Morgunblaðið - 27.11.1994, Page 24
24 SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYNDIR/Sambíóin frumsýna á næstunni jólamyndina Miracle on 34th Street með
Richard Attenborough í aðalhlutverki, en þetta er endurgerðklassískrar myndar frá árinu
1947. Framleiðandi myndarinnar er John Hughes sem þekktur er fyrir Home Alone myndirnar
KRISS Kringle heldur því fram að hann sé hinn eini sanni jólasveinn
og verður að sanna mál sitt fyrir dómstólum.
Klassík færð
til nútímans
RICHARD Attenborough sem Kriss Kringle og Mara Wilson
sem Susan Walker í Miracle on 34th Street.
JÓLAMYNDIR kvikmynda-
húsanna fara nú . að líta
dagsins ljós hver á fætur
annarri og innan skamms
frumsýna Sambíóin bandarísku
myndina Miraele on 34th Street,
eða Kraftaverk á 34. stræti, sem
byggir á samnefndri kvikiriynd frá
árinu 1947. Framleiðandi myndar-
innar og meðhöfundur handrits er
John Hughes, sem á að baki ýmsar
fjölskyldumyndir á borð við Home
Alone-myndirnar, Dennis the
Menace og Baby’s Day Out.
Með aðalhlutverkið í Miracle on
34th Street fer Richard Attenboro-
ugh, en hann leikur Kriss Kringle,
jólasvein í stórverslun. Kriss heldur
að hann sé hinn eini og sanni jóla-
sveinn og svo fer að hann kemur
miklu róti á huga sex ára stelpu-
hnokka sem til þessa hafði verið
full efasemda um tilvist jólasveins-
ins. Þegar Kriss er svo dreginn
fyrir dómstóla til að sanna að hann
sé jólasveinninn verður stelpunni
og öllum aðstandendum hennar
ljóst hið sanna eðli tiltrúarinnar,
mikilvægi fjölskyldunnar og einnig
að jafnvel nú til dags hafí allir
þörf fyrir eitthvað til þess að trúa á.
John Hughes segir að við það
að færa hina klassísku kvikmynd
frá árinu 1947 til nútímans hafi
aðstandendur hennar aldrei misst
sjónar af mikilvægasta boðskap
hennar sem sé tiltrú og traust.
„Sagan á meira erindi nú en nokkru
sinni fyrr, en hún fjallar um trú
og traust og markaðssetningu jól-
anna. Þessi útgáfa myndarinnar
er einskonar félagi hinnar uppruna-
legu en ekki framhald, og það er
engu líkara en Kriss Kringle hafi
skotið upp kollinum í nútímanum,"
segir hann. „Það verður sífellt erf-
iðara að blanda geði við ókunnuga
og jólin eru í raun og veru eini tími
ársins sem þú getur nálgast ein-
hvern ókunnugan án þess að hann
spyiji hvað þú viljir upp á dekk.
Þessi kvikmynd undirstrikar mikil-
vægi jólahátíðarinnar og þörf okk-
ar fyrir að geta treyst hveiju öðru,
ekki aðeins á jólunum heldur allan
ársins hring.“
Richard Attenborough segist
einnig hafa hrifist af áherslu sög-
unnar á trú á þá hluti sem eru
handan hversdagslegrar reynslu.
„Sagan leggur áherslu á trúna á
hið góða, sanngirnina og heiðar-
leikann sem við viljum öll tileinka
okkur jafnvel þótt okkur takist
ekki alltaf upp sem skyldi. John
Hughes segist ekki vera í minnsta
vafa um að Attenborough hafí ver-
ið rétti maðurinn í hlutverk Kriss
Kringle og hann hafi haft hann í
huga alveg frá því í upphafí er
áætlanir um gerð myndarinnar
hófust.
Auk Attenboroughs koma fleiri
þekktir Ieikarar fram í kvikmynd-
inni, og þeirra á meðal eru Eliza-
beth Perkins, sem leikur fram-
kvæmdastjóra í stórversluninni
sem reynir að samræma starf sitt
og uppeldi dóttur sinnar og Dylan
McDermott, sem leikur samúðar-
fullan iögfræðing sem fer á fjörur
við hana um leið og hann annast
vörn Kriss Kringle fyrir dómstólun-
um. Perkins sást síðast á hvíta
tjaldinu í hlutverki Wilmu Flints-
tone, en McDermott, sem hlaut
mikið lof fyrir hlutverk sitt sem
félagi Clints Eastwoods í myndinni
In the Line of Fire, sást síðast í
hlutverki illmennis í The Cowboy
Way.
Leitin að þeirri réttu í hlutverk
hinnar sex ára gömlu Susan Wal-
ker var tímafrek, en Hughes og
starfslið hans leituðu um gjörvöll
Bandaríkin og prófuðu rúmlega
eitt þúsund unga leikara. En eftir
að sjá Möru Wilson leika yngstu
dóttur Robins Williams í Mrs. Do-
ubtfire var Hughes ekki í nokkrum
vafa um að hann'hefði fundið þá
réttu. Þess má geta að Natalie
Wood fór með hlutverk stelpunnar
í myndinni sem gerð var 1947, og
var það sennilega eitt fyrsta hlut-
verk hennar í kvikmyndum.
Rithöfundurinn, leikstjórinn og
kvikmyndaframleiðandinn John
Hughes hefur átt mikilli velgengni
að fagna allt frá því er hann skrif-
aði fyrsta kvikmyndahandrit sitt
árið 1982. Hann á nú að baki 25
kvikmyndir, en þeirra vinsælust
varð Home Alone, sem er vinsæl-
asta gamanmynd sem gerð hefur
verið og íjórða aðsóknarmesta
mynd allra tíma. Hann sló fyrst
verulega í gegn með handritum
sínum að myndunum Mr. Mom og
National Lampoon’s Vacation, en
skömmu síðar byijaði hann sjálfur
að' leikstýra myndum eftir eigin
handriti. Hin fyrsta var Sixteen
Candles, en alls hefur hann leik-
stýrt átta myndum. Meðal þeirra
eru Curly Sue, Uncle Buck, She’s
having a Baby, Planes, Trains and
Automobiles, Ferris Butler’s Day
Off og The Breakfast Club. Þá
skrifaði hann handritið og fram-
leiddi Dennis the Menace, Home
Alone 2: Lost in New York, Nation-
al Lampoon’s Christmas vacation,
The Great Outdoors, Some Kind
of Wonderful og Pretty in Pink.
Árið 1991 útnefndu samtök
kvikmyndahúsaeigenda í Banda-
ríkjunum John Hughes framleið-
anda ársins og nýlega hlaut hann
fyrstu Cecil B. De Mille verðlaunin
sem úthlutað hefur verið. Hughes
er sem fyrr með mörg járn í eldin-
um og næsta mynd sem hann leik-
stýrir verður væntanlega The Bee,
sem hann gerir fyrir Disney.
Leikstjóri Miracle on 34th Street
er Les Mayfield, sem fæddur er í
Mexíkó. Þegar hann var á fyrsta
ári í kvikmyndaskóla háskólans í
Suður-Kaiiforníu stofnaði hann
eigið fýrirtæki ásamt skólabróður
sínum George Zaloom. Þeir unnu
verkefni fyrir fyrirtæki Stevens
Spielbergs, Amblin Entertainment,
og meðal annars gerðu þeir heim-
ildarmynd um gerð Poltergeist.
Síðan hefur Mayfield leikstýrt
heimildarmyndum um gerð Back
to the Future, Empire of the Sun,
Who Framed Roger Rabbit? og
Indiana Jones and the Lost
Crusade. Árið 1991 vann mynd
hans um gerð myndar Francis Ford
Cóppola, Apocalypse Now til marg-
víslegra verðlauna. Myndin sem
heitir Hearts of Darkness: A
Filmmaker’s Apocalypse hlaut
Cable Ace kapalsjónvarpsverðlaun-
in, Eddie verðlaunin sem samtök
klippara í Bandaríkjunum veita og
loks verðlaun National Board of
Review fyrir bestu heimildarmynd-
ina sem sýnd var í kvikmyndahús-
um. Töldu gagnrýnendurnir Paul-
ine Kael og Gene Siskeel að He-
arts of Darkness væri besta kvik-
mynd ársins 1991. Fyrstu leiknu
myndina gerði Mayfield svo árið
1992, en það var Encino Mans, sem
naut mikillar aðsóknar.
Aðlaður
afreksmaður
RICHARD Attenborough ásamt
Les Mayfield leikstjóra
Miracle on 34th Street.
RICHARD Attenborough
er margverðlaunaður
kvikmyndaframleið-
andi, leikstjóri og leik-
ari, en hann hóf feril sinn sem
leikari. Hann hefur leikið í rúm-
lega 50 kvikmyndum og síðast
fór hann með hlutverk í Júra-
garði Stevens Spielbergs.
Attenborough lauk prófi frá
Konunglegu leiklistarakadem-
iunni í London og fyrsta kvik-
myndahlutverk hans var árið
1942 í myndinni In Whieh We
Serve. Skömmu síðar var hann
kallaður til herþjónustu, en að
styrjöldinni lokinni lék hann í
fjölda kvikmynda áður en hann
lét þann draum sinn rætast að
framleiða sjálfur kvikmyndir.
Árið 1959 tók hann höndum sam-
an við leikarann Bryan Forbes
og stofnuðu þeir kvikmyndafyr-
irtækið Beaver Films. Meðal
mynda sem þeir gerðu má nefna
The Angry Silence, All Night
Long, Whistle Down the Wind
og Seance on a Wet Afternoon,
en þeirri mynd leikstýrði Forbes
og færði myndin Attenborough
verðlaun Bresku kvikmyndaaka-
demíunnar sem besti leikari. Þau
verðlaun hlotnuðust honum svo
á nýjan leik árið 1964 fyrir hlut-
verk í myndinni Guns at Batasi.
Á næstu árum fór Attenboro-
ugh með hlutverk í mörgum
þekktum kvikmyndum
og meðal þeirra eru
The Flight of the Pho-
enix, The Sand Peb-
bles, Dr. Doolittle, The
Great Escape og The
Bliss of Mrs. Blossom.
Fyrstu myndinni
leikstýrði Attenboro-
ugh svo árið 1969, en
það var Oh! What a
Lovely War, og í kjöl-
farið fylgdu svo Young
Winston, A Bridge Too
Far og Magic. Árið
1982 rættist svo draum-
ur sem Attenborough
hafði lengi átt sé, en það var að
framleiða og leikstýra stór-
myndinni Gandhi, sem vann til
fimm breskra kvikmyndaverð-
launa og átta Óskarsveðláuna,
en Attenborough fékk sjálfur
verðlaun fyrir bestu myndina og
sem besti leikstjóri beggja vegna
Atlantshafsins. Síðan þetta var
hefur Attenborough leikstýrt
kvikmyndagerð söngleiksins A
Chorus Line, Cry Freedom,
Chaplin og nú síðast Shadow-
lands með Anthony Hopkins og
Debra Winger í aðalhlutverkum,
en sú mynd verður nýársmynd
Háskólabíós.
Richard Attenborough var
aðlaður árið 1976 og 1983 voru
honum veitt Martin Luther King
friðarverðlaunin og indversku
Padma Bhusan verðlaunin. Þar
sem hann ber nú titil aðalsmanns
hefur hann veitt forstöðu yfir
30 félagasamtökum og stofnun-
um, en meðal þeirra er Konung-
lega leiklistarakademían,
Breska kvikmyndastofnunin,
UNICEF og Channel Four Tele-
vision.