Morgunblaðið - 23.11.1994, Page 48
V í K
N G A
L#TT#
alltaf á
Miövikudög'um
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK
SlMl 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 86
MIÐVIKUDAGUR 23. NÓVEMBER 1994
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Andlits-
litir valda
augnskaða
HOLLUSTUVERND ríkisins
hefur varað við hættulegum and-
litslitum, sem aðallega eru not-
aðir af börnum og unglingum.
Aðvörun Hollustuverndar kem-
ur í kjölfar tilkynningar frá Eft-
irlitsstofnun EFTA í Brussel. f
tilkynningunni segir, að andlits-
litirnir hafi valdið alvarlegum
augnslysum í Bretlandi og
Frakklandi. Vitað sé um a.m.k.
20 skráð slys í Bretlandi og í
sumum tilvikum sé augnskaðinn
varanlegur.
Elín G. Guðmundsdóttir, efna-
fræðingur á eiturefnasviði Holl-
ustuverndar, segir að litirnir,
sem heita Aqua Fantasy Make-
up, séu vatnsleysanlegir andlits-
litir eða farði í mörgum litum
og hafi einkum verið notaðir á
skemmtunum og hátíðahöldum,
svo sem á öskudag, á grímuböll-
um, í afmælisveislum og á útihá-
tíðum. „Þessi vara, sem er fram-
leidd í Þýskalandi, er merkt með
CE-stimpli Evrópusambandsins,
sem þýðir að hún hefur þótt ör-
ugg við prófanir. Ég hef ekki
nákvæmar upplýsingar um
hvers vegna litirnir eru skaðleg-
ir, en það má vera að þrátt fyrir
að ekki sé beinlínis um hættuleg
efni í þeim að ræða, þá geri sam-
Olís og
Skeljung-
ur sækja
um lóðir
OLÍUVERSLUN íslands hf. og
Skeljungur hf. hafa sótt um lóðir
undir bensínstöðvar í Reykjavík.
Borgarráð vísaði erindunum til
skipulagsnefndar og skrifstofustjóra
borgarverkfræðings.
í erindi Olís til borgarráðs er vísað
til almennrar umræðu um áhuga
erlends olíufélags á að fá lóð undir
þjónustustöðvar í Reykjavík.
Sex úthlutanir á 67 árum
Af því tilefni vilji fyrirtækið árétta
að félagið óskar eftir að koma til
álita við allar hugsanlegar úthlutanir
lóða undir bensínstöðvar í borginni.
Bent er á að á 67 ára starfstíma
félagsins í borginni hafi það fengið
úthlutað sex lóðum undir þjónustu-
stöðvar, þrátt fyrir allnokkru fleiri
beiðnir.
í umsókn Skeljungs kemur fram
að ekki sé tilgreint að svo stöddu
hvar þær lóðir ættu að vera, sem
sótt er um undir bensínstöðvar með
tilheyrandi verslunarstarfsemi. Tekið
er fram að fyrirtækið hafi áhuga á
að fá tækifæri til að sækja um alla
þá mögulegu staði sem talið er að
komi til greina. Gildi einu, hvort um
er að ræða fyrirfram skipulögð svæði
undir bensínstöðvar, sem ekki hefur
verið úthlutað, eða önnur svæði.
Þá segir: „Skeljungur hf. sem frá
stofnun árið 1927 hefur haft höfuð-
stöðvar sínar og meginstarfsemi í
Reykjavík, væntir þess að þessari
málaleitan verði vel tekið og lýsir sig
reiðubúið til allra viðræðna hvenær
sem er.“
BÖRN og unglingar hafa
notað andlitsliti við ýmis
tækifæri, til dæmis
skreytt andlit sitt á kapp-
leikjum eins og sést á
myndinni hér til hliðar og
á þjóðhátíðardaginn. Á
minni myndinni sjást
sýnishom af Aqua Fant-
asy Make-up andlitslitum.
spil efnanna litina hættulega.
Hér eru engin skráð slys vegna
andlitslitanna. “
Litunum verði fargað
Elín sagði að andlitslitirnir,
sem eru í 15 gramma dósum,
hefðu verið á markaði hér á
landi í tvö ár. „Innflytjandinn
hefur þegar tekið litina úr sölu,
en Hollustuvernd vill beina þeim
tilmælum til foreldra og umsjón-
armanna barna, svo og félaga-
samtaka, stofnana eða annarra
aðila sem gætu haft liti þessa í
fórum sinum, að sjá til þess að
þeir verði þegar teknir úr um-
ferð og þeim fargað á öruggan
hátt,“ segir Elín G. Guðmunds-
dóttir.
Morgunblaðið/Kristinn
Viðræður um
samstarf við Djúp
STJÓRNENDUR sjávarútvegsfyr-
irtækja við ísafjarðardjúp hafa átt
og eiga í formlegum og óformlegum
viðræðum um sameiningu fyrir-
tækja eða samvinnu um hráefnisöfl-
un. Þijár fyrirtækjablokkir hafa
lýst yfir áhuga^ á samstarfi við Út-
gerðarfélagið Ósvör í Bolungarvík.
Töluverð geijun hefur verið í
útvegsfyrirtækjunum við Djúp frá
því í sumar meðal annars vegna
skilyrða stjórnvalda um aðstoð sam-
kvæmt Vestfjarðaáætlun.
Stóru fiystihúsin, Norðurtangi,
íshúsfélag Isfirðinga og Hraðfrysti-
húsið í Hnífsdal, hafa öll átt í við-
ræðum við Frosta í Súðavík um
samstarf við hráefnisöflun en ekki
haft erindi sem erfiði. Togarinn
Bessi átti að veiða bolfisk fyrir þau
en skip þeirra veiddu í staðinn
rækju fyrir Frosta og í tveimur til-
vikanna var rætt um leiguskipti.
Frystihúsin á ísafirði hafa bæði
í samvinnu við aðra leitað eftir sam-
starfi við Útgerðarfélagið Ósvör í
Bolungarvík. Þijú fyrirtæki í Bol-
ungarvík og Hnífsdal hafa einnig
óskað eftir kaupum á meirihluta-
eign bæjarsjóðs í Ósvör.
■ Losnar um pattstöðu/24-25
Halli sveitarfélaga
eykst fyrir kosningar
HALLI á rekstri sveitarfélaga var
4,7 milljarðar kr. í fyrra og á þessu
ári stefnir í svipaðan eða jafnvel enn
meiri halla að mati íjóðhagsstofnun-
ar. Þessi halli samsvarar um 15%
af tekjum sveitarfélaga og 1,1% af
landsframleiðslu.
Að sögn Þórðar Friðjónssonar,
forstjóra Þjóðhagsstofnunar, eru
þetta mun hærri hallatölur en áður
hafa sést í rekstri sveitarfélaga, þótt
litið sé áratugi aftur í tímann.
Fáar undantekningar
Versnandi afkoma sveitarfélaga
vegur upp á móti þeim minnkandi
halla á ríkissjóði sem spáð hefur
verið. Að sögn Þórðar skiptir halli
hins opinbera, þ.e. samanlagður halli
ríkis og sveitarfélaga, mestu frá sjón-
armiði hagstjórnar og þess vegna sé
nauðsynlegt að horfa á afkomu ríkis
og sveitarfélaga í heild við mótun
efnahagsstefnunnar.
Þórður segir að afkoman hafi
versnað hjá flestum sveitarfélögum.
Mjög fáar undantekningar séu frá
almennri þróun til hins verra þó stað-
an sé mjög mismunandi hjá sveitarfé-
lögunum.
Að sögn Þórðar eru margar ástæð-
ur fyrir auknum hallarekstri sveit-
arfélaganna en þrennt skipti senni-
lega mestu máli. í fyrsta lagi hafi
lægðin í efnahagsmálum leitt af sér
aukin verkefni og aukin útgjöld fyrir
sveitarfélög og jafnframt rýrt tekju-
stofna þeirra.
í öðru lagi hafa sveitarfélög að
undanförnu tekið við verkefnum frá
ríkinu án þess að tekjur þeirra hafi
hækkað með tilsvarandi hætti. Loks
segir Þórður að ef litið sé aftur í tím-
ann komi í ljós að afkoma sveitarfé-
laga sé yfirleitt lakari á seinasta ári
fyrir sveitarstjórnarkosningar en
önnur ár.
Á skíðum
SNJÓFÖL gerði í gær er kólnaði
eftir votviðrið og hlýindin undan-
farna daga. Unga fólkið lét ekki
á sér standa að nota fölið og dró
fram skíðin.
Fólk úr vinnu vegna þreytu
ÓLAFUR Ólafsson, landlæknir, segir að verk-
fall sjúkraliða hafi skapað mjög erfitt ástand á
sjúkrastofnunum. Dæmi séu um að starfsfólk
hafi horfið úr vinnu vegna álags. Hann segir
að flestar sjúkrastofnanir hér séu með minni
mönnun en í nágrannalöndum okkar og því skapi
svona verkfall mjög fljótt vandræðaástand.
Ólafur hefur fylgst með ástandinu á sjúkra-
stofnunum og verið í stöðugu sambandi við
sjúkraliða og stjórnendur á sjúkrastofnunum.
Ölafur sagði að verkfallið hefði í för með sér
erfiðleika sem yxu með degi hveijum. Þjónusta
við sjúklinga versnaði og biðlistar lengdust.
Mönnun undir öryggismörkum
„Álag á starfsfólk hefur aukist mikið og ég
veit dæmi þess að starfsfólk, sem sé illa haldið,
hafi orðið að hverfa úr vinnu. Það er kannski
ekki mörgum kunnugt, að jafnvel við eðlilegar
Landlæknir segir versn-
andi ástand á sjúkrahúsum
aðstæður eru sjúkrastofnanir hér á landi ver
mannaðar en á hinum Norðurlöndunum. Þetta
hefur farið hljótt því að heilbrigðistéttir bíta
ekki frá sér. T.d. má nefna að fjöldi rúma, legu-
daga og fjöldi útskrifta á heilbrigðisstarfsfólk,
hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða, er meiri á sér-
fræðistofnunum hér á landi. Á almennum sjúkra-
húsum, m.a. þar sem hjúkrunardeildir eru, er
fj'öldi rúma og legudaga meiri en á samsvarandi
sjúkrahúsum í nágrannalöndunum og útskriftir
svipaðar, sem þýðir að vinnuálag við eðlilegar
aðstæður er mun meira en gerist í nágrannalönd-
unum. Eitthvað mun því undan láta. Þessu verð-
ur að linna,“ sagði Olafur.
Ragnheiður Stephensen, hjúkrunarfram-
kvæmdastjóri á Hrafnistu í Hafnarfirði, fullyrðir
að mönnun á einni hjúkrunardeild þar hafi verið
undir öryggismörkum um helgina. Aðeins þrír
starfsmenn hafi séð um að annast 28 heimilis-
menn, sem allir þurfi mikla aðhlynningu. Hún
segir að álag á starfsfólk sé mjög mikið og seg-
ist kannast við að fólk hafi orðið að hverfa veikt
úr vinnu.
Kristín Á. Guðmundsdóttir, formaður Sjúkra-
liðafélagsins, tekur undir með landlækni og seg-
ir að mönnun á heilbrigðisstofnunum sé of lítil
við venjulegar aðstæður og því komi verkfall
illa við stofnanirnar. Hún segir að mál Hrafn-
istu verði skoðað sérstaklega. Sjúkraliðafélagið
óskaði eftir að landlæknir skoðaði ástandið á
Landakoti þegar stjórnendur þar fullyrtu að þar
hefði skapast neyðarástand.
■ Mönnun undir öryggismörkum/6