Morgunblaðið - 16.12.1994, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. DESEMBER 1994 9
FRÉTTIR
Ekki endanlegt samkomulag um skiptingu kostnaðar vegna EFTA
Líklegt að útgjöld
Islands aukist verulega
EKKI náðist endanlegt samkomulag milli ríkjanna sem enn eru í EFTA um
skiptingu kostnaðar við starfsemi EFTA á ráðherrafundi samtakanna í Genf.
Vinnuhópi embættismanna var falið að ganga frá samkomulagi fyir ára-
mót. Líklegt er að kostnaður íslands af samstarfinu aukist verulega.
Peningum
og tékkheft-
um stolið
BROTIST var inn í fyrirtæki
við Austurgötu í fyrrinótt. Það-
an var stolið 100 þúsund krón-
um og tíu tékkheftum.
Lögreglunni var einnig til-
kynnt um innbrot í Iðnskólann
í Reykjavík. Einn maður var
handtekinn á staðnum en þá
hafði honum tekist að valda
spjöllum í mötuneyti skólans.
Brotist var inn í mótorbátinn
Aðalbjörgu í Daníelsslipp. Hurð
var brotin upp og myndbands-
tæki stolið. Síðar var lögregla
látin vita að myndbandstækið
hefði fundist undir bátnum.
Hnupl eykst í
desember
LÖGREGLUNNI í Reykjavík
var á miðvikudag tilkynnt um
hnupl í tveimur verslunum. Að
sögn lögreglu er desember sá
mánuður sem oftast er tilkynnt
um hnupl.
Eldri maður, sem reyndi að
koma hamborgarhrygg undan,
var gripinn í verslun í Vestur-
bænum. Þá voru tveif piltar
gripnir í verslun í Skeifunni en
þeir voru að reyna að koma 16
geisladiskum undan.
Kvartað var á miðvikudag til
lögreglu yfir tveimur mönnum
sem hafa verið á ferð í Breið-
holti síðustu daga að bjóða
bækur til sölu. Lögreglan vill
koma því á framfæri að til þess
' að geta boðið slíka þjónustu
þurfi leyfi sýslumanns.
Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra segir að samkomulag ís-
lendinga og Norðmanna um breyt-
ingar á stofnunum EFTA geri ráð
fyrir að starfsmönnum Eftirlitsstofn-
unar EFTA verði fækkað úr 120 í
u.þ.b. 45. Jón Baldvin tók skýrt fram
í samtali við Morgunblaðið að hlut-
verk Eftirlitsstofnunarinnar og
EFTA-dómstólsins myndi ekki breyt-
ast þrátt fyrir breyttar aðstæður.
Ágreiningur um skiptingu
kostnaðar
Jón Baldvin sagði að stefnt væri
að því að ráðherrar EFTA-landanna
gengju frá endanlegu samkomulagi
um skiptingu kostnaðar vegna breyt-
inga á EFTA eigi síðar en 15. janúar.
„Meðal þess sem verið er að tak-
ast á um er eftirfarandi. Eiga aðal-
stöðvar EFTA að vera áfram í Genf
eins og Svisslendingar vilja? Þegar
litið er á hin praktísku verkefni er
ljóst að meginþungi verkanna verður
í Brussel við að fylgja eftir fram-
kvæmd EES-samningsins. Við höf-
um metið það svo að það þurfi a.m.k.
40-45 manns til að fylgja eftir EES-
samningnum í Brussel. í Genf er í
raun ekki þörf fyrir annað en að
halda uppi lágmarkssamráði um
framkvæmd samninga við þriðju ríki,
þ.e.a.s. um fríverslunarsamninga.
Uppi eru tvær hugmyndir, annars
vegar að það verði gert tvíhliða af
hálfu fastafulltrúa hvers lands eða
það verði lágmarks starfsmanna-
fjöldi á vegum EFTA, en miklu mun
fámennari en þar er nú,“ sagði Jón
Baldvin.
EFTA-löndin hafa hingað til skipt
kostnaði við samstarfið með því að
miða við meðaltal þjóðartekna á
mann síðustu þtjú ár. Jón Baldvin
sagði að Svisslendingar hefðu óskað
eftir því að fá áheyrnarfulltrúa í sam-
starfinu um EES. Hann sagði sam-
komulag um að þeir greiddu eitthvað
fyrir áheyrnaraðild. „Þetta er flókið
reikningsdæmi sem okkur vannst
ekki tíma til að klára algerlega og
því var ákveðið að fela vinnuhópi að
ljúka málinu. Hópurinn á að leggja
mat á þörf fyrir lágmarks starfs-
mannafjölda, skiptingu starfsmanna
milli Brussel og Genfar og um skipt-
ingu kostnaðar milli landanna."
Aukinn kostnaður íslands
Jón Baldvin sagði að það lægi al-
veg fyrir að ísland yrði að taka á
sig aukin útgjöld þegar Austurríki,
Finnland og Svíþjóð færu úr EFTA.
„Það má einnig gera ráð fyrir að
þetta verði kostnaðarsamara fyrir
íslenska stjórnkerfið vegna þess að
ráðuneyti íslenska stjórnkerfisins
verða í vaxandi mæli að hafa sína
fulltrúa á staðnum,“ sagði ráðherr-
ann.
Að sögn Jóns Baldvins kom fram
óánægja á fundinum með það hvern-
ig staðið hafi verið að undirbúningi
ákvarðana um ný lög og reglur á
vegum EES í heild, en samkvæmt
EES-samningnum hafa EFTA-þjóð-
irnar rétt til að fylgjast með undir-
búningi nýrrar löggjafar Evrópusam-
bandsins.
„Ýmsir telja að þetta hafi ekki
verið í nógu góðu formi. Þetta felur
í sér að við þurfum þá að vera með
fulltrúa í miklum fjölda nefnda þar
sem má' eru til umfjöliunar á undir-
búningsstigi. Ef við viljum ganga
eftir þessum rétti þýðir þetta veru-
legan mannafla og kostnað," sagði
Jón Baldvin. Hann sagði að þetta
mál yrði rætt nánar á fundi ráðherra-
ráðs EES 20. desember.
Aðild Slóveníu hugsanleg í
framtíðinni
Á fundinum var ákveðið að bjóða
Slóveníu til samningaviðræðna um
gerð fríverslunarsamnings við EFTA
af sama tagi og það hefur áður gert
við önnur ríki Mið- og Austur-Evr-
ópu. Jón Baldvin sagði að þetta
gæti falið í sér fyrsta skrefið í nán-
ari tengslum Slóveníu við EFTA. í
samningaviðræðum kæmi í ljós við
hvaða vandamál væri að fást og ef
áhugi væri fyrir hendi væri hægt að
auka samstarfið eða jafnvel að veita
Slóveníu beina aðild að EFTA.
VAN
ÐAR JÖLAGJAFIR
Frön^k náttföt
Á HAGSTÆÐU VERÐI
B p ..G N E R
sérv#síun ffóðinstorg, sími 25177
SlMl 9 1 - 8 8 4 64 6 ■ F A X 9 1 - 8 8 7 34 3
Fallegu ítölsku prjónavörumar
frá GISPA eru komnar
Opið laugardagfrá kl. 10-22 - sunnudag kl. 13-17
Hverftsgötu 78, s/m/ 28980.
CÍSLENSKA ÓPERAN
_nili
frumsýnd í febrúar.
Munið gjafakortin og „Mozart“slæðurnar.
Tilvalin jólagjöf.
Pantanir í síma 27033.
Nýkomnar barnakápur
frá 1 árs
Mikib úrval af náttfötum
frá kr. 1.390
DNVIIVIA L. UVUV!
Bankastræti 4 Skólavörðustíg 10_
Fólk er alltaf
að vinna
íGullnámunni:
62 milljónir
Vikuna 8. til 14. desember voru
samtals 62.516.582 kr. greiddar út
í happdrættisvélum um allt land.
Þetta voru bæöi veglegir Silfurpottar og
fjöldinn allur af öörum vinningum.
Silfurpottar í vikunni:
Dags. Staöur: Upphæö kr.:
9. des. Háspenna, Laugavegi.. 232.295
11. des. Háspenna, Laugavegi. 255.792
12. des. Mónakó.............. 143.802
12. des. Glaumbar............. 64.364
13. des. Háspenna, Hafnarstræti. 86.850
13. des. Rauöa Ijóniö......... 77.379
Staða Gullpottsins 15. desember, kl. 12:00
var 5.040.050 krónur.
Silfurpottarnir byrja alltaf í 50.000 kr. og Gullpottarnir í 2.000.000 kr.
og hækka síöan jafnt og þétt þar til þeir detta.