAV Kostíkov, að-
alblaðafulltrúi Borísar Jeltsíns
Rússlandsforseta, tilkynnti í
gær að hann hefði látið af
störfum að beiðni forsetans.
Kostíkov sagði að Jeltsín hefði
sagt að brotthvarf hans væri
liður í uppstokkun á starfs-
mannaliði forsetans og ekki
bæri að líta á það sem hneisu.
Fyrstu merkið um að Kostíkov
væri valtur í sessi kom fram
í september þegar hann og
nokkrir aðrir samstarfsmenn
Jeltsíns voru ekki í föruneyti
hans í Bandaríkjunum.
Clinton skort-
ir nokkur
atkvæði
MICKEY Kantor, viðskipta-
fulltrúi Bandaríkjanna, sagði
í gær að Bandaríkjastjóm teldi
að þijú til fimm atkvæði skorti
til að tryggja að öldungadeild
þingsins samþykkti nýja
GATT-samninginn um aukin
heimsviðskipti. Kantor og
Leon Panetta, skrifstofustjóri
Hvíta hússins, ræddu í gær
við Bob Dole, leiðtoga repú-
blikana í deildinni, til að freista
þess að fmna lausn á málinu.
22 milljónir
manna féllu
í átökum
MEIRA en 22 milljónir manna
hafa beðið bana í átökum í
heiminum frá lokum síðari
heimsstyijaldarinnar, sam-
kvæmt bókinni „Stríðskostn-
aðurinn" sem gefin var út í *
gær. Þar segir að þrátt fyrir
hran kommúnismans og enda-
lok kalda stríðsins sé meira
um borgarastyrjaldir, skæru-
hernað og átök um landsvæði
nú en nokkru sinni fyrr á öld-
inni. Utgefandi bókarinnar er
Saferworld, ráð sérfræðinga í
utanríkismálum sem er með
höfuðstöðvar í Bristol í Eng-
landi.
Reuter
Nýja Beau-
jolais-vínið
komið
FYRSTA vín uppskeruársins
1994 frá héraðinu Beaujolais í
Frakklandi kom á markaðinn í
gær en samkvæmt frönskum lög-
um má ekki hefja sölu á því fyrr
en þriðja fimmtudag nóvember-
mánaðar. Það er ávallt mikið um
að vera í París þegar Beaujolais-
vínið er sett á markaðinn og
mörg veitingahús lengdu opnun-
artíma sinn aðfaranótt fimmtu-
dags til að geta selt vínið. A
myndinni má sjá þegar byrjað
var að veita vínið í verslun á
Champs Elysée á miðnætti.
Frakkar neyta tæplega helmings
þess en hinn helmingurinn er
fluttur út til 192 landa. Fyrstu
flöskurnar komu með flugi til
Islands í gær og voru opnaðar í
veitingahúsinu Perlunni.
Reynolds segir af sér
í þágn stöðugleika
Dyflinni. Reuter.
ALBERT Reynolds, forsætisráð-
herra írlands, sagði af sér í gær,
nokkrum klukkustundum áður en
þingið átti að greiða atkvæði um
vantrauststillögu á stjórnina sem
búist var við að yrði samþykkt.
Reynolds kvaðst hafa ákveðið að
segja af sér „í þágu stöðugleika“,
til að tryggja að hægt yrði að halda
áfram friðarumleitunum á Norður-
írlandi, sem hann hóf fyrir ellefu
mánuðum ásamt John Major, for-
sætisráðherra Bretiands.
Hann sagði að samsteypustjórn
Fianna Fail og Verkamannaflokks-
ins hefði sent Mary Robinson for-
seta afsagnarbeiðni og hann kvaðst
ætla að ráðfæra sig við hana síðar.
Hann kvaðst ekki ætla að boða tii
nýrra kosninga og tók fram að hann
hygðist ekki reyna að mynda nýja
stjórn.
Búist var við að Robinson fæli
Fine Gael eða einhveijum öðrum
stjómarandstöðuflokki að mynda
næstu stjóm. Nokkrir
þingmenn í flokki
Reynolds, Fianna Fail,
höfðu lagt fast að hon-
um að segja af sér til
að koma í veg fyrir að
vantrauststillagan yrði
samþykkt.
Eftir afsögnina var
þingfundum frestað til
þriðjudags svo tími
gæfist til viðræðna um
myndun nýrrar stjóm-
ar. Reynolds verður
forsætisráðherra til
bráðabirgða þangað
til.
Umdeild
embættisskipun
Dick Spring aðstoðarforsætisráð-
herra sagði að áætlunin um frið á
Norður-írlandi væri mesta afrek
Reynolds. Hann og John Major gáfu
út svokallaða Downing Street-yfír-
lýsingu í desember í
fyrra sem leiddi til þess
að írski lýðveldisherinn
(IRA) og samtök mót-
mælenda á Norður-
írlandi féllust á vopna-
hlé fyrr á árinu.
Dick Spring hafði
mótmælt þeirri ákvörð-
un Reynolds að skipa
Harry Whelehan, fyrr-
verandi ríkissaksókn-
ara, sem forseta hæsta-
réttar og sú skipun varð
stjórninni að falli.
Reynolds hafði sætt
gagnrýni stjórnarand-
stöðunnar og nokkurra
stjómarliða á þingi fyrir að neita
því á þinginu að Whelehan ætti sök
á sjö mánaða töf á afgreiðsiu fram-
salsbeiðni vegna prestsins Brendans
Smyths, sem var síðar dæmdur fyr-
ir kynferðislega misnotkun á börn-
um. Smyth fór af sjálfsdáðum til
Norður-írlands í júní og hann var
dæmdur í fjögurra ára fangelsi.
Spring sagði að töfín á framsals-
beiðniiini sýndi að Whelehan væri
ekki hæfur til að gegna embætti
forseta hæstaréttar.
Kveðst hafa verið blekktur
Reynolds varði Whelehan í þing-
ræðu á þriðjudag og sagði að hann
hefði ekki átt sök á töfínni. For-
sætisráðherrann tók þessi orð aftur
daginn eftir og sagði að Whelehan
hefði villt um fyrir honum. „Eg
harma einnig þá ákvörðun mína að
skipa hann í embættið þrátt fyrir
yfirlýsta andstöðu Verkamanna-
flokksins,“ sagði Reynolds.
Þetta nægði þó ekki til að Verka-
mannaflokkurinn fengist til að halda
stjórnarsamstarfínu áfram. Spring
sakaði forsætisráðherrann um að
hafa vitað hið rétta í málinu daginn
áður en hann bar sakir af Whelehan
á þinginu.
Albert Reynolds
Kanaríeyjar
2ja vikna ferð 2.-16. des.
á verði helgarferðar
Á Kanaríeyjum er frábært
að gera jólaínnkaupí n!
Verslunarferð til Las Palmas innifalin.
Verð írá
sæti laus
im
Verð á mann
í tvíbýli. Skattar innifaldn.
LOKAUTKALL
• •
Orfá sæti laus
Upplýsingar ekki gefnar í síma!
Edinborg i9.nó«.
QATIAS^ QB
- og hjá umboðsmönnum um land allt.
l.ágmúla 4: sími 699300,
t Hafnarfirði: sími 652366, i Keflavík: sijni 11353 ,
| || ||’ j*y|á j |i 0«|| j| || m á Akureyri: sími 2 50 00, á Selfossi: sími 21666