Morgunblaðið - 18.11.1994, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREIIMAR
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1994 27
Um friðardúfur og
heilaga einfeldni
Fyrri grein
ÞAÐ ER árið 1950.
Hið svokallaða
Heimsfriðarráð skorar
á heimsbyggð alla að
undirrita áskorun um
bann við kjarnorku-
vopnum. Sú áskorun
hlaut nafnið Stokk-
hólmsávarp. Heimild-
um ber ekki saman um,
hversu margir léðu
ávarpi þessu nöfn sín.
Forseti Heimsfriðar-
ráðsins, Romesh
Chandra, segir þá hafa
verið 500 milljónir
manna.
Sovézki kommúnistaflokkurinn
hélt úti ýmsum alþjóðlegum sam-
tökum. A yfirborðinu leit út fyrir,
að þau væru sjálfstæð. En í raun
voru þau útibú frá Flokknum, og
verkefni þeirra var að fremja
sovézka hagsmuni. Meðal þeirra
má nefna Alþjóðasamband stúdenta
(IUS), Alþjóðasamband verkalýðs-
félaga (WFTU) og Heimssamband
lýðræðissinnaðrar æsku (WFDU).
Peningarnir, sem þurfti til að reka
þessi samtök, komu frá sovézka
flokknum. Útsendarar KGB á hveij-
um stað sáu um að koma fénu í
réttar hendur. Þegar leið á áttunda
áratug þessarar aldar kostaði
Heimsfriðarráðið Sovétríkin um 50
milljónir bandaríkjadala á ári. Það
fylgdi að sjálfsögðu undirdánuglega
þeirH pólitísku línu, sem það fékk
frá Alþjóðadeild miðstjórnar
Sovézka kommúnistaflokksins (arf-
taka Komintern).
Heimsfriðarráðið settist fyrst að
í París, en var rekið þaðan. Þá setti
það upp skrifstofu í Vín, en varð
að hypja sig 1957 fyrir „starfsemi
sem samræmdist ekki
hagsmunum austur-
ríska ríkisins". Loks
settist það að í Helsinki
og spjó þaðan út um
heiminn áróðri sínum
þar til yfir lauk.
Höfuðverkefni
Heimsfriðarráðsins var
að útmála fyrir íbúum
jarðarinnar bina dá-
samlegu friðarstefnu
Sovétríkjanna og hina
hryllilegu líðan þeirra
þjóða sem lentu í klóm
hernaðarbandalagsins
NATO. Þessar síðar-
nefndu óhamingju-
sömu þjóðir voru ekki
aðeins í Evrópu:
«í Asíu og Afríku finna menn
fyrir fantatökum NATO... Öfl
heimsvaldastefnu og arðráns, eink-
um Atlantshafsbandalagsins, bera
ábyrgð á hungri og fátækt mörg
hundruð milljóna í heiminum.»
Og:
«Takmark utanríkisstefnu Sovét-
ríkjanna er að koma á varanlegum
friði og friðsamlegri sambúð milli
ríkja með ólík samfélagskerfi. Her-
málastefna Sovétríkjanna er í sam-
ræmi við þessi markmið. Hún ber
einungis varnir fyrir brjósti».
Þetta eru orð Romesh Chandra,
leiðtoga heimsfriðarráðsins frá
1966.
Tilgangur Stokkhólmsávarpsins
1950 var að fylkja kommúnista-
flokkum og fjölda fólks, sem ekki
taldist til kommúnistaflokka, um
þá stefnu sem sovétstjórnin hélt þá
fram í alþjóðamálum. Allt þetta
fólk átti að fagna því, þegar lönd
þeirra yrðu sósíalistísk.
Vesturveldin höfðu afvopnast að
lokinni heimsstyijöldinni. En Sovét-
ÖIl Evrópa átti að vera
sósíalistísk, segir Arnór
Hannibalsson, sem í
þessari grein fjallar um
„alþjóðleg samtök“ á
vegum Sovézka komm-
únistaflokksins.
stjórnin hafði eflt herstyrk sinn að
mætti, og hafði þá þegar yfir kjarn-
orkuvopnum að ráða. Til þess að
koma þeim upp, naut hún dyggrar
aðstoðar njósnara, sem unnu í henn-
ar þágu.
ÖÍl Evrópa sósíalistísk!
Á árunum 1950-51 ákvað sovét-
stjórnin að komin væri tími til að
hrinda í framkvæmd markmiði, sem
lengi hafði vakað fyrir sovétleiðtog-
um. Bolsivikkaflokkurinn hafði í
kjölfar fyrri heimsstyijaldar ætlað
sér að koma á sovétveldi í Þýzka-
landi. Rauði herinn hugðist sækja
fram til Berlínar 1920. En þá komu
Pólveijar í veg fyrir það með því
að sigra Rauða herinn, sem var
undir forystu Túkhatsjéfskís. Árið
1923 var gerð enn ein tilraun, en
hún mistókst. Á árunum um og
eftir 1930 einbeitti hin alþjóðlega
kommúnistahreyfing sér að því að
koma sósíaldemókrötum í Þýzka-
landi á kné. Árangurinn var valda-
taka Hitlers. í lok seinni heimsstyij-
aldar var ætlunin að sjálfsögðu að
ná loksins þessu markmiði. En aft-
ur voru Pólveijar þrándur í götu.
Þeir hófu uppreisn í Varsjá þann
Arnór
Hannibalsson
1. ágúst 1944 og héldu út fram í
október. Framsókn Rauða hersins
tafðist. Samtímis þessu þokuðust
herir Vesturveldanna frá Frakk-
landi og yfir Belgíu inn í Þýzkaland
úr vestri. Stalín vildi heldur að
Vesturveldin legðu undir sig hluta
Þýzkalands en að verða að viður-
kenna stjórn í Varsjá, sem komm-
únistar hefðu ekki undirtökin í.
En nú var kominn tími til að
bæta úr þessu. Öll Evrópa átti að
verða sósíalistísk. Það var hernað-
arlegt tómarúm í Vestur-Evrópu,
einkum sökum þess að Bandaríkin
höfðu dregið meginhluta herafla
síns þaðan. í Frakklandi og á Ítalíu
voru öflugir kommúnistaflokkar.
Þeir myndu fagna innrás Rauða
hersins. En bæði í þessum löndum
og í öðrum löndum Vestur-Evrópu
þurfti að tryggja fýrirfram að meg-
inþorri «félagshyggjufólks» teldi
hinum endanlega friði náð með yfir-
ráðum Rauða hersisn og «alþýðu-
völdum». Þetta átti Stokkhólms-
ávarpið að tryggja.
Fyrirmæli um aðgerðir
Stalín taldi sig hafa hernaðarlega
yfirburði yfir andsætðingnum.
Bandaríkin hefðu ekki ráðrúm til
að senda ægilegan her á vettvang,
fyrr en leiknum væri lokið. (Þess
vegna varð staða íslands mikilvæg.
Og þess vegna var það, vafalítið,
að sovétstjórnin lagði gífurlega
áherzlu á að efla ítök sín á íslandi).
í janúar 1951 kallaði Stalín til
fundar við sig fulltrúa kommúnista-
flokka Austur-Evrópu. Þar voru
fyrir hönd Sovétríkjanna Stalín og
Mólótoff. Einnig voru þar æðstu
hershöfðingjar Rauða hersins. Þar
var hermálaráðherra Tékkóslóvak-
íu, Cepicka, sem síðar sagði frá því
sem gerðist. Stalín flutti ræðu yfir
þessum söfnuði og voru þetta höf-
uðatriðin:
Kóreustríðið sýnir, að Bandaríkin
hafa yfir takmörkuðum hernaðar-
mætti að ráða.
Enginn Evrópuher hefur magn
til að mæta Rauða hemum. And-
staða Vestur-Evrópu verður því
veikburða. Her Bandaríkjanna er
vanmáttugur og hefur ekki aðstöðu
Atakið „tryggjum atvinnu -
verslum heima"
tryggjum_
( atvirmu
erslum
heima
í Morgunblaðinu
næstu föstudaga
Ný
Frábært verb
frá kr. 2.200-3.950
'mSt: ■
snyrti- og gjafavöruverslun,
Háaleitisbraut 58-60, s. 813525.
Opið Jaugardaga kl. 10-16. [
ðareigendur - verslum heima!
Hillurnar fást hjá okkur
Bjartar og hlýlegar
Hrár
Lundia
Fjölbreytt
úrval fyrir
sérverslanir
og almennar
verslanir
Grh HF.OFNASMIflJAN
Hátelgsvegi 7,
Sími 21220, fax 623120
til að koma á vettvang nægilega
fljótt. Hin sósíalistísku ríki hafa
hemaðarlega yfirburði. Metin gætu
farið að jafnast eftir þrjú til fjögur
ár. Þá gætu Bandaríkin látið til sín
taka, einkum með kjarnorkuvopn-
um. Því þurfa sósíalistísk ríki að
sameina herafla sinn og mannafla,
svo og efnahagslegan og pólitískan
mátt. Stefna þessara ríkja innan-
lands og á alþjóðavettvangi á að
miða að þessu marki: að grípa tæki-
færið til að gera alla Evrópu sósíal-
istíska.
Þessi fyrirmæli Stalíns voru
skráð í fundargerð og undirrituð
af leiðtogum kommúnistaflokkanna
og varnarmálaráðherrum aðildar-
ríkja Varsjárbandalagsins.
Höfundur er prófessor.
Afmælis-
pottur
Fálkans
Vikutilboð
20
prósenta
afmæli^fsláttur á:
Göng«sk6m'
þiektskilim'
fjystikistuin,
vatnshita'
blásurum,
b ó n i 0 8
90ÁRN
Þekking Reynsla Þjónusta
FÁLKINN
SUÐURLANDSBRAUT 8 • 108 REYKJAVÍK
SÍMI: 91-81 46 70 • FAX: 91-81 38 82
ÖRKIN 1008-91-8 D