Morgunblaðið - 18.11.1994, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Starfsárið hefst hjá
Kammersveit Reykjavíkur
Lokadag-
skrá Islenska
einsöngs-
lagsins
SÖNGLAGA- og tónskáldakynn-
ingu Gerðubergs í tengslum við
yfirlitssýninguna, íslenska ein-
söngslagið, lýkur á morgun, laugar-
daginn 19. nóvember, kl. 14 með
erindi Halldórs Hansens, Horft um
öxi.
í erindinu rifjar Halldór upp
bernskuminningar og segir frá 'tón-
skáldum, söngvurum og hljóðfæra-
leikurum sem urðu á vegi hans í
uppvextinum og áttu þátt í að móta
tónlistarupplifun hans.
Að fyrirlestrinum loknum setjast
söngvararnir Guðmunda Elíasdótt-
ir, Guðmundur Jónsson, Kristinn
Hallsson, Þorsteinn Hannesson og
Þuríður Pálsdóttir að pallborði,
segja frá kynnum sínum af íslensk-
um einsöngslögum, flutningi þeirra,
framtíð og stöðu í dag. Umræðum
stjórnar Ævar Kjartansson út-
varpsmaður.
Fyrirhuguðum frumflutningi á
ensönglögum eftir nokkur núlifaridi
tónskáld hefur verið frestað þar sem
áhugi á einsöngslagagerð reyndist
meiri meðal tónskáldanna sem tóku
þátt í ljóðalottói Gerðubergs á opn-
un yfirlitssýningarinnar 2. okt. en
búist var við.
Þess má geta að lokadagskráin
er á laugardegi en ekki sunnudegi
eins og verið hefur.
Yfirlitssýningunni lýkur 1. des-
ember og er hún opin mánudaga-
fimmtudaga kl. 10-21, föstudaga
kl. 10-17 og laugardaga-sunnu-
daga kl. 13-16.
-------»-■»-»-----
Lúðrasveit
Yerkalýðsins í
Bústaðakirkju
LÚÐRASVEIT verkalýðsins heldur
árlega hausttónleika í Bústaða-
kirkju laugardaginn 19. nóvember
kl. 17.
Á efnisskrá tónleikanna eru m.a.
verk eftir J. Offenbach, John Philip
Sousa, Meyerbeer, William Walton,
Gordon Langford, Henry Purcell,
Sigvalda Kaldalóns, Karl 0. Run-
ólfsson og Atla Heimi Sveinsson.
Hljóðfæraleikarar í Lúðrasveit
verkalýðsins eru alls 49 talsins.
Stjómandi sveitarinnar er Malcolm
Holloway.
ÆFINGAR eru nú hafnar fyrir
fýrstu tónleikana á 21. starfsári
Kammersveitar Reykjavíkur, en
það eru jólatónleikar í Áskirkju,
sunnudaginn 11. desember klukkan
17.00. A efnisskránni verða Over-
ture og Chacony í
g-moll eftir /-H.
Purcell, Konsert í
Q-dúr fyrir 2 gít-
ara RV 532 eftir
Vivaldi, Fiðlukon-
sert í a-moll BWV
1041 og Svíta nr.
2 í h-moll fyrir
flautu og kamm-
ersveit BWV 1067
eftir J.S.Bach.
Einleikarar á tón-
leikunum verða
gítarleikaramir
Einar Kristján
Einarsson og
Kristinn H. Áma-
son, Gerður Gunn-
arsdóttir, fiðlu-
leikari og Hallfríður Ólafsdóttir,
flautuleikari.
Á síðasta starfsári, sem var 20
ára afmælisár Kammersveitar
Reykjavíkur, var starfsemin afar
blómleg. Haldnir vora fímm tónleik-
ar víðs vegar um borgina, auk þess
sem kammersveitin flutti verkið
Tímann og vatnið eftir Atla Heimi
Sveinsson á listahátíð. Einnig gaf
kammersveitin út geisladisk, en á
honum era þau verk sem leikin
vora á jólatónleikum Kammersveit-
ar Reykjavíkur í desember 1992.
Kammersveitin hefur ákveðið að
hafa einungis þrenna áskriftartón-
leika í vetur í stað fjögurra, eins
og venja hefur verið, og vanda sér-
NÝTT gallerí hefur verið opnað
í Reykjavík á Ingólfsstræti la á
móts við Islensku óperuna. Geng-
ið er inn í galleríið um anddyri
japanska veitingastaðarins Sam-
urai og dregur galleríið nafn sitt
af honum.
Fyrsta formlega sýningin í
Gallerí Samurai nefnist Veröld
víkinga með innlögðum sand-
myndum eftir Hauk Halldórsson
listamann og hefst á laugardag.
Haukur hefur unnið myndirn-
ar í samvinnu við kínverska list-
iðnaðarmenn og eru myndirnar
unnar með nýrri tækni sem fyrst
var kynnt hér á landi á sýningu
Hauks í Hallgrimskirkju nú síð-
astliðið vor.
staklega til þeirra. Fyrstu tónleik-
amir á þessu starfsári verða því
jólatónleikarnir í desember en
Kammersveitin hefur þó ekki setið
auðum höndum í haust, því hún kom
fram á hátíðarkvöldi í Islensku óp-
eranni í tilefni danskra haustdaga.
Aðrir tónleikar starfsársins verða
í íslensku óperanni sunnudaginn
8. janúar 1995 kl. 17. Á efnis-
skránni era Píanókvartett eftir
Mahler, Chanson perpetuelle op. 37
fyrir sópran, strengjakvartett og
píanó, Le colibri op. 2 nr. 7 og Les
papillons op. 2 nr. 3 eftir Chausson
og að lokum Sextett í Es-dúr fyrir
píanó, fiðlu, lágfiðlu, selló, klarinett
og horn eftir Dohnányi. Flytjendur
verða Ingibjörg Guðjónsdóttir sópr-
an og píanóleikararnir Sólveig Anna
Jónsdóttir og Selma Guðmundsdótt-
ir. Þessi verk eiga það sameiginlegt
að hafa ekki verið flutt áður hér á
landi. Til stóð að flytja þau í nóvem-
Gallerí Sam-
urai opnar í
Reykjavík
Allar útlínur í myndunum eru
gerðar með gylltum málmþræði
sem er festur á viðarplötu. Litað-
ur sandur er lagður í alla fleti
og að lokum er fljótandi akrýl
hellt yfir myndflötinn og látið
harðna.
Á sýningunni Veröld víkinga
sækir listamaðurinn meðal ann-
ars efnivið í þúsund ára gömul
ber en þar sem erfiðlega gekk að
finna nótur og fá að utan var ákveð-
ið að fresta tónleikunum fremur en
að sleppa þeim.
Þriðju og síðustu tónleikar starfs-
ársins verða 12. mars, einnig í ís-
lensku óperanni.
Þeir era hluti af
norrænni menning-
arhátíð sem haldin
er í tengslum við
Norðurlandaráðs-
þing sem verður í
Reykjavík í febrú-
ar/mars 1995. Á
tónleikunum verða
flutt rómantísk
verk norrænna tón-
skálda fyrir
strengjasveit. Áuk
þess verður þar
verk eftir Hafliða
Hallgrímsson,
Ríma fyrir sópran
og strengjasveit,
sem hann samdi
fyrir Ólympíuleikana í Lillehammer
1994. Norska söngkonan Ragnhild
Heiland Sörensen hefur sungið víða
og starfar við óperahúsið í Osló.
Hún mun flytja þetta verk með
kammersveitinni, en hún framflutti
það á Ólympíuleikunum. Það verður
finnski hljómsveitarstjórinn Tuomas
Ollila sem stjómar tónleikunum, sem
hefjast einnig klukkan 17.
Stjóm Kammersveitar Reykjavik-
ur skipa Rut Ingólfsdóttir, Eiríkur
Öm Pálsson og Inga Rós Ingólfs-
dóttir. Áskrift að þrennum tónleik-
um kammersveitarinnar er 3.000
kr. Aðgangur að einstökum tónleik-
um er 1.200 krónur. Áskriftarkort
verða til sölu á fyrstu tónleikunum.
teppaslitur sem fundust í vík-
ingaskipi í Áseberg í Noregi, í
Keltabók frá írlandi og Bayeux-
refilinn frá Frakklandi sem sýnir
innrás víkinga inn í England á
elleftu öld.
Haukur Halldórsson er fæddur
á Stóra-Ási, Selljarnarnesi 1937.
Framan af ævinni vann hann
ýmis störf til sjós og lands, en
stundaði síðar nám við myndlist-
arskóla í Reykjavík og Kaup-
mannahöfn. Hann hefur haldið
fjölda einkasýninga hérlendis og
erlendis auk þess sem hann hefur
tekið þátt í samsýningum og
myndskreytt margar bækur.
Sýningin stendur til 11. desem-
ber.
Nýjar bækur
Nýjar bækur
Minningar Jakobínu
Sigfurðardóttur
í BARNDÓMI heitir
minningabók Jakob-
ínu Sigurðardóttur.
Jakobína var löngu
kunn fyrir kvæði sín
og sögur þegar hún
lést í byrjun þessa
árs. Þá hafði hún
nýlokið við handrit
bókarinnar.
í barndómi fjallar
um Hælavíkurbæinn
á Hornströndum og
líf fólks þar um það
leyti sem Jakobína
er að alast upp. í
barndómi er líka bók
um barnæskuna yfir-
leitt.
„Þetta er falleg lít-
il bók um lífið, skrifuð á því tæra
og fallega máli sem ásamt skýrri
hugsun og næmri athyglisgáfu
var aðalsmerki Jak-
obínu Sigurðardótt-
ur,“ segir í tilkynn-
ingu.
Jakobína Sigurð-
ardóttir var fædd fyr-
ir vestan en bjó
lengst af í Mývatns-
sveit. Hún vakti fyrst
athygli með bókinni
Kvæði (1969). Eftir
hana liggja einnig
smásagnasöfn og
skáldsögurnar Dæg-
urvísa, Snaran, Lif-
andi vatnið og í sama
klefa.
Útgefandi er Mál og
menning, Bókin er
105 bls., prentuð í
G. Ben Prentstofu hf. og kápuna
gerð Sigurborg Stefánsdóttir.
Verð 2.980 kr.
Jakobína
Sigurðardóttir
Kvikasilfur
Einars Kárasonar
SKÁLDSAGAN
Kvikasilfur eftir Einar
Kárason er komin út.
Bókin er sjálfstætt
framhald af skáldsög-
unni Heimskra mann
ráð. Persónur úr þeirri
sögu halda í Kvikasilfri
áfram að lifa lífinu og
í bakgrunni er íslensk
saga síðustu áratuga.
I kynningu segir
meðal annars: „Banka-
stjórinn lendir í steinin-
um, — agalegt skúf-
felsi í fjölskyldunni, en
athafnaskáldið Bárður
stofnar landsfrægt
flugfélag, Salómon
vaknaður af Kleppi,
Gúndi bróðir í sérkennilegum við-
skiptum frá hótelherbergi sínu í
Amsterdam, frú Lára komin í próf-
kjörið og skyndilega hverfur Sigfús
yngri Killian voveif-
lega úr bílaportinu ...“
Bækur Einars Kára-
sonar njóta sívaxandi
vinsælda erlendis,
einkum á Norðurlönd-
um og í Þýskalandi./
Til dæmis skrifaði
danski gagnrýnandinn
Erik Skyum Nielsen
eftirfarandi í Inform-
ation fyrr á árinu:
„Vilji maður vita.
hvernig ísland nútím-
ans lítur út frá botni
samfélagsins er tæp-
ast til nokkur betri og
skemmtilegri heimild
en höfundurinn Einar
Kárason."
Útgefandi er Mál og menning.
Kvikasilfur er 233 bls. Prentúð í
Odda hf. Kápuna gerði Guðjón Ket-
ilsson. Bókin kostar 3.380 krónur.
Einar
Kárason.
Nýjar bækur
• FORBOÐNA borgin er ný ung-
lingabók. Höfundurinn, William
Bell, er kanadískur og segir hér frá
atburðunum á Torgi hins himneska
friðar vorið 1989. Söguhetjan er
sautján ára skólastrákur sem stadd-
ur er í Kína þetta örlagaríka sumar.
Hann verður viðskila við föður sinn
og flóttinn úr landi verður hættu-
spil, ekki síst vegna þess að hann
freistar þess að koma úr landi upp-
tökum frá atburðunum.
Útgefandi erMál ogmenning. Guð-
laugRichterþýddi bókina, sem er
195 blaðsíður. Halldór Baldursson
gerði kápumynd. Prentsmiðjan Oddi
hf. prentaði. Verð bókarinnar er
1.690 krónur.
O KOMIN er út barnabókin Lilja í
garði listmálarans í íslenskri þýð-
ingu Borgars Garðarssonar. Höf-
undarnir Christina Björk og Lena
Anderson segja hér frá skoðunar-
ferð lítillar stúlku á slóðir Monets í
Frakklandi. Margar Iitmyndir sýna
verk listmálarans og umhverfi og
textinn greinir frá ævi hans og
starfi. Þetta er bók sem þýdd hefur
verið á fjölmörgtungumál og hlotið
verðlaun.
Útgefandi erMál ogmenning. Bók-
in er 53 síður, prentuð á glanspapp-
ír og kostar 1.290 krónur.
• ÚT ER komin ný bók í flokknum
Lífsgleði. Þórir S. Guðbergsson
skráði. í bókinni eru frásagnir sex
íslendinga sem líta
um öxl og rifja upp
liðnar stundir. Þar
skiptast á skin og
skúrir, ýmist er
slegið á alvarlega
strengi eða leikið
léttum nótum.
Hvernig var
bernska höfunda í
Bolungarvík,
Reykjavík eða á
Austfjörðum? Hvernig var uppeldi,
menntun og tómstundir í landinu
fram að síðar heimsstyijöld? Hér
birtast frásögur fólks sem leggur
sitt af mörkum til samfélagsins.
Þeir sem segja frá era: Áslaug
María Friðriksdóttir, Ásta Erl-
ingsdóttir, Guðmunda Elíasdóttir,
Helgi Seljan, Helgi Sæmundsson
og Þórir Kr. Þórðarson.
Utgefandi er Hörpuútgáfan. Bókin
er 192 bls. Prentvinnsla: Oddi hf.
Verð 2.980 kr.
• Heimkoma er eftir metsöluhöf-
undinn' John Bradshaw og í þýð-
ingu Sigurðar Bárðarsonar. í
kynningu segir: „John Bradshaw
hefur breytt lífi milljóna manna með
hinum vinsæli sjónvarpsþáttum sín-
um og tveimur metsölubókum: Fjöl-
skyldan og Aðlosna undan oki
skammarinnar. Hann ertvímæla-
laust í fremstu röð þeirra manna sem
vinna með mannrækt og andlegan
þroska.“
Bókin fjallar um þroskaferli
mannsins og mannleg samkskipti,
um það hvernig við missum tengslin
við tilfinningar okkar og okkur sjálf
í uppvextinum vegna áhrifa frá
uppalendum og þjóðfélaginu í heild.
Útgefandi er Andakt. Heimkoma er
308 bls. pappírskila. Hún kostar
2.450 krónur.
• MATTHILDUR er eftir Roald
Dahl. Árni Árnason þýddi bókina
sem hann las í útvarpi sl. sumar.
Sagan er um litla stúlku sem er
bráðgáfuð en misskilin bæði af for-
eldrum sínum og skólastjóra. Kenn-
arinn reynist henni þó vel og smám
saman kemur í Ijós að stúlkan býr
yfir óvenjulegri hugarorku.
Útgefandi erMál ogmenning. Bók-
in er240 bls. ogkostar 1.290 krón-
ur. Prentsmiðjan Oddi hf. prentaði.
• Bangsi lærir að lesa er komin
út. Bangsi litli býður öllum börnum
heim í húsið sitt til að skoða með
sér myndir. Og ef pabbi og mamma,
afi og amma hjálpa okkur þá lærum
við smám saman að þekkja stafina
og lesa.
Á hverri blaðsíðu era margar lit-
myndir og letrið skýrt og læsilegt.
Útgefandi er Setberg. Bókin kostar
570 krónur.
Þórir S.
Guðbergsson