Morgunblaðið - 18.11.1994, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 23
I
jf
>
í
>
>
I
í
►
I
I
>
.
I
I
»
I
»
5
é
L
©
§
P
LISTIR
Ljóðalest-
ur og djass
á Alftanesi
NÝSTOFNAÐ lista- og menn-
ingarfélag í Bessastaðahreppi
mun standa fyrir dagskrá
sunnudaginn 20. nóvember þar
sem lesin verða ljóð og djass-
tónlist. Dagskráin verður í sam-
komusal íþróttahúss Bessa-
staðahrepps og hefst kl. 15.30.
Ljóðskáldin Nína Björk
Árnadóttir, Jóhann Hjálmars-
son, Þorri Jóhannsson, Ari Gísli
Bragason og Didda munu lesa
upp eigin ljóð og Una Margrét
Jónsdóttir les ljóð eftir Jón
Oskar. Tónlistarmennimir Carl
Möller, Guðmundur Stein-
grímsson og Róbert Þórhalls-
son leika með.
Félagið, sem enn hefur ekki
hlotið nafn,var stofnað 17.
október sl. í kynningu segir:
FRA stofnfundi Menningarfélags Bessastaðahrepps 17. október sl.
„Félagið hefur að markmiði að
efla hvers kyns starfsemi meðal
leikra og lærðra á Alftanesi
sem stuðlar að því að íbúar eigi
þess kost að njóta lista og menn-
ingar, hvort sem er sem iðkend-
ur eða neytendur.
Efnt verður til sýninga, tón-
leika, bókmenntakynninga og
ýmiss konar fræðslu. Félagið
mun leita til aðila innan sveitar
sem utan í því skyni, en margir
listamenn búa í Bessastaða-
hreppi“.
Formaður félagsins er Jytte
Frímannsson.
Gallerí Borg
Nýjar bækur
Málverk eft-
ir Jóhönnu
Yngvadóttur
NÚ STENDUR yfir samsýning á
verkum listamanna af yngri kynslóð-
inni í Gallerí Borg við Austurvöll.
Á sýningunni eru verk eftir sjö
framsækna listamenn sem hafa get-
ið sér gott orð hér heima og erlend-
is. Einnig eru sýnd tvö stór málverk
eftir Jóhönnu Kristínu Yngvadóttur
sem lést fyrir nokkrum árum.
Þeir sem eiga verk á sýningunni
eru: Jóhanna Kristín Yngvadóttir,
Sigurbjöm Jónsson, Jón Axel
Bjömsson, Vignir Jóhannesson,
Gunnar Örn, Valgerður Gunnarsson,
Helgi Þorgils Friðjónsson og Daði
Guðbjömsson.
Öll verkin em til sölu. í tilefni að
sýningunni býður Gallerí Borg upp
á léttar veitingar laugardaginn 19.
nóvember kl. 16 til 18.
Sýningin stendur aðeins yfir í
nokkra daga, en henni lýkur fimmtu-
daginn 24. nóvember.
Gallerí Borg er opið virka daga
kl. 12 til 18, en um helgar kl. 14 til
18.
Sýningin „FH
í 65 ár“
í TILEFNI af 65 ára afmæli FH
hefur Byggðasafn Hafnarfjarðar
opnað í Smiðjunni, Strandgötu 50,
sýninguna „FH í 65 ár“. Sýning-
unni, sem samanstendur af munum
og fjölda mynda, er áetlað að varpa
ljósi á sögu FH, allt frá fyrstu ámm
til dagsins í dag.
Sýningin er opin alla daga kl.
13-17 nema mánudaga og mun hún
standa til 1. desember.
---------------
„Hér stóð bær“
í Valaskjálf
LEIKFÉLAG Fljótsdalshéraðs sýnir
kabarettsýninguna „Hér stóð bær“
í Hótel Valaskjálf í kvöld, á morgun
og sunnudag. Sýningin er byggð á
lögum sem Haukur Morthens gerði
vinsæl á sínum tíma. Leikstjóri er
Einar Rafn Haraldsson og um und-
irleik sér EB-sextett undir stjórn
Einars Braga Bragasonar.
í tengslum við sýninguna er
Hótel Valaskjalf með tilboð í gangi
og á sunnudag verður tilboð fyrir
eldri borgara sýning og kaffihlað-
borð á 1.600 krónur.
Saga Daníels eftir
Guðjón Sveinsson
UNDIR bláu augliti
eilífðarinnar er fyrsta
bindið af Sögu Daní-
els, eftir Guðjón
Sveinsson, fjölskyldu-
sögu sem höfðar jafnt
til unglinga sem full-
orðinna.
Sagan gerist að
sumri til í litlu þorpi
undir lok síðari heims-
styrjaldar. Daníel, sem
er níu ára, missir föður
sinn og er komið fyrir
hjá ömmu sinni og
frænda. Drengurinn á erfitt með
að sætta sig við þessar breyttu
aðstæður sem hafa óvissu um
framtíðina í för með sér.
Guðjón Sveinsson er
fæddur á Þverhamri í
Breiðdal árið 1937.
Hann sinnti ýmsum
störfum áður en hann
sneri sér nær alfarið
að ritststörfum um
miðjan áttunda, ára-
tuginn, m.a. sjó-
mennsku, kennslu og
búskap. Guðjón hefur
aðallega skrifað fyrir
börn og unglinga.
Undir bláu augliti ei-
lífðarinnar er 24. bók
höfundar.
Útgefandi er Mánabergsútgáf-
an. Bókin er 264 bls. og kostar
2.390 krónur.
Guðjón
Sveinsson
Skáldsaga eftir
Armbjörn Amason
ÚT ER komin skáld-
sagan Dögun við
Dagmúla eftir Arin-
björn Ámason.
Sögusvið hennar er
í hnotskurn örlaga-
þræðir aldarfars þess
tíma er hún fjallar um
fyrir 100 árum. „Oft
er viðfangsefnið á
mörkum þess skiljan-
lega þar sem stutt er
í það dulráða og
hulda,“ segir í kynn-
ingu.
Arinbjörn Ámason er Húnvetn- uð í
ingur að ætt og uppruna. Hann 182
Arinbjörn
Árnason
hefur fengist nokkuð
við ritstörf og eftir
hann birst margvís-
legt efni í bundnu og
óbundnu máli, í blöð-
um og tímaritum.
Dögun við Dagmúla
er fyrsta skáldsagan
sem hann sendir frá
sér%
Útgefandi er höf-
undur. Teikningar eru
eftir Arna Elfar og
Sigurlínu Kristins-
dóttur. Bókin er prent-
prentsmiðjunni Odda og er
bls. Verð 2.980 krónur.
Leit að fyrirmyndarríki
ÚT ER komin ný bók
eftir rithöfundinn
Bjama Bjarnason sem
nefnist Vísland og hef-
ur að geyma blandað
form, ljóð, smásögur,
skáldsögu, leiktexta og
ritgerðir.
Stef í gegnum verk-
ið er að sögn útgef-
anda leit að fyrirmynd-
arríki.
Bjarni Bjarnason
Bókin sem er gefin
út af Andblæ í fimmtíu
tölusettum eintökum
er 516 blaðsíður, bókin
fæst í Bókaverslun
Eymundson við Aust-
urstræti og kostar
2.196 krónur.
NOATUN
OKUNAR
■LB0Ð
_ tfS>
Mónu
Tertuhjúpur
300gr
99.-
jólasmi'óriö
ooogv
122:
Amerískt
hágæðahveiti
SH0P-RITE
2,3 kg.
89
Kókosmjöl
200gr
36;
Strásykur
1 kg.
ss,
K/arna
smjörl íki
SOOgr
59.-
Öngaegg
tkg.
279.-
Ungnautakjöt
Nautagúllas Nautasnitzel
799: 899
pr.kg.
N ( )A^ PÚ N
Nóatún 17 - S. 617000, Rofabæ 39 - S. 671200, Laugavegi 116 - S. 23456,
Hamraborg 14, Kóp. - 43888, Furugrund 3. Kóp. - S.42062,
Þverholti 6, Mos. - S 666656, JL-húsinu vestur i bæ - S. 28511,
Kleifarseli 18 - S. 670900
•56,
V