Morgunblaðið - 18.11.1994, Side 26

Morgunblaðið - 18.11.1994, Side 26
26 FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ AÐSEIMDAR GREINAR Er samningsstjórnun á sjúkrahúsum góður kostur? Hvað er samningsstjórnun? í MARS 1994 gaf fjármálaráðu- neytið út lítinn bækling um nýskip- an í ríkisrekstri. Hann hefur að geyma töluvert byltingarkenndar hugmyndir í sambandi við rekstur opinberra stofnana og fyrirtækja. Gert er ráð fyrir að ráðuneyti geti gert formlegan þjónustusamning við einstakar stofnanir til lengri tíma. Þar verði kveðið á um áhersl- ur í starfsemi stofnunar og árang- ur af henni, og um fjárveitingar og svigrúm til að ná settum mark- miðum. Meginhugmyndin er, að rekstrarábyrgð fylgi vald til ákvarðanatöku og að ákvarðanir verði teknar sem næst vettvangi. Hægt verður að dreifa valdi og ábyrgð til einstakra deilda, innan þess ramma sem samningurinn setur. Forsendur samnings- stjórnunar á sjúkrahúsum Samningsstjórnun gerir miklar kröfur, bæði til ráðuneytis og stofnunar. Af hálfu heilbrigðis- ráðuneytis verður að liggja fyrir skýr stefna og forgangsröðun í heilbrigðismálum. Skilgreina þarf nákvæmlega hvaða þjónustu ríkið ætlar að kaupa af stofnuninni, hve mikið af henni og á hvaða verði. Einnig þarf að kveða á um ráðstaf- anir, ef eftirspurn eftir þjónustu er meiri en samningsbundið magn. Af hálfu spítalanna þurfa að liggja fyrir nákvæmar kostnaðarupplýs- ingar um einstaka þætti í rekstrin- um. Samningur af þessu tagi getur tryggt sjúkrahúsum það rekstrarfé sem þau þurfa til fyrirhugaðra verkefna. Á hjúkrunarsviði á Borgarspít- ala og á Landspítala hefur um nokkurt skeið verið stuðst við flokkun sjúklinga eftir því hversu mikla þörf þeir hafa fyrir hjúkrun. Sjúklingaflokkunarkerfí í hjúkrun er í dag raunhæfasta forsenda fyr- ir áætlanagerð vegna samnings- stjómunar á hjúkrunarsviði. Á lækningasviði þarf einnig að þróa sjúklingaflokkunaraðferðir til að greina kostnað, t.d. þær sem byggja á sjúkdómsgreiningum (DRG) eða meðferðar- stjómun. Gífurleg vinna er óunnin við kostnaðar- mat vegna meðferðar sjúklinga og aðra þætti sem tengjast hlutverki háskóla- sjúkrahúsa s.s. vegna kennslu og rannsókna. Vandséð er að samn- ingsstjómun sé skyn- samlegur möguleiki áður en sú vinna hefur farið fram. Miðað við þau fjár- lög sem spítalar hafa búið við, gerir samn- ingsstjómun stjórn- endum sjúkrahúsa loks kleift að koma fram af fullri reisn, í stað þess hlutverks að vera eins og beiningamenn vegna óska um aukafjárveitingar eða barinn rakki vegna of mikillar þjónustugleði. • Mörg hundrað milljóna króna uppsafnaður fjárhagsvandi spítal- anna, t.d. Borgarspítalans, er til kominn vegna of mikillar þjónustu við of marga sjúka og slasaða, meiri þjónustu en ríkið er tilbúið að greiða fyrir. Enginn, hvorki hjá fjármála- ráðuneyti né heilbrigðisráðuneyti, hefur svarað þeirri spurningu, hvert átti að vísa þeim sjúklingum sem nutu þeirrar þjónustu spítal- ans sem var veitt umfram fjárlög. Mikilvægi góðs upp- lýsingakerfís í samningsstjórnun Ef upplýsingar varðandi með- ferð skilgreindara sjúklinga/hópa og rekstur stofnunarinnar era ekki aðgengilegar fyrir starfsfólk og stjómendur er ekki hægt að veita eins góða og hagkvæma þjónustu og ella. Dæmi sem endurspeglar skort á upplýsingum um kostnað, era dag- gjöld erlendra ríkisborgara sem era lagðir inn á íslensk sjúkrahús. Þeir borga meðalverð fyrir sólarhring- inn. Það þýðir að á gjörgæsludeild geta vanáætlaðar tekjur af þessum sjúklingum numið nokkrum milljónum króna á ári. Þeir greiða einungis 560 dollara fyrir hvem byijaðan sólarhring eða um 40 þúsund krónur. Þessar greiðslur standa vart undir launakostnaði og á þá eftir að greiða kostnað vegna rann- sókna og myndgrein- inga, lyfja, tækja, matar, og allan fastan kostnað. Sá kostnaður nemur tugum og hundraða þúsunda króna á dag og er greiddur af Islending- um. Þegar ábyrgð og völd deildarstjóra á rekstri aukast í kjölfar samningsstjómunar er óviðunandi fyrir þá að búa við verðlagningu af þessu tagi. Til að geta gert þjónustusamn- ing við ríkið þarf greiðan aðgang að upplýsingum um alla starfsemi sjúkrahússins svo og kostnaðar- greiningum á öllum þáttum henn- ar. Á Borgarspítalanum dugir ekki minna en bylting í tölvu- og upplýs- ingamálum ef þetta á að vera ger- legt. Það er dýrt að vera fátækur. Fjárveitingar til helsta bráðaspít- ala landsins gera ekki ráð fyrir að kaupa þurfí upplýsingakerfi og ný lækningatæki, sem era forsenda fyrir aukinni hagræðingu í rekstri. Um það bil 0,3% af rekstrarfé spítalans hefur verið varið í tölvu- búnað. Sambærilegir spítalar er- lendis nota um 4-5% af rekstrarfé sínu í þennan málaflokk og í bankakerfinu, sem fæst ekki við nema brot þess fjölda gagna og færslna sem skráðar eru á sjúkra- húsum, er víða varið 7-8%- af rekstrarfé til tölvu- og upplýsinga- mála. Samningsstjórnun og forgangsröðun Heilbriðismál eiga að vera kosn- ingamál. Kjósendur eiga að geta valið um stefnu og forgangsröðun í heilbrigðismálum þegar gengið er til kosninga, ekki síður en um stefnu í fiskveiðimálum og Evrópu- málum. Ef sjúkrahúsin eiga að gera þjónustusamning við ríkið, er, að mati Ingibjargar Þórhalls- dóttur, mikil undir- búningsvinna óunnin. Það þarf að ræða hvaða þjón- ustu á að veita, hver á að fá þjón- ustuna, hvar á að veita hana, hve- nær á að veita hana og hver á að borga fyrir hana og sumir vilja líka ræða uni hver eigi að reka heil- brigðisþjónustuna. Ef fjárveitingavaldið er ekki til- búið að veita fjármunum til rekst- urs heilbrigðiskerfisins er ekki nóg að skera niður fjármuni. Það þarf líka að skera niður þær kröfur sem gerðar era til heilbrigðiskerfisins. Sá niðurskurður á að fara fram á Alþingi. Til að standa undir sambærilegu heilbrigðiskerfí og við höfum í dag, á næstu áram, má með óbreyttu skipulagi gera ráð fyrir 2% út- gjaldaaukningu á ári vegna aukins fjölda aldraðra, nýrrar tækni og lyfja og vegna nýrra lagasetninga um þjónustu. Það er því augljóst að við verðum að skoða á gagnrýn- inn hátt hverju við viljum halda og hveiju má sleppa í samtryggðu heilbrigðiskerfí. Undanfarin ár hefur miklu fé verið varið til uppbyggingar heil- brigðisþjónustu á landsbyggðinni. Þetta hefur verið til heilla fyrir mörg byggðarlög og aukið heilsu- farslegt öryggi íbúanna svo og atvinnuöryggi. Þessi uppbygging hefur að hluta verið á kostnað eðlilegrar uppbyggingar og við- halds á höfuðborgarsvæðinu, enda erfítt að gera allt í einu. Sérhæfíng innan heilbrigðis- þjónustunnar, ný tækni og breyt- ingar í samgöngumálum lands- manna, valda því að stærstur hluti sérfræðiþjónustunnar er veittur í Reykjavík. Þrátt fyrir þetta hefur sífellt verið þrengt að fjárhag stóra Ingibjörg Þórhallsdóttir íslenskt játakk - mis- skilningnr leiðréttur í FYRRAHAUST var í fyrsta sinn efnt til breiðrar samfylk- ingar um átak í ís- lensku atvinnulífí und- ir heitinu íslenskt já takk (ÍJT). Átakið byggist á samkomu- lagi sem náðist milli þessara aðila vinnu- markaðarins: Alþýðu- sambands íslands, Bandalags starfs- manna ríkis og bæja, íslensks landbúnaðar, Vinnuveitendasam- bands Islands og Sam- taka iðnaðarins. Meg- ininntak samkomu- lagsins felur í sér að aðilar vinnu- markaðarins taki höndum saman um að reka auglýsingaátak til framdráttar atvinnu og framleiðslu hér á landi. Haustið 1992 stóðu atvinnurek- enda- og launþegasamtök hvor í sínu lagi að auglýsingaherferð í sjónvarpi sem m.a. minnti á sam- hengið milli eigin framleiðslu og atvinnu. Launþegasamtökin not- uðu þá svokallaðar „keiluauglýsingar“ í fyrsta sinn. Til að nýta þann auglýsingamátt sem keilan ávann sér í hittiðfyrra ákvað samstarfsnefnd ÍJT að gera hana að tákni átaksins í fyrra og nú. Það náði fíma góðri útbreiðslu og hafði óumdeilanleg áhrif um allt land í fyrrahaust og flest bendir til þess að viðtökurnar verði með svipuðum hætti þessar vikumar. Eitt fyrsta verkefni nefndarinnar í fyrra var að ákveða leiðir sem ákjósan- legastar væra til að ná markmiði átaksins, sem sé að auka vægi ís- lenskrar framleiðslu og þjónustu á heimamarkaði. Nefndarmenn voru sammála um að reka átakið á já- kvæðum nótum án þess þó að baða íslenska framleiðslu óverðskulduð- um morgunljóma. Áhersla skyldi lögð á það við neytendur að þeir gæfu íslenskri vöra og þjónustu Átakinu íJT er ekki ætlað að vekja með- aumkun í brjósti neyt- enda, segir Ingi Bogi Bogason, heldur raun- hæft stolt yfir sérstöku og sífellt öflugra atvinnulífí hér á landi. færi. Þrennt skyldi að öllu jöfnu haft að leiðarljósi: Verð, gæði og það að varan er íslensk. Tveir fyrstu þættirnir skipta neytendur auðvitað höfuðmáli en í þeim tilvik- um sem íslensk vara væri jöfn eða fremri erlendri vöra, hvað verð og gæði snertir, væri eðlilegt að hvetja neytendur til að láta þá stað- reynd, að hún væri íslensk, ríða baggamuninn. Með hliðsjón af þessum stað- reyndum er kynlegt að heyra við- horf tveggja einstaklinga sem að undanförnu hafa á síðum Morgun- blaðsins fært skoðanir sínar um hið gagnstæða í búning stað- reynda. í sérblaði Mbl. 6. nóv., sem bar heitið Veljum íslenskt, lýsir Hallur Baldursson, formaður Sambands íslenskra auglýsingastofa, yfir áhyggjum vegna langtímaáhrifa af því að tengja íslenska fram- Ieiðslu við kreppuboðskap. Að- standendur átaksins ÍJT voru strax sammála um nauðsyn þess að reka átakið fyrst og fremst undir já- kvæðum teiknum enda er auðvelt að samsinna því að það sé skamm- góður vermir að hrella fólk með atvinnuleysisdraugnum til þess að kaupa íslenska vöra. Hins vegar væri það jafnmikill einfeldnings- háttur að keyra átak af þessari stærðargráðu fram hjá þeirri stað- reynd að ákvörðun kaupenda hefur bein og mikil áhrif á atvinnustig og atvinnuþróun. Ingibjörg Norberg ræðir átakið ÍJT í grein í Mbl. 12. nóv. sem að öðra leyti er um óskylt mál. Merki- legt er að sjá að greinin endur- speglar viðhorf sem nefndarmenn átaksins ÍJT hafa talið sig vera að beijast gegn með bærilegum árangri. Það er einfaldlega rangt þegar greinarhöfundur heldur því fram að neytendur séu hvattir „til að taka íslenska vöra fram yfír erlenda, skilyrðislaust, án tillits til verðs og gæða“. Þvert á móti hafa Ingi Bogi Bogason sjúkrahúsanna í Reykjavík. Við gerð fjárlaga ættu fjármunir að fylgja sjúklingum þangað sem þeir sækja sína þjónustu. í Evrópu er víða greidd ákveðin upphæð til heilbrigðismála fyrir hvem íbúa á tilteknu landsvæði. Leiti íbúamir þjónustu út fyrir sitt svæði, fylgir greiðsla með til þess aðila sem veitir þjónustuna. Hefði þetta fyrirkomulag gilt hér á landi undanfarin ár væri fjárhagsvandi Borgarspítaláns ekki eins mikill og raun ber vitni, en þá hefði upp- byggingin á landsbyggðinni líklega verið minni en orðið er. í skýrslu sem unnin var á vegum heilbrigðisráðuneytisins í nóvem- ber 1993 var ályktað, að með endurskipulagningu á rekstri ákveðinna sjúkrahúsa úti á landi mætti spara allt að 700 milljónir króna. Sjúklingar hafí sótt æ meiri sérfræðiþjónustu til Reykjavíkur, og rekstur ýmissa landsbyggðar- sjúkrahúsa sé óeðlilega dýr. Til dæmis kemur fram að 60% sjúkl- inga af Suðurlandi sækja til sjúkra- húsa á höfuðborgarsvæðinu, 54% af Austurlandi og 56% af Vest- fjörðum, hlutfallið í öðram lands- hlutum er lægra. Streymi fjárveit- inga virðist víða vera í gagnstæða átt við streymi sjúklinganna. Af framansögðu má ráða að ef sjúkrahúsin gera þjónustusamn- inga við ríkið er mikil undirbún- ingsvinna óunnin. Að samningsgerð lokinni ætti að vera ljóst hváða heilbrigðisþjón- ustu sjúkrahúsin eiga að veita og hvaða þjónustu ríkið kaupir hjá öðram. Þá getur ekki hjá því farið að fjármunir fylgi sjúklingum þangað sem þeir fá þjónustuna og ekki verður heldur hjá því komist að verðleggja þjónustuna á kostn- aðarverði. Ávinningurinn fyrir ríkið verður að það getur skilgreint hvaða og hve mikla þjónustu það vill kaupa, og ávinningur fyrir sjúkrahúsin er sá að þau selja ríkinu ákveðið magn skilgreindrar þjónustu á umsömdu verði. Spumingin er bara sú hvem sjúkrahúsin eiga að rakka fyrir þá þjónustu sem ríkið vill ekki kaupa, en þau verða að veita, vegna þess að sjúklingum er einfaldlega ekki vísað frá. Þess vegna verður að ræða forgangsröðun innan heil- brigðisþjónustunnar. Höfundur er hjúkrunnrfræðingvr og forstöðumaður fræðslu- og rannsóknadeildar Borgar- spítalans. nefndarmenn átaksins ÍJT lagt á það áherslu að forðast bæri að líta á íslenskan iðnað og þjónustu sem einhvem ölmusuþega. Átakinu ÍJT er ekki ætlað að vekja meðaumkun í brjósti neyt- enda heldur raunhæft stolt yfir sér- stöku og sífellt öflugra atvinnulífí hér á landi. Það er rökrétt að fara í átak af þessu tagi þegar við vitum að samkeppnisstaða okkar er batn- andi, afkastagetan í fyrirtækjunum er vannýtt og atvinnuleysi meira en verið hefur um árabil. Ef við meinum eitthvað með því að vilja láta taka mark á okkur sem þjóð meðal annarra þjóða hljótum við að gera enn frekari kröfur til okkar sjálfra. Bæði fram- leiðendur og neytendur þurfa að leggja sitt lóð á vogarskálarnar til þess að byggja upp sterkan og kröfuharðan heimamarkað sem er einmitt forsenda þess að við eigum erindi í aukna alþjóðlega sam- keppni. Við höfum ákveðið að taka aukinn þátt í vaxandi alþjóðlegri samvinnu, því eykst eðlilega nauð- syn þess að standa saman um sam- eiginlega hagsmuni. Á meðan þetta viðhorf er mörgum öðram þjóðum í blóð borið era þeir enn of margir sem era bundnir á hug- myndaklafa skammta- og hafta- kerfis fortíðarinnar. Höfundur er upplýsinga- og fræðslufulltrúi hjá Samtökum iðnaðarins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.