Morgunblaðið - 18.11.1994, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 18.11.1994, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 21 LISTIR Smágerdir heimar MYNPLIST Gallerí Greip MÁLVERK Ingimar Ólafsson Waage. Opið alla daga kl. 14-19 til 27. nóvember. Aðgangur ókeypis EITT að því sem heillar mest við myndlistina er hversu víða listamenn sækja sér viðfangsefni, og eru misjafnlega stórtækir í þeim þreifingum sínum. Sumum dugir ekkert minna en að takast á við örlög lífsins á jörðinni, meðferð manns- ins á meðbræðrum sínum eða sjálfan guðdóminn; aðrir láta sér nægja að vinna út frá hinu hvers- dagslega eða því smá- gerða í umhverfinu, sem við erum vegna kunn- ugleikans nánast hætt að taka eftir. Þessir smá- gerðu heimar verða ekki síður tilefni til ágætrar listsköpunar en hin um- fangsmeiri viðfangsefni. Ingimar Ólafsson Wa- age leitar oftast til þessa kunnuglega sviðs í þeim málverkum, sem hann sýnir hér. Ingimar stund- aði nám við Myndlista- og handíðaskóla íslands 1986 til 1990, og lauk á síðasta ári framhaldsnámi í Lyon í Frakklandi. Hann hefur tekið þátt í nokkrum sam- sýningum, en er hér að halda sína fyrstu einka- sýningu. Eins og húsnæðið býður upp á, eru flest verkin lít- il, og njóta sín vel í upp- setningunni. Það má segja að viss kímni sé helsti und- irtónn heildarinnar, í myndunum birtast m.a. mikilvæg augnablik í sögu brauðsins í skemmtilegri útfærslu undir titlun- um „Hvemig Kristur mettaði 5000 manns“ (nr. 5 og 6). Hin einfalda myndgerð listamannsins hentar vel fyrir þessi myndefni matarins, sem einnig er að finna í fleiri verkum, þó forskriftin sé önnur. Þannig er myndaflokkurinn „Ástin“ (nr. 9-11 og 16-18) að nokkra leikur að formgerð og ber með sér vissar samlíkingar við ástina, sem áhorfendur fá að gera upp við sig; svipað má segja um „Og svo framvegis" (nr. 15), þar sem leikurinn vísar til vinsælla leikfanga. Á sama tíma sýnir Ingimar að hann hefur ágætt vald á litnum og þeim möguleikum, sem hann gefur til að skapa dýpt í fletinum. Þetta kemur vel fram í „Djúpur himinn" (nr. 14). Slíkum árangri væri ekki hægt að ná með þeirri númera-málum, sem hann vísar síðan til annars staðar. Loks ber að benda á að lista- maðurinn gerir sér góða grein fyr- ir fjölbreyttum möguleikum hinna einföldu forma, eins og kemur fram í myndaflokki í „neðri sal“ NKKUR verka Ingimars Ólafssonar Waage. sýningarstaðarins; þar er að fínna fjörlegar myndir unnar með vatn- slitum og blýanti út frá andstæð- um þríhyrningum eins og þeir koma fram í vínglasi, stundaglasi eða eldgosi. Að öllu samantöldu er hér á ferðinni ágæt byijun hjá ungum listamanni, sem augljóslega hefur lært að meðhöndla miðilinn á námsáranum, og beitir honum hér af kunnáttu og fjöri í einföldum myndverkum. Ingimar virðist jafn- framt hafa alla möguleika á að fylgja þessari byijun eftir með líf- legum hætti í framtíðinni. Eiríkur Þorláksson MYNPUST Gallcrí Sólon í s 1 a n d u s VEGGMYNDIR Daniel Þ. Magnússon. Opið alla daga til 27. nóvember. Aðgangur ókeypis. í ÝMSU af þeirri myndlist sem hefur orðið til undanfama áratugi hafa hugtök verið afar mikilvæg. Myndlistarfólk hefur tekist á við skilgreiningar þeirra í myndrænu formi, boðið fram nýjan skilning, og einnig bryddað upp á nýjum hugtökum til að reyna að ná yfir þau ferli, sem listsköpun þeirrá gengur í gegnum. Daníel Þ. Magnússon hefur í verkum sínum fetað þessar braut- ir skilgreininga og hugtaka og unnið úr þeim með verkum sem hafa oftar en ekki verið hvora tveggja í senn, hugmyndarík og litlaus, hversu undarlega sem það kann að hljóma. Oft hefur óvænt nálgun hans við viðfangsefnin boð- ið brosinu heim, líkt og segja má um framlag hans í sýningunni „Skúlptúr skúlptúr" fyrr á þessu ári. Um leið hefur Daníel leitast Daufur endur- ómur við að skilgreina það ferli sem á sér stað þegar listaverk verður til og þannig varð til hjá honum orð- ið „hugsanaveðran", sem var yfir- skrift einkasýningar hans á Kjarv- alsstöðum fyrir rúmum tveimur áram. í kynningu sinni á sýningunni nú leitar Daníel aftur til þessa hugtaks, þegar hann rekur á hvern hátt hann hefur nálgast viðfangs- efnið, sem lýsir sér í heiti sýning- arinnar, sem er „Upphaf“, og vísar til upphafs heimsins sérstaklega. Hér er því tekist á við stórt og viðamikið efni, upphaf alls sem er, hvort sem litið er á það frá sjónar- miði trúarbragða eða vísinda. Vangaveltur listamannsins leiða hann að ákveðinni lendingu: „Út- koman er hugsanaveðrað symp- honiskt verk í þremur þáttum, fyrir stjörnuathugendur, stömu- endurskoðendur, sálfarendur, ský- glópa, plötusnúða og alla aðra sem vilja.“ Slíkt orðskrúð nægir þó ekki. Við skoðun verkanna, sem og kynningarblaðsins, virðist útkom- an aðeins vera daufur endurómur þess sem Daníel hefur áður feng- ist við; verkin þijú - sem bera heitin Genesis, Stóri Hvellur og Sólkerfi - era grámóskuleg og líf- vana, og vantar alla þá spennu, sem einkennt hefur mörg fyrri verka listamannsins. Þessi deyfð kemur að vissu leyta á óvart, þar sem Daníel hefur áður gert ýmsa athyglisverða hluti. Þó má vera, að takmörk þess vinnu- lags, sem hann hefur tamið sér, komi fram hér fram með þeim' hætti, að nauðsynleg endumýjun á sér ekki stað, heldur ræður end- urtekningin ríkjum. Það era hveij- um listamanni ill örlög. Þegar svo er komið er rétt að staldra við og leita nýrra leiða. Eiríkur Þorláksson Oieinzí - mest selda tómatsósa í heimi Veitingamemi og Heinz vita hvað skiptir öllu máli ÁNÆGÐIR VIÐSKIPTAVINIR Heinz er vinsælasta tómatsðsa í heiminum - þess vegna ættu veitingamenn sem vilja koma til móts við óskir viðskiptavina sinna að velja Heinz tómatsósu. Við bjóðum veitingahúsum og mötuneytum Heinz tómatsósu í hagkvæmum pakkningum, bæði stórum og litlum. Um er að ræða loftþétta poka(13kg) sem er hægt að setja í þar til gerðan veggstand, dósir og álpoka (3,23kg), smábréf (9g) og að sjálfsögðu hinar sígildu Heinz tómatsósuflöskur (397g). Auk þess býður Heinz fjölbreytt úrval af matvöru fyrir veitingahús og mötuneyti. Það skiptir miklu að velja réttu tómatsósuna því að ánægður viðskiptavinur kemur aftur! BERGDAL HF. Heildverslun Sími 680888 Eddumetf iiblad neb? Nezeril* losar um nefstíflur Nezeril* er lyf sem losar um nefstfflur af völdum bólgu f nefslímhúð, t.d. vegna kvefs. Einnig er Nezeril* notað sem stuðningsmeðferð við miðeyrnabólgu og ofnæmisbólgum í nefi. Nezeril* verkar fljótt og minnkar bólgur f nefi sem gerir þér kleift að anda eölilega. Mikilvægt er að lesa vandlega leiöbeiningar um skömmtun sem eru á fylgiseðli meö lyfinu. 1 ^vuxna och Vayníngar»varttora**: í*9*r per dao vid jggjP Qrænt Nozoril® ffyrir ung böm Bkátt Nozorit* ffyrir fulloróna Bloikt Nezoril® ffyHr böm Nezerif fæst iapótekinu Apóttít Nezarll (oxymetazolin) or tyf sem iosar nsfstfftur af vöioum kvofs Verkun komur fljótt og varlr 16-8 klst. Aukavwkanln Staðbundín artmg kemur tyrlr og rnénitis modlcamentoM við langtfmanotkun Varúfti Ekkl o< röðfagt að ta)<a tyfið oftar on 3avor á dag né kmgur on 10 daga i senn. Nazon! d ekkl aö nota vlö ofnasmioböigum i nefi oöa langvarandi n«f3tíflu af öörum toga noma I samráöi vtö fajkni. Leltiö W lajknis et Itkamehtti er hærri an 38.5* C tongur en3 daga E1 miklll varkur or tu staöar, td. oymaverkur, bor emnig aö laita læknls Skbmmlun: Nefdropor 0.5 mg/ml Fullorönir og eldri en 10 ára: Innihakl úr emu etnnota skammtahyiki l hvora rtöa tsnsvar tó þrfsvar sinnum A sótarhring. Nefdropar 0.25 mg/ml: Böm 2-6 ára; 2 dropar (innihald úru þ.b 1/2 einnota skammtahytki) 1 hvora nöa tvisvar ttt þrisvar sinnum ð eöiarhnng. Böm 7-10 ára tnnihatd ur olnu einnota skammtahytki I hvora nö® tvisvar tit þrisvar smnum a aölarhrmg. Nefdropar 0.1 mg/mi: Böm 6 mánaöa • 2 áro. Inmhald úr otnu einnota skammtahytk* f hvora nös tviovar W txisvar ainnum á sötarhrtng, Nýlaadd börn og böm á brjóati rneö eriAleiko viö aö 8»úga: 1-2 dropar t hvora nös 15 mín. tyrtr mðltíö. s»t aö 4 stnnum é aötartving. Nofúöatyt moö skammtaúöara 0.1 mg/ml: Böm 7 mðnoöa - 2 ára Tvw Oöaskammtar I hvoro nös Ivisvar w þrisvor sinnum á söiarhring. Nefúöatyt meö skammtaúöara 0.2S mg/ml: Böm 2-6 ðra. 0nn úöaskarnmtur I hvora nös tvisvor tii þrisvar 3tnnum á sótarhrmg. Börn 7-tO Ara: Tvetr úöaskammtar I hvora nös tvisver tit þriavar smnum A sólarhong. Nofuöalyt meö skammtaúöara 0.5 mg/rtV Futtorönir og böm etdrt on 10 ára: Tvotr úöaskammtar l hvora nös tvovar w prlsva/ sinnum á söfarhnng Umboö og drolflng. Pharmoco hl. ASTIIA M8HI Astra IslarKlfBinWHk

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.