Morgunblaðið - 27.11.1994, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 27. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Bíómiðar á Threesome
fýlgja fyrstu 30018"
pizzunum frá PIZZA 67 s. 671515 símhjisis
EINN
Ein stelpa, tveir strákar, þrír möguleikar
mnBwumraMiMHMInB
iB>n WniSHnimMMK MnNjmHaBMC
TOH ixBa'i’r.XcugvKrl >«'sðMK biMHB iwcuiiKIX
imnlWlignuulMHIaUI~w
Stórskemmtileg gamanmynd með vafasömu ívafi með
LARA FLYNN BOYLE, STEPHEN BALDWIN og JOSH
CHARLES í aðalhlutverkum.
Stuart er hrifinn af Alex,
Alex þráir Eddy og Eddy
er ekki með kynhvatir sínar á alveg á hreinu.
„Galsafengin og lostafull, með kynlifá heilanum. Andrew
Fleming lætur allar óskir unga fólksins um kynlíf rætast á
hvíta tjaldinu og hrífur okkur með sér.
Samleikur þríeykisins er frábær."
David Ansen, NEWSWEEK
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11.
Bönnuð innan 12 ára.
STJÖRNUBÍÓLÍNAN SÍMI 991065
Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun.
Verðlaun: Boðsmiðar á myndir í Stjörnubíói og
67 12" pizzur m/þremur áleggjum á .
Verð kr. 39,90 mínútan.
5/*/671515
ÞAÐ GÆTI
HENT ÞIG
„IT COULD
HAPPEN
TO YOU“
Sýnd kl. 7 og 9.
ÞRÍR NINJAR SNÚA AFTUR
Sýnd kl. 3.
FLEIRI POTTORMAR
iíw
TALKING
™.
350 Kr.
gBVMóMBBMWá
Sýnd kl. 3.
Kr. 800 fyrir fullorðna.
Kr. 500 fyrir börn yngri en
12 ára. Sýnd kl. 5.
FLÓTTINN FRÁ
ABSALON
Sýnd kl. 11. B. i.16
Islenskt togararokk
ÓLAFUR Jóhann Ólafsson, forsfjóri Sony, afhendir Brynhildi
Þórinsdóttur, framkvæmdasljóra Stúdentaráðs, og Kjartani Erni
Ólafssyni, varaformanni Stúdentaráðs, tilkynningu um gjöf Sony.
Sony styrkir þjóðbókasafn
TÓNI.IST
Gcisladiskur
BJARNITRYGGVA
... SVO LENGI SEM ÞAÐ
ER GAMAN
... svo lengi sem það er gaman, breið-
skifa Bjama Tryggvasonar. Bjami,
sem semur öll lög og flesta texta,
syngur og leikur á gítar, en aðrir
hljóðfæraleikarar em fjölmargir,
þar á meðal Tómas Tómasson gítar-
leikari, Steinar Gunnarsson bassa-
leikari, Guðmundur Gunnarsson
trommuleikari, Sigurgeir Sigmunds-
son gítarleikari, Þorleifur Guðjóns-
son bassaleikari og Þorsteinn Magn-
ússon gítarleikari, aukinheldur sem
Rut Reginalds syngur eitt lag. Með
buxurnar á hælunum gefur út, Spor
dreifír. 57,23 mín., 1.999 kr.
LANGT er síðan Bjami Tryggva
sendi frá sér sólóskífu, en hann
hefur reyndar lagt sveitinni Súellen
lið með lagasmíðum á síðustu miss-
erum. Bjami hefur einnig verið ið-
inn við spilirí sem trúbadúr síðasta
árið eða svo, en plötuna sem hér
er gerð að umtalsefni tók hann upp
síðsumars.
Á áram áður fór það orð af
Bjarna Tryggvasyni að hann væri
Morgunblaðið/Ingibjörg
BJARNI Tryggvason farand-
söngvari og netagerðarmaður.
þunglyndur og sæi helst dekkri hlið-
ar mannlífsins, enda orti hann oft
um það sem aðrir létu kyrrt liggja.
Lög hans voru trúbardúrlegt rokk,
íslenskt togararokk, sem bar uppi
texta sem oft voru vel ortir; oft
grípandi lög og smellin. ... svo lengi
sem það er gaman er því nokkur
vonbrigði, því lögin eru mörg heldur
klénn samsetningur, þó á milli séu
ágætlega samin lög, eins og Kross-
inn, Feigðin, Mitt líf og Veiðivörður-
inn, sem hefðu getað myndað
kjarna betri plötu ef Zappa, Sæt,
Svo léngi sem það er gaman, 24
tímar í Varsjá, Sjóararaggie og
Brúðkaupsnóttin, hefðu fengið að
íjúka. í þessum lögi\m er þó margt
prýðilega gert og þannig á gítar-
leikarinn (Tómas Tómasson?) oft
góða spretti með groddalegum gítar
í Svo lengi sem það er gaman og
24 tímar í Varsjá.
Útgáfa á geisladisk sem þessum
kostar sitt, en leitt er til að vita
að ekki var tími eða fé til að láta
lesa próförk af textablaði, því þar
úir og grúir af klaufalegum staf-
setningarvillum. Textarnir em
reyndar klénn samsetningur af hót-
fyndni, tvíræðni og yfirborðs-
kenndri lífsspeki. Þeir textar sem
Bjarni virðist leggja meira í, eins
og til að mynda Feigðina og Kross-
inn, líða oft fyrir klúsað mál og
missa marks. Ef þetta er það sem
Bjarna Tryggvasyni liggur helst á
hjarta eftir sjö ára þögn, en ekki
gott að segja af hveiju hann finnur
hjá sér þörf að taka upp þráðinn.
Árni Matthíasson
ÞJÓÐARÁTAK Stúdenta fyrir
bættum bókakosti Þjóðarbók-
hlöðunnar fékk góðan styrk
þegar Sony Eiectronic Publis-
hing Company gaf sextíu ný-
tísku tölvugeisladiska til söfn-
unarinnar. Var það með milli-
göngu Ólafs Jóhanns Ólafsson-
ar, forsijóra fyrirtækisins. Um
er að ræða safn a.m.k. sextíu
tölvugeisladiska sem hafa að
geyma alfræðiefni auk fræði-
legs efnis í hinum ýmsu vísinda-
greinum. Mun gjöfin verða
hluti af svokallaðri nýsigagna-
deild, þar sem lögð verður
áhersla á slíka margmiðlunar-
tækni.
Nýjar hljómplötur
Konung-ur kúrekanna
Bandarísk sveitatónlist hefur jafnan notið hylli
hér á landi og nokkuð hefur verið um að íslensk-
ir tónlistarmenn hafi gefið út slíka tónlist. Þar fer
fremstur Hallbjörn Hjartarson, sem segir að á
plötuna Kántrý sjö, Það besta, sem kemur út í
dag, hafi fólkið í landinu valið lögin.
HALLBJÖRN Hjartarson hefur
verið kallaður konungur sveita-
söngvanna á Íslandi, enda hefur
hann sent frá sér sex breiðskífur
með bandarískri sveitatónlist, eða
kántrýtónlist eins og hann kallar
hana sjálfur. Fyrsta platan,
Kántrý eitt kom út 1981 og svo
hefur hver rekið aðra, sú síðasta,
Kántrý sex, í Nashville kom út
fyrir tveimur árum. Meðfram
> spilamennskunni hefur Hallbjörn
lengi rekið veitingastaðinn
Kántrýbæ á Skagaströnd, þar sem
hann hefur átt heima alla tíð, en
síðustu ár hefur hann einnig rekið
útvarpsstöðina Útvarp Kántrýbær
og sent út sveitatónlist, sína og
annarra, í bland við hugleiðingar
um lífíð og tilveruna um allt Húna-
flóasvæðið.
Hallbjörn segir að á plötunni,
Kántrý sjö, Það besta, séu 23 lög,
„allt það besta sem kúrekinn hefur
látið frá sér fara“. Hann segir að
lögin séu tekin og endurhljóðunnin
til að gefa sem bestan hljóm, en
þó hann hafi haft yfirumsjón með
lagavalinu hafi fólkið í landinu í
raun valið lögin. „Fyrir ári bað ég
fólk sem væri að hlusta á útvarpið
mitt að hringja inn og láta vita
hvaða lög það vildi helsí hafa á
safnplötu og fékk afskaplega góð
viðbrögð. Einnig hef ég tekið mið
af því hvaða lög fólk hefur helst
beðið um í gegnum árin, en það
hefur verið að hringja í tíma og
ótíma og þakka mér fyrir einhver
lög, eða biðja mig um að spila
þau. Því miður var ekki hægt að
koma meiru á diskinn, því tæknin
býður ekki upp á meira þó að fólk
hafí viljað meira. Ég lét því nokk-
ur lög mæta afgangi og þau verða
bara á besta númer tvö.“
Ekki segist Hallbjöm hafa viljað
láta ný lög fijóta með, eins og al-
gengt er með safnplötur. „Fólk er
búið að fá ást á þessum lögum og
mér fannst ekki rétt að vera að
blanda inn í þetta nýjum lögum.
Ég á aftur á móti nóg af þeim og
hef í hyggju að koma með eitthvað
nýtt fyrir mína aðdáendur á næsta
árí. Ég er voðalega bjartsýnn, ein-
um of bjartsýnn, því miður, en ég
stefni á að gefa jafnvel út tvo diska
á næsta ári, einn disk með nýjum
lögum og svo annan með gömium.“
Ekki út aftur í bráð
Að margra mati er besta plata
Hallbjarnar Kántrý sex, sem hann
tók upp í Mekka sveitatónlistar-
innar, Nashville, með bandarískum
tónlistarmönnum. Hann neitar því
ekki að sú plata hafi verið vel
heppnuð, en fímm lög af henni eru
á safndisknum, en ekki segist
hann ætla að taka næstu plötu
upp ytra, þó vissulega sé það mik-
il freisting í ljósi þess hvernig til
tókst, en það var einfaldlega svo
gríðarleg dýrt fyrirtæki. „Það
kostaði mig þijár milljónir og ég
tapaði einni milljón á plö_tunni,“
segir hann glaðbeittur. „Ég veít
ekki hvort ég leggi í slíkt ævin-
týri aftur, en þó það hafí kannski
ekki skilað sér í peningum á þeirri
stundu, má segja að ég sé búinn
að fá þetta til baka á svo margan
hátt, í auglýsingu og fleiru, þann-
ig að ég sé ekkert eftir þessari för
og þeim peningum sem ég tapaði.
Ég sá á eftir þeim fyrst, en núna
þegar ég lít til baka er ég vel sátt-
ur. Ég viðurkenni það þó fúslega
að ég myndi hugsa mig vel um
áður en ég fer út aftur,“ segir
hann kíminn.
Veitingamaður, útvarpsstjóri
og kántrýsöngvari
Hallbjöm Hjartarson er í mörgu;
hann er veitingamaður, útvarps-
stjóri og kántrýsöngvari. Hann seg-
ist kunna þessum hlutverkum vel,
það gangi furðanlega að láta þetta,
allt ganga samtímis. „Ég verð þó
að viðurkenna að í sumar varð
Kántrýbærinn svolítið útundan með
kúrekann, því hann var upptekinn
í útvarpinu, nánast allan sólar-
hringinn, þannig að fólk sem kom
í Kántrýbæ í sumar til að skoða
bæinn og til að sjá kúrekann, varð
að gera sér ferð upp í útvarp. Fólk
vill sjá mig á staðnum, enda er
staðurinn, Kántrýbærinn, bara
Hallbjörn Hjartarson."
Hallbjörn vill í fyrstu ekki gera
upp á milli laganna á Kántrý sjö,
Það besta, segist þykja vænt um
þau öll, en eftir smá umhugsun
segist hann halda upp á lagið
Hallbjörn Freyr, „hann er mitt ljós
í gegnum lífið, það er hann sem
gaf mér kraftinn á nýjan leik,
ásamt mínum skapara", segir
hann að lokum.