Morgunblaðið - 18.11.1994, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 21
LISTIR
Smágerdir
heimar
MYNPLIST
Gallerí Greip
MÁLVERK
Ingimar Ólafsson Waage. Opið alla
daga kl. 14-19 til 27. nóvember.
Aðgangur ókeypis
EITT að því sem heillar mest
við myndlistina er hversu víða
listamenn sækja sér viðfangsefni,
og eru misjafnlega stórtækir í
þeim þreifingum sínum. Sumum
dugir ekkert minna en að
takast á við örlög lífsins á
jörðinni, meðferð manns-
ins á meðbræðrum sínum
eða sjálfan guðdóminn;
aðrir láta sér nægja að
vinna út frá hinu hvers-
dagslega eða því smá-
gerða í umhverfinu, sem
við erum vegna kunn-
ugleikans nánast hætt að
taka eftir. Þessir smá-
gerðu heimar verða ekki
síður tilefni til ágætrar
listsköpunar en hin um-
fangsmeiri viðfangsefni.
Ingimar Ólafsson Wa-
age leitar oftast til þessa
kunnuglega sviðs í þeim
málverkum, sem hann
sýnir hér. Ingimar stund-
aði nám við Myndlista- og
handíðaskóla íslands 1986
til 1990, og lauk á síðasta
ári framhaldsnámi í Lyon
í Frakklandi. Hann hefur
tekið þátt í nokkrum sam-
sýningum, en er hér að
halda sína fyrstu einka-
sýningu.
Eins og húsnæðið býður
upp á, eru flest verkin lít-
il, og njóta sín vel í upp-
setningunni. Það má segja
að viss kímni sé helsti und-
irtónn heildarinnar, í
myndunum birtast m.a. mikilvæg
augnablik í sögu brauðsins í
skemmtilegri útfærslu undir titlun-
um „Hvemig Kristur mettaði 5000
manns“ (nr. 5 og 6). Hin einfalda
myndgerð listamannsins hentar vel
fyrir þessi myndefni matarins, sem
einnig er að finna í fleiri verkum,
þó forskriftin sé önnur.
Þannig er myndaflokkurinn
„Ástin“ (nr. 9-11 og 16-18) að
nokkra leikur að formgerð og ber
með sér vissar samlíkingar við
ástina, sem áhorfendur fá að gera
upp við sig; svipað má segja um
„Og svo framvegis" (nr. 15), þar
sem leikurinn vísar til vinsælla
leikfanga.
Á sama tíma sýnir Ingimar að
hann hefur ágætt vald á litnum
og þeim möguleikum, sem hann
gefur til að skapa dýpt í fletinum.
Þetta kemur vel fram í „Djúpur
himinn" (nr. 14). Slíkum árangri
væri ekki hægt að ná með þeirri
númera-málum, sem hann vísar
síðan til annars staðar.
Loks ber að benda á að lista-
maðurinn gerir sér góða grein fyr-
ir fjölbreyttum möguleikum hinna
einföldu forma, eins og kemur
fram í myndaflokki í „neðri sal“
NKKUR verka Ingimars
Ólafssonar Waage.
sýningarstaðarins; þar er að fínna
fjörlegar myndir unnar með vatn-
slitum og blýanti út frá andstæð-
um þríhyrningum eins og þeir
koma fram í vínglasi, stundaglasi
eða eldgosi.
Að öllu samantöldu er hér á
ferðinni ágæt byijun hjá ungum
listamanni, sem augljóslega hefur
lært að meðhöndla miðilinn á
námsáranum, og beitir honum hér
af kunnáttu og fjöri í einföldum
myndverkum. Ingimar virðist jafn-
framt hafa alla möguleika á að
fylgja þessari byijun eftir með líf-
legum hætti í framtíðinni.
Eiríkur Þorláksson
MYNPUST
Gallcrí Sólon
í s 1 a n d u s
VEGGMYNDIR
Daniel Þ. Magnússon. Opið alla daga
til 27. nóvember. Aðgangur ókeypis.
í ÝMSU af þeirri myndlist sem
hefur orðið til undanfama áratugi
hafa hugtök verið afar mikilvæg.
Myndlistarfólk hefur tekist á við
skilgreiningar þeirra í myndrænu
formi, boðið fram nýjan skilning,
og einnig bryddað upp á nýjum
hugtökum til að reyna að ná yfir
þau ferli, sem listsköpun þeirrá
gengur í gegnum.
Daníel Þ. Magnússon hefur í
verkum sínum fetað þessar braut-
ir skilgreininga og hugtaka og
unnið úr þeim með verkum sem
hafa oftar en ekki verið hvora
tveggja í senn, hugmyndarík og
litlaus, hversu undarlega sem það
kann að hljóma. Oft hefur óvænt
nálgun hans við viðfangsefnin boð-
ið brosinu heim, líkt og segja má
um framlag hans í sýningunni
„Skúlptúr skúlptúr" fyrr á þessu
ári. Um leið hefur Daníel leitast
Daufur
endur-
ómur
við að skilgreina það ferli sem á
sér stað þegar listaverk verður til
og þannig varð til hjá honum orð-
ið „hugsanaveðran", sem var yfir-
skrift einkasýningar hans á Kjarv-
alsstöðum fyrir rúmum tveimur
áram.
í kynningu sinni á sýningunni
nú leitar Daníel aftur til þessa
hugtaks, þegar hann rekur á hvern
hátt hann hefur nálgast viðfangs-
efnið, sem lýsir sér í heiti sýning-
arinnar, sem er „Upphaf“, og vísar
til upphafs heimsins sérstaklega.
Hér er því tekist á við stórt og
viðamikið efni, upphaf alls sem er,
hvort sem litið er á það frá sjónar-
miði trúarbragða eða vísinda.
Vangaveltur listamannsins leiða
hann að ákveðinni lendingu: „Út-
koman er hugsanaveðrað symp-
honiskt verk í þremur þáttum,
fyrir stjörnuathugendur, stömu-
endurskoðendur, sálfarendur, ský-
glópa, plötusnúða og alla aðra sem
vilja.“
Slíkt orðskrúð nægir þó ekki.
Við skoðun verkanna, sem og
kynningarblaðsins, virðist útkom-
an aðeins vera daufur endurómur
þess sem Daníel hefur áður feng-
ist við; verkin þijú - sem bera
heitin Genesis, Stóri Hvellur og
Sólkerfi - era grámóskuleg og líf-
vana, og vantar alla þá spennu,
sem einkennt hefur mörg fyrri
verka listamannsins.
Þessi deyfð kemur að vissu leyta
á óvart, þar sem Daníel hefur áður
gert ýmsa athyglisverða hluti. Þó
má vera, að takmörk þess vinnu-
lags, sem hann hefur tamið sér,
komi fram hér fram með þeim'
hætti, að nauðsynleg endumýjun
á sér ekki stað, heldur ræður end-
urtekningin ríkjum. Það era hveij-
um listamanni ill örlög.
Þegar svo er komið er rétt að
staldra við og leita nýrra leiða.
Eiríkur Þorláksson
Oieinzí
- mest selda tómatsósa í heimi
Veitingamemi og Heinz vita hvað skiptir öllu máli
ÁNÆGÐIR VIÐSKIPTAVINIR
Heinz er vinsælasta tómatsðsa í heiminum
- þess vegna ættu veitingamenn sem vilja
koma til móts við óskir viðskiptavina sinna að
velja Heinz tómatsósu.
Við bjóðum veitingahúsum og
mötuneytum Heinz tómatsósu
í hagkvæmum pakkningum,
bæði stórum og litlum.
Um er að ræða loftþétta
poka(13kg) sem er hægt að setja í
þar til gerðan veggstand, dósir og álpoka
(3,23kg), smábréf (9g) og að sjálfsögðu hinar
sígildu Heinz tómatsósuflöskur (397g).
Auk þess býður Heinz fjölbreytt úrval af
matvöru fyrir veitingahús og mötuneyti.
Það skiptir miklu að velja réttu tómatsósuna
því að ánægður viðskiptavinur kemur aftur!
BERGDAL HF.
Heildverslun Sími 680888
Eddumetf iiblad neb?
Nezeril* losar um nefstíflur
Nezeril* er lyf sem losar um nefstfflur
af völdum bólgu f nefslímhúð, t.d. vegna kvefs.
Einnig er Nezeril* notað sem stuðningsmeðferð
við miðeyrnabólgu og ofnæmisbólgum í nefi.
Nezeril* verkar fljótt og minnkar bólgur f nefi sem
gerir þér kleift að anda eölilega. Mikilvægt er að
lesa vandlega leiöbeiningar um skömmtun sem
eru á fylgiseðli meö lyfinu.
1
^vuxna och
Vayníngar»varttora**:
í*9*r per dao vid
jggjP
Qrænt Nozoril® ffyrir ung böm
Bkátt Nozorit* ffyrir fulloróna
Bloikt Nezoril® ffyHr böm
Nezerif fæst
iapótekinu
Apóttít
Nezarll (oxymetazolin) or tyf sem iosar nsfstfftur af
vöioum kvofs Verkun komur fljótt og varlr 16-8 klst.
Aukavwkanln Staðbundín artmg kemur tyrlr og
rnénitis modlcamentoM við langtfmanotkun Varúfti
Ekkl o< röðfagt að ta)<a tyfið oftar on 3avor á dag né
kmgur on 10 daga i senn. Nazon! d ekkl aö nota vlö
ofnasmioböigum i nefi oöa langvarandi n«f3tíflu af
öörum toga noma I samráöi vtö fajkni. Leltiö W lajknis
et Itkamehtti er hærri an 38.5* C tongur en3 daga E1
miklll varkur or tu staöar, td. oymaverkur, bor emnig
aö laita læknls
Skbmmlun:
Nefdropor 0.5 mg/ml
Fullorönir og eldri en 10 ára: Innihakl úr emu etnnota
skammtahyiki l hvora rtöa tsnsvar tó þrfsvar sinnum A
sótarhring.
Nefdropar 0.25 mg/ml:
Böm 2-6 ára; 2 dropar (innihald úru þ.b 1/2 einnota
skammtahytki) 1 hvora nöa tvisvar ttt þrisvar sinnum ð
eöiarhnng.
Böm 7-10 ára tnnihatd ur olnu einnota skammtahytki
I hvora nö® tvisvar tit þrisvar smnum a aölarhrmg.
Nefdropar 0.1 mg/mi:
Böm 6 mánaöa • 2 áro. Inmhald úr otnu einnota
skammtahytk* f hvora nös tviovar W txisvar ainnum á
sötarhrtng,
Nýlaadd börn og böm á brjóati rneö eriAleiko viö aö
8»úga: 1-2 dropar t hvora nös 15 mín. tyrtr mðltíö. s»t
aö 4 stnnum é aötartving.
Nofúöatyt moö skammtaúöara 0.1 mg/ml:
Böm 7 mðnoöa - 2 ára Tvw Oöaskammtar I hvoro
nös Ivisvar w þrisvor sinnum á söiarhring.
Nefúöatyt meö skammtaúöara 0.2S mg/ml:
Böm 2-6 ðra. 0nn úöaskarnmtur I hvora nös tvisvor tii
þrisvar 3tnnum á sótarhrmg.
Börn 7-tO Ara: Tvetr úöaskammtar I hvora nös tvisver
tit þriavar smnum A sólarhong.
Nofuöalyt meö skammtaúöara 0.5 mg/rtV
Futtorönir og böm etdrt on 10 ára: Tvotr úöaskammtar
l hvora nös tvovar w prlsva/ sinnum á söfarhnng
Umboö og drolflng. Pharmoco hl.
ASTIIA
M8HI Astra IslarKlfBinWHk