Morgunblaðið - 16.12.1994, Síða 8

Morgunblaðið - 16.12.1994, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Mörður Árnason lýsir yfir stuðningi við Þjóðvaka Hreyfing sem rúm- ar ólíkar skoðanir Það er ekki plássleysið, Mörður minn, bara að ég fari ekki að roðna við að fá svona rauðliða undir pilsið, góði ... Breyttar skattreglur um húsaleigutekjur Tekjur yfir 375 þús. skattlagðar að fullu Greiða þarf skatt af 20% húsaleigutekna undir 375 þús. kr. samkvæmt frumvarpi sem fjár- málaráðherra hefur lagt fram til að standa við fyrirheit ríkisstjórnar í tengslum við upptöku húsaleigubóta um að leigutekjur að vissu marki yrðu skattfrjálsar. Dæmi um útreikning an oooooo skattskyldra húsaleigutekna ^*-1000 skv. nýju frumvarpi r 800 20 þús. kr. skattskyldar af 100 þús. kr. leigutekjum GREIÐA þarf tekjuskatt af 20% húsaleigutekna af íbúðarhúsnæði upp að 375 þúsund krónum á ári, en tekjur þar yfir eru að fullu skattskyldar, samkvæmt frumvarpi um breytingu á tekju- og eignarskattslögum sem fjár- málaráðherra mælti fyrir á Alþingi í gær. Ríkisstjómin gaf fyrirheit um það í vor, þegar húsaleigubætur voru lögteknar, að lagt yrði fram frumvarp í vetur um skattfrelsi allt að 300 þúsund krónum af ár- legum leigutekjum af íbúðarhús- næði, til að koma í veg fyrir að húsaleiga hækkaði. Samkvæmt útfærslu fjármála- ráðuneytisins má draga 80% frá húsaleigutekjum. Það þýðir t.d. að af hverjum 100 þúsund krónum sem húseigandi fær í leigu má hann draga 80 þúsund krónur frá og afgangurinn, 20 þúsund krón- ur, er skattskyldar tekjur. Þessi frádráttur má þó að hámarki vera 25 þúsund krónur fyrir hvern mánuð sem húsnæði er í leigu, eða 300 þúsund krónur á ári, og því marki er náð við 375 þúsund króna tekjur. Fái húseigandi þannig 400 þúsund krónur í leigutekjur á ári, væri reiknaður 80% frádráttur á 320 þúsund krónur, en þar sem aðeins má draga 300 þúsund krón- ur frá tekjunum væru skattskyldar tekjur 100 þúsund krónur. Friðrik Sophusson fjármálaráð- herra sagði að í frumvarpinu væri sú upphæð, sem draga mætti frá tekjum, sú sama og upphaflega hefði verið gert ráð fyrir. Við út- færsluna hefði áðumefnd leið hins vegar valin til að koma í veg fyrir að gerðir yrðu gervileigusamning- ar. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er einkum talin hætta á að slíkt gæti gerst í tengsl- um við námslán úr Lánasjóði ís- lenskra námsmanna en þar fá námsmenn hærri lán ef þeir þurfa að greiða húsaleigu. Þrjár leiðir 80% frádrátturinn kemur í stað- inn fyrir annan frádrátt sem hús- eigandi gæti haft vegna leigunn- ar, svo sem viðhaldskostnað. Hins vegar geta húseigendur valið að telja fram raunverulegan kostnað á móti húsaleigu í stað 80% regl- unnar. Þriðji möguleikinn er fyrir hendi, ef leigusali þarf sjálfur að leigja íbúð í öðru byggðarlagi, t.d. vegna vinnu eða náms. Þá getur hann dregið þá upphæð sem hann greiðir í leigu frá leigutekjum sín- um. Samkvæmt upplýsingum fjár- málaráðuneytisins er talið að í flestum tilfellum ætti 80% reglan að vera hagstæðust fyrir ieigusala. Mikil vanhöld eru talin vera á því að húseigendur gefi upp leigu- tekjur. Samkvæmt skattfram- tölum ársins 1993 töldu um 4.000 manns fram, samtals um 615 millj- óna leigutekjur eða 150 þúsund að meðaltali á ári. Talið er að um 450 milljónir af þessari upphæð séu vegna útleigu á íbúðarhús- næði. Miðað við óbreytt framtöl skerðast tekjur ríkisins um 130-140 milljónir á ári við þessar breytingar auk þess sem útsvar sveitarfélaga lækkar um 40 millj- ónir. Heilbrigðistækni Or framþróun lækningatækni Dr. Þórður Helgason ÐLISFRÆÐI- og tæknideild Land- spítalans er nú 25 ára. Deildin skiptist í raf- eindadeild, ljósmyndadeild, verkfræðideild og klíniska eðlisfræðideiid. Starfs- menn eru 23 og veltan um 60 milljónir á ári. Dr. Þórð- ur Helgason forstöðumað- ur er sérfræðingur í heil- brigðistækni, en hún lýtur að lækningum og heilsu- gæslu. Hvert er verksvið eðlis- fræði- og tæknideildar Landspítalans? „Það er alhliða heil- brigðistækniþjónusta fyrir Ríkisspítalana. Það eru um 3.700 tæki á Ríkisspítölun- um, en langmest af starf- semi okkar er á Landspít- alalóðinni. Rafeindadeildin er iangstærst og hennar verksvið er viðhald, við- gerðir og eftirlit með lækninga- tækjum. Einnig að kenna á tækin og í tilvikum aðstoð við notkun þeirra." Á ljósmyndadeild vinna tveir starfsmenn við klíniska ljósmynd- un, taka myndir af uppskurðum, húðsjúkdómum, krufningum og myndir fyrir kennsluefni. Verkfræðideildin hefur tvö og hálft stöðugiidi. Hún annast útboð og skoðun tiiboða í lækningatæki, aðstoðar við uppsetningu, sér um gæðaeftirlit og stundar rannsóknir og þróun á búnaði. Hún hefur líka samræmt þróunarstarf fleiri stofn- ana og skilgreinir hvað tæki eiga að geta og gera.“ Og hvað hafið þið þróað? „Við þróuðum til dæmis síma- röntgensamband milli Sjúkrahúss- ins í Vestmannaeyjum og Land- spítalans sem gerir sérfræðingum hér kleift að aðstoða læknana þar. Heilbrigðisráðuneytið hefur ákveð- ið að fimm spítalar úti á landi fái svona tækjabúnað á næsta ári. Eins höfum við þróað svefnrann- sóknatæki fyrir lungnadeild Vífils- staðaspítala. Það mælir hve vel fólk sefur og ef fólk á bágt með svefn eru niðurstöðurnar leiðbein- andi fyrir meðferð." Hvað gerir fjórða deildin? „Klíniska eðlisfræðin fæst við sérhæfðar lífeðlisfræðilegar mæl- ingar, fyrst og fremst æðarann- sóknir. Með því að senda hljóð- bylgju inn í æð má ráða af tíðni- viki endurvarps bylgjunnar hver hraði blóðsins er í æðinni. Það er hægt að mæla streymið hvar sem er í þvermáli æðarinnar. Svona getum við mælt streymi í æðum sem eru inni í höfuðkúpunni." Hvað um kóbalttækið umtalaða, er orðið varasamt að nota það? „Það er ekki varasamt nú, þótt svo geti orðið. Hins vegar er ekki lengur forsvaranlegt að byggja meðferð á notkun þess og ekki lengur hægt að tryggja gæði meðferðar í því. Sjúklingamir eiga að geta fengið sína með- ferð hnökralaust. Tækið er orðið 25 ára og löngu búið að gegna sínu hlut- verki. Geisiahleðslan er orðin göm- ul og hætt að framleiða í það vara- hluti. Það borgar sig ekki að kaupa nýja hleðslu. Það skynsamlegasta er að fá lítinn línuhraðal í staðinn." Mun þín deild þá gera útboðslýs- ingu fyrir nýtt tæki? „Eðlisfræðingarnir á krabba- meinsdeildinni og verkfræðingur frá okkur eru búnir að gera útboðs- lýsingu. Það er ekki búið að fá heimild til að bjóða tækið út, en þegar það gerist munu sömu aðilar skoða tilboð sem berast." ► DR. ÞÓRÐUR Helgason raf- magnsverkfræðingur fæddist í Kaupmannahöfn 16. júní 1958. Hann lauk stúdentsprófi frá Flensborg í Hafnarfirði 1978, BS-prófi í rafmagnsverkfræði frá Háskóia íslands 1982, Dipl.- Ing.-prófi frá Háskólanum í Karlsruhe, Þýskalandi 1985 og Dr.-Ing.-gráðu frá sama skóla 1990. Hann sérhæfði sig í heil- brigðistækni (Biomedizinische Technik). Hann starfaði sem aðstoðarmaður prófessors við Háskólann í Karlsruhe 1986-90. Hann varð forstöðumaður eðlis- fræði- og tæknideildar Land- spitalans 1990. Hvað er að gerast í heilbrigðis- tækni? „Þar er gífurlega hröð þróun. Það verður margt í boði fyrir stofn- un eins og Landspítalann og sjálf- sagt verða menn að velja úr. Þessi tækni er allt frá því að vera örvélar (micro), vélræn tæki sem eru búin til á svipaðan hátt og hálfleiðararásir. Það er með ætingu kísils og annarra efna. Þessar örvélar geta verið á stærð við títupijónshaus. Þær verður hægt að senda inn í líkamann og fjarstýra þeim utan frá. Tilrauna- smíði er hafin á slíkum vélum. Svo er verið að þróa athyglis- verðan rauntíma myndgerðarbún- að þar sem við getum skoðað hreyfingar inni í líkamanum án þess að opna hann. Þetta byggist á sömu lögmálum og segulómtæki og gerir okkur kleift til dæmis að horfa á hjartað slá, eða hvaða sneið af því sem er. Þetta er einnig hagnýtt við framkvæmd „skópíu“-aðgerða, þegar innvortis aðgerðir eru gerðar utan frá. Þá getum við fylgst bet- ur með verkfærunum. Með aukinni tækni verður mögulegt að gera æ fleiri aðgerðir á þennan hátt og víðar í líkaman- um en nú. Þessi tækni kemur bæði sjúkling- um og heilsugæslunni til góða. Aðgerðirnar taka styttri tíma, það eru minni eftirköst og styttri legutími. Nú er verið að gera tiiraunir með höggbylgjutækni, sem til dæmis hefur verið beitt gegn nýrnasteinum, við krabbameins- lækningar. Sú tækni á eftir að slíp- ast og verða betri í framtíðinni." Er Landspítalinn að kaupa ein- hver tækniundur? „Ég held að línuhraðall verði næsta stóra fjárfestingin. Það þarf líka ný hjartaþræðingartæki í stað þeirra sem eru að verða 10 ára.“ Það eru 3.700 tæki á Rík- isspítölunum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.